19. júní


19. júní - 19.06.2018, Blaðsíða 113

19. júní - 19.06.2018, Blaðsíða 113
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 111 kvenfrelsis og kvenréttinda og afhjúpað það landlæga ofbeldi og þá áreitni sem konur á Íslandi hefðu þurft og þyrftu að sætta sig við á opinberum vettvangi. 19. desember kærði Kvenréttindafélag Íslands Alþingi til kærunefndar jafnréttismála vegna brots á jafnréttislögum við skipan í fjárlaganefnd. Í vikunni á undan höfðu átta karlar og ein kona tekið sæti í nefndinni. 29. desember 2017 var málinu vísað frá nefndinni sem sagði kæruna vera lagða fram af félagasamtökum án þess að um væri að ræða mál tiltekins aðila sem hefði einstaklingsbundna og lögvarða hagsmuni af úrlausn þess eða að samtökin hefðu sýnt fram á fyrirsvar fyrir þá hagsmuni sem um ræddi (Kærunefnd jafnréttismála, nr. 12/2017). Nefndir og ráð Kvenréttindafélag Íslands á fulltrúa í ýmsum nefndum og ráðum. Árið 2017 sat Fríða Rós Valdimarsdóttir í stjórn Kvennaheimilisins Hallveigarstaða, í Jafnréttisráði og í Fræðslusamtökum um kynlíf og barneignir. Stjórnin öll er fulltrúi félagsins í International Alliance of Women (IAW), Feministiskt Nätverk Norden og Almannaheill – regnhlífarsamtökum frjálsra félagasamtaka og séreignarstofnana í almannaþágu. Hugrún R. Hjaltadóttir og Helga Dögg Björgvinsdóttir voru fulltrúar stjórnar Kvenréttindafélagsins í stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir var fulltrúi félagsins hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands og Skottunum. Steinunn Stefánsdóttir var fulltrúi félagsins í Landvernd. Lára Axelsdóttir var fulltrúi félagsins í Mæðrastyrksnefnd. MeNNINgAR- Og MINNINgARSJóÐUR KVeNNA Formaður Menningar- og minningarsjóðs kvenna 2017 er Hugrún R. Hjaltadóttir sem einnig er fulltrúi Kvenréttindafélags Íslands. Aðrar í stjórn sjóðsins eru Edythe Mangindin, Kolbrún Garðarsdóttir, Magnea Þ. Ingvarsdóttir og Lára Aðalsteinsdóttir. Varamenn eru Ásbjörg Una Björnsdóttir, Ásta Jóhannsdóttir, Halldóra Traustadóttir og Helga Dögg Björgvinsdóttir (fulltrúi Kvenréttindafélags Íslands) og Sonja Ýr Þorbergsdóttir. Sjóðurinn veitti ekki styrk árið 2017. JAFNRéTTISRÁÐ Kvenréttindafélagið deilir tveimur sætum í Jafnréttisráði með Kvenfélagasambandi Íslands og Femínistafélagi Íslands. Árið 2017 sótti Fríða Rós Valdimarsdóttir fundina fyrir hönd félagsins en varamaður allra félaganna þriggja er framkvæmdastýra félagsins, Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir. Erlent samstarf 2017 IAW – International Alliance of Women Kvenréttindafélag Íslands hefur átt aðild að IAW – International Alliance of Women frá stofnun félagsins 1907. Árið 2014 gerði Kvenréttindafélag Íslands átak í að styrkja þessi fornu tengsl og gera starf IAW sýnilegra hér á landi. IAW gefur út fréttabréf á tveggja mánaða fresti sem er nú einnig birt á heimasíðu Kvenréttindafélags Íslands, bæði á íslenskri útgáfu síðunnar og enskri útgáfu hennar. Feministiskt Nätverk Norden Kvenréttindafélag Íslands á aðild að Feministiskt Nätverk Norden, samráðsvettvangi sem stofnaður var í kjölfar jafnréttisráðstefnunnar Nordiskt Forum 2014. Aðrir aðilar eru Kvenfélagasamband Íslands, Sveriges Kvinnolobby (Svíþjóð), Fokus og Krisesentersekretariat (Noregi), Kvinderådet (Danmörku) og Nytkis (Finnlandi). cSW – Fundur Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna Fulltrúar Kvenréttindafélags Íslands sóttu fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna 13.–24. mars 2017 og var ferðin styrkt af velferðarráðuneytinu. Dagný Ósk Aradóttir Pind og Fríða Rós Valdimarsdóttir sóttu fundinn fyrir hönd Kvenréttindafélagsins. Fulltrúar KRFÍ voru hluti af sendinefnd Íslands en auk þeirra voru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.