Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 31
Fljótlega eftir að ég
byrjaði að nota
Smoother Skin & Hair frá
Eylíf fór ég að finna mun
og mér finnst hárið á
mér verða heilbrigðara
með hverjum deginum
sem líður.
Ragnhildur Sigurðardóttir
golfkennari segist hafa
kynnst Smoother Skin
& Hair frá Eylíf í gegnum
vinkonu sína, en hún hafði
þjáðst af hárlosi og líf-
lausu hári. Hún segist finna
mikinn mun á sér.
Ragnhildur er þessa dagana að
undirbúa vetrarnámskeið sem hefj-
ast í janúar. „Ég kenni í golfhermum
GKG í vetur og skráningar eru í
fullum gangi. Á þessum árstíma er
oft rólegra í golfkennslunni en eftir
að kylfingarnir fóru að átta sig á því
hvað golfhermarnir hafa upp á að
bjóða hefur ásóknin í þá aukist til
mikilla muna. Vetrarnámskeið sem
byrja oft í kringum áramót eru hins
vegar mjög vinsæl og margir mæta
árlega í þau til þess að vera klárir
með fínu hreyfingarnar sínar fyrir
vorið,“ segir hún.
Ragnhildur segist hafa kynnst
Smoother Skin & Hair frá Eylíf í
gegnum vinkonu sína, Mjöll Daní-
elsdóttur hárgreiðslukonu. „Hún
ber ábyrgð á hárinu á mér. Henni
leist ekki á blikuna þegar hún sá
hvernig hárið á mér var orðið en ég
var þá búin að vera á lágkolvetna/
ketó mataræði í töluverðan tíma.
Á ketó mataræði er manni ráðlagt
að halda sig frá ávöxtum vegna
ávaxtasykursins og ég gætti ekki
að því að passa upp á vítamín-
búskap líkamans,“ upplýsir Ragn-
hildur og bætir við:
„Hárið á mér var orðið stamt,
erfitt að greiða það og það var
mikið hárlos. Fljótlega eftir að ég
byrjaði að nota Smoother Skin &
Hair frá Eylíf fór ég að finna mun
og mér finnst hárið á mér verða
heilbrigðara og heilbrigðara með
hverjum deginum sem líður. Nú er
ég búin að vera að taka það inn í
um það bil fjóra mánuði.
Ég mun halda áfram að fylgja
ketó/lágkolvetna mataræðinu
því ég fann mikinn mun á líðan
og heilsu eftir að ég byrjaði á því,
fyrir utan ástandið á hárinu á mér.
Ég er ekki frá því að ég finni mun
á húðinni, en munur á liðum og
meltingu var svo mikill eftir að ég
byrjaði á ketó að ég get ekki alveg
sagt með vissu um áhrif Smoother
Skin & Hair frá Eylíf á þá þætti,“
segir hún.
„Íslensk bætiefni eru ofarlega á
vinsældalistanum mínum enda
er uppruni innihaldsefna yfirleitt
fyrsta flokks. Í leiðinni er ekki
ónýtt að geta stutt við og styrkt
íslenskt hugvit og framtakssemi
okkar hæfasta fólks. Heilsan okkar
er mikilvæg og án hennar erum við
fátækari sama hversu rík við erum
á veraldlegum mælikvarða. Vilji
maður ná árangri í íþróttum, leik og
starfi er mikilvægt að huga að því
sem okkur er nauðsynlegt til þess
að líkaminn virki. Hraðinn á okkur
er oft svo mikill að við gefum okkur
ekki tíma til þess að gæta þess að
líkaminn fái öll þau næringarefni
og bætiefni sem hann þarf og þá er
stórkostlegt að geta leitað til snill-
inganna sem sjá um að safna þeim
saman fyrir okkur í litlar meðfæri-
legar krukkur,“ segir Ragnhildur.
Smoother Skin & Hair frá Eylíf
inniheldur:
n Kollagen smáþörunga (Astax
anthin)
n GeoSilica
n Vítamín A, B2, B6, C, D3
n Bíótín
n Níasín
n Kopar
n Zink
n Joð
n Selen
Heilsan er dýrmætust
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar
frábærar heilsuvörur sem reynst
hafa fólki vel. Þær eru Active Joints,
Stronger Bones, Smoother Skin &
Hair og nýjasta varan Happier
Guts. Vörurnar eru framleiddar
á Íslandi úr hreinum, íslenskum
hráefnum og engum aukefnum er
bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir er
stofnandi Eylíf.
„Hugmyndin að vörulínunni
kom til vegna þess að mig langaði
að setja saman þau frábæru hrá-
efni sem framleidd eru á Íslandi
á sjálfbæran hátt úr íslenskum,
náttúrulegum auðlindum og auka
þannig aðgengi fólks að þessum
hráefnum,“ upplýsir Ólöf. Fram-
leiðslan fer fram á Grenivík og
þróun varanna er í samstarfi við
sérfræðinga frá Matís.
„Vinsælasta varan okkar er
Active Joints sem inniheldur
fjögur íslensk næringarefni og
sýna margra ára rannsóknir fram
á jákvæð áhrif þeirra,“ segir Ólöf
Rún. „Við vöndum til verka, sækj-
um í sjálfbærar auðlindir úr sjó og
af landi, og notum hreina, íslenska
náttúruafurð og hrein hráefni sem
eru framleidd af viðurkenndum
íslenskum framleiðendum.“
Hráefni sem notuð eru í bæti-
efnin frá Eylíf eru ekki erfða-
breytt. „Þau stuðla að heilbrigði
og sveigjanlegri líkama því þá
erum við færari um að takast á við
verkefnin í dagsins önn. Heilsan
er dýrmæt og mikilvægt að gæta
vel að henni. Heilbrigð melting er
grunnur að góðri heilsu og þess
vegna vildum við hjá Eylíf bjóða
upp á hágæðavöru fyrir melting-
una,“ segir Ólöf Rún. n
Eylíf vörurnar fást í öllum apótek
um, Fjarðarkaupum, Hagkaupum,
Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni
og Melabúðinni. Ókeypis heims
ending ef keypt er á eylif.is.
Fæðubótarefni koma ekki í stað
inn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki
ætlað börnum eða barnshafandi
konum. Ekki er ráðlagt að taka
meira en ráðlagður dagskammtur
segir til um. Geymist þar sem börn
ná ekki til.
Hárið heilbrigðara og hárlosið minnkaði
Ragnhildur
Sigurðardóttir
golfkona segist
ekki hafa gætt
að vítamín
búskap sínum
á ketófæði
og hárið hafi
orðið stamt og
hárlos töluvert.
Hún þakkar
Smoother Skin
& Hair að hárið
er orðið miklu
þéttara og
betra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Bætiefnalínan frá Eylíf samanstendur af fjórum heilsuvörum. Þær eru Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin &
Hair og Happier Guts. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi úr hreinum, íslenskum hráefnum.
Líður undurvel á líkama og sál
Ólafía Ingólfsdóttir var á leið
í hnjáskiptaaðgerð þegar
hún komst á snoðir um bæti
efnið Active Joints frá Eylíf. Á
örskömmum tíma var hún farin
að hreyfa sig sem aldrei fyrr.
Ólafía starfaði sem rekstrarstjóri
á N1 á Hvolsvelli. „Ég vann langar
vaktir, var mikið á ferðinni og var
orðin svo slæm í hnénu að ég tók
stundum hátt í tíu verkjatöflur á
dag og svaf mjög slitrótt vegna
verkja,“ útskýrir Ólafía.
Það var svo í fyrrasumar sem
Ólafía var á leið í hnjáliðaskipti
að hún sá auglýsingu um Active
Joints frá Eylíf. „Ég hugsaði með
mér að ég hefði engu að tapa og
ákvað að prófa að taka það inn.
Árangurinn lét ekki á sér standa,
hann kom fram innan þriggja
vikna og í september var ég
farin að sofa betur og orðin það
góð að ég þurfti ekki lengur að
taka verkjatöflur dagana langa,“
upplýsir Ólafía, alsæl með góðan
árangur Active Joints á heilsu
sína.
„Ég finn líka mikinn mun
á meltingunni og mér líður
almennt mikið betur líkamlega
og andlega. Núna fer ég í jóga
og get gert allar æfingar sem ég
gat aldrei áður gert. Mér finnst
orðið svo auðvelt að hreyfa mig
og núna get ég gengið um allt án
vandræða, sem ég gat ekki áður,“
segir Ólafía.
„Svo er gaman að segja frá því
að í kringum mig eru tíu manns
sem eru einnig að taka inn Active
Joints og finna sömuleiðis
mikinn mun á sér líkamlega til
hins betra.“
Lífið nú annað og betra en áður
„Ég mæli eindregið með Happ
ier Guts frá Eylíf því það hefur
reynst mér mjög vel,“ segir Þór
dís S. Hannesdóttir, sem hefur af
því frábæra reynslu. „Ég var svo
heppin að kynnast Happier Guts
eftir ábendingu um að bætiefnið
virkaði vel fyrir meltinguna.
Ég hef alltaf verið með lata
þarmastarfsemi og prófað ýmis
legt í gegnum tíðina til að laga
meltinguna, en var hreinlega
hætt að gera mér vonir um betri
líðan því ekkert kom að gagni. Ég
var því farin að sætta mig við að
vera bara svona og lítið við því
að gera,“ segir Þórdís sem hafði
verið í langri hvíld frá bætiefnum
þegar hún ákvað að prófa Happ
ier Guts.
„Ég sé svo sannarlega ekki
eftir því, því eftir aðeins tveggja
mánaða notkun á Happier Guts
fann ég gríðarlegan mun á mér
og lífið varð allt annað og betra
en áður. Óþægindi frá meltingar
vegi hurfu og þarmastarfsemin
er komin í gott lag. Ég fann líka
hvernig almenn líðan varð mjög
góð, bæði andleg og líkamleg,
og mér líður svo miklum mun
betur.“
Þórdís mælir eindregið með
Happier Guts fyrir alla sem
eiga við meltingaróþægindi að
stríða. „Ég mun svo sannarlega
halda áfram að taka inn þetta
frábæra bætiefni sem er unnið
úr íslenskum gæðahráefnum og
framleitt hér á Íslandi. Það hefur
hjálpað mér mjög mikið.“
Þórdís S.
Hannesdóttir
Ólafía
Ingólfsdóttir
kynningarblað 9FIMMTUDAGUR 30. desember 2021 HEILSA