Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 36
„Flúor er frumefni en vísindamenn
tala yfirleitt um flúoríð því það
fyrirfinnst einungis í efnasam-
böndum með öðrum frumeindum.
Það er helsta virka efnið gegn
tannskemmdum og getur gert við
byrjun á tannskemmdum,“ segir
Þóra Margrét Jónsdóttir, sölu-
og markaðsfulltrúi sérvara hjá
Alvogen.
Þóra upplýsir að flúor sé í loftinu
sem við öndum að okkur og sömu-
leiðis í matnum sem við borðum.
„En það er ekki nóg. Það er
mikilvægt að tennur okkar fái
rétt magn af flúori og einmitt
þess vegna er því bætt við flest
tannkrem og munnskol. Þess
má geta að hér á landi er flúor í
drykkjarvatni í algjöru lágmarki
en í mörgum öðrum löndum er
drykkjarvatn flúorbætt.“
Flúor vinnur á bakteríum
Matarleifar og bakteríur í munni
mynda tannsýklu (skán) sem sest
utan á tennur og ræðst á gler-
unginn.
„Ef árás tannsýklu varir oft og of
lengi geta tannskemmdir byrjað að
myndast, en með daglegri notkun
flúors styrkjast tennurnar og
erfiðara verður fyrir bakteríurnar
að skemma þær,“ greinir Þóra Mar-
grét frá.
Flestar munn- og tannvörur
innihalda flúor og því er auðvelt
að koma notkun þess inn í daglega
rútínu.
„Til viðbótar við flúortannkrem
ætti alltaf að nota flúormunnskol,
en ekki endilega strax á eftir tann-
burstun því þá er búið að flúorbera
tennurnar. Í staðinn er gott að nota
munnskol á eftir mat, til dæmis um
miðjan dag. Það sem við borðum
og drekkum skerðir áhrif f lúors og
því er mikilvægt að bæta flúor-
skolun við daglega rútínu. Magn
flúors sem er nauðsynlegt til að
vernda tennur okkar fer eftir aldri,
hversu viðkvæmar tennur okkar
eru og hvort við séum gjörn á að fá
tannskemmdir,“ segir Þóra.
Gott er að taka fram að flúor
getur verið skaðlegt, en einungis
þegar því er kyngt í of miklu
magni.
„Flúor í magni sem mælt er með
til tannhirðu er skaðlaust en mjög
gagnlegt og nauðsynlegt fyrir
heilbrigðar tennur. Ástæða þess að
barnatannkrem og barnamunn-
skol innihalda minna magn af
flúori er sú að börn eru líklegri til
að gleypa flúor. Því er mikilvægt
að fylgja vel ráðleggingum og leið-
beiningum á vörum sem innihalda
flúor,“ segir Þóra Margrét.
Flux gegn munnþurrki
Munnþurrkur er nokkuð algengur
meðal fólks.
„Munnþurrkur stafar meðal
annars af of lítilli munnvatnsfram-
leiðslu og getur komið fram vegna
ýmissa sjúkdóma, sem aukaverkun
við lyfjanotkun, vegna mikils
álags, með hækkandi aldri og ef
borðað er of lítið af munnvatns-
örvandi mat,“ útskýrir Þóra.
Munnvatn smyr munnslím-
húðina og hjálpar meðal annars til
við að tyggja, tala og kyngja.
„Munnvatn ver slímhúðina fyrir
sýkingum og hlutleysir sýrur. Það
hjálpar líka til við sjálfhreinsun
tannanna. Skortur á munnvatni
eykur svo hættu á sýkingum í slím-
húð, sérstaklega sveppasýkingum.
Þá eykst hætta á tannskemmdum
og skemmdir geta orðið á tönnum
og tannflötum sem annars skemm-
ast sjaldan. Einnig eykst hætta á
skemmdum á rótaryfirborði tanna.
Tannskemmdir geta því orðið mjög
miklar á stuttum tíma, en Flux Dry
Mouth-vörurnar hafa verið þróaðar
til að vinna gegn munnþurrki,“
upplýsir Þóra Margrét.
Án parabena og alkóhóls
Flux-vörurnar tryggja heilbrigða
munn- og tannheilsu fyrir alla fjöl-
skylduna á ferskan, skemmtilegan
og áhrifaríkan hátt.
„Flux-vörulínan inniheldur
vörur sem veita ferskan og góðan
andardrátt, f lúor munnskol, vörur
gegn munnþurrki og tyggjó fyrir
fullorðna og börn. Þær innihalda
hátt flúormagn sem styrkir tennur
og fyrirbyggir tannskemmdir,“
segir Þóra Margrét um Flux sem
var þróað í nánu samstarfi við
sænska tannlækna árið 2007 en
vörurnar eru vegan og innihalda
hvorki alkóhól né parabena.
„Mælt er með að nota Flux-
munnskol einu sinni til tvisvar
á dag, sem viðbót við daglega
tannburstun til að ná sem bestum
árangri,“ segir Þóra.
Flux býður upp á nokkrar teg-
undir af flúor-munnskolum með
mismunandi bragði. Flux Original
Cool mint er þetta hefðbundna
flúor-munnskol, Flux Fresh veitir
tvenns konar áhrif því ásamt því
að innihalda flúor inniheldur það
smá magn af klórhexídíni sem
veitir ferskan andardrátt, og í Flux
Pro-línunni er Pro Klórhexídín-
munnskolið sem er bakteríu-
drepandi.
„Klórhexídín er til skammtíma-
meðferðar og oft notað samkvæmt
ráðleggingum frá tannlækni eftir
aðgerð, vegna bólgu í tannholdi
eða eftir að tönn hefur verið fjar-
lægð. Öll þessi munnskol eru fyrir
fullorðna og börn 12 ára og eldri.
Þau innihalda hátt flúormagn
(0,2% NaF (natríumflúoríð))
sem styrkir glerung tanna og
eru þannig fyrirbyggjandi gegn
tannskemmdum,“ upplýsir Þóra
Margrét.
„Fyrir börn yngri en 12 ára er
mælt með Flux Junior munnskol-
inu sem er bragðgott og barnvænt.
Það er fyrir börn 6 til 12 ára og
inniheldur lægra flúorinnihald en
hin munnskolin eða 0,05% NaF.“
Bragðgott og gagnlegt tyggjó
Við munnþurrki hefur Flux þróuð
vörulínuna Flux Dry Mouth. Hægt
er að fá Dry Mouth-gel og munnskol
sem bæði örva munnvatnsfram-
leiðslu, smyrja og gefa slímhúðinni
raka ásamt því að koma í veg fyrir
tannskemmdir þar sem vörurnar
innihalda mikið flúormagn.
„Gelið er tilvalið að geyma á
náttborðinu og nota fyrir svefninn
og á nóttunni ef þú vaknar við
munnþurrk. Einnig er hægt að
fá Flux Drops-munnsogstöflur
sem eru frískandi og sykurlausar
munnsogs töflur sem endast lengi
í munni. Töflurnar eru til í þremur
bragðtegundum, innihalda flúor og
örva munnvatnsframleiðsluna. Þær
er tilvalið að hafa í veskinu og nota
eftir þörfum, en þó ekki fleiri en 10
töflur á dag,“ segir Þóra Margrét.
Síðast en ekki síst má nefna
að Flux-flúortyggjó sem er bæði
bragðgott og gagnlegt á sama tíma.
„Tyggjóið er sykurlaust og inni-
heldur f lúor (0,14 mg F / stykki).
Kosturinn við f lúortyggjó er að
f lúorið blandast munnvatninu og
tekur þátt í stöðugu viðgerðarferli
við tannyfirborðið og hlutleysir
tannskemmandi sýrur í munni.
Tyggjóið eykur einnig munn-
vatnsframleiðslu og hjálpar því
líka til með vandamál eins og
munnþurrk. Það er gott að fá sér
f lúor-tyggjó f ljótlega eftir máltíð
og tyggja í að minnsta kosti 10
mínútur,“ upplýsir Þóra Margrét,
en þess má geta að tyggjóið hentar
bæði fullorðnum og börnum eldri
en tólf ára. n
Þú færð Flux vörurnar í apótekum
og á mörgum tannlæknastofum.
FLUX munngel sem veitir vörn fyrir
skemmdum vegna munnþurrks.
FLUX munnskol sem veitir ferskan
andardrátt, en mælt er með
flúorskolun daglega.
FLUX er með fjölbreytta línu af
flúorskoli sem hentar ólíkum
þörfum.
FLUX framleiðir bragðgóðar munnsogstöflur sem örva munnvatnsfram-
leiðslu og innihalda flúor. Þær koma í þremur bragðtegundum.
FLUX munnskol sem vinnur gegn
munnþurrki.
Munnskol með klórhexídíni, yfirleitt
notað til skammtímameðferðar.
Þóra segir auðvelt að koma flúori í daglega tannumhirðu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
FLUX flúortyggjó er tilvalið að tyggja
í a.m.k. 10 mínútur eftir hverja máltíð.
Flúortyggjóið frá FLUX er bragðgott
og gagnlegt við hreinsun tanna.
FLUX framleiðir munnskol sem inni-
heldur minna flúormagn fyrir börn.
14 kynningarblað 30. desember 2021 FIMMTUDAGURTANNHEILSA