Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 54
Arkitekt og byggingafræðingur
óskast til starfa
Fjölbreytt verkefni eru
framundan hjá okkur
og við viljum breikka
breiðan hóp okkar með
arkitekt og
byggingafræðingi.
Starfsreynsla á
arkitektastofu er kostur
og kunnátta á helstu
teikniforrit, ss. Revit er
nauðsynleg.
Ákjósanlegt er að
umsækjendur geti hafið
störf sem fyrst.
Umsókn skal senda til
ASK arkitekta á
netfangið ask@ask.is
fyrir 15. janúar 2022.
ASK arkitektar er alhliða arkitektastofa sem fæst við hefðbundin
verkefni á sviði byggingarlistar, hönnun nýbygginga, endurhönnun
eldri bygginga, skipulag eldri byggðar og nýbyggingasvæða,
hönnunarstjórn o.fl. Verkefni stofunnar hafa verið unnin fyrir fyrirtæki,
sveitarfélög og einstaklinga. Teiknistofan er í miðborg Reykjavíkur og
eru starfsmenn nú 23 talsins.
ASK arkitektar - Geirsgötu 9 - 101 Reykjavík - 515 0300 -www.ask.is
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir:
Kristinn Halldórsson dómstjóri,
kristinn.halldorsson@domstolar.is.
Fylgja þarf ítarleg starfsferilskrá ásamt
kynningar bréfi þar sem gerð er grein
fyrir ástæðum umsóknar og hvernig
umsækjandi fullnægi fyrrgreindum
hæfniskröfum.
Umsóknir um starfið gilda í sex
mánuði frá birtingu auglýsingar.
Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Umsækjandi þarf að geta
hafið störf sem allra fyrst.
Sótt er um starfið á starfatorg.is
eða á alfred.is
Umsóknarfrestur er til og með
10. janúar 2022.
domstolar.is
Héraðsdómur Reykjaness auglýsir
laust til umsóknar starf löglærðs
aðstoðarmanns dómara. Aðstoðarmenn
heyra undir dómstjóra og kjör þeirra
fara eftir kjarasamningi.
Leitað er eftir drífandi lögfræðingi
sem öðlast hefur nokkra starfsreynslu.
Starfið krefst sjálfstæðis og nákvæmni í
vinnubrögðum. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni
» Umsjón með reglulegu dómþingi
í einkamálum og þingfestingar
gjaldþrotamála
» Meðferð útivistarmála í eigin nafni, þ.á.m.
áritun stefna og ritun dóma og úrskurða
» Meðferð sakamála þar sem vörnum
er ekki haldið uppi
» Ritun úrskurða/ákvarðana í eigin nafni
í útburðar- og innsetningarmálum og
gjaldþrotamálum og úrskurða á grundvelli
laga um skipti á dánarbúum þegar vörnum
er ekki haldið uppi
» Áritun sektarboða og aðfararbeiðna
» Dómkvaðning matsmanna og
meðferð vitnamála
» Aðstoð við samningu dóma og úrskurða
í almennum einkamálum þar sem tekið
er til varna, svo og aðstoð við samningu
úrskurða í ágreiningsmálum er varða
gjaldþrotaskipti, dánarbússkipti, sviptingu
lögræðis, aðfaragerðir, nauðungarsölu
og þinglýsingar
Menntunar- og hæfnikröfur
» Umsækjandi þarf að hafa lokið embættis-
prófi eða grunnnámi ásamt meistaraprófi
í lögum og uppfylla jafnframt að öðru leyti
skilyrði 2.-6. töluliðar 2. mgr. 29. gr. laga
nr. 50/2016 um dómstóla
» Að lágmarki tveggja ára starfsreynsla
á sviði lögfræði
» Haldgóð þekking í réttarfari
» Mjög góð færni í íslensku
» Sjálfstæði í vinnubrögðum og lipurð
í mannlegum samskiptum
» Góð tölvu- og tækniþekking
AÐSTOÐARMAÐUR DÓMARA
Forlagið leitar að umbrotsmanni
til að brjóta um bækur af öllu tagi,
með og án mynda.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi víðtæka
reynslu af bókaumbroti og yfirgripsmikla
þekkingu á InDesign-forritinu, auk þess að
geta unnið bæði í Illustrator og Photoshop
en kunnátta í myndvinnslu er mikill kostur.
Æskilegt er einnig að viðkomandi beri
gott skynbragð á íslenskt mál og búi
yfir vandvirkni, sjálfstæði og öguðum
vinnubrögðum auk þess að vera
úrræðagóð/ur.
Umsóknir með upplýsingum
um reynslu og fyrri störf
sendist á atvinna@forlagid.is
fyrir 5. janúar 2022
UMBROTSFÓLK
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Forlagið | Bræðraborgarstíg 7 | www.forlagid.is
Breytt deiliskipulag miðbæjar-
svæðis við Hvítingaveg
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 2. desember
2021 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir breytingu á
Deiliskipulagi miðbæjarsvæðis við Hvítingaveg, auglýst
skv. 1. Mgr. 43. Gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Helstu breytingar á svæðinu eru að bætt er við fjórum
byggingarreitum við Hvítingaveg og einum bygginga-
reit sunnan við Alþýðuhús. Einnig er gert ráð fyrir
aðkomuslóða að bakhlið húsanna við Hvítingaveg, eða
bakvið Bókasafn Vestmannaeyja.
Skipulagsgögn verða til sýnis hjá Umhverfis- og
framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 20.
desember 2021 til og með 31. janúar 2022 og má einnig
finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins
(https://www.vestmannaeyjar.is/thjonusta/skipulag/).
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir
til að kynna sér gögnin. Ábendingum og athugasemd-
um við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en
31. janúar 2022 í afgreiðslu Umhverfis- og fram-
kvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið
umhverfissvid@vestmannaeyjar.is