Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 26
Ég mæli
með
mark-
miðum
fyrir alla,
það heldur
neistanum
lifandi og
eflir mann
til dáða.
Elísa Viðarsdóttir, mat-
væla- og næringarfræðingur,
hugsar mikið um mataræði
og hreyfingu enda afreks-
kona í knattspyrnu eins og
systir hennar, Margrét Lára.
Elísa sem leikur með lands-
liðinu og Val segir fjölskyldu
sína mikið keppnisfólk.
elin@frettabladid.is
Elísa segir að fótboltinn sé hennar
ástríða og það gefi henni mikið að
mæta á æfingu, hitta liðsfélaga og
fá útrás á góðri æfingu. Hún segist
ekki vita hver uppskriftin sé að því
að systkini hennar hafi öll verið
öflugt íþróttafólk.
„Ef ég ætti að giska á eitthvað þá
eigum við fyrirmyndarforeldra
sem leggja mikið upp úr heilbrigði
og hreysti. Einnig eigum við systur
eldri bræður sem báðir spiluðu fót-
bolta, þeir voru fyrirmyndir okkar
þegar við vorum litlar og hafa
pottþétt haft áhrif á það að við
sóttum í fótboltann. Fjölskyldan
er saman sett af keppnisfólki og
því mjög erfitt að bregða á leik í
fjölskylduboðum ef ekki á að enda
illa,“ segir hún en heilsa og góður
lífsstíll hefur alltaf skipt hana máli.
Elísa er í sambúð með Rasmus
Christiansen og saman eiga þau
eina dóttur, Guðmundu Hanne.
Alltaf meðvituð um mataræði
„Á mínu heimili var alltaf eldaður
hollur matur og kvöldmaturinn
var heilög stund fyrir fjölskylduna.
Mamma mín er ótrúlega mikill
listakokkur og ætli áhuginn hafi
ekki kviknað fljótlega á ungl-
ingsárunum. Þá fór ég að hugsa út í
þá þætti sem ég gat haft stjórn á til
þess að bæta mig sem íþróttakonu.
Ég er meðvituð um mataræðið en
er alls ekki í neinum öfgum. Ég hef
tamið mér að borða reglulega og
reynt að borða það sem líkaminn
minn kallar á hverju sinni. Vel
eins hreint hráefni og kostur er og
set saman máltíðir sem gefa mér
næringu til að sinna æfingum og
daglegu lífi,“ segir Elísa.
Nýlega kom út bókin Næringin
skapar meistarann eftir Elísu. Hún
segir að það hafi verið Haraldur,
félagi hennar í Valsheimilinu, sem
hafi hvatt hana í sumar til að gefa
út bók. „Hann sparkaði mér harka-
lega út í djúpu laugina og fyrir það
verð ég honum ævinlega þakklát.
Ég hafði ekki gengið með þann
draum að gefa út bók enda var ég
nýbúin að skila af mér meistararit-
gerð í næringarfræði. Mig langaði
að gefa eitthvað frá mér í fram-
haldinu og úr varð þessi bók sem
hefur fengið góða athygli. Ég hef
fengið skilaboð frá foreldrum sem
segja mér að börnin þeirra séu
farin að prófa sig áfram í eldhúsinu
og séu áhugasöm um bókina. Þegar
ég fæ slík skilaboð er markmiðum
mínum náð,“ segir hún. Bókin
geymir einfaldar og bragðgóðar
uppskriftir með eingöngu fimm
hráefnum í hverjum rétti sem
tryggir að allir finna eitthvað við
sitt hæfi.
Best að taka lítil skref í átt að markmiðum
Afrekskonan
og næringar-
fræðingurinn
Elísa hefur gefið
út bók með
næringarríkum
réttum sem eiga
það sameigin-
legt að hafa fá
hráefni.
MYND/AÐSEND
Hafrabanana-
pönnukökur að
hætti Elísu.
Leggur áherslu á hreina fæðu
Sjálf hefur Elísa mjög gaman af
því að matreiða en góðir fiskréttir
eru í miklu uppáhaldi. „Og svo
heimagerð grilluð pitsa sem er í
uppáhaldi á heimilinu.“ Elísa segist
almennt borða reglulega og breyti
ekkert út af þeim vana um jól eða
áramót. „Ég vel þann mat sem
líkami minn kallar eftir hverju
sinni. Ég er samt mikið jólabarn og
elska margt sem tengist jólum. Ég
borða þann mat sem mig langar í.
Á gamlárskvöld höfum við verið
með túnfisksteik og ætli það verði
ekki aftur núna með góðu meðlæti
og sósu.“
Hvað myndir þú ráðleggja þeim
sem langar að breyta mataræðinu
um áramót?
„Taka lítil skref í einu í átt að
bættri heilsu, ekki taka mataræðið
þitt og snúa því algjörlega við, slíkt
er ekki vænlegt til árangurs. Ég
mæli líka alltaf með því að bæta
einhverju við mataræðið sitt í stað
þess að taka út eins og að borða
meira af grænmeti eða fiski og þá
ósjálfrátt minnkar eitthvað annað
á móti.“
Elísa segist ekki vera talsmaður
þess að fólk fari á matarkúra. „Það
er vissulega hægt að taka eitt og
annað úr mismunandi kúrum. Ég
held frekar að það sé kominn tími
til að hætta að tala um mataræði
í kúrum og fara almennt að hugsa
um að borða hreina og lítið unna
matvöru. Þá er mikilvægt að borða
reglulega og hlusta á líkamann.
Stærsta ógnin í samfélaginu í dag
tengt mat er alltof mikið fram-
boð af unnum mat. Eitt stærsta
verkefni næringarfræðinga í dag er
að hjálpa fólki að umgangast allt
þetta framboð og freistingar. Góð
leið til að byrja hægt og rólega að
bæta sinn lífsstíl er að skrifa niður
vikumatseðil og kaupa inn einu
sinni eða tvisvar í viku. Einungis
skal kaupa það sem stendur á list-
anum,“ segir Elísa.
Stórt ár fram undan
Hún notar ekki áramótin til að
strengja áramótaheit, hún setur
sér markmið oft yfir árið og skiptir
þeim upp eftir því hvort þau tengj-
ast íþróttum, vinnu eða hvers-
dagslífinu. „Ég horfi þó til baka
um áramót og þakka fyrir allt það
góða sem það bauð upp á og reyni
að draga lærdóm af ef upp kemur
mótlæti. Ég mæli með markmiðum
fyrir alla, það heldur neistanum
lifandi og eflir mann til dáða. Gott
er samt að njóta vegferðarinnar
að settu marki. Litlu sigrarnir í
átt að markmiðinu gera oft verið
skemmtilegir,“ segir hún.
Elísa segir að nýja árið leggist vel
í hana og hún hlakkar til margra
verkefna sem orðið hafa til í kjölfar
bókarinnar. „Það verður stórt ár
fram undan í boltanum, bæði með
Val og landsliðinu. Mikil orka mun
fara í það að æfa vel á nýju ári,“
segir Elísa og gefur hér uppskrift að
hafrabananapönnukökum.
Hafrabananapönnukökur
fyrir einn
1 bolli hafrar
1 stappaður banani
1 egg
3 msk. grísk jógúrt, ab-mjólk eða
sýrður rjómi
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. kanill
Smá salt
Hrærið öllum hráefnum saman
þar til allt er hæfilega þykkt.
Steikið á miðlungshita á pönnu.
Snúið einu sinni við.
Borðið með grískri jógúrt, sultu,
smjöri og osti. n
Hæðasmári
Grandi
Hita- & verkjastillandi
fyrir alla fjölskylduna
Paracetamól - fæst í stílum, mixtúru & töfluformi
Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
4 kynningarblað 30. desember 2021 FIMMTUDAGURHEILSA