Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 40
Sandra Sigurðardóttir var
valin íþróttakona Reykja-
víkur árið 2021, en hún varð
Íslandsmeistari með Val og
er leikjahæsti leikmaðurinn
í sögu efstu deildar kvenna.
Hún segir að valið hafi komið
sér mjög á óvart og að hún
sé mjög spennt fyrir áskor-
unum næsta árs.
oddurfreyr@frettabladid.is
Knattspyrnukonan Sandra Sig-
urðardóttir var valin íþróttakona
Reykjavíkur árið 2021, en valið á
íþróttafólki Reykjavíkur þetta árið
var tilkynnt við hátíðlega athöfn í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur um
miðjan mánuðinn.
Sandra vann Íslandsmeistara-
titilinn með liði sínu Val í sumar
og er leikjahæsti leikmaður í sögu
efstu deildar kvenna. Hún er líka
markvörður landsliðsins og leikur
með því á Evrópumeistaramótinu
í Bretlandi næsta sumar, ásamt því
að taka fullan þátt í undankeppn-
inni fyrir HM. Þar að auki er Sandra
móðir níu ára stráks og með nóg að
gera sem sjúkraþjálfari í fullu starfi.
„Ég verð að viðurkenna að það
kom mér mjög á óvart að vera valin
íþróttakona Reykjavíkur 2021. Það
kom mér líka skemmtilega á óvart
þegar ég komst að því að ég væri
ein af fimm sem voru tilnefndar.
Það eitt er mikill heiður sem ég
bjóst ekki við. Fyrst og fremst finnst
mér þetta vera viðurkenning á því
sem ég er að leggja á mig og það er
gaman að fólk skuli sjá það. Það
hvetur mig til að halda áfram að
gera vel og bæta mig og ég get það
sko ennþá, þó að ég sé 30+,“ segir
Sandra og hlær. „Ég er líka ótrú-
lega þakklát öllum sem hafa verið
með mér í þessu; liðinu, þjálfurum
og fjölskyldu sem stendur þétt við
bakið á mér. Ég er mikið í burtu
á æfingum og keppnum og allt í
kringum það er svolítið púsluspil
svo það þarf mikla samvinnu til að
þetta gangi upp.“
Liðsandinn stendur upp úr
Sandra segir að það sem stendur
helst upp úr frá síðastliðnu ári sé
að vinna Íslandsmeistaratitilinn
með Val.
„Það var náttúrulega bara
geggjað að vinna hann! Það er
alltaf gaman að vinna,“ segir hún
og hlær. „En þetta var líka sérstak-
lega ánægjulegt því að við gengum
í gegnum Covid-bras og við áttum
erfiða byrjun á mótinu og fengum
vænan skell á móti Breiðabliki og
svona. En það var magnað hvernig
liðið stóð saman og við náðum
að sigla þessum titli heim saman
sem lið, oft með frábærri spila-
mennsku. Það stendur upp úr
þegar ég lít til baka.
Við erum með ótrúlega breiðan
og flottan hóp af alls konar leik-
mönnum, ungar stelpur sem eru
ótrúlega efnilegar og eiga fram-
tíðina fyrir sér í bland við okkur
eldri, sem búum yfir hellings
reynslu,“ segir Sandra. „Saman
náðum við að stilla okkur ótrú-
lega vel saman, hafa gaman, spila
vel og bæta okkur. Við vorum líka
með frábært þjálfarateymi þar
sem er bæði reynsla og yngri og
sprækari þjálfari, þannig að allt
small saman.
Svo eru náttúrulega spenn-
andi tímar í landsliðinu núna og
góð spilamennska í gangi og ég er
spennt fyrir því sem er fram undan
þar. Ég sé að það býr hellingur
í þessu liði og mér finnst að við
eigum að geta gert frábæra hluti,“
bætir Sandra við.
Alltaf jafn gaman
Þegar Sandra er spurð hvernig hún
hafi farið að því að verða leikja-
hæsti leikmaður í sögu efstu deild-
ar í knattspyrnu kvenna er svarið
einfalt: „Þú heldur bara áfram
að spila í yfir 20 ár,“ segir hún og
hlær og bætir við að hún hafi haft
blendnar tilfinningar til þess fyrst.
„Mér fannst þetta alveg smá skellur
þegar ég áttaði mig á að ég væri
komin hingað, en auðvitað er ég
bara gríðarlega stolt. Það var mjög
gaman að slá leikjametið og ég
er enn að bæta það með hverjum
leiknum sem ég spila. Þetta gefur
mér líka ákveðinn kempustimpil,
sem er gaman.
En fyrst og fremst hef ég bara
ótrúlega gaman af því að spila,
það er ástæðan fyrir því að ég er
enn í fótbolta. Þetta er búið að
vera líf mitt og yndi síðan ég var
lítil stelpa og ég er ennþá eins,
mér finnst alltaf gaman að fara
út á völl að leika,“ segir Sandra.
„Kannski er ég líka heppin með
skrokkinn og ég hef líka verið
heppin að sleppa við alvarleg
meiðsli, 7, 9, 13, svo ég hef aldrei
verið frá í mjög langan tíma. En
aðalástæðan fyrir því að ég hef
enst svona í þessu er bara að þetta
er gaman. Svo er það bara gamla
góða klisjan, að hugsa vel um sig,
borða rétt og sofa nóg. Það þarf að
æfa vel en líka taka hvíld á móti og
vinna í veikleikum og öðru sem
þarf að laga. Það hjálpar líka að
vera sjúkraþjálfari, maður pælir
meira í öllum þessum þáttum.“
EM og Meistaradeild á nýju ári
Næsta sumar fer íslenska kvenna-
landsliðið í knattspyrnu til
Bretlands til að keppa á Evrópu-
meistaramótinu og Sandra er mjög
spennt.
„Ég á erfitt með að bíða eftir
mótinu, þó að það sé langt í það. Ég
hef vitað af þessu lengi og mótinu
var frestað um ár vegna Covid,
svo það er búin að byggjast upp
mikil tilhlökkun,“ segir hún. „Við
stefnum að sjálfsögðu á gull, við
tökum alltaf þátt til að vinna. Ég
tel okkur hafa möguleika til að
gera góða hluti á þessu móti. Liðið
er spennandi og það eru mikil
gæði í því. Það eru líka margar
ungar stelpur að koma upp sem
eru ótrúlega flottir leikmenn og
það er gríðarlega spennandi. Svo er
líka undankeppni HM enn í gangi.
Staðan lítur vel út þar og þar verða
líka spennandi leikir á næsta ári.
Það er líka spennandi ár
fram undan hjá Val. Við förum
í Meistaradeildina og ætlum
okkur að standa okkur vel, eins og
Breiðablik gerði, svo við komumst
í „alvöru“ Meistaradeildina,“ segir
Sandra. „Það er bara fullt fram
undan og nýjar og spennandi
áskoranir sem bíða. Þetta verður
ótrúlega skemmtilegt ár.“ n
Fótbolti hefur alltaf verið líf mitt og yndi
Sandra segist vera ótrúlega þakklát öllum þeim sem hafa staðið með
henni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ný s
am
lok
a
Reykjavík – Hafnarfjörður – Kópavogur – Sauðárkrókur – Akureyri – Húsavík – lemon.is
Spicy Macros
Kjúklingur, paprika, spínat og jalapenosósa
18 kynningarblað 30. desember 2021 FIMMTUDAGURHEILSA