Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 50
Þeytingur með mangó og spínati er hollur og góður drykkur yfir daginn.
MYND/VEGANISTUR.IS
starri@frettabladid.is
Frískandi og hollir þeytingar eru
tilvaldir með morgunmatnum, í
hádegismat eða sem millimál yfir
daginn. Hér kemur uppskrift af
bráðhollum þeytingi sem inni-
heldur meða annars mangó og
spínat.
Þeytingur með mangó og
spínati
1 banani
1 bolli frosið mangó (ananas virkar
líka)
Handfylli af spínati
¼ gúrka
Safi úr ½ lime
½ tsk. túrmerik
Örlítið af svörtum pipar
1-2 bollar kalt vatn
Skellið öllum hráefnunum í
blandara og blandið þar til hann
er silkimjúkur. Það er mismunandi
hversu þykka fólk vill hafa þeyt-
ingana. Því er gott að setja minna
vatn til að byrja með og bæta í eftir
þörfum þar til rétt þykkt er komin.
HEIMILD: VEGANISTUR.IS
Hressandi og hollur þeytingur
Því er gott að setja
minna vatn til að
byrja með og bæta í eftir
þörfum.
28 kynningarblað 30. desember 2021 FIMMTUDAGURHEILSA
thordisg@frettabladid.is
Margir nota leiktæki til að auðga
ástarlífið. Slík tæki eru örugg
ef notuð af skynsemi og haldið
hreinum. Sé það ekki gert geta þau
valdið klamidýu, sífilis, lekanda,
herpes, HIV og lifrarbólgu B og C
Komið í veg fyrir kynsjúk
dómasmit með því að:
n Halda leiktækjunum hreinum
og þvo þau eftir hverja notkun.
n Tæki sem ætluð eru til að fara
inn í leggöng eða endaþarm á
að hylja með nýjum smokk fyrir
hverja notkun.
n Ekki deila leiktækjum ástarlífs-
ins með öðrum. Þetta er eins og
með tannburstann, hver á sinn
eigin bursta.
Öll kynlífstæki þarf að þrífa eftir
hverja notkun. Ef sama tækið
er notað á mismunandi staði
líkamans, eins og munn, leggöng
og endaþarm, þarf að þrífa tækið
á milli þessara staða. n
HEIMILD: HEILSUVERA.IS
Örugg leiktæki ástarlífsins
Hreyfing úti er öllum holl.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
sandragudrun@frettabladid.is
Þegar sólin skín er auðvelt að fara út
og hlaupa eða stunda aðra líkams-
rækt utandyra, en mörgum finnst
erfitt að halda útiverunni áfram
þegar kólnar í veðri. En hreyfing
er alltaf nauðsynleg sama hvernig
viðrar og fyrir þau sem finnst erfitt
að fara á líkamsræktarstöðvar
þegar smittölur eru jafn háar og
þær eru í dag, er um tvennt að velja.
Klæða sig vel og fara út eða gera
æfingar heima. Göngur og hlaup
eru auðveldustu æfingarnar til að
stunda úti að vetri til þar sem ekki
þarf neinn sérstakan búnað til að
stunda þær. Hlý föt sem hrinda frá
sér svita og góðir skór er allt sem
þarf, og mannbroddar hugsaðir
fyrir hlaup eða göngur ef hált er. n
Útiæfingar að vetri til
Hreinlæti leiktækja ástarlífsins
varnar sjúkdómum.
Membrasin Vision Vitality
Augnúði gegn þurrki og þreytu í augum – úðast á augnlok,
má nota með farða og augnlinsum.
Bætiefni gegn þurrki í augum og verndar einnig gegn
skaðlegum áhrifum skjánotkunar.
Vörur sem virka
gegn þurrki
Membrasin Woman Vitality
Krem sem virkar gegn þurrki í leggöngum
og á ytri kynfærum.
Bætiefni sem nærir og vinnur gegn þurrki
í allri slímhúð og húð.
Inniheldur
hafþyrnisolíu
SBA24® - Omega 7,
FLORAGLO®
lutein og
zeaxanthin
Inniheldur hafþyrnisolíu og hýalúronsýruInniheldur hafþyrnisolíu, hýalúronsýru og mjólkursýru
Inniheldur
hafþyrnisolíu
SBA24®
- Omega 7
Nánar upplýsingar um vörurnar og sölustaði á www.numereitt.is/membrasin