Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 62
Síðastliðin þrjú leikár hafa verið
þrautaganga, smitbylgjurnar skella
á þjóðinni með reglulegu millibili
og núna erum við í auga stormsins.
Sviðslistafólk berst í bökkum, í
óteljandi vandamálum, sem má
rekja til Covid en einnig sinnu-
leysis ráðafólks, bæði í borgar- og
ríkisstjórn, þegar kemur að fjár-
veitingum til málaflokksins.
Í júlí var Reykjavík Fringe Festi-
val haldin í fjórða sinn og stækkar
ár hvert. Ekki farnaðist Act Alone
jafn vel. Henni þurfti að fresta aftur
vegna samkomutakmarkana, en
hátíðin fékk nýlega styrk til næsta
árs og leikhúsunnendur eru hvattir
til að ferðast vestur á Suðureyri.
Í haustbyrjun leit út fyrir að leik-
árið færi fram með tiltölulega eðli-
legum hætti. Síðan hefur verið sett
á 20 manna samkomubann og tak-
markað við 200 manns á viðburð-
um. Óljóst er hvort leikhúsin skelli
aftur í lás, en 200 er alltof lítill fjöldi
til að hægt sé að halda úti stórum
sýningum.
Takmarkanirnar hafa sett stórt
strik í reikninginn innan sviðs-
listanna síðastliðin tvö ár, en hrað-
prófin og grímuskyldan gera leik-
húsum kleift að hafa opið, en álagið
er mikið. Fjármál sjálfstæðu leik-
hópanna eru ennþá óskrifað blað
og ekki eru öll kurl komin til grafar.
Augljóst er að alltof margir sjálf-
stæðir leikhópar og listafólk urðu
fyrir ómældum skaða í faraldrinum.
Ekki skánar ástandið með nýjum
fjárlögum en þar eru framlög til
sjálfstæðra leikhópa lækkuð úr 137
milljónum í 94,5. Þetta er algjör
skandall og illa farið með þann hóp
sem fór einna verst út úr faraldr-
inum. Ástæðan virðist vera sú að
aukafjárveiting ríkisstjórnarinnar
vegna Covid var dregin til baka, en
alþjóð veit að hún dugði skammt,
var mörgum óaðgengileg og skömm
er að því að viðkvæmasti hópurinn
þurfi enn þá að berjast fyrir mann-
sæmandi launum. Launasjóður
listamanna er einnig skorinn niður,
úr 905 milljónum í 786, en sviðs-
listafólk hefur löngum kvartað yfir
ójafnvægi í úthlutun nefnda á milli
listgreina.
Hvað verður um sýningar?
Tjarnarbíó hefur reitt sig á uppi-
stand og aðrar sýningar sem skila
peningum í kassann. Dansverkið
Neind thing eftir Ingu Huld Hákon-
ardóttur var ein af eftirminnileg-
ustu sýningum haustsins. Djörf og
skemmtileg danssýning um eymd
tilverunnar. Þó grunar höfund að
alltof fáir hafi gert sér ferð til að sjá.
Grasrótin dafnar innan Reykja-
vík Dance Festival og Lókal, en stóru
leikhúsin eru farin að sinna henni
betur með aukinni starfsemi. Hóp-
urinn Slembilukka spratt fram úr
þessum jarðvegi innan Borgarleik-
hússins, sýning þeirra Á vísum stað,
er algjörlega óborganleg. Sömuleiðis
var gamanóperan Ástardrykkurinn
í boði sviðslistahópsins Ópur hress-
andi í Þjóðleikhúskjallaranum, sem
hefur fengið endurnýjun lífdaga.
Þetta er hin fínasta framför, en nauð-
synlegt er að varpa fram spurning-
unni: Hversu mikið aðhald fær við-
komandi listafólk innanhúss? Oft
hafa samstarfssýningar liðið fyrir að
vera olnbogabörn stóru leikhúsanna
og vonandi endurtekur sagan sig
ekki.
Í desemberbyrjun frestaði Þjóð-
leikhúsið Framúrskarandi vinkonu,
leikriti sem byggt er á vinsælum
bókum Elenu Ferrante í leikstjórn
Yael Farber enn og aftur, en sýning-
in átti að vera jólasýning hússins.
Borgarleikhúsið sló sína hátíðar-
sýningu alveg út af borðinu. Má
segja að báðar sýningar séu farald-
ursfórnarlömb en hvor á sinn máta.
Borgarleikhúsið hafði hreinlega ekki
fjárhagslegt bolmagn til að sviðsetja
stóra sýningu, en treystir á að Emil
í Kattholti og Bubbi dragi skipið í
land, enda hafa báðar sýningarnar
reynst vinsælar.
Þjóðleikhúsið vitnaði í hert
samkomubann og Þjóðleikhús-
stjóri sagði að leikhúsið vildi sýna
Framúrskarandi vinkonu undir
kringumstæðum þar sem hægt er
að bjóða gestum upp á veitingar í
hléum. Hvað verður um sýninguna
núna? Vonandi hefur tilfærslan ekki
teljandi áhrif á aðrar sýningar í hús-
inu, enda er slíkt hvimleitt fyrir bæði
starfsfólk og áhorfendur. Verður
þetta til þess að sýningar af þessari
stærðargráðu heyri brátt sögunni til?
Góðu fréttirnar
Góðu fréttirnar eru þó að Sviðslista-
miðstöð Íslands hefur loksins verið
opnuð. Nefnd er nú starfandi til að
gangsetja stofnunina og auglýst var
eftir framkvæmdastjóra í síðasta
mánuði. Spennandi verður að sjá
hver verður fyrir valinu. Sömuleiðis
var ráðinn sérfræðingur við Leik-
minjasafnið, sem er til húsa í Lands-
bókasafni Íslands – háskólabóka-
safni. Til að gæta gagnsæis verður
að nefna þá staðreynd að höfundur
þessa pistils er viðkomandi starfs-
maður. Með hverjum mánuði kemur
betur og betur í ljós mikilvægi þess
að varðveita og miðla þessari ein-
stöku menningararfleifð.
Árið 2022 byrjar vonandi með
látum, en fyrsta frumsýning árs-
ins boðar komu Caryl Churchill.
Loksins! Leikhúsgestir fá ekki bara
tækifæri til að upplifa eitt leik-
rita hennar, heldur tvö. Ein komst
undan í Borgarleikhúsinu skartar
okkar reyndustu leikkonum og
einum besta leikstjóra landsins,
Kristínu Jóhannesdóttur. Seinna í
vor verður Ást og upplýsingar svið-
sett í Þjóðleikhúsinu, í leikstjórn
Unu Þorleifsdóttur, sem hefur verið
á miklu flugi síðastliðin misseri.
Ný íslensk leikrit fá líka bless-
unarlega pláss fyrstu mánuði ársins.
Blóðuga kanínan eftir Elísabetu Jök-
ulsdóttur mætir á svið í Tjarnarbíói.
Einnig mun Þjóðleikhúsið sviðsetja
í fyrsta sinn leikverk eftir Tyrfing
Tyrfingsson, en Sjö ævintýrum um
skömm, í leikstjórn Stefáns Jónsson-
ar er búið að fresta ítrekað. Klassík-
in fær líka sitt pláss fyrir norðan, en
Leikfélag Akureyrar mun sviðsetja
Skugga-Svein í janúar.
Eftir erfiðustu leikár í manna
minnum er þrautagöngunni ekki
lokið. En ekki er öll nótt úti enn.
Sviðslistir hafa verið afskrifaðar
með reglulegu millibili í gegnum
söguna en blómstra ætíð á nýjan
leik. Ástæðan er fólkið á bak við
tjöldin og á sviðinu, baráttu- og
hugsjónafólk sem ber að fagna og
styðja. Leikhúsið gefur okkur inn-
sýn í heima sem annars væru áhorf-
endum ekki endilega aðgengilegir,
stytta okkur stundir og gefa tæki-
færi til að nærast andlega í hópi
fólks. Hvað er mikilvægara á þess-
um síðustu og verstu tímum? n
Sviðslistafólk berst í
bökkum, í óteljandi
vandamálum, sem má
rekja til Covid en
einnig sinnuleysis
ráðafólks, bæði í borg-
ar- og ríkisstjórn, þegar
kemur að fjárveiting-
um til málaflokksins.
Sigríður Jónsdóttir gerir upp leikhúsárið
Öldurót í faraldrinum
endalausa
Emil í Kattholti hefur slegið rækilega í gegn í Borgarleikhúsinu. MYND/GRÍMUR BJARNASON
Blóðuga kanínan, leikrit eftir Elísabetu Jökulsdóttur,
verður sýnt í Tjarnarbíói. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Una Þorleifsdóttir leikstýrir í Þjóðleikhúsinu leikritinu
Ást og upplýsingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
22 Menning 30. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 30. desember 2021 FIMMTUDAGUR