Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 38
Tannþráð þarf að
nota jafnt á barna-
og fullorðinstennur, en
en með honum hreins-
um við tannfleti sem
burstinn nær ekki til.
Tannvernd þarf að hefjast
sem fyrst á lífsleiðinni og
ekki síðar en við uppkomu
fyrstu tannar. Foreldrar
gegna lykilhlutverki í tann-
vernd barna sinna.
thordisg@frettabladid.is
Æskilegt er að fara með barn í
fyrstu heimsókn til tannlæknis eigi
síðar en milli tveggja og þriggja ára.
Reglulegt eftirlit tannlæknis, góð
munnhirða og hollar neysluvenjur
stuðla að fallegu og heilbrigðu brosi
alla ævi.
Tanntaka hefst venjulega við
sex til átta mánaða aldur og nýjar
tennur bætast smám saman við
þar til allar barnatennurnar tutt-
ugu hafa skilað sér við tveggja og
hálfs árs aldur. Barnatennur gegna
mikilvægu hlutverki við tyggingu
fæðunnar sem aftur örvar bein- og
vöðvamyndun. Auk þess er vöxtur
neðri hluta andlits að nokkru
leyti háður notkun kjálkanna.
Barnatennur halda rými fyrir
væntanlegar fullorðinstennur auk
þess sem heilar framtennur eru
börnunum nauðsyn til að eðlilegur
framburður s-, f-, v-, þ- og ð-hljóð-
anna náist.
Tannskipti verða á aldrinum sex
til tólf ára. Fyrstu fullorðinstenn-
urnar koma við sex ára aldur þegar
sex ára-jaxlar koma upp aftan við
barnajaxlana. Framtennur (1,2),
augntennur (3) og framjaxlar (4,5)
koma upp í stað barnatannanna
og við lok þess tímabils bætast tólf
ára-jaxlarnir (7) við, fyrir aftan sex
ára-jaxlana (6).
Hollar neysluvenjur
Öll þörfnumst við fjölbreyttrar
fæðu og hollar neysluvenjur leggja
grunn að góðri tannheilsu. Venjum
börnin okkar sem fyrst á að borða
næringarríkar máltíðir á matmáls-
tímum og bjóðum upp á tannvæna
millimálabita þegar þeirra er þörf.
Takmörkum neyslu sætinda á
milli mála og neyslu gosdrykkja og
ávaxtasafa við ákveðna matmáls-
tíma. Höfum hugfast að kalt vatn er
besti svaladrykkurinn.
Bakteríur í munnholi loða við
yfirborð tannanna, svokölluð
tannsýkla, og breyta sykri fæð-
unnar í mjólkursýrur. Sýrurnar
losa um steinefni glerungsins og
vinna eyðileggingarstarf sitt í um
það bil hálftíma eftir að sykurs er
neytt. Munnvatnið, sem gegnir
lykilhlutverki í almennum vörnum
líkamans gegn tannskemmdum,
nær yfirleitt að hlutleysa sýrurnar á
þessum hálftíma þannig að tönnin
Tannvernd hefst strax með fyrstu tönn
Ráðlagt er að bursta tennur með börnum til 10 ára aldurs.
Kenna þarf
börnum að nota
tannþráð rétt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
nær aftur til sín uppleystu steinefn-
unum úr munnvatninu og endur-
kalkast. Ef eðlilegur tími líður milli
mála hefur varnarkerfi líkamans
betur í baráttunni við sýrurnar
og tannskemmdum er haldið í
skefjum. Sífellt nart er varnarkerf-
inu ofviða. Ostbiti eftir matinn er
góð tannvernd og það sama gildir
um sykurlaust tyggjó, munnvatns-
flæðið eykst og hlutleysing sýru á
sér stað á mun skemmri tíma. Ef
munnhirðu er ábótavant og tann-
sýkla nær að safnast fyrir, hindrar
hún aðgengi munnvatnsins að
tannyfirborðinu og varnarkerfið
gagnast ekki.
Burstum saman til tíu ára aldurs
Mikilvægt er að börn læri að þeim
líður vel með hreinar og heilbrigðar
tennur. Mælt er með að hreinsa
tennurnar eftir mat og fyrir svefn,
að lágmarki tvisvar á dag.
Hvenær á að byrja að bursta
tennur barna?
Þegar fyrsta tönnin kemur í ljós í
munni barns.
Hversu oft á að bursta tenn-
urnar?
Að lágmarki tvisvar á dag, tvær
mínútur í senn. Bursta þarf tenn-
urnar mjög vel áður en farið er að
sofa á kvöldin.
Hversu lengi þurfa börn aðstoð
við tannhirðu?
Börn yngri en 10 ára þurfa aðstoð
við tannburstun og sum þurfa
aðstoð með tannþráðinn lengur.
Hvernig tannkrem er best að
nota?
Tannkrem með mildu bragði og
1.000–1.500 ppm flúorstyrk (sjá
innihaldslýsingu á umbúðum).
Barnatannkrem með minni
flúorstyrk en 1.000 ppm ætti ekki
að nota. Flúor herðir glerung tann-
anna og er því mikilvæg vörn gegn
tannskemmdum.
Ráðlagt magn flúortannkrems og
styrkur flúors í tannkremi (ppm F)
fer eftir aldri barns. Magn tann-
krems samsvarar:
n ¼ af nögl litlafingurs á barni
yngra en 3 ára (1.000–1.350 ppm
F)
n nöglinni á litlafingri barns 3 til 5
ára (1.000–1.350 ppm F)
n 1 cm fyrir 6 ára og eldri (1.350–
1.500 ppm F)
Hvernig tannbursta á að nota?
Tannburstinn á að vera með
þéttum, mjúkum hárum á nettum
haus, með skafti sem passar í full-
orðinshendi. Við burstum aðeins
þrjár af fimm hliðum tannanna.
Hliðarnar tvær milli barnatann-
anna verður að hreinsa með tann-
þræði einu sinni á dag.
Hvernig er best að bursta tenn-
urnar?
n Hafðu yngstu börnin vel
skorðuð í útafliggjandi stöðu, til
dæmis á skiptiborði eða í fangi
foreldris.
n Gefðu þér góðan tíma – að
minnsta kosti 2 mínútur.
n Burstaðu með litlum nudd-
hreyfingum, fram og aftur, utan
og innan á tönnunum.
n Burstaðu vel ofan í bitfletina.
n Ekki skola tannkremið af tönn-
unum, bara skyrpa – þannig
virkar flúorið lengur.
n Skolaðu tannburstann og láttu
hann þorna.
n Skiptu um tannbursta þegar
hárin eru orðin skökk og slitin.
Myndbönd sem sýna tannburstun
barna má finna á vef Embættis
landlæknis.
HEIMILD: LANDLAEKNIR.IS
16 kynningarblað 30. desember 2021 FIMMTUDAGURTANNHEILSA