Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 26
 Ég mæli með mark- miðum fyrir alla, það heldur neistanum lifandi og eflir mann til dáða. Elísa Viðarsdóttir, mat- væla- og næringarfræðingur, hugsar mikið um mataræði og hreyfingu enda afreks- kona í knattspyrnu eins og systir hennar, Margrét Lára. Elísa sem leikur með lands- liðinu og Val segir fjölskyldu sína mikið keppnisfólk. elin@frettabladid.is Elísa segir að fótboltinn sé hennar ástríða og það gefi henni mikið að mæta á æfingu, hitta liðsfélaga og fá útrás á góðri æfingu. Hún segist ekki vita hver uppskriftin sé að því að systkini hennar hafi öll verið öflugt íþróttafólk. „Ef ég ætti að giska á eitthvað þá eigum við fyrirmyndarforeldra sem leggja mikið upp úr heilbrigði og hreysti. Einnig eigum við systur eldri bræður sem báðir spiluðu fót- bolta, þeir voru fyrirmyndir okkar þegar við vorum litlar og hafa pottþétt haft áhrif á það að við sóttum í fótboltann. Fjölskyldan er saman sett af keppnisfólki og því mjög erfitt að bregða á leik í fjölskylduboðum ef ekki á að enda illa,“ segir hún en heilsa og góður lífsstíll hefur alltaf skipt hana máli. Elísa er í sambúð með Rasmus Christiansen og saman eiga þau eina dóttur, Guðmundu Hanne. Alltaf meðvituð um mataræði „Á mínu heimili var alltaf eldaður hollur matur og kvöldmaturinn var heilög stund fyrir fjölskylduna. Mamma mín er ótrúlega mikill listakokkur og ætli áhuginn hafi ekki kviknað fljótlega á ungl- ingsárunum. Þá fór ég að hugsa út í þá þætti sem ég gat haft stjórn á til þess að bæta mig sem íþróttakonu. Ég er meðvituð um mataræðið en er alls ekki í neinum öfgum. Ég hef tamið mér að borða reglulega og reynt að borða það sem líkaminn minn kallar á hverju sinni. Vel eins hreint hráefni og kostur er og set saman máltíðir sem gefa mér næringu til að sinna æfingum og daglegu lífi,“ segir Elísa. Nýlega kom út bókin Næringin skapar meistarann eftir Elísu. Hún segir að það hafi verið Haraldur, félagi hennar í Valsheimilinu, sem hafi hvatt hana í sumar til að gefa út bók. „Hann sparkaði mér harka- lega út í djúpu laugina og fyrir það verð ég honum ævinlega þakklát. Ég hafði ekki gengið með þann draum að gefa út bók enda var ég nýbúin að skila af mér meistararit- gerð í næringarfræði. Mig langaði að gefa eitthvað frá mér í fram- haldinu og úr varð þessi bók sem hefur fengið góða athygli. Ég hef fengið skilaboð frá foreldrum sem segja mér að börnin þeirra séu farin að prófa sig áfram í eldhúsinu og séu áhugasöm um bókina. Þegar ég fæ slík skilaboð er markmiðum mínum náð,“ segir hún. Bókin geymir einfaldar og bragðgóðar uppskriftir með eingöngu fimm hráefnum í hverjum rétti sem tryggir að allir finna eitthvað við sitt hæfi. Best að taka lítil skref í átt að markmiðum Afrekskonan og næringar- fræðingurinn Elísa hefur gefið út bók með næringarríkum réttum sem eiga það sameigin- legt að hafa fá hráefni. MYND/AÐSEND Hafrabanana- pönnukökur að hætti Elísu. Leggur áherslu á hreina fæðu Sjálf hefur Elísa mjög gaman af því að matreiða en góðir fiskréttir eru í miklu uppáhaldi. „Og svo heimagerð grilluð pitsa sem er í uppáhaldi á heimilinu.“ Elísa segist almennt borða reglulega og breyti ekkert út af þeim vana um jól eða áramót. „Ég vel þann mat sem líkami minn kallar eftir hverju sinni. Ég er samt mikið jólabarn og elska margt sem tengist jólum. Ég borða þann mat sem mig langar í. Á gamlárskvöld höfum við verið með túnfisksteik og ætli það verði ekki aftur núna með góðu meðlæti og sósu.“ Hvað myndir þú ráðleggja þeim sem langar að breyta mataræðinu um áramót? „Taka lítil skref í einu í átt að bættri heilsu, ekki taka mataræðið þitt og snúa því algjörlega við, slíkt er ekki vænlegt til árangurs. Ég mæli líka alltaf með því að bæta einhverju við mataræðið sitt í stað þess að taka út eins og að borða meira af grænmeti eða fiski og þá ósjálfrátt minnkar eitthvað annað á móti.“ Elísa segist ekki vera talsmaður þess að fólk fari á matarkúra. „Það er vissulega hægt að taka eitt og annað úr mismunandi kúrum. Ég held frekar að það sé kominn tími til að hætta að tala um mataræði í kúrum og fara almennt að hugsa um að borða hreina og lítið unna matvöru. Þá er mikilvægt að borða reglulega og hlusta á líkamann. Stærsta ógnin í samfélaginu í dag tengt mat er alltof mikið fram- boð af unnum mat. Eitt stærsta verkefni næringarfræðinga í dag er að hjálpa fólki að umgangast allt þetta framboð og freistingar. Góð leið til að byrja hægt og rólega að bæta sinn lífsstíl er að skrifa niður vikumatseðil og kaupa inn einu sinni eða tvisvar í viku. Einungis skal kaupa það sem stendur á list- anum,“ segir Elísa. Stórt ár fram undan Hún notar ekki áramótin til að strengja áramótaheit, hún setur sér markmið oft yfir árið og skiptir þeim upp eftir því hvort þau tengj- ast íþróttum, vinnu eða hvers- dagslífinu. „Ég horfi þó til baka um áramót og þakka fyrir allt það góða sem það bauð upp á og reyni að draga lærdóm af ef upp kemur mótlæti. Ég mæli með markmiðum fyrir alla, það heldur neistanum lifandi og eflir mann til dáða. Gott er samt að njóta vegferðarinnar að settu marki. Litlu sigrarnir í átt að markmiðinu gera oft verið skemmtilegir,“ segir hún. Elísa segir að nýja árið leggist vel í hana og hún hlakkar til margra verkefna sem orðið hafa til í kjölfar bókarinnar. „Það verður stórt ár fram undan í boltanum, bæði með Val og landsliðinu. Mikil orka mun fara í það að æfa vel á nýju ári,“ segir Elísa og gefur hér uppskrift að hafrabananapönnukökum. Hafrabananapönnukökur fyrir einn 1 bolli hafrar 1 stappaður banani 1 egg 3 msk. grísk jógúrt, ab-mjólk eða sýrður rjómi 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. kanill Smá salt Hrærið öllum hráefnum saman þar til allt er hæfilega þykkt. Steikið á miðlungshita á pönnu. Snúið einu sinni við. Borðið með grískri jógúrt, sultu, smjöri og osti. n Hæðasmári Grandi Hita- & verkjastillandi fyrir alla fjölskylduna Paracetamól - fæst í stílum, mixtúru & töfluformi Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is 4 kynningarblað 30. desember 2021 FIMMTUDAGURHEILSA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.