Syrpa - 01.06.1948, Blaðsíða 15

Syrpa - 01.06.1948, Blaðsíða 15
 Likan af vel skipulögðu ibúð- arhverfi í útjaðri stórbaijar. (Kaupmannahöfn). Efst sést að- ulumferðarœðin, sem liggur inn til borgarinnar (til vinstri handar). Mismunandi húsa- gerðir skiptast á: Margra hccða hús, sambyggð og sérstæð ein- býlishús. Þvert i gegnum hverf- ið er opið svccði með skemmti- görðum, ipróttavöllum o. þ. h., og á pvi er einnig barnaskóli, ýmiskonar samkomuhus o. m. fl. Þetta er menningarmiðstöð hverfisins. Leikskólar og barna- leikvellir eru á við og dreif i ibúðarhverfunum. Séruerzlanir eru aðallega á einum stað, i nánd við aðalceð umferðarinnar (á hcegri hlið myndarinnar). Nýlenduvöruverzlanir eru i ibitð- arhverfunum. ' iHS ? -i t : ' a-v' Wi .. J ' ‘ c>'' \s 'V s ) * S S & \ * // J ) \ f I)\) j) • á grundvelli þeirra atiiugana leitast við að áætla framtíðar eftirspurn og þróun húsnæðismálanna, Slík híbýlaáætlun er sérstaklega æskileg vegna þess, að enginn iðnaðar- né framleiðslugrein bindur jafnmikið fjármagn til jafnlangs tíma eins og liúsbyggingar. Skipulagsleysi eða léleg skipu- lagning liefur óhjákvæmilega í för með sér liáska- lega og ótímabæra fjárfestingu, þegar um slík fyrirtæki er að ræða. Mikill eðlismunur er þó á framleiðsluáætlun iðnfyrirtækis og híbýlaáætlun bæjarfélags. Iðn- fyrirtækin eru rekin í hagnaðarskyni, en bæjar- félagið á að hafa hagsmuni almennings eina fyrir augum. Annað er gróðafyrirtæki einstaklings, iiitt félagsmál. (Hitt er svo annað mál, að rnargir frant- sýnir iðnleiðtogar hafa samt sem áður séð sér hag í því að koma á margvíslegum félagslegum um- bótum á vinnustöðvum sínum, t. d. í sambandi við híbýli og samkomustaði verkamannanna). Skipuleggjendurnir mega því aldrei missa sjónar á skýru, félagslegu markmiði. Og hverjar eru þá þær umbætur til handa íbú- unum, sem stefnt skal að? Á hve löngum tíma á t. d. að rýma hinar lélegu íbúðir bæjarins? Hversu mikið á að stækka smáíbúðirnar, og hve langur tími er áætlaður til þeirra umbóta? Þetta eru tvær helztu spurningarnar, sem svara þarf. Og hvað liggur næst fyrir? Auðvitað að róa að því öllum árum að miða híbýlakost hverfisins sem allra mest við þarfir íbúanna, með fullu tilliti til hinna margvíslegu heimilishátta og fjölskyldu- stærða. Innbyrðis aldurshlutföll, fjölmenni og efnahagur heimilanna breytast þegar tímar líða frain, og þessar sveiflur þarf að reyna að áætla nokkuð fram í tímann. Sama máli gegnir um hí- býlakostinn. Svo og sso margar íbúðir hverfisins eru ónot- hæfar, aðrar eru alltof þröngar handa þeim fjölskyldum, sem í þeim búa. Þetta og fjölmargt annað þarf að bæta smátt og smátt. Ekki er ein- hlýtt að setja sér fyrirfram fastar reglur um um- bæturnar, heldur er nauðsynlegt að kynna sér jafnframt allar hinar sérstöku aðstæður, sem við er að fást á hverjum stað. í þessu efni dugar ekk- ert annað en stefnuviss skipulagning langt fram í tímann. Hvernig á þá að gera slíka híbýlaáætlun? Hér er ekki vettvangur fyrir nákvæma greinargerð um það, en ég vil aðeins drepa á eftirfarandi: Það er auðvelt að gera tiltölulega öruggar áætlanir um framtíðarfjölgun og fækkun íbúanna. Fæðingar, dauðsföll og lífsvenjur fólksins taka ekki mjög ör- um breytingum. Örðugra er að áætla fólksflutn- inga til og frá, sem vitanlega eru háðir þróun at- vinnuveganna. Torveldast er að áætla íbúðafjöld- ann, er koma þarf upp. Þetta stafar af því, að þó að vandalítið sé að vísu að slá því föstu, hvernig réttast væri og hagkvæmast að haga tilflutningi fólksins, t. d. úr gömlum íbúðum í nýjar eða úr þröngum íbúðum í aðrar rúmbetri, þá er allsendis óvíst, hvað fólkinu sýnist sjálfu um það, þegar til kemur. Hér kemur fjárhagshliðin einnig til greina. Hí- býlaáætlunin verður að samrýmast ágizkunum um byggingarkostnað og kaupgetu hinna ýmsu fjölskyldutegunda. Með slíkri samræmingu má S Y R P A 53

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.