Syrpa - 01.06.1948, Page 32

Syrpa - 01.06.1948, Page 32
inn blikuðu síðustu sólargeislarnir á vatnsfletin- um. Og svo varð dmnrt og þeir sáu ekkert annað en ljósin í þorpinu. Tími var kominn til þess að snúa heim á leið og herða róðurinn. Litli maður- inn ætlaði að þrífa árarnar af Jóhannesi, en hann hristi höfuðið og sagðist langtum heldur vilja láta vin sinn reyna að krækja sér í silung á leið- inni lieim. „Það er orðið alltof dimmt til þess, við erum búnir að fæla frá okkur allan fisk,“ sagði litli nraðurinn og hló dátt. „En þetta hefur verið in- dælt kvöld, finnst þér það ekki?“ Þegar þeir renndu upp að gömlu bryggjunni \ ið rafstöðina, var komin niðdimm nótt og hvor- ugur hafði orðið var. Um leið og báturinn rakst í bryggjuna sagði Jóhannes: „Jæja, nú skaltu fara hér í land. Ég ræ heim til Péturs.“ „Eigum við þá ekki samleið?“ „Nei, ég staldra dálítið við. Ég þarf að rabba við hann Pétur.“ Litli maðurinn steig upp úr bátnum og stóð svo þegjandi og horfði á Jóhannes. „Ég var að láta mér detta í liug, að líklega væri helzt veiðivon, þegar fer að birta aftur,“ sagði hann. „Svona um fimmleytið. Ég hef livort sem er hálfan annan tíma til stefnu. Hvað segirðu um það?“ Honum var svo mikið niðri fyrir, að Jóhannes vissi ekki fyrr en hann var búinn að svara: „Ég gæti reynt það. En verði ég ekki konrinn í tæka tíð, þá ferðu bara einn.“ „Jæja, ég labba þá heim í gistihúsið." „Góða nótt, Kalli.“ „Góða nótt, Jóhannes. Þetta var Ijómandi sam- verustund, fannst þér það ekki?“ Jóhannes reri upp að bátaskýlinu; hann óskaði þess af heilum hug, að Kalla grunaði ekki, að hann væri að forðast að láta sjá sig með honum á leiðinni inn í þorpið. Og á meðan hann stikaði eftir rykugri götunni og hlustaði á flugurnar suða í skurðinum, þá var hann annað slagið að velta því fyrir sér, hvernig í ósköpunum stæði á því, að lrann væri svona sneyptur. Klukkan sjö unr morguninn var Óskar ívarsson hengdur. Það bærðist varla vindblær þessa blý- gráu morgunstund, og nú blikuðu engir silfur- bjartir skýjahnoðrar yfir vatninu. Þetta hefði verið tilvalið veiðiveður. Jólrannes fór upp í fangalrús, því að hann taldi sér skylt að afla sér sem nánastrar vitneskju um atburðinn. Hann kveið því að sér yrði óglatt. Hann gat varla fengið af sér að yrða á nokkra manneskju í hópnum, sem safnazt hafði undir trén við fangelsisvegginn. Þetta fólk, senr hann þekkti svo vel, stóð þarna og einblíndi á vegginn með heiftarorð á vörum. Tveir bræður Óskars stóðu á gangstéttinni, miklir vexti og dökkir á brún og brá. Þrjár bifreiðar voru fyrir framan fangahúsið. Magnús gamli fangavörður bauð blaðamanni þorpsins, Jóhannesi Ólafssyni, inn í fangelsis- garðinn. Hann sagði, að tveir blaðamenn úr höf- uðborginni væru komnir og stæðu við gálgann, hinum megin við húsið. ,Þér er sjálfsagt óhætt að fara þangað líka, ef þú kærir þig um,“ sagði hann og settist gætilega á útidyraþrepið. Jóhannes settist við hliðina á lionum, náfölur og skelkaður, og svo þögðu báðir og biðu. Eftir drykklanga stund sagði gamli maðurinn: „Þeir eru reiðir þarna hinum megin við girð- inguna.“ „Ojá, víst eru þeir sárir. Ég sá tvo bræður Ósk- ars í hópnum.“ „Ég vildi þeir vildu fara,“ sagði Magnús. „Ég vil ekkert sjá. Ég get ekki sagt, að ég hafi litið á hann Óskar. Ég vil ekkert heyra. Mér er óglatt." Hann hallaði höfðinu upp að veggnum og lokaði augunum. Gamli maðurinn og Jóhannes sátu þarna í hnipri, þegar dálítill hópur manna kom fyrir húshornið úr hinum enda garðsins. Fyrstur gekk lögreglustjórinn, álútur eins og hann væri að gráta, síðan Friðrik læknir, þá tveir harðneskju- legir blaðamenn úr borginni, með höfuðfötin aftur á hnakka, og loks litli böðullinn: þráð- beinn, hermannlegur í göngulagi, umvafinn und- arlega fáfengilegum virðuleik. Hann var klæddur síðum lafafrakka og gráröndóttum buxum, stutt- flibba og hárauðu hálsbindi. Það var eins og hann einn hafði gert sér verulega grein fyrir mikilvægi athafnarinnar. Hann leit hvorki til hægri né vinstri fyrr en hann kom auga á Jóhann- es, sem var staðinn upp og góndi á hann opnum munni. Þá færðist bros á andlit litla mannsins, og þegar hópurinn kom að dyrunum, rétti hann Jóhannesi höndina. Allir horfðu á Jóhannes. Böðullinn hefur víst talið skylduverkinu lokið, því að hann sagði við Jóhannes og var auðsjáan- lega mikið niðri fyrir: „Mér datt í hug, að ég mundi sjá þig hér. Þú kornst ekki niður á bryggju í morgun?“ 70 S YRPA

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.