Morgunblaðið - 07.08.2021, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik
máfinnaávefokkar
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
697.500kr.
25%
afsláttur
BREKKA34 - 9 fm
Tilboðsverð
369.750kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
449.400kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Afar einfalt er að reisa
húsin okkar. Uppsetning
tekur aðeins einndag
TILBOÐÁGARÐHÚSUM!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
fram. „Þegar ég spyr um viðurlög
varðandi það að setja niður hýsið í
leyfisleysi er fátt um svör,“ segir
Oddur.
Tilfinningalegt gildi umhverfis
„Það er eins og það gildi aðrar
reglur fyrir borgarland en þann ná-
granna sem þarf að lifa við þetta.
Það er enginn á skrifstofu sem sér
um borgarland sem þarf að búa
þarna. Þá er spurningin: gilda aðrar
reglur fyrir borgarland en íbúann?“
segir Sverrir og nefnir að verið sé að
brjóta jafnræðisreglur ef garðhýsið
fær að standa.
„Ég reikna nú með að byggingar-
fulltrúi skilji það vel að umhverfið
hafi tilfinningalegt gildi. Við erum
mörg hér sem höfum búið hér til
margra ára. Hýsið breytir mynd göt-
unnar og fellur mjög illa að umhverf-
inu að okkar mati,“ segir Sverrir. Að
sögn hans liggur málið nú á borði
umhverfis- og skipulagssviðs, sem
sér um rekstur og umhirðu borg-
arlands. „Ég held að það sé miklu
betra að vera ekki að bíða eftir nið-
urstöðu um leyfisveitingu. Íbúar
geta kært ákvörðun um leyfis-
veitingu en mér skilst að leyfi verði
veitt, sama hvað, þar sem það er ein-
ungis formsatriði. Við þurfum að
reyna að vera á undan eiganda
skúrsins. Það er verra að bregðast
við eftir á,“ segir Oddur.
að þar sem umrætt smáhýsi væri
nær lóðamörkum en þremur metr-
um hefði eiganda verið gert að
leggja fram skriflegt samþykki lóð-
arhafa aðlægra lóða, sem er í þessu
tilfelli skrifstofa reksturs og um-
hirðu borgarlandsins, þar sem um
borgarland er að ræða.
Borgarland er samheiti yfir allt
það landsvæði sem tilheyrir Reykja-
víkurborg: götur, gangstéttir, stíga
og opin svæði.
Byggingarfulltrúi staðfesti síðan í
samskiptum við Odd að afgreiðsla
fyrir leyfi á hýsinu hefði ekki farið
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Kurr er í íbúum Grjótaþorpsins í
Reykjavík þar sem áberandi garð-
hýsi situr nú í garði eins af elstu hús-
um þorpsins, Hákots við Garða-
stræti. Garðhýsið er viðbygging sem
var flutt frá Akureyri og færð í
Grjótaþorpið í byrjun júlí.
Að sögn Sverris Guðjónssonar og
Odds Björnssonar, íbúa í þorpinu,
fengust upplýsingar um komu garð-
hýsisins með litlum fyrirvara. „Það
er skotið fyrst og spurt svo. Ég hef
talað við flesta í þorpinu. Það er sam-
staða um vilja til að láta fjarlægja
hýsið. Við erum hreinlega í upp-
námi,“ segir Sverrir og bætir við að
íbúar hafi strax sent erindi til bygg-
ingarfulltrúa Reykjavíkurborgar.
Sett niður í leyfisleyfi
„Við fáum í raun engin svör fyrr
en tæpum mánuði síðar. Það gekk
mjög erfiðlega að fá einhver við-
brögð frá borginni, sem er óþægilegt
af því það þarf að bregðast skjótt við
þessu,“ segir Sverrir og nefnir að
vöntun hafi verið á grenndarkynn-
ingu. „Það hefur yfirleitt verið lögð
mikil áhersla á slíkar kynningar þeg-
ar á að breyta umhverfi í nágrenni
við íbúa.“
Mánuði eftir að íbúar sendu bygg-
ingarfulltrúa erindi bárust þau svör
Morgunblaðið/Unnur Karen
Grjótaþorp Sverrir Guðjónsson og Oddur Björnsson segja garðhýsið frá Akureyri falla illa að umhverfinu.
Grjótaþorpið í upp-
námi yfir garðhýsi
- Vilja láta fjarlægja hýsið - Sein svör frá borginni
Morgunblaðið/Unnur Karen
Garðhýsi Hýsið stendur við Hákot í
Garðastræti í Grjótaþorpinu.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er verið að vinna á fullu við und-
irbúning skólastarfs eftir áætlunum
en það á eftir að koma endanlega í
ljós hvernig upphaf skólastarfs verð-
ur,“ segir Eva Bergþóra Guðbergs-
dóttir, teymisstjóri samskiptasviðs
hjá Reykjavíkurborg.
Áform um að yngstu bekkir í Foss-
vogsskóla fái kennslu í nýjum
kennslueiningum á lóð skólans munu
ekki ganga eftir. Ljóst er að um-
ræddar kennslueiningar verða ekki
tiltækar þegar skólinn verður settur.
Ástæðan er sú að skipulagsferli á
svæðinu vegna þeirra stendur enn
yfir. Skólinn verður settur mánudag-
inn 23. ágúst en grenndarkynning
vegna kennslueininganna stendur til
25. ágúst.
Tillaga um skipulag skólastarfs
Fossvogsskóla meðan á framkvæmd-
um vegna rakaskemmda stendur í
húsakynnum hans næsta vetur var
samþykkt í borgarráði Reykjavíkur
22. júlí. Börn í 5.-7. bekk munu fá
kennslu í Korpuskóla en börn í 1.-4.
bekk eiga að fá kennslu í tíu kennslu-
stofum á lóð skólans og í húsnæði
Frístundar í Útlandi.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er nú til skoðunar að nýta
annað tiltækt húsnæði í nágrenninu
þar til leyfi fæst fyrir skólastofum á
lóð skólans. Eva Bergþóra segir að
vonast sé til þess að hægt verði að
upplýsa foreldra um hvernig kennslu
verður háttað eftir helgina. „Við er-
um að leita leiða til að hefja skóla-
starf í Fossvogsdalnum þótt það
verði ekki í þessum einingum strax,“
segir hún og bætir við að öll undir-
búningsvinna fyrir komu eininganna
sé á áætlun.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu hafa framkvæmdir vegna
rakaskemmda og myglu í Fossvogs-
skóla, sem staðið hafa yfir með hléum
í tvö ár, ekki skilað tilskildum ár-
angri. Allar þrjár byggingar skólans
verða nú gerðar upp.
Karl Óskar Þráinsson, formaður
foreldrafélags Fossvogsskóla, hafði
ekki heyrt af því að skólastofur yrðu
ekki til taks á lóð skólans við setn-
ingu hans. „Síðustu skilaboð sem við
fengum voru að húsin yrðu afhent 23.
ágúst og á fundi með umhverfis- og
skipulagssviði var ekkert talið því til
fyrirstöðu að skólinn gæti hafist í
haust í dalnum. Þetta eru mikil von-
brigði ef rétt reynist.“
Hann segir að það sé furðuleg
stjórnsýsla ef það komi fólki á óvart
hve langan tíma tekur að fara í gegn-
um grenndarkynningu. „Auk þess
sem það að koma þessum skilaboðum
ekki strax til skólasamfélagsins er
ekki í anda þeirra bóta á upplýsinga-
flæði sem þau ætluðu að viðhafa.
Fólk missir trúna á að kerfið sé að
vinna fyrir börnin okkar við svona
ítrekaðan skort á upplýsingaflæði.“
Engar stofur við skólasetningu
- Tíu kennslueiningar sem setja á upp á lóð Fossvogsskóla eru enn í skipulagsferli - Unnið að lausn
fyrir yngstu bekki skólans - Vonast til að geta notað annað húsnæði í nágrenninu - „Mikil vonbrigði“
Morgunblaðið/Eggert
Fossvogsskóli Færanlegar skóla-
stofur verða settar upp á lóðinni.
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Mikilvægt er að upplýsa almenning
um stöðu mála á Landspítalanum.
Þetta segir Theódór Skúli Sigurðs-
son, formaður Félags sjúkrahús-
lækna, inntur eftir viðbrögðum við
skilaboðum sem deildarstjóri sam-
skiptadeildar spítalans sendi á
stjórnendur Landspítalans í mið-
vikudagskvöld, þar sem stjórnendur
á spítalanum voru beðnir um að
svara ekki fyrirspurnum fjölmiðla.
„Þetta er svolítið áhugavert orða-
lag sem hann notar í þessum skila-
boðum,“ sagði Theodór í samtali við
mbl.is í gær.
„Það má lesa milli línanna að það
eigi kannski að einhvern veginn að
hlífa fólki við áreiti fréttamanna en
hingað til hef ég ekki orðið var við að
fréttafólk sé að hringja að óþörfu.
Svo er bara ofboðslega mikilvægt að
upplýsa almenning um stöðu mála á
spítalanum.“
Aðspurður telur Theodór ólíklegt
að umrædd skilaboð hafi verið send í
samráði við Pál Matthíasson, for-
stjóra Landspítalans.
„Þegar ég hef verið að skjóta á
umræddan deildarstjóra þá hefur
hann alltaf sagst vera að fylgja fyr-
irmælum og vinna vinnuna sína en
ég veit ekkert um þetta mál. Ég bara
trúi því ekki að forstjórinn eigi frum-
kvæðið að þessu. Mér finnst það alla
vega mjög ólíklegt.“
Skrattakollar
„Ég vil því biðja ykkur að vísa allt-
af og öllum fyrirspurnum fjölmiðla –
sama hverjum – á mig og ég útdeili
þeim síðan aftur á þau ykkar sem
eru til svara og laus hverju sinni,“
sagði deildarstjórinn Stefán Hrafn
Hagalín í skilaboðum sínum til
stjórnenda. Þá sagði hann það einnig
ágætis reglu að svara alls ekki bein-
um símtölum fjölmiðla, sem kallaðir
eru skrattakollar í tölvupóstinum.
Páll svaraði ekki er reynt vara að
hafa samband við hann í gær.
Telur fyrirmælin
ekki koma frá Páli
- Ekki orðið fyrir áreiti fréttamanna
Upplýsir Theódór segir fjölmiðla-
fólk ekki hringja að ástæðulausu.