Morgunblaðið - 07.08.2021, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
Stjórn Minningarsjóðs Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr sjóðnum
Markmið sjóðsins er stuðningur við nýjungar í læknisfræði,
einkum á sviði heila- og taugasjúkdóma, hjarta- og
æðasjúkdóma, augnsjúkdóma og öldrunarsjúkdóma.
Með umsóknum skulu fylgja greinargerðir um vísindastörf
umsækjenda, ítarlegar kostnaðaráætlanir og upplýsingar um
það, hvernig þeir hyggjast verja styrknum. Athygli er vakin á
því, að sjóðurinn veitir ekki styrki til tækjakaupa né til aðmæta
ferðakostnaði. Umsóknir skulu staðfestar með undirskrift
umsækjanda og meðumsækjanda/enda, ef einhverjir eru.
Umsóknarfresturertil31.októbern.k.ogberaðsendaumsóknir
í pósthólf 931, 107 Reykjavík, merktar„Minningarsjóður Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar.“ Stefnt er að því að
tilkynna um úthlutun í lok nóvember n.k.
Ath. styrkir verða aðeins veittir til verkefna á sviði heila- og
taugasjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma, augnsjúkdóma
og öldrunarsjúkdóma.og öldrunarsjúkdóma.
Esther Hallsdóttir
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Aðgerðir til að efla viðbragðsþol
heilbrigðiskerfisins, þá helst Land-
spítalans, í baráttunni við kórónu-
veiruna koma til framkvæmda á
allra næstu dögum. Þetta sagði
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra að loknum ríkisstjórnar-
fundi fyrr í gær.
„Þetta eru aðgerðir sem lúta að
mönnun og tækni og líka að þessum
útskriftarvanda og stuðningi ann-
arra stofnana í kring við bæði fólk
sem er tilbúið til að útskrifast, þá
aldrað fólk, og líka möguleika til að
styðja við Landspítalann varðandi
legusjúklinga. Við erum komin af
stað með þetta nú þegar og sumar af
þessum aðgerðum eru komnar í
virkni,“ segir Svandís.
Spurð um aðgerðir sem taka sér-
staklega á mönnunarvanda spítalans
nefnir hún meðal annars að kalla fólk
fyrr inn úr sumarfríum, nýta bak-
varðasveitir heilbrigðiskerfisins, þar
sem heilbrigðisstarfsfólk sem er
komið á lífeyri hefur meðal annars
skráð sig, sem og „ýmsar stærri og
minni aðgerðir sem geta haft áhrif
og stutt við“. Alls greindust 103 kór-
ónuveirusmit eftir sýnatöku mið-
vikudags, en niðurstöðurnar voru
birtar í gær. Þar af voru 40 í sóttkví
við greiningu eða rúmlega 38%. Alls
eru nú 1.421 í einangrun og 2.315 í
sóttkví. Tuttugu og einn er á sjúkra-
húsi með veiruna, en þeir voru átján í
gær. Af jákvæðum sýnum í gær
greindust 90 í einkennasýnatöku og
13 við sóttkvíar- og handahófsskim-
anir.
Svandís segir smittölur ekki gefa
skýrustu myndina af stöðunni heldur
miklu frekar hversu margir veikjast
og hversu alvarlega veikir þeir eru.
Komið sé í ljós að bólusetningarnar
veiti afar góða vörn gegn veikindum.
„Við sjáum af þessari reynslu sem
er komin núna að það eru fyrst og
fremst þau sem eru óbólusett sem
verða veik og þau verða veikari held-
ur en þau sem eru bólusett. Þannig
að við sjáum það þarna eins og alls
staðar annars staðar að bólusetning-
in er að gefa okkur gríðarlega mikla
vörn sem hjálpar okkur til við að
reyna eins og nokkur er kostur að
halda samfélaginu gangandi.“
Áhyggjuefnið sé fyrst og fremst inn-
viðir heilbrigðiskerfisins.
2 5 10 7 13 10 11
38
56
78 82
95 88
71
123 123
129
124
154
86
68
109
116
151
225
300
426
625
725
937
992
1.087
1.205 1.216 1.232
1.293
1.351
1.413 1.434
Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær
Heimild: LSH
103 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
1.148 einstaklingar eru
í skimunarsóttkví
2.315 einstaklingar
eru í sóttkví
2020 2021
Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH kl. 12.00 í gær
Væg eða engin einkenni Covid-19 Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti
150
125
100
75
50
25
0
8.613 staðfest
smit alls
Fjöldi innanlandssmita frá 28. febrúar 2020
106 100
21. 22. 23. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6.
Fjöldi einstaklinga undir eftirliti LSH frá 21. júlí*
*Engar tölur fyrir 24.-25. júlí
*Tölur fyrir 5. ágúst vantar
Væg eða engin einkenni
Aukin einkenni
Alvarlegri einkenni
30. júlí 2021
154 smit
12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4.
Fullbólusettir
Bólusetning hafin
Óbólusettir
Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí
eftir stöðu bólusetningar*
1.434 einstaklingar
eru undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH
45 af þeim sem eru undir
eftirliti flokkast sem gulir
en enginnsem rauður
22 sjúklingar eru
inniliggjandi á
LSHmeð Covid-19
43 hafa alls lagst inn á
LSHmeð Covid-19 í
fjórðu bylgju faraldursins
Um þriðjungur þeirra
eru óbólusettir
Um tveir þriðju bólusettir
3 einstak-
lingar
eru á gjörgæslu
Boða aðgerðir til stuðnings LSH
Morgunblaðið/Unnur Karen
Ráðherrar Svandís Svavarsdóttir og Katrín Jakobsdóttir eftir fundinn í gær.
- Mæta mönnunarvanda með að kalla starfsfólk inn úr sumarfríum og virkja bakvarðasveitir
- Ráðherra segir smittölur ekki gefa skýrustu myndina - Aðgerðir innanlands kynntar í næstu viku
„Vegna þess að þessi faraldur
er að koma niður á ólíkum hóp-
um með ólíkum hætti þá er mik-
ilvægt að hafa heildarhagsmuni
undir og vega og meta annars
vegar sóttvarnaráðstafanir og
álag á heilbrigðiskerfið, en síð-
an líka áhrif á samfélagið og
efnahaginn,“ segir Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra í
samtali við Morgunblaðið.
Spurð hvort ríkisstjórnin sé
að færast nær ákvörðun um
takmarkanir innanlands segir
Katrín: „Það mun örugglega
skýrast í næstu viku.“ Takmark-
anir sem nú eru í gildi innan-
lands gilda til 13. ágúst, föstu-
dagsins næstkomandi, en
ríkisstjórnin hefur gefið út að
reynt verði að láta skólastarf
fara fram með eðlilegum hætti.
Skoðað í
heild sinni
FORSÆTISRÁÐHERRA
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
„Allt sem verið er að gera núna kall-
ar á aukinn mannafla,“ segir Sig-
urgeir Sigmundsson, yfirlög-
regluþjónn á Keflavíkurflugvelli.
Ekki er búið að útfæra hvernig nýj-
um reglum á landamærunum verður
framfylgt.
Tilkynnt var í gær um breytingar
á tilhögun skimana á landamærum
og munu bólusettir farþegar með
tengsl við Ísland frá og með 16.
ágúst þurfa að fara í sýnatöku innan
48 klukkustunda frá komunni til
landsins. Bólusettir ferðamenn með
tengsl við Ísland þurfa því þannig að
fara í tvöfalda skimun án sóttkvíar á
milli, fyrst áður en komið er til
landsins og síðan
eftir komuna.
Nær þetta til
íslenskra rík-
isborgara, ein-
staklinga sem bú-
settir eru hér á
landi, ein-
staklinga með at-
vinnuleyfi á Ís-
landi auk
umsækjenda um
atvinnuleyfi eða alþjóðlega vernd á
Íslandi.
Frávísunarheimildir
„Það á bara eftir að útfæra þetta,“
segir Sigurgeir, spurður hvernig
lögreglan hyggst taka á þessu nýja
verkefni.
Hvað með hælisleitendur sem
neita að fara í sýnatöku, verður þeim
vísað aftur heim?
Auðvitað eru frávísunarheimildir
til staðar í reglunum eins og þær eru
en við höfum nægan tíma til þess að
útfæra þetta. Tíminn til 16. ágúst er
frekar langur miðað við það sem við
höfum haft,“ segir Sigurgeir.
Hann tekur fram að reglurnar séu
sprottnar frá lögreglunni í Keflavík,
ríkisstjórninni og vinnuhópum á
vegum stjórnvalda.
Þá munu umræddir farþegar ekki
þurfa að sæta sóttkví þar til nið-
urstaða úr sýnatöku liggur fyrir.
Gert er ráð fyrir að farþegar fari
annað hvort í hraðpróf eða PCR-
próf, en nánara fyrirkomulag verður
unnið í samráði við sóttvarnalækni.
Óljóst hvernig nýjar reglur á
landamærum verða útfærðar
Sigurgeir
Sigmundsson
- Bólusettir farþegar með tengsl við Ísland verða skimaðir
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI