Morgunblaðið - 07.08.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.08.2021, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Hótel B59 í Borgar- nesi hefur átt í stappi við stjórnvöld vegna fasteignamats. Eigendum hótelsins fannst matið óhóflega hátt miðað við mat á öðrum hótelum í sama sveitarfélagi og hótel á Suð- urlandi í svipaðri fjarlægð frá Reykjavík. Í fyrstu neitaði Þjóðskrá að lækka matið til samræmis við keppinauta hótelsins. Þá kærði eigandi B59 hótels mat- ið til yfirfasteignamats- nefndar. Niðurstaða nefnd- arinnar var sú að húsið hefði ekki verið rétt metið og í þokkabót orkaði tvímælis að beiting matsaðferðarinnar væri í samræmi við lög. Fór því málið fyrir Þjóðskrá að nýju. Þetta gerðist í fyrravor. Loks nú, rúmu ári síðar, hef- ur Þjóðskrá komist að niður- stöðu. Fasteignamatið var lækkað um þriðjung. Það þýð- ir endurgreiðslu upp á um 3,7 milljónir króna fyrir 2020 og eitthvað lægri upphæðir fyrir árin á undan, eins og rakið var í Morgunblaðinu í gær. Fasteignamatið er dular- fullt fyrirbæri. Aðferðin við að reikna það út virðist valda mörgum heilabrotum. Ef vel ætti að vera ættu fyrirtæki og einstaklingar að geta áttað sig á því með einföldum hætti hve mikið matið geti hækkað (eða lækkað) hverju sinni, en það er hægara sagt en gert. Mat á fasteignum fer fram árlega og niðurstaðan er not- uð við álagningu fasteigna- gjalda. Algengt er að matið hækki verulega, sem leiðir til þess að fasteignagjöld hækka langt umfram verðlag og vísi- tölu. Eigandi fasteignar verð- ur ekki var við þessa hækkun í veskinu nema í hærri gjöldum. Afgreiðslan á máli B59 hótels er svo kapítuli út af fyrir sig. Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra sagði í viðtali við Morgunblaðið fyrir nokkrum misserum að hann vildi breyta viðhorfinu innan hins opinbera kerfis þannig að þegar fólk hefði samband með erindi væri fyrsta spurn- ingin: Hvað get ég gert fyrir þig? Þessi brýning hefur greini- lega ekki borist inn á Þjóð- skrá. Fyrst er erindi hótel- eigandans einfaldlega hafnað alfarið. Það er mjög undar- legt þar sem matið á hótel- byggingunni í Borgarnesi lækkaði um heilar 262 millj- ónir þegar málið var skoðað að nýju. Hvernig stendur á því að þetta ofmat blasti ekki við þegar erindið barst fyrst frá hótelinu? Þegar yfirfasteignamats- nefnd rekur málið til baka hefði mátt ætla að brugðist yrði hratt við til að þetta ranglæti yrði leiðrétt sem fyrst. Öðru nær. Það tók rúmt ár. Þetta er ekki eðlileg tregða. Full ástæða er til að fara of- an í saumana á fasteigna- matinu og spyrja hvers vegna það getur verið svona handa- hófskennt. Þá vekur líka spurningar að yfirfasteigna- matsnefnd komst að því að svo gæti verið að aðferðin við að beita matinu hefði ekki staðist lög. Í fyrsta lagi þarf að fá fram hvort matinu sé beitt með ólöglegum hætti. Í öðru lagi er rannsóknarefni hvort fasteignamat hafi verið rangt reiknað í fleiri tilvikum. Ekki er eðlilegt að skeikað geti þriðj- ungi í fasteignamati} Tregðulögmál Svo er komið að nú flytjast fleiri frá höfuð- borgarsvæðinu en til þess. Bjarni Reynarsson skipu- lagsfræðingur fer ofan í saum- ana á þessari þróun í grein í Morgunblaðinu á fimmtudag. „Flutninga frá höfuðborg- arsvæðinu til nágranna- byggða má að stórum hluta rekja til húsnæðis- og skipu- lagsstefnu höfuðborgarsvæð- isins,“ skrifar hann. „Þar hef- ur verið umtalsverður lóða- skortur um árabil sem leitt hefur til mikillar hækkunar á fasteignaverði þannig að margir hafa kosið að flytja út fyrir höfuðborgar- svæðið þar sem húsnæði er á við- ráðanlegu verði.“ Eftir lestur á grein Bjarna er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að fólk sé ein- faldlega farið að hrekjast burt. Á þessari þróun bera ráðamenn í Reykjavík mesta ábyrgð. Ráð væri að skipu- leggja í samræmi við óskir íbúa, en þar sem engra við- horfsbreytinga er að vænta á þeim bæ má búast við að áfram muni fólk hrekjast úr höfuðborginni. Ráð væri að skipu- leggja í samræmi við óskir íbúanna} Flótti úr höfuðborginni S óttvarnareglur á landamærum hafa tekið breytingum í takt við þróun heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Frá og með 1. júlí síðastliðnum var sýnatökum hætt hjá þeim sem framvísuðu gildum vottorðum um bólusetn- ingu með bóluefnum sem Lyfjastofnun Evr- ópu og/eða WHO hafa viðurkennt, og hjá börnum fæddum 2005 eða síðar. Þessi sami hópur þurfti ekki heldur að framvísa nei- kvæðu PCR-prófi við komuna til landsins. Þetta var ákveðið í samræmi við tillögu sótt- varnalæknis. Áfram þurftu þau sem ekki gátu framvísað gildum vottorðum um bólusetningu gegn Covid-19 eða fyrri sýkingu að framvísa neikvæðu PCR-vottorði við byrðingu og á landamærum, undirgangast skimun með PCR-prófi við komu til landsins og dvelja í sóttkví í 5 daga og undirgangast seinni skimun. Frá og með 27. júlí var sóttvarnareglum á landamær- um breytt, þar sem fjöldi smita hafði borist hingað til lands yfir landamærin, einkum með fullbólusettum ein- staklingum. Þessi smit urðu þess valdandi að ný bylgja faraldurs Covid-19 hófst innanlands. Til þess að bregðast við þessari stöðu var ákveðið í samræmi við ráðgjöf sótt- varnalæknis að allir bólusettir einstaklingar, eða þau sem höfðu staðfesta fyrri sýkingu, og kæmu til Íslands þyrftu að framvísa ekki eldra en 72 klst. gömlu neikvæðu Covid-prófi við byrðingu erlendis. Eins og áður þurftu óbólusettir einstaklingar að framvísa PCR-vottorðum sem væru ekki eldri en 72 klst. gömul, auk þess að fara í tvær PCR-skimanir með 5 daga sóttkví á milli skimana. Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær, 7. ágúst, var svo ákveðið að gera þær breytingar, að tillögu sóttvarnalæknis, að bólusettir farþeg- ar með tengsl við Ísland munu þurfa, frá og með 16. ágúst, að fara í sýnatöku innan 48 klukkustunda frá komu til landsins. Þau sem teljast með tengsl við Ísland eru íslenskir rík- isborgarar, fólk með búsetu á Íslandi, fólk með atvinnuleyfi á Íslandi og umsækjendur um atvinnuleyfi eða alþjóðlega vernd á Ís- landi. Áfram verður gerð krafa um framvísun neikvæðs Covid-prófs á landamærum en tvö- föld sýnataka með nokkurra daga millibili hefur reynst vel í faraldrinum. Þessi sýna- taka verður gjaldfrjáls. Samkvæmt upplýsingum frá embætti sóttvarnalæknis hafa um 90% þeirra einstaklinga sem greinst hafa með Covid-19 frá 1. júlí íslenska kennitölu. Mikilvægt er að tryggja varnir gegn nýjum afbrigðum veirunnar og því er þessi ákvörðun tekin. Eftir sem áður tökum við í ríkisstjórn Katrínar Jak- obsdóttir ákvarðanir um viðbrögð við Covid-19- faraldrinum í samræmi við bestu mögulegu þekkingu og rannsóknir. Þannig hefur okkur gengið best og þannig munum við vinna áfram. Svandís Svavarsdóttir Pistill Bólusett með tengsl við Ísland í sýnatöku á landamærum Höfundur er heilbrigðisráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is T ilkynnt hefur verið um áform bresks félags, Hydrogen Venture Limited (HVL), um uppbyggingu metanólverksmiðju á Reykjanesi. Orkufyrirtækið HS Orka býr sig und- ir að tryggja framleiðslu fyrir- tækisins þá 30 MW framleiðslu sem ætlunin er að fást muni úr nýju stækkunarferli Reykjanesvirkjunar. Áætlað er að þeim stækkunarfasa ljúki árið 2023. Í sameiginlegri yfir- lýsingu fyrirtækjanna segir að fyrsti áfangi uppbyggingarinnar, sem kalli á notkun allrar þessarar orku, muni nema um 100 milljónum evra, jafn- virði um 15 milljarða íslenskra króna. Hins vegar sagði í yfirlýsingu frá fyrirtækjunum að vonir stæðu til þess að verksmiðjan yrði stækkuð til muna í framhaldinu og þótt ekkert sé gefið upp um hvert umfangið gæti orðið má lesa úr orðum fulltrúa HS Orku að þar gæti jafnvel verið um þreföldun að ræða, jafnvel meira. Að sögn sérfræðinga sem Morg- unblaðið ræddi við gæti verksmiðja sem nýta myndi megavöttin 30 frá Reykjanesvirkjun geta framleitt um 17 þúsund tonn af metanóli á ári hverju. Þegar tilkynnt var um hin miklu áform, sem stefnt er að að verði að veruleika á næstu tveimur til fimm árum og tengjast muni starfseminni sem nú er byggð upp í Auðlindagarði á Reykjanesi, var upplýst að HVL væri samstarfsverkefni tveggja breskra fyrirtækja, Climate Change Venture (CCV) og Wellington Street Partners (WSP). Segir þar að sér- þekking fyrirtækisins liggi í „fjár- mögnun, nýjum tæknilausnum, grænum lausnum og stefnumörkun stjórnvalda og fyrirtækja“. Nýtt af nálinni Samkvæmt gögnum frá yfir- völdum í Bretlandi var HVL stofnað hinn 4. febrúar síðastliðinn og hefur aðsetur í Barry House við Worple Road í London. Samkvæmt sömu gögnum eru stjórnendur fyrir- tækisins fimm talsins og virðast þeir koma úr ranni beggja fyrirtækja, CCV og WSP. CCV er fjármálafyrirtæki sem stofnað var árið 2016 og hefur m.a. að markmiði að byggja upp og reka fjár- festingarsjóði sem ætlað er að stuðla að orkuskiptum. Í kynningu á fyrir- tækinu frá því í fyrra stefnir það að því að vera komið með einn milljarð sterlingspunda í slíka stýringu fyrir árið 2026. Framkvæmdastjóri CCV er Horacio Carvalho, Portúgali með gríðarlega reynslu að baki þegar kemur að fjárfestingum í orkugeir- anum. Hann hefur m.a. verið leiðandi við innleiðingu markaðsskipulags í Evrópu með útblástursheimildir. Hjá CCV virðast, samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins, starfa þrír og þá hefur fyrirtækið á að skipa þriggja manna ráðgjafarráði. Ráðherra í stjórn Browns WSP var stofnað árið 2011 og er fyrirtækið að eigin sögn ráðgjafar- fyrirtæki um stjórnmál og viðskipti. Er á heimasíðu fyrirtækisins tekið fyrir þá skilgreiningu að það sinni hagsmunagæslu en nýti sér fremur „reynslu og tengsl til þess að kort- leggja pólitíska áhættu sem mæti við- skiptavinum fyrirtækisins og veiti ráð og stuðning til að takast á við hana“. Stofnendur fyrirtækisins voru þrír menn sem allir höfðu á fyrri tíð setið á breska þinginu. Það voru þeir Philip James Woolas, sem sat á þingi fyrir Verkamannaflokkinn, Paul Keetch, sem sat á þingi fyrir Frjáls- lynda demókrata, og sir Sydney Chapman, sem kjörinn var á þing fyr- ir Íhaldsflokkinn. Takmarkaðar upp- lýsingar eru veittar opinberlega um umsvif fyrirtækisins en starfsmenn þess virðast vera fjórir og er Phil Woolas sá eini í hópi upphaflegra stofnenda sem enn er þar um borð. Hann á að baki merkilegan og á margan hátt skrautlegan stjórn- málaferil. Hann var m.a. umhverf- isráðherra í ríkisstjórn Gordons Browns en þá gegndi hann síðar emb- ætti ráðherra innflytjendamála og stóðu þá spjótin gjarnan á honum í bresku pressunni. Þingmannsferill hans spannaði 13 ár, frá 1997 til 2010. Fjárfestar með sterkt pólitískt tengslanet Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu CCV hyggst Hydrogen Ventures Ltd. sækja fjármagn til uppbyggingarinnar á Reykjanesi með útgáfu grænna skuldabréfa sem seld verði til sveitarfélaga, opinberra sjóða og einkaaðila í Bretlandi. Verður það gert á grundvelli þeirrar sýnar að metanól verði í auknum mæli nýtt til að knýja almenningssamgöngur og stærri farartæki sem eru í þjónustu sveitarfélaga. Phil Woolas segir í þessu samhengi að „sveitarfélög og samgöngu- yfirvöld muni leiða þróun í átt til vetnis/metanólknúinna samgangna þar sem þau séu af þeirri stærðargráðu að þau geti rutt brautina til þeirra um- skipta“. Ítrekar hann að þátttaka sveitarstjórnaryfirvalda í fjármögnun af þessu tagi hafi nýverið verið auðvelduð með nýju regluverki þar í landi. Sækja fjármagn víða SKULDABRÉF VEGNA METANÓLVERKSMIÐJU Morgunblaðið/RAX Reykjanesvirkjun Aukin umsvif þar á bæ tryggja orku til verkefnisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.