Morgunblaðið - 07.08.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 07.08.2021, Qupperneq 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 F yrir meira en 100 árum skoraði Pólverjinn Akiba Rubinstein á heimsmeist- arann Emanuel Lasker í einvígi um heimsmeistaratitilinn. Af einvíginu varð ekki því að fyrri heimsstyrjöldin braust út. Rub- instein gleymdist ekki og var oft nefndur í sömu andrá og Capa- blanca, Lasker eða Aljékín. Síðan þá hafa Pólverjar eignast marga frá- bæra skákmenn en engan sem ógn- að hefur þeim allra bestu eða þar til nú að hinn 23 ára gamli Jan Krzysz- tof Duda slær Magnús Carlsen úr 4- manna úrslitum heimsbikarmótsins í Sotsji og bætir svo um betur með því að leggja Sergei Karjakin í úr- slitaeinvígi keppninnar, 1½:½. Hann er því sigurvegari heimsbikarkeppni FIDE og fær keppnisrétt í næsta áskorendamóti. Sigur Duda yfir Carlsen vakti mikla athygli en seinni at-skák þeirra réð úrslitum en jafntefli hafði orðið í báðum kappskákunum og fyrri at-skákinni. Fyrirfram var bú- ist við sigri Magnúsar sem hafði hvítt í lokaskákinni en hann valdi meinlaust afbrigði sikileyjarvarnar og lenti snemma í varnarstöðu. Und- ir lokin náði hann upp jafnteflisstöðu en umhugsunartíminn var af skorn- um skammti og keppnisharka Duda skilaði vinningi i land. Norðmað- urinn tefldi því um um þriðja sætið við Rússann Fedoseev og vann báð- ar skákirnar með tilþrifum. Vignir Vatnar stóð sig vel í Serbíu Hinn 18 ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson er sá íslenskur skákmað- ur er greinilega er í mikilli framför. Þrjú alþjóðleg mót í Serbíu bera þess merki. Vignir stóð sig vel í fyrsta mótinu og því þriðja en lenti í talsverðum mótbyr í móti númer tvö er hann tapaði fjórum síðustu skák- um sínum. Reis upp aftur í því þriðja og komst í efsta sætið eftir sex umferðir með 4½ vinning. Hann tapaði að vísu í 7. umferð og féll við það niður í 3.-4. sæti, og er ½ vinn- ingi á eftir efstu mönnum fyrir síð- ustu umferð. Vignir stefnir leynt og ljóst að stórmeistaratitli og reynslan hefur sýnt að þátttaka í mótum á þessum slóðum er gott veganesti. Greinarhöfundur hefur rennt yfir skákir Vignis frá þessum mótum og það er ljóst að skilningur hans hefur dýpkað og leiktæknin er góð eins og eftirfarandi skák sýnir ljóslega: Akva Gold 3 – 2021; 6.umferð: Vignir Vatnar Stefánsson – Mi- roslav Markovic Pirc-vörn 1. d4 d6 2. e4 g6 3. Rc3 Bg7 4. f4 Ein hvassasta leiðin gegn Pirc- vörninni. 4. … Rc6 5. Bb5 a6 6. Bxc6+ bxc6 7. e5 Rh6 8. Rf3 0-0 9. 0-0 Hb8 10. Hb1 f6 11. De2 Kh8? Alltof hægfara. Hér var best að leika 11. … Bg4. 12. h3 Rf5 13. Hd1 Dd7? Einkennilega leikið. Hví ekki 13. … fxe5 strax? 14. g4 Rh6 15. e6! Besti kosturinn. 15. … Dxe6 16. Dxe6 Bxe6 17. He1 Bd7 18. Hxe7 Hf7 19. He1 f5 Enn gat svartur losað um sig með c6-c5. 20. g5 Rg8 20. Bd2 Re7 22. b3 Kg8 23. a3 Kf8 24. Kf2 He8 25. Ra2! Víkur fyrir biskupinum sem er á leið til a5. 25. … Bc8 26. c4 Bb7 27. Ba5 Rc58 28. Rc3 Hfe7 29. Hxe7 Hxe7 30. c5 Hd7 31. He1 Kf7 32. Re2 Re7? Gáir ekki að sér en svarta staðan var þröng og erfið viðureignar. 33. Bxc7! dxc5 34. Be5 cxd4 35. Bxg7 Kxg7 36. Rexd4 Rd5 37. Re6+ Kg8 38. Rc5 Hc7 39. Kg3 Bc8 40. Re5 Kg7 41. h4 a5 42. Rc4 Ha7 43. He8! Snyrtilegur lokaleikur. Svartur getur sig hvergi hrært án þess að tapa liði. Hann gafst því upp. Pólverjinn Duda vann heimsbikarmót FIDE Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Heimasíða FIDE Hetja Pólverja Duda (t.h.) vann seinni at-skákina gegn Magnúsi Carlsen og komst í úrslitin. Dómarinn, Omar Salama, fylgist grannt með viðureign þeirra. Í lögum um lífeyr- issjóði er ákvæði sem heimilar sjóðfélögum að semja við maka sína um gagnkvæma og jafna skiptingu áunninna lífeyrisréttinda. Þessi möguleiki hefur verið fyrir hendi í lífeyr- issjóðalögum á þriðja áratug og oft verið kynntur í blaðagrein- um, viðtalsþáttum og samfélags- miðlum. Margir vita samt ekki af lagaheimildinni og því nærtækt að benda annað slagið á hana en vísa jafnframt á vef Landssamtaka lífeyr- issjóða, lifeyrismal.is, þar sem ít- arlegri upplýsingar er að finna. Lögin kveða á um þrjá möguleika í samningum hjóna og fólks í sambúð; a) að skipta áunnum lífeyris- réttindum, b) að skipta framtíðar- réttindum (iðgjaldinu) og c) að skipta greiðslum þegar taka lífeyris er hafin. Þetta eru möguleikar sem vert er að fólk í hjúskap eða sambúð kynni sér og leiti ráða hjá starfsfólki lífeyr- issjóða sinna. Sjálf starfaði ég áður að réttindamálum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og aðstoðaði sjóðfélaga við tilheyrandi samnings- gerð. Rak ég mig þá gjarnan á þann misskilning að sumir litu á skiptingu lífeyrisréttinda sem skilnaðarúrræði. Þannig er lagaákvæðið hins vegar alls ekki hugsað heldur sem jafn- réttis- og sanngirnismál. Ég rak mig líka á tilvik þar sem beint lá við að ráðleggja viðkomandi að hugsa sinn gang áður en lengra væri farið því að- stæður fólks geta verið þannig að samningar um réttindaskiptingu væru beinlínis óskynsamlegir. Hér er með öðrum orðum margs að gæta. Því hefur verið varpað fram í um- ræðum að fólk í hjúskap og sambúð eigi ekki að þurfa að semja sérstak- lega um að jafna lífeyrisréttindi sín því jafnaðar- og sanngirnismál af þessu tagi eigi að ganga sem næst sjálfkrafa fyrir sig. Hér kunna skoð- anir að vera skiptar enda lífeyrisréttindi persónubundin og nán- ast heilög í lagalegum skilningi. Um þau er ekki hægt að semja, nema með fram- angreindum hætti, og þau eru hvorki fram- seljanleg né aðfar- arhæf. Lífeyrisréttindi verða ekki veðsett og þau eru tekin út fyrir sviga við gjaldþrot. Lífeyrissjóðalögin veita sem sagt þá einu undanþágu frá meginregl- unni að hjón og sambýlisfólk geti jafnað lífeyrisréttindi sín sem falla til á meðan hjúskapur eða óvígð sambúð varir eða hefur varað. Slíkir samn- ingar verða að vera gagnkvæmir og jafnir. Þeir geta einungis tekið til líf- eyrisréttinda og eftirlauna úr lífeyr- issjóðum en ekki til makalífeyris eða örorkulífeyrisréttinda. Slíka samn- inga þarf að gera fyrir 65 ára aldur og áður en taka ellilífeyris hefst. Þá er jafnframt lagaskilyrði að heilsufar samningsaðila dragi ekki úr lífslíkum þeirra. Samningar um skiptingu lífeyris- réttinda eru tiltölulega fátíðir, ein- hverra hluta vegna. Lagaheimildin er vissulega til staðar og hefur lengi ver- ið. Hjón og sambúðarfólk ætti að kanna málið og leita ráða hjá starfs- fólki lífeyrisjóða sinna. Þá er leiðbein- ingar, samningseyðublað og upplýs- ingar um verkferla og fleira að finna á lifeyrismal.is. Hjón og fólk í sambúð velti fyrir sér að skipta lífeyrisréttindum Eftir Þóreyju S. Þórðardóttur » Lagaákvæðið um skiptingu lífeyris- réttinda er alls ekki hugsað sem skilnaðar- úrræði heldur sem jafnréttis- og sanngirnismál. Þórey S. Þórðardóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Sigurbergur Elísson fæddist 7. ágúst 1899. Hann var atvinnu- bílstjóri í Reykjavík og verk- stjóri í Gatnagerð borgarinnar. Sigurbergur var formaður Knattspyrnufélagsins Fram ár- ið 1951-52 og stýrði fram- kvæmdum á fyrsta knatt- spyrnuvelli félagsins 1945, auk þess að eiga stóran þátt í bygg- ingu félagsheimilis Fram í Skip- holti ári síðar. Sigurbergur varð heiðursfélagi Fram á 60 ára af- mæli félagsins árið 1968. Fræg varð saga af samskipt- um Sigurbergs við Jónas Jónas- son frá Hriflu árið 1929, þegar árekstur varð á mjóum vegi inni við Elliðaár. Samkvæmt heldur grínaktugri grein í Ísafold 17.7. 1929 segir að Sigurbergur hafi lagt úti í kanti, en vegurinn ver- ið svo mjór að ráðherradrossían lenti á malarbílnum, enda hafði lítt verið dregið úr hraða. „Þeg- ar vegirnir voru lagðir … var sem sje eigi tekið tillit til þess, að Jónas frá Hriflu yrði dóms- málaráðherra og notaði vegina til þess að aka eftir þeim í sjer- stökum ríkisbíl með alveg sjer- stökum aðferðum.“ Sagt er að Jónas hafi hótað Sigurbergi tugthúsvist, en Sigurbergur ekki tekið hótanirnar alvarlega. Lauk málinu enda með því að Hjörtur Ingþórsson, bílstjóri Jónasar, studdi málstað Sigur- bergs og málið var látið niður falla. Sigurberg lést 2.10. 1969. Merkir Íslendingar Sigurbergur Elísson Vallarbraut 6, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 3ja herbergja íbúð á annari hæð í húsi fyrir eldri borgara í Njarðvík Reykjanesbæ, í göngufæri við þjónustumiðstöð Nesvalla. Töluvert endurnýjuð eign á eftirsóttum stað. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 37.500.000 Birt stærð eignar er 81,8 m2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.