Morgunblaðið - 07.08.2021, Síða 23

Morgunblaðið - 07.08.2021, Síða 23
MESSUR 23á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 Arnarbæli í Ölfusi | Útimessa í Arnarbæli kl. 14, á þeim forna kirkjustað. Kirkjukór Hvera- gerðis- og Kotstrandarsókna leiðir safnaðar- söng, prestur er Ninna Sif Svavarsdóttir. Ef veðrið bregst verður messað í Kotstrandar- kirkju. ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11. Ung- lingur staðfestir skírnarheitið og fermist. Fé- lagar úr kór Árbæjarkirkju syngja og Krisztina Kalló Szklanér organisti leikur á orgelið. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. ÁSKIRKJA í Fellum | Kvöldmessa sunnudag kl. 20. Prestur Þorgeir Arason. Organisti er Drífa Sigurðardóttir. Meðhjálpari er Bergsteinn Brynjólfsson. Ástjarnarkirkja | Sumarmessur í Garðakirkju alla sunnudaga klukkan 11. Ástjarnarkirkja tekur þátt í sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér á síðunni. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa sunnudag kl. 20. Jónas Þórir og félagar úr kór Bústaða- kirkju leiða tónlistina. Messuþjónar og sr. María annast þjónustu. DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11. Prestur er Elínborg Sturludóttir, Kári Þormar er organ- isti og félagar úr Dómkórnum syngja. FELLA- og Hólakirkja | Helgistund kl. 20. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar fyrir altari. Hulda Jónsdóttir syngur einsöng. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Kaffisopi eftir stund- ina. GARÐAKIRKJA | Sr. Jónína Ólafsdóttir þjón- ar. Ræðukona er fjölmiðlakonan Olga Björt Þórðardóttir. Um tónlistina sér Guðmundur Sig- urðsson, organisti Hafnarfjarðarkirkju. Að lokinni messu verður boðið upp á tónlistar- dagskrá og kaffisopa í hlöðunni á Króki. Ung söngkona, Birta Dís Gunnarsdóttir, meðlimur í unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, mun syngja og spila. Sumarsunnudagaskólinn er eins og ávallt á sínum stað í vinnustofunni á safninu Króki. Messan verður í beinu streymi á facebook.- com/sumarmessur. GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 8. ágúst kl. 11 verður kaffihúsamessa. Kaffi- húsamessurnar eru sumarmessur og verða á sunnudögum kl. 11 út ágústmánuð. Forsöngv- ari, prestur, organisti og kirkjuvörður annast þjónustuna. Kaffi og meðlæti. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. María Guðrúnar Ágústsdóttir þjónar ásamt messuþjónum. Antonía Hevesi leikur á hljóð- færið og Kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng. Þriðjudagur 10. ágúst: Kyrrðarstund kl. 12. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta kl. 14 í hátíðarsal Grundar. Prestur er Auður Inga Einarsdóttir heimili- sprestur. Félagar úr Grundarkór leiða söng undir stjórn Kristínar Waage organista. HALLGRÍMSKIRKJA | Orgelsumar í Hall- grímskirkju. Tónleikar laugardag kl. 12. Kjartan Jósefsson Ognibene leikur á orgelið. Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt Grétari Einarssyni. Messuþjónar aðstoða. Forsöngvar- ar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti er Matthías Harðarson. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju, syngja. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Sumar- messa í Ytri-Njarvíkurkirkju kl. 20. Sjá Ytri- Njarðvíkurkirkju hér á síðunni. LANGHOLTSKIRKJA | Sumarmessa kl. 11, sameiginleg messa safnaðanna við Laugardal. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar ásamt Magnúsi Ragnarssyni oganista. Félagar úr kór Langholtskirkju syngja. Kaffi í safnaðar- heimilinu að messu lokinni. LAUGARNESKIRKJA | Íhugunarguðsþjón- usta sunnudag kl. 11. Sr. Hjalti Jón Sverrisson leiðir stundina og organisti er Magnús Ragn- arsson. NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prest- ur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Yngsta kynslóðin fær blöð og liti. Hressing á Torginu eftir guðsþjónustu. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | Sum- armessa í Ytri-Njarvíkurkirkju kl. 20. Sjá Ytri- Njarðvíkurkirkju hér á síðunni. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessur í Garða- kirkju alla sunnudaga kl. 11. Vídalínskirkja tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér í síðunni. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sumar- messur í Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11. Víðistaðakirkja tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér í síðunni. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Sumarmessa í Ytri- Njarðvíkurkirkju kl. 20. Sr. Baldur Rafn Sigurðs- son þjónar, félagar úr kór kirkjunnar syngja undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organ- ista. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Seyðisfjarðarkirkja Áhugavekjandi samtal (Motivational Interviewing) er sam- talsaðferð sem upp- haflega var þróuð til að hjálpa fólki með fíknivanda til að átta sig á og virkja eigin vilja til breytinga. Seinni tíma rann- sóknir hafa sýnt að að- ferðin hentar vel á mörgum öðrum sviðum, m.a. til að auðvelda sjúklingum í líknarmeðferð að ræða um dauðann við heilbrigð- isstarfsfólk, sem er oft forsenda þess að geta undirbúið aðstandendur undir dauða sjúklings. Virðing fyrir mörk- um fólks er grundvallaratriði í slíku samtali. Siðfræðin Undanfarin ár hefur athyglin beinst að siðfræðilegum álitaefnum varðandi samtöl í vinnu með sjúklinga í líknar- og lífslokameðferð, þar sem markmiðið er að fá leyfi sjúklings til að upplýsa aðstandendur um yfirvof- andi dauða viðkomandi. Forsenda fyrir því að eiga opið samtal um yf- irvofandi dauða sjúklings er að taka tillit til eftirfarandi aðstæðna: Hafi aðstandendur of skamman tíma til að aðlagast og meðtaka þá staðreynd að að ástvinur þeirra sé að deyja, hefur það oft í för með sér langtímavanlíðan eins og þunglyndi og kvíða. Treg tjá- skipti milli heilbrigðisstarfsfólks og sjúklings varðandi yfirvofandi dauða sjúklings tengjast skömmum aðlög- unartíma aðstandenda, vegna þess að heilbrigðisstarfsfólk þarf leyfi sjúk- lings til að upplýsa aðstandendur, nema sjúklingur sé ófær um að tjá sig. Íhlutun Raunprófaðar og sið- fræðilega réttlætanlegar aðferðir til að opna um- ræðu milli heilbrigð- isstarfsfólks og sjúklings varðandi yfirvofandi dauða, eru aftur á móti líklegar til að auka líkur á því að sjúklingur opni augun fyrir þeim veru- leika sem hann stendur frammi fyrir, opni fyrir þessa umræðu við ástvini sína og veiti heilbrigðisstarfsfólki leyfi til að undirbúa ástvini sína tímanlega. Íhlutun sem miðar að því að auðvelda samtal um dauðann í líknarmeðferð, byggð á aðferðum áhugavekjandi samtals, hefur gefið góða raun, sér- staklega fyrir karlmenn, en gagnast bæði körlum og konum. Aftur á móti er alltaf hætta á að meðferðaraðili gangi yfir mörk sjúklings og leiði sjúkling inn í umræðu sem hann vill í raun ekki taka þátt í, því þarf að fara varlega. Niðurstöður Niðurstöður siðfræðirýninnar voru þó að það sé þrátt fyrir allt réttlæt- anlegt að nota markvissa samtal- stækni, þar sem markmiðið er að opna fyrir umræður um yfirvofandi dauða, í stað ómarkvissrar. Þó er það að því gefnu að aldrei sé farið lengra en sjúk- lingurinn sjálfur vill. Þó meginþorri rannsókna á sviðinu séu tengdur krabbameinsmeðferð, er engin ástæða til að ætla annað en niðurstöð- urnar eigi líka við um aðra sjúkdóma. Færni í að ræða um viðkvæm tilfinn- ingaleg mál eins og dauðann, krefst mikillar þjálfunar og því ekki á færi nema þeirra sem hafa þjálfun, hand- leiðslu og viðamikla klíníska reynslu. Það er því mikilvægt að fræðsla og handleiðsla fyrir fagfólk sé aðgengi- leg hvar sem er á landinu. Þar getur Krabbameinsfélagið aðstoðað. Heimildaskrá Black, I. og Helgason, A. R. (2018). Using mo- tivational interviewing to facilitate death talk in end-of-life care: An ethical analysis. BMC Palliat Care, 17(1), 51. Forsberg, L., Kallmen, H., Hermansson, U., Berman, A.H. og Helgason, A.R. (2007). Cod- ing counsellor behaviour in motivational int- erviewing sessions: Inter-rater reliability for the Swedish Motivational Interviewing Treat- ment Integrity Code (MITI). Cogn Behav Ther, 36(3), 162-169. Forsberg, L., Forsberg. L. G., Lindqvist, H. og Helgason, A. R. (2010). Clinician acquisition and retention of motivational interviewing skills: A two-and-a-half-year exploratory study. Subst Abuse Treat Prev Policy, 13(5), bls. 8. Hauksdottir, A., Steineck, G., Furst, C. J. og Valdimarsdottir, U. (2010). Long-term harm of low preparedness for a wife’s death from cancer – a population-based study of wido- wers 4-5 years after the loss. Am J Epidemio, 172(4), 389-396. Hauksdottir, A., Valdimarsdottir, U., Furst, C. J., Onelov, E. og Steineck, G. (2010). Health care-related predictors of husbands’ preparedness for the death of a wife to cancer – a population-based follow-up. Ann Oncol, 21 (2), 354-361. Miller, W. R. og Rollnick, S. (2013). Motivatio- nal interviewing: Helping people change (3. útgáfa). New York: Guilford Press. Pollak, K. I., Childers, J. W. og Arnold, R. M. (2011). Applying motivational interviewing techniques to palliative care communication. J Palliat Med, 14(5), 587-592. Skulason, B., Hauksdottir, A., Ahcic, K. og Helgason, A. R. (2014). Death talk: Gender differences in talking about one’s own imp- ending death. BMC Palliat Care, 13(1), 8. Valdimarsdottir, U., Helgason, A. R., Furst, C.-J., Adolfsson, J. og Steineck, G. (2004). Aw- areness of husband’s impending death from cancer and long-term anxiety in widowhood: A nationwide follow-up. Palliat Med, 18(5), 432-443. Siðfræði samtala í lífslokameðferð Eftir Ásgeir R. Helgason » Virðing fyrir mörkum sjúklings er grundvallaratriði í slíku samtali. Ásgeir R. Helgason Höfundur er dósent í sálfræði og sérfræðingur hjá Krabbameins- félaginu. asgeir@krabb.is Þegar sá er þetta rit- ar skrifaði sína fyrstu grein í Morgunblaðið aðeins tvítugur að aldri fyrir þrjátíu og sjö ár- um var ég upptendr- aður af því og þakklátur fyrir að fá óverðskuldað að eiga ómetanlega en vaxandi, síunga, ferska og lifandi vináttu frels- arans Jesú Krists vísa. Frá þeim tíma er mikið vatn runnið til sjávar og þjóðfélagsbreytingar og tækninýjungar orðið með marg- snúnum og nánast ólíklegasta hætti. Ráðamenn hafa komið og farið sem og straumar og stefnur. Og sjálfur hef ég gengið í gegnum mína ævidaga og safnað lífsreynslu og minningum sem ég get heilt yfir ekki verið annað en þakklátur fyrir, jafnvel þrátt fyrir að hafa þurft að lifa með ólæknandi krabbameini núna síðastliðin átta ár. Óendanlega þakkarverð samfylgd Öllum þessum árum síðar segi ég enn og aftur; að þiggja það að fá að eiga Jesú að daglegum vini í gegnum þykkt og þunnt upp á hvern dag ævi- göngunnar er það dýrmætasta sem nokkrum getur hlotnast. Því að eiga Jesú að sem bróður og vin og leiðtoga lífs síns felst ekki í því að kunna eitthvað, vita hvað verður, skilja, geta eða vita eitthvað yfirhöf- uð. Það felst heldur ekki í því að standast einhverja skoðun og vera samþykktur. Eða í því að blíðka ein- hverja Guði eða anda. Og það felst heldur ekki í því að aðhyllast ein- hverjar fyrirframniðurnjörvaðar trúarhugmyndir eða skoðanir. Eða kyngja einhverjum kenningum sem standast illa tímans tönn og troðast illa nið- ur. Í því felst ekki held- ur að gera endilega eitt- hvað á ákveðnum tímum. Það er ekki eins og að fylgja eða kjósa stjórnmálaflokk eða halda með einu íþrótta- félagi umfram annað. Að fá að fela Guði líf sitt sem Jesús birtir okkur og vill fá að gefa okkur með sér er í eðli sínu heldur ekki einhverjir siðir eða til- burðir, ritúal eða venjur. Þótt siðir, mildur kærleiksagi og venjur geti að sjálfsögðu verið af hinu góða. Tilboð um fyrirgefningu, frið og sátt Að vera kristinnar trúar er í raun og veru að þiggja raunverulega vin- áttu og samfylgd Jesú Krists, okkar lifandi frelsara og eilífa lífgjafa, og lifa meðvitað og ómeðvitað í auðmýkt í náð hans og miskunn þar sem þú ert samþykktur eins og þú ert í ljósi hans. Kristin trú er nefnilega í eðli sínu útréttur armur frelsarans sem býður uppörvandi vináttu sína, skilning á eðli okkar og samfylgd sem aldrei bregst eða trosnar. Vináttu sem varir ekki aðeins ævinlega heldur eilíflega. Jesús er nefnilega gjöf Guðs til okkar. Hún er eins langt frá því að vera ítroðsla eða þvingun eins og suðrið er frá norðrinu. Þú verður ekki að þiggja hana. Þitt er valið. Þú mátt það ef þú vilt. Kristin trú er nefnilega ekki ein- hver formúla eða kerfi sem þú fékkst í arf og verður að viðhalda til að verða ekki þjóð þinni eða ætterni til skammar. Hún er ekki dauður laga- bókstafur eða kenning sem ekki virk- ar. Heldur samfélag við lifandi frels- ara sem elskar þig út af lífinu. Tilboð um að þiggja óverðskuldaða kær- leiksgjöf Guðs. Tilboð um fyrirgefn- ingu og sátt. Persónulega vináttu og samfylgd, líf og frið. Kristin trú virkar nefnilega sem heimska fyrir þeim sem ekki vilja þiggja hana sem gjöf. En fyrir þeim sem taka vilja á móti er hún náð- argjöf. Kraftur Guðs sem varir til ei- lífs lífs. Ef þú vilt forðast hana skaltu sann- arlega vara þig á henni, því hún er smitandi. Hún nefnilega á það til að berast frá hjarta til hjarta, manni til manns, kynslóð eftir kynslóð með persónulegum vitnisburði, tilbeiðslu og jafningjafræðslu. Siðir og venjur Siðir, hefðir og viðteknar venjur kunna að koma og fara. Lög og regl- ur, menning og viðmið breytast. En dæmisögur Jesú, kærleikur og fyrir- heit, friður, orð, ást og verk munu áfram halda velli og ferskleika sínum um ókomna tíma. Vekja til umhugs- unar um lífið, mannkærleika og það sem skiptir máli. Svo lengi sem ver- öldin stendur. Þrátt fyrir allt og alla strauma og stefnur. Guðs ríki er nefnilega nær okkur en við kunnum að halda. Það getur nefnilega leynst innra með okkur. Ef við bara viljum opna fyrir því, sjá með hjartanu og koma auga á það. Með kærleiks- og friðarkveðju. – Lifi lífið! Ómetanleg, lifandi sífersk vinátta Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Guðs ríki er nær okk- ur en við kunnum að halda. Það getur leynst innra með okkur. Ef við bara viljum opna fyrir því og koma auga á það. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Atvinna Umræðan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.