Morgunblaðið - 07.08.2021, Qupperneq 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
✝
Sigurvaldís
fæddist 19. júní
1927 í Reykjavík.
Hún lést 13. júlí
2021 á dvalarheim-
ilinu Mörk.
Sigurvaldís var
dóttir hjónanna
Lárusar Finnboga
Björnssonar kaup-
manns og Sigur-
bjargar Sigríðar
Sigurvaldadóttur
konu hans. Lárus og Sigurbjörg
voru bæði Húnvetningar. Björn
faðir Lárusar var lengst af bóndi
í Hnausum í Húnaþingi, sonur
Kristófers Finnbogasonar á
Stóra-Fjalli í Borgarfirði og
konu hans Helgu Blöndal. Móðir
Lárusar, Ingibjörg Þorvarð-
ardóttir, var Vestur-Húnvetn-
ingur í báðar ættir. Sigurbjörg
kona Lárusar var dóttir Sig-
urvalda Þorsteinssonar frá
Gauksmýri í Línakradal og Ólaf-
ar Sigurðardóttur konu hans.
Hallbergsson, f. 21. maí 1957.
Börn þeirra eru tvö: a) Íris Sif, f.
16. desember 1987. Sambýlis-
maður Bjarki Fannar Atlason, f.
15. desember 1982. Sonur
Bjarka Funi Freyr Fanndal
Bjarkason, f. 1. júní 2005. b) Ein-
ar Hallberg, f. 9. ágúst 1991.
Sambýliskona Halldís Una
Hreiðarsdóttir, f. 26. október
1993. 2) Sigurbjörg Guðríður, f.
1. desember 1962. Maki Vil-
hjálmur Örn Gunnarsson, f. 14.
nóvember 1963. Börn: a) Tómas
Þórarinn Magnússon, f. 14. maí
1981. Faðir hans er Magnús Þór-
arinn Gissurarson, f. 5. apríl
1958. Sonur hans er Francis
Mosi Tómasson Pollock, f. 7. júlí
2009. b) Ómar Örn, f. 13. október
1990. Dætur hans eru tvær: Cel-
ina Emily, f. 11. ágúst 2015. Móð-
ir Celinu er Camilla Schnuchel.
Gaia Elizabeth, f. 19. september
2019. Sambýliskona Ómars og
Móðir Gaiu er Gry Vejen Wexö.
c) Kristófer Jökull, f. 13. nóv-
ember 1992. Áður hafði Sigur-
valdís eignast Ólöfu Sif, faðir
hennar er Gunnar J. Jóhanns-
son, d. 1966. Maki hennar er
Benedikt Sigurðsson.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigurvaldís Guð-
rún var næstyngst
fjögurra dætra
þeirra Sigurbjargar
og Lárusar: elst var
Sigurrós, þá Ingi-
björg Kristín og
yngst Hulda Birna.
Árið 1954 giftist
hún Tómasi Ólafs-
syni, f. 3. júlí 1924,
d. 27. júlí 1980, frá
Vestmannaeyjum.
Foreldrar hans voru Ingibjörg
Tómasdóttir frá Barkarstöðum í
Fljótshlíð og Ólafur Sigurðsson
frá Butru í Fljótshlíð. Tómas var
mjög laginn og góður vélsmiður
og vann alla tíð við það. Hann
vann í Vélsmiðjunni Héðni, síðar
hjá Jarðýtunni sf. og um tíma
hafði hann verkstæði heima við.
Síðustu árin starfaði hann hjá
Ísal.
Dætur Sigurvaldísar og Tóm-
asar eru: 1) Ingibjörg, f. 12. febr-
úar 1957. Maki Ragnar Werner
Nú að leiðarlokum skrifa ég
nokkur orð til minningar um
móður mína, Sigurvaldísi Guð-
rúnu Lárusdóttur. Hún var
oftast kölluð Valdís.
Foreldrar hennar reistu sér
hús á Fjölnisvegi 20 í Reykja-
vík 1929 og ólst hún þar upp,
ásamt systrum sínum, Sigur-
rós, Ingu og Birnu. Þótti henni
alla tíð afar vænt um foreldra
sína, systur og svo systrabörn-
in og afkomendur þeirra.
Mjög gestkvæmt var á heim-
ilinu, margir komu að norðan
og gistu. Á sumrin dvöldu þær
systur oft hjá Guðríði móður-
systur sinni í Vestmannaeyj-
um. Átti mamma góðar minn-
ingar þaðan, enda Gidda
frænka alveg einstök.
Á unglingsárum kynntist
mamma Guðbjörgu Jóhanns-
dóttur, vinátta þeirra entist
ævilangt og mundi hún eftir
Guðbjörgu lengur en flestum
öðrum.
Mamma fór í Húsmæðra-
skóla á Laugalandi. Skólasyst-
urnar stofnuðu saumaklúbb og
héldu sambandi meðan líf og
heilsa leyfði.
Árið 1948 eignaðist hún Sif.
1954 giftist hún Tómasi Ólafs-
syni frá Vestmannaeyjum. Þau
hófu búskap í Kópavogi og
byggðu sér hús við Þinghóls-
braut í kringum 1960. Þar var
gott að búa og góðir nágrann-
ar, sem þau bundust vináttu-
böndum. Þar bjuggu þau, þar
til pabbi lést 1980.
Um 1990 flutti hún upp á
Ártúnsholt og bjó þar þar til
hún fór á Hjúkrunarheimilið
Mörk 2017.
Árið 1957 eignuðust þau
Ingu og svo Sirí 1962. Mamma
vann á Kópavogshæli árin sem
þau voru að byggja, en gerðist
síðan heimavinnandi. Hún sat
ekki auðum höndum; bakað
flesta laugardaga, saumað,
prjónað, mottur hnýttar og
sokkaskór heklaðir.
Oft litu ættingjar, vinir og
nágrannar í kaffi, sumir gistu.
Svo voru það myndakvöldin,
tjaldið dregið niður úr stofu-
loftinu, Lieseganginn settur í
samband og skoðaðar lit-
skyggnur, kvöldkaffi og með
því. Það var aldrei drama, ekki
skammir né hávaði. Fátt bann-
að, aðeins bent á hvar hættur
gætu leynst. Yrði okkur eitt-
hvað á var það rætt í rólegheit-
um.
Hún var boðin og búin að
hjálpa vinum og vandamönnum
ef passa þurfti börn. Eigum við
skemmtilegar minningar um
lítil kríli, sem hreiðruðu um sig
í fanginu á henni.
Árum saman þjáðist hún af
magaverkjum en eftir að hún
losnaði við þann kvilla dreif
hún sig út á vinnumarkaðinn.
Hún hóf störf hjá Trygginga-
stofnun og var oft send út á
land að endurskoða. Einnig
vann hún nokkur ár á Kópa-
vogshæli. Þegar hún fór á eft-
irlaun varð hún fasti punkt-
urinn í lífi barnanna minna og
kattanna, alltaf reiðubúin að
létta undir.
Hún heimsótti Birnu systur
sína til Los Angeles, ferðaðist
með Birnu og Sævari manni
hennar víða um vesturströnd-
ina og einnig suður til Mexíkó.
Eftir að Sirí flutti til Dan-
merkur fór hún þangað í heim-
sóknir og naut þess að hitta
fólkið sitt.
Síðustu árin voru erfið. Alz-
heimer herti sífellt tökin og við
sáum hana hverfa okkur. Und-
ir það síðasta þekkti hún okkur
ekki og gat ekki tjáð sig. Það
var sárt að fylgjast með en
geta ekkert gert.
Meðan hún átti heimangengt
var það gamla hverfið sem
heillaði; allir bíltúrar enduðu á
að keyra fram hjá Fjölnisvegi
20, löturhægt, þá ljómaði hún.
Nú er þessari vegferð lokið,
en eftir lifa góðar minningar
um góða móður.
Ingibjörg Tómasdóttir.
Valdís hefur verið hluti af
minni fjölskyldu frá því ég
man eftir mér. Hún var konan
hans Tomma móðurbróður
míns og uppáhaldsfrænda. Þau
voru alltaf nefnd í sömu and-
ránni, Tommi og Valdís.
Fyrstu minningarnar eru frá
heimsóknum þeirra til Vest-
mannaeyja á Þjóðhátíð þegar
ég var krakki. Á hverju sumri
fórum við foreldrar okkar „upp
á land“ og ferðuðumst um
landið og alltaf var dvalið hjá
Tomma og Valdísi á Þinghóls-
brautinni í nokkra daga. Þau
tóku á móti okkur af mikilli
gestrisni.
Minnisstæð er nóttin sem
Heimaeyjargosið hófst 23. jan-
úar 1973. Tommi og Valdís
voru mætt á bryggjuna í Þor-
lákshöfn til að taka á móti okk-
ur flóttamönnunum. Við bjugg-
um síðan hjá þeim í nokkrar
vikur áður en húsnæði fannst
fyrir fjölskylduna.
Húsið þeirra á Þinghóls-
brautinni fannst mér spenn-
andi og flott. Blómabrekkan sú
flottasta sem ég hafði séð og
skemmtileg leiktæki á lóðinni
smíðuð af Tomma.
Valdís varð ekkja 53 ára
gömul þegar Tommi dó í kjöl-
far veikinda. Hún seldi húsið á
Þinghólsbrautinni nokkrum ár-
um seinna og flutti fyrst á Ný-
býlaveg og síðar í Árkvörn í
Reykjavík. Hún leitaði stund-
um ráðlegginga hjá mér ef
framkvæmdir stóðu fyrir dyr-
um og var mér ljúft að rétta
henni hjálparhönd.
Valdís kom í öll barnaafmæli
og aðra viðburði í okkar fjöl-
skyldu á seinni árum á meðan
heilsan leyfði. Ég heimsótti
hana lengi í aðdraganda jóla og
sé eftir að hafa ekki gert meira
af því að heimsækja hana í
annan tíma.
Gengin er góð og hlý mann-
eskja sem vildi öllum vel, jafnt
mönnum sem málleysingjum.
Okkur þótti öllum vænt um
Valdísi.
Ég sendi dætrum hennar og
fjölskyldum innilegar samúðar-
kveðjur.
Ólafur Hermannsson.
Hálfrar aldar gamlar bjartar
bernskuminningar koma í hug-
ann um langferðir frá Fjöln-
isvegi 20, alla leið á Þinghóls-
brautina í Kópavogi; framandi
slóðir holótts malarvegar með
timburljósastaurum. Erindin
voru heimsóknir til Valdísar
frænku, uppáhaldsmóðursyst-
urinnar, sem nú er fallin frá
södd lífdaga eftir strembna
glímu við erfiðan sjúkdóm síð-
ustu árin.
Þær voru nánar systur Val-
dís og Ingibjörg móðir mín og
alltaf gleðiefni þegar farið var
í heimsókn eða hún kom við á
Fjölnisveginum þar sem við
bjuggum en hún hafði áður
slitið barnsskónum á næstu
hæð fyrir neðan með foreldr-
um sínum og þremur systrum,
tveimur eldri, Sigurrós og
Ingibjörgu, og einni yngri,
Birnu.
Ef lýsa á helstu lyndisein-
kunnum Valdísar kemur
glettni fyrst í hugann, það að
sjá broslegu hliðina á hlutum
og komast kankvíslega að orði
án þess þó að hafa menn og
málefni í flimtingum. Lundin
var enda oftar en ekki léttari
eftir samfundi með Valdísi,
hvort sem það var í æsku eða
síðar á fullorðinsárum. Á þeim
síðari tímum varð það til
dæmis siður í símtölum okkar
að ávarpa ætíð með fullu nafni
í upphafi símtals í glettnistón.
Meira kvað þó að hennar
nafni enda sýnu hljómmeira
þegar kveðið var að öllum at-
kvæðum þess, „komdu blessuð
og sæl, Sigurvaldís Guðrún!“
– og síðan goldið í sömu mynt
af hennar hálfu. Valdís hafði
líka sérstaklega góða nærveru
og hlýju í mannlegum sam-
skiptum sem samferðamenn
nutu.
Þegar á reyndi bjó Valdís
líka að þrautseigju á erfiðum
stundum því ekki var tilveran
alltaf einföld. Til að mynda
þegar eiginmaður hennar
Tómas Ólafsson slasaðist al-
varlega í vinnuslysi, nánast í
árdaga hjónabands þeirra, og
síðar er hann féll frá á besta
aldri, 56 ára, eftir erfið veik-
indi. Þá erfiðleika tókst Valdís
á við af æðruleysi og lagaði
sig að breyttum aðstæðum.
Valdís gat líka verið föst
fyrir þegar á þurfti að halda
og var þannig til dæmis ekki á
því að láta viðsjárverða bygg-
ingaverktaka selja sér köttinn
í sekknum er hún keypti sér
síðar á lífsleiðinni íbúð í Ár-
túnsholti. Sínu þurftu þeir að
skila með rentum, komust ekki
upp með moðreyk þótt við
ekkju á sjötugsaldri væri að
etja. Íbúð þessa keypti Valdís
svo kostur væri á meiri nálægð
við barnabörnin sem í höfuð-
borginni bjuggu, henni og
þeim til mikillar ánægju og
gagns en þeim var hún til
halds og trausts eftir skóla
meðan foreldrarnir sinntu
störfum og útréttingum.
Meðan heilsan leyfði bjó
Valdís í Ártúnsholtinu ásamt
ketti sínum og þangað var allt-
af gaman að koma, þar mætti
gestum ekki barlómurinn,
heldur glettni, kímni, sem var
ekki laust við að kötturinn
væri líka búinn að tileinka sér.
Og svo kvatt með hlýju og bros
á vör. Úr heimsókn frá Valdísi
var alltaf haldið léttari í lundu,
alveg eins og frá holóttu Þing-
hólsbrautinni forðum daga.
Björn L. Bergsson.
Sigurvaldís
Guðrún Lárusdóttir
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri
Sálm. 17.5-6
biblian.is
Skref mín eru örugg
á vegum þínum,
mér skrikar ekki
fótur. Ég hrópa til
þín því að þú svarar
mér, Guð,...Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
TORDIS ANNIE KRISTJÁNSSON,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 30. júlí. Útför hennar fer fram
frá Víkurkirkju í Vík í Mýrdal laugardaginn
14. ágúst klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni
og hægt er að nálgast það á: www.mbl.is/andlat.
Magnús Kristjánsson
Einar Magnússon Birna Viðarsdóttir
Róbert Magnússon Ása Sigurdís Haraldsdóttir
Þórir Magnússon Agnes Viðarsdóttir
ömmu- og langömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GÍSLÍNA JÓHANNESDÓTTIR,
Lína,
Sólvangi,
lést laugardaginn 31. júlí.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju
fimmtudaginn 12. ágúst klukkan 13.
Sigurvin B. Guðfinnsson Dagfríður Guðrún Arnardóttir
Gísli Rafn Guðfinnsson
Edda Guðrún Guðfinnsdóttir
Magnús Ívar Guðfinnsson Guðrún Soffía Björnsdóttir
Birgir Guðfinnsson Guðlaug Björk Karlsdóttir
og ömmubörn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
STEINLAUGAR SIGURJÓNSDÓTTUR,
Vesturbergi 77.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Landakotsspítala fyrir hlýhug og góða umönnun.
Anna Marie Georgsdóttir Steindór Steinþórsson
Sigurjón Georgsson
Reynir Georgsson Eyrún Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG ERLINGSDÓTTIR,
Imba,
Pósthússtræti 3, Reykjanesbæ,
lést sunnudaginn 1. ágúst eftir stutt veikindi
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í faðmi fjölskyldunnar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 26. ágúst
klukkan 13.
Bjarni Þór Einarsson
Mekkín Bjarnadóttir Magnús B. Matthíasson
Einar Bjarnason Linda Sveinbjörnsdóttir
Erlingur Bjarnason Ásta Ben Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
unnusta,
BÁRA KEMP
hárgreiðslumeistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
sunnudaginn 1. ágúst. Útför hennar fer
fram frá Fríkirkju Reykjavíkur 18. ágúst klukkan 15.
Vegna samkomutakmarkana verður athöfninni einnig streymt.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat.
Ingi M Magnússon Heiða Kristín Víðisdóttir
Logi Makan Ingason
Jökull Makan Ingason
Hörður Harðarson