Morgunblaðið - 07.08.2021, Side 26

Morgunblaðið - 07.08.2021, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 ✝ Ingibjörg Sig- urðardóttir fæddist á Njálsgötu 23 í Reykjavík 12. júlí 1928. Hún lést á Grund 28. júlí 2021. Foreldrar Ingi- bjargar voru hjónin Sigríður Daníels- dóttir, f. 1903, d. 1996, og Sigurður Breiðfjörð Jónsson, f. 1902, d. 1976. Systkini Ingibjargar eru Una, f. 1929, Margrét, f. 1932, og Gunn- ar, f. 1938, d. 2004. Fyrri eiginmaður Ingibjargar var Eggert Ólafsson, f. 24.11. 1926, d. 10.12. 1969. Foreldrar hans voru Vilborg Magn- úsdóttir, f. 1892, d. 1983, og Ólafur Kristinn Teitsson, f. 1891, d. 1974. Seinni eiginmaður var Glúm- ur Björnsson, f. 9.2. 1918, d. 14.12. 1991. Foreldrar: Margrét Magnúsdóttir Stephensen, f. 1879, d. 1946, og Guðmundur Björnsson landlæknir, f. 1864, d. 1937. Börn Ingibjargar og Eggerts: 1) Sigríður, f. 1949. Fyrsti eig- inmaður var Snorri Hörgdal Óskarsson, f. 1946, d. 1974. Syn- ir: Eggert Hörgdal, f. 1968, maki Sesilía Myrna Alota, f. 1975, Ingibjörg, f. 1983. Hún á Úlfar, f. 2015, og Heklu, f. 2019, með Rasmusi Petersen, f. 1978. Seinni eiginmaður Hildar er Sig- urður R. Guðjónsson, f. 1949. Dóttir þeirra Hulda, f. 1993, sem á Hörpu, f. 2021, með Ryan Cobain, f. 1994. 5) Ólafur, f. 1957, d. 1974. 6) Ingibjörg, f. 1959. Eig- inmaður Stefán Skjaldarson, f. 1956. Dætur: Birta, f. 1993, og Gréta, f. 1995. 7) Hlöðver, f. 1962. Eiginkona Brynja Davíðsdóttir, f. 1966. Dóttir: Vilborg, f. 1985. Eig- inmaður Birgir Örn Ólafsson, f. 1979. Synir: Sindri, f. 2009, Andri, f. 2014, og Bjarki, f. 2019. 8) Hulda, f. 1964. Fyrri eig- inmaður Kristján Rúnar Krist- jánsson, f. 1962. Börn: Eggert, f. 1989, Tinna, f. 1992, sem á Kar- ítas Rós, f. 2017, með Jóhannesi Guðmundssyni, f. 1989, og Tryggvi, f. 1999. Seinni eig- inmaður Ketill Gíslason, f. 1967. Ingibjörg ólst upp í Reykjavík en fluttist 1952 með Eggerti manni sínum að Kvennabrekku í Dölum þar sem hann starfaði sem prófastur til æviloka. Hún var í kvenfélaginu og kirkju- kórnum en sinnti einnig ýmsum trúnaðarstörfum, var m.a. í stjórn félags sjálfstæðiskvenna og í prófkjörsframboði 1970. Hún fluttist svo til Reykjavíkur 1976 og bjó í Hátúni 4 fram í febrúar 2020 en fór þá á Grund. Útförin verður gerð frá Kvennabrekkukirkju í Dölum í dag, 7. ágúst 2021, klukkan 14. börn Jóhannes, f. 2009, og Viktoría, f. 2009; Þór, f. 1971. Hans börn eru Sig- ríður Ragna, f. 1995, og Snorri Hörgdal, f. 2006. Annar eiginmaður: Þórður Helgi Berg- mann, f. 1945. Son- ur: Helgi, f. 1983. Þriðji eiginmaður: Stefán Egill Þor- varðarson, f. 1948, d. 2016. 2) Vilborg, f. 1950. Sambýlis- maður Jóhannes Benediktsson, f. 1950, d. 1999. Börn: Birgir, f. 1971, Ólafur, f. 1975, Sunneva, f. 1981, og Benedikt, f. 1983. Hans sonur er Jóhannes, f. 2008. 3) Margrét, f. 1953. Fyrrver- andi eiginmaður Bergur Jóns- son, f. 1950. Sonur: Brynjar, f. 1979. Maki Anna Lísa Hilm- arsdóttir, f. 1975. Börn: Ida María, f. 1997, sem á Ylfu Lísu, f. 2019, með Eysteini Stefánssyni, f. 1993, Þórður, f. 2001, Bergur, f. 2008, og Daði, f. 2014. Dóttir Brynjars með Birnu Ólafsdóttur, f. 1979, er Katrín Vera, f. 1998, hún á dóttur, f. 2021, faðir Tóm- as Kristinsson, f. 1993. 4) Hildur, f. 1954. Fyrri eig- inmaður Benedikt Jónsson, f. 1951. Börn: Guðjón, f. 1980, og Hvað bindur vorn hug við heimsins glaum, sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðslu lífsins draum, en látumst þó allir vaka. (Einar Benediktsson) Við brottför móður okkar, Ingibjargar Sigurðardóttur, úr þessum draumaheimi sækja að óteljandi minningar. Íbba, eins og hún var oft kölluð, var ótrú- legur persónuleiki sem mótaðist af margháttaðri reynslu í gegn- um sitt lífshlaup. Þessi unga fal- lega stúlka af Laugaveginum giftist föður okkar 1948 og tók sér það hlutverk að gerast hús- móðir í Dölum vestur sumarið 1952, algjörlega reynslulaus af öllum sveitastörfum. Með bjart- sýni og hugrekki hinna ungu held ég að foreldra okkar hafi aldrei órað fyrir hvaða hlutverk og áskoranir biðu þeirra. Það var ævintýri líkast að eiga þess kost að alast þar upp, með öllu því stússi og umstangi sem fylgdi. Sveitin, fólkið, dýrin og nátt- úran var lífið sjálft. Kvennabrekka varð að nokk- urs konar félagsheimili sveitar- innar, fólk kom til að láta skíra, giftast eða ýmislegt annað sem fram fór inni á heimilinu, þar að- stoðaði Íbba Eggert og söng oft- ar en ekki viðeigandi sálma við undirleik hans á litla ferðaorgel- ið. Þar var heimilið lánað fyrir erfidrykkjur, messukaffi var alltaf fyrir kirkjugesti, þar fóru fram þorrablót, spilakvöld, jóla- böll fyrir börnin og taflmót, svo eitthvað sé nefnt. Það gefur augaleið að það þurfti að halda utan um þetta allt en það varð líka til þess að fólk átti miklu meira samneyti við sveitunga sína, sem var ómetanlegt. Eftir 17 ára dvöl og átta börn varð hún ekkja við sviplegt frá- fall föður okkar Eggerts 1969, aðeins fimm árum síðar lést Ólafur sonur hennar af slysför- um. Það var farið að hrikta í öll- um stoðum. Það urðu kaflaskipti í lífi hennar eftir að hún kynntist seinni manni sínum, Glúmi Björnssyni, skrifstofustjóra hjá Orkumálastofnun, og flutti suð- ur með yngstu börnin. Glúmur hlýtur að hafa verið kjarkmikill maður að láta sér detta í hug að taka að sér konu með svo stóran barnahóp, því sá böggull fylgdi skammrifi. Íbba og Glúmur komu iðulega vestur í Búðardal og Glúmur hjálpaði og kenndi Jóhannesi vini sínum að tölvuvæða bókhald og launaforrit fyrir fyrirtæki hans, ásamt því að innleiða epla- tölvuna sem það besta sem til væri. Glúmur féll frá í desember 1991 eftir langvarandi veikindi. Ingibjörg vann árum saman hjá Íslenskum heimilisiðnaði og seinna sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Sérstakar þakkir færum við systrunum frá Akranesi, þeim Birtu og Grétu Stefánsdætrum, sem önnuðust hana af mikilli umhyggju, natni og snilld, töfr- uðu fram veislumat og kökur eins og enginn væri morgundag- urinn. Hugur Íbbu stóð samt alltaf til Dalanna og fólksins sem áttu hug hennar allan og þar vildi hún hvíla við hlið feðganna sem biðu þolinmóðir eftir henni, handan tíma og rúms. Það er ekki öllum gefið að skilja að aðgát skal höfð í nær- veru sálar, það veit hún núna. Elsku Íbba okkar, ástarþakk- ir fyrir allt og allt. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg; en anda sem unnast fær aldregi eilífð að skilið (Jónas Hallgrímsson) Vilborg, Margrét og Ingibjörg Eggertsdætur. Ingibjörg tengdamóðir mín er borin til grafar í dag. Þegar ég hugsa til hennar kemur upp í hugann stórbrotin kona sem fólk bar virðingu fyrir. Hún ólst upp í Reykjavík en giftist tvítug Eggerti Ólafssyni, sem útskrifaðist sem cand. the- ol. 1952. Þau fluttu þá til Kvennabrekku í Miðdölum þar sem Eggert þjónaði til dauða- dags, 10. des. 1969. Í líkræðu yf- ir séra Eggerti kom fram að mesti gæfudagur hans hafi verið giftingardagurinn, 11. okt. 1948: „Stóð hún [Ingibjörg] við hlið hans í námi og störfum til hinztu stundar hans, var hún honum ávallt mikil stoð og stytta og e.t.v. aldrei meir en síðustu árin, er hann þarfnaðist þess mest.“ Fyrstu árin voru erfið, því ekk- ert var rafmagnið og ýmis að- staða önnur frumstæð. Þau voru bæði alin upp á mölinni en með góðra manna hjálp byggðu þau upp búið og voru komin með 250 fjár og fjórar kýr um 1960. Þá voru 12 manns í heimili, þar af sex eigin börn, þannig að í mörg horn var að líta. Ingibjörg sagði sjálf að henni hefði eiginlega aldrei fundist sérlega erfitt að flytja í sveitina, hana hefði alltaf langað að komast í sveit. Fannst þetta koma svona allt af sjálfu sér. Húsið á Kvennabrekku var með svolitlum sal í kjallaranum, en það þýddi að alls konar fé- lagsstarf sveitarinnar fluttist þangað, því hið eiginlega sam- komuhús var óupphitað. Hún minntist á að þar hefðu verið samkomur kvenfélagsins, þorra- blót, veislur og dans. En einnig spilakvöld, taflmót og svo auð- vitað erfidrykkjur. Þá kom einn- ig farkennari og 6-8 börn að Kvennabrekku í hálfan mánuð í senn. Jafnvel þótt þetta hafi verið erfiður tími hafa þetta eflaust verið hennar mestu hamingjuár, enda talaði hún alltaf vel um þennan tíma, sem og sveitunga sína og Dalina. Þangað vildi hún líka fara síðustu ferðina. Þegar ég kynnist Ingibjörgu var hún búin að búa í Reykjavík í 15 ár. Mér varð það strax ljóst að þar færi mikil kjarnakona enda gerði minn betri helming- ur það ljóst að ég skyldi halda mig á mottunni! Hún reyndist hafsjór af fróðleik um lífið í Reykjavík á uppvaxtarárunum og vissi m.a. vel af pabba mín- um en hann bjó um árabil á Skólavörðustígnum. Síðustu 30 árin var Ingibjörg ein í Hátúni 4 en á stundum bjuggu mörg barnabörnin hjá henni í lengri eða styttri tíma. Við hjónin fórum með Ingi- björgu, ásamt dóttur okkar, umhverfis landið sumarið 1999 og þá reyndist hún sannkölluð heimskona. Hvar sem við stoppuðum var hún komin í hrókasamræður við fólk um landsins gagn og nauðsynjar, eða þá ættfræði, eftir stuttan tíma. Við dvöldum í vikutíma í húsi Vilhjálms Einarssonar á Egilsstöðum og skoðuðum marga staði fyrir austan sem hún hafði aldrei séð. Á Stöðv- arfirði spjallaði hún við Petru um hannyrðir eins og þær væru gamlar vinkonur. Þegar stopp- að var í Skógum var sama upp á teningnum; Þórður á Skógum var eins og gamall bekkjarbróð- ir! Mér fannst ljúft að við skyld- um hafa farið þetta, enda lenti frúin meira í amstrinu en ég. Við eigum eftir að sakna Ibbu ömmu, en hún var yfirleitt miðpunkturinn á mannamótum. Takk fyrir samveruna og hvíldu í friði, elsku Ibba! Sigurður R. Guðjónsson. Ég er of ungur til að vera meðvitaður um það, en græni frakkinn minn er of stór á mig. Ég er nýstiginn út úr Vest- fjarðaleið og kominn á umferð- armiðstöðina BSÍ. Glúmur og Ibba amma sækja guttann sem fékk að dvelja hjá þeim ótal sinnum á efstu hæðinni í Há- túni. Ég man hvernig framandi hljóðin frá borginni héldu fyrir mér vöku, svo lengi að þegar amma vakti mig sofnaði ég jafn- harðan yfir barnaefninu. Hátúnið hjá ömmu var um- ferðarmiðstöð fyrir allar kyn- slóðir í fjölskyldunni. Amma veggfóðraði umhverfi sitt með myndum af ættingjum og fylgd- ist vel með. Hún var 93 ára þeg- ar hún lést, en síðustu tvö árin voru henni erfið vegna veik- inda. Síðast þegar ég sá ömmu, þá gleymdi hún hárspennu í bíln- um mínum og í eftirsjá grunaði mig að þetta væri í síðasta skiptið sem ég hitti hana. Þegar ég var gutti í helgarheimsókn hjá ömmu fékk ég að leika laus- um hala. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en seinna hversu vel amma passaði upp á mig. Hún hummaði á meðan ég sveif um íbúðina, gekk niður Laugaveg og til baka. Þegar ég greip hana ein- hvern tíma í bíltúr vestur í Dali, þá man ég vel eftir hversu mik- ið hún vissi um sveitirnar og ættkvíslir. Hún vissi allt um allt, ég ekki neitt um neinn. Ég datt út í sífellu þegar hún var að reyna fræða mig, slíkur var hraðinn, það eina sem ég náði í hverri lotu var endirinn; „… voru systkinabörn“. Elsku amma. Núna ert þú komin yfir landamærin. Ég skal passa upp á hárspennuna þína. Takk fyrir allt ástin mín. Ólafur (Óli litli). „Við brottför þína brugðu fjöllin lit, og blámi himins varð að mistri gráu.“ (Írskt tregróf í þýð. Hermanns Pálssonar) Ég minnist nú ömmu minnar og vinkonu, hennar Íbbu. Við barnabörnin kölluðum þig „drottninguna“ okkar á milli. Íbúðin í Hátúninu var mér sem annað heimili, ég var þar oft í pössun sem barn, auk þess sem ég bjó þar bæði sem unglingur og fullorðinn. Þú ræktaðir ást mína á bók- um og man ég ennþá rúntinn eins og við fórum hann þegar ég var lítill hjá þér í pössun: Bókabúðin Hlemmi, Mál & menning og loks Eymundsson í Austurstræti. Þú skoðaðir dönsku blöðin á meðan ég kíkti á teiknimyndabækurnar. Svo leið tíminn. Við fórum að ræða bækur og ég komst að því að þú hafðir sérstakt dálæti á ljóða- bókum. Ég fór að gera mér ferðir í Hátúnið með bókapoka af góðgæti handa þér. Í hvert sinn sem ég kom í pössun bað ég um ýsu í raspi sem þú eld- aðir handa mér. Svo leið tíminn. Við bjuggum saman í Hátúninu og ég eldaði handa þér. Eftir okkar bestu stundir saman lá stór hlaði af bláum Capristubb- um og tómar ísskálar á stofu- borðinu. Við furðuðum okkur á að nokkur maður væri eftir á lífi í Bretlandi eftir alla glæpa- þættina sem við horfðum á. Ég mun sakna þess að heyra þig tala um gamla tímann, upp- vaxtarárin á Laugavegi 43 og hvernig það var fyrir Reykja- víkurmær að flytja í Dalina. Þú þuldir upp ættartölur allra fyrir vestan og áttir bara eftir að vísa í Dalamannabækurnar heilögu með blaðsíðutali. Nú skal hætta, andinn er eins og þrotinn lækur, ætti ég allt að þakka þér, þyrfti ég hundrað bækur. (Ólína Andrésdóttir) Nú ertu komin vestur aftur og í Sumarlandið. Ef eitthvað er spunnið í handanheiminn þá veit ég að þar bíður þín góður bókakostur. Ég þakka þér órofa vináttu og svo ótalmargt annað. Eggert Kristjánsson. Það er komið að kveðju- stund. Ibba, Ingibjörg Sigurð- ardóttir, litla ljóshærða hnátan á Laugavegi 43, hefur kvatt jarðlíf sitt. Þær streyma fram minningarnar góðu sem við eig- um um Ibbu og Eggert móð- urbróður okkar, heimsóknir á Skólavörðustíginn hvar þau áttu sitt fyrsta heimili ásamt elstu dætrunum tveimur hjá afa og ömmu. Í hugann kemur bjartur ágústdagur 1952 þegar Eggert hlaut vígslu til Kvenna- brekkuprestakalls í Dölum vestur. Gestrisni og höfðingsskapur var þeim í blóð borinn og nut- um við systur þess ásamt fjöl- skyldum okkar. Reyndum kannski af bestu getu að taka þátt í sveitastörfunum og þá var hátíð í bæ. Frændfólk okk- ar á Kvennabrekku var stór þáttur í tilveru okkar og þaðan eigum við fallegar minningar. Eftir ótímabært lát Eggerts brá Ibba búi og flutti til Reykjavíkur. En litla ljóshærða Reykjavíkurhnátan saknaði ætíð Kvennabrekkuáranna og að Kvennabrekku verður hún til moldar borin, við hlið Egg- erts og Ólafs sonar síns. Á Reykjavíkurárum Ibbu hinum síðari vildi svo skemmti- lega til að hún og Glúmur bjuggu í sama húsi og foreldrar okkar. Það kom sér vel nú á seinni árum þegar fróðleiksþor- stinn um gömlu dagana var að bera okkur systur ofurliði, þá var leitað til Ibbu. Hún vissi nefnilega ýmislegt og kunni líka að koma frá sér þannig að oft hlógum við dátt og í kjölfarið fylgdu skemmtilegar frásagnir af fjölskyldunni fyrr og nú. Frændfólki okkar og fjöl- skyldum þeirra sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum þeim Guðs blessunar. Þorbjörg, Margrét og fjölskyldur. Ingibjörg Sigurðardóttir Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, SIGURÐUR ÞÓR ELÍASSON, Hlaðbæ 2, Reykjavík, lést mánudaginn 26. júlí. Útför hans fer fram frá Grensásskirkju þriðjudaginn 10. ágúst klukkan 15. Alda Ármanna Sveinsdóttir Jón Júlíus Elíasson Ásta Björk Sveinsdóttir Margrét Elíasdóttir Ólafur Sigtryggsson og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, HLÖÐVER HALLGRÍMSSON, Hraunvangi 3, Hafnarfirði, lést miðvikudaginn 4. ágúst á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún Númadóttir og fjölskylda Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ARNÓR GUNNARSSON frá Glaumbæ í Skagafirði, er látinn. Útför hans fer fram frá Glaumbæjarkirkju laugardaginn 14. ágúst klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Skagafjarðar. Streymt verður frá athöfninni. Ragnheiður Sövik Óskar Arnórsson Atli Gunnar Arnórsson Kristvina Gísladóttir Leó, Lydía og Arnór Gísli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.