Morgunblaðið - 07.08.2021, Page 35
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það er fyrir löngu orðið tímabært að
taka út feril Frosta Jónssonar sér-
staklega en hann hefur verið stöðugt
að og stöðugt við þegar kemur að ís-
lenskri raftónlistarmenningu í meira
en áratug. Bæði sem Bistro Boy, en
hann hefur gefið út slatta af plötum
undir því nafni, og sem einn eigenda
og rekstraraðila Möller Records, sem
hefur verið ein af helstu raftónlistar-
útgáfum Íslands undanfarinn áratug.
Þá stofnsetti Frosti á dögunum Urð
Músík, fyrirtæki sem heldur utan um
störf hans á sviði hljómjöfnunar og
hljóðblöndunar og þau allra handa
störf sem hann hefur sinnt á sviði tón-
listarinnar fyrir aðra listamenn – og
sjálfan sig líka. Urð Músík gefur
t.a.m. út nýjasta verk hans, Drifting,
sem verður gert að umtalsefni hér
ásamt öðru.
Frosti hefur sinnt tónlist að ein-
hverju marki svo gott sem alla sína
ævi og er píanóleikari að upplagi. Raf-
tónlistarsmíði hefur hann stundað í
u.þ.b. kvartöld en fyrsta eiginlega
sólóplatan, og þá undir nafninu Bistro
Boy, kom út 2012 og ber heitið Sól-
heimar. Að einhverju leyti ber platan
atarna með sér mörg einkennis-
merkja Frosta sem raftónlistar-
manns. Sterkar rætur í sveimi t.d.,
þar sem lög opnast og umhverfast
með hægð bæði og þægð. Rólegheit
og reisn, lúmskar melódíur – fagur-
lega mótaðar – og melankólísk undir-
alda á köflum.
Síðasta mars kom svo út platan
Drifting, á margan hátt poppaðasta
verk Bistro Boy til þessa og var hún
unnin þannig meðvitað, þó að raf-
tónlistin lægi undir sem nokkurs kon-
ar styrktarbiti. Nokkrir gestasöngv-
arar koma og við sögu, þeir PETE
(Jess McAvoy), Bjartmar Þórðarson,
Jason Robert Goldberg og einarIndra
(Einar Rafn Þórhallsson).
„Ég var með nokkuð skýra sýn
varðandi þessa plötu og var búinn að
ramma inn „söguþráðinn“ á henni áð-
Fokið í fallegt skjól
Matráðurinn Frosti
Jónsson gefur út tón-
list undir listamanns-
nafninu Bistro Boy.
ur en ég byrjaði að fullvinna hana,“
sagði Frosti pistilritara í stuttu
netspjalli. Platan sé rökrétt framhald
af síðustu verkum og hann leiti með-
vitað uppi nýjar áskoranir. „Partur af
því er að taka hljóðheiminn sem er
grunnurinn að svo mörgu sem ég hef
gert lengra, t.d. með því að kafa
dýpra í það sem snýr að möguleikum
raftónlistarinnar, forrita og skapa
eitthvað nýtt – en líka að vinna meira
með lifandi hljóðfæri og þá ekki síst
píanóið sem er hjartað í öllu sem ég
geri. Annars trúi ég því að raftónlist
sé ekkert minna lifandi en önnur tón-
list, þetta er allt saman spurning um
einhvers konar samhengi.“
Eins og segir í inngangi hefur
Frosti verið afkastamikill undanfarið
sem Bistro Boy. Mikilvæg plata,
Evolve, kom þannig út í ársbyrjun
2020. Uppgjörsplata með stóru U-i,
tilfinningaþrungin mætti segja hvar
ýmsum málum var lagt með til-
stuðlan tónlistar. Síðasta haust kom
svo út platan Ambient theory of
dreaming hvar sveimið var í for-
grunni (eða öllu heldur, „bakgrunni“).
Og í maí á þessu ári gaf Frosti út
PNO, plötu sem inniheldur saman-
tekt á ýmsum píanósmíðum sem hann
hefur látið frá sér á undanförnum ár-
um. Hann vinnur þá um þessar mund-
ir að verkefni með tónlistarmanni frá
Slóvakíu þar sem klassík og raftónlist
er brædd saman, dálítið „kvikmynda-
legt“ ferðalag eins og Frosti orðar
það og unnið er með lifandi hljóðfæri í
bland við verkfæri raftónlistarinnar.
Nóg að gera í bistróinu!
»
Rólegheit og reisn,
lúmskar melódíur –
fagurlega mótaðar – og
melankólísk undiralda á
köflum.
Frosti Jónsson notast við listamannsnafnið Bistro Boy. Raftónlist hans
hefur verið af ýmsum toga í gegnum tíðina en undanfarin misseri hefur
útgáfa af hans hendi verið óvenjutíð.
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
Framleiðslufyrirtæki Warner
Brothers International TV
(WBITVP) í Þýskalandi hefur
tryggt sér réttinn á glæpasögum
Ragnars Jónassonar rithöfundar
um lögreglumanninn Ara Þór Ara-
son. Um er að ræða sex bóka röð
sem kennd er við Siglufjörð og
verður hún útfærð fyrir sjónvarp
en frá því var greint í Variety í
gær.
„Það er ævintýri líkast að fá að
vinna að þessu verkefni með Warn-
er Bros., framleiðanda sem á sér
svo langa og farsæla sögu. Ég
hlakka mikið til samstarfsins og til
að sjá bækurnar um Ara Þór lifna
við á skjánum,“ er haft eftir Ragn-
ari Jónassyni í tilkynningu.
Bækur Ragnars hafa notið mik-
illa vinsælda en þær hafa nú selst í
yfir tveimur og hálfri milljón ein-
taka og komið út í yfir 33 löndum. Á
síðasta ári voru þrjár af bókum
Ragnars vikum saman meðal tíu
mest seldu á metsölulista Der
Spiegel í Þýskalandi. Þá náði bók
hans Þorpið (The Girl Who Died)
nýverið inn á topp tíu lista Sunday
Times, fyrst íslenskra bóka.
Siglufjarðarsögur Ragnars í sjónvarp
Vinsæll Bækur Ragnars Jón-
assonar njóta vinsælda víða.
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
96%
„Eyrnakonfekt“ er yfirskrift tón-
leika þar sem söngverk eftir Þór-
unni Guðmundsdóttur munu hljóma
í Hallgrímskirkju í Saurbæ á morg-
un, sunnudag, og hefjast þeir
klukkan 16. Flestir söngtextarnir
eru einnig eftir Þórunni. Flytj-
endur á tónleikunum, sem eru á
dagskrá sumartónleikararaðar
Hallgrímskirkju í Saurbæ, er þraut-
reynt tónlistarfólk sem komið hefur
víða fram, þau Björk Níelsdóttir
sópran, Erla Dóra Vogler mezzó-
sópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór,
Hafsteinn Þórólfsson baritón og
Eva Þyri Hilmarsdóttir á píanó.
Tónleikarnir verða í kirkjuskipinu
sjálfu. Að tónleikunum loknum
munu veitingastaðir í nágrenninu
bjóða upp á ýmis tilboð á mat og
fleira fyrir tónleikagesti.
Hallgrímskirkja í Saurbæ hefur
sögulegt og menningarlegt gildi
fyrir Íslendinga en þar bjó Hall-
grímur Pétursson og samdi þar
Passíusálmana. Starfsemi hefur þó
verið í lágmarki þar undanfarin ár
og eru sumartónleikarnir til þess
fallnir að halda staðnum lifandi og
fjölbreyttum. Í kirkjunni er orgel
og flygill og hljómburður þar ber
vel ýmsa gerð tónlistar.
Eyrnakonfekt með söngverkum
Þórunnar Guðmundsdóttur í Saurbæ
Flytjendur Listamennirnir sem koma fram og flytja verk eftir Þórunni Guðmundsdóttur.
Morgunblaðið/Ómar