Morgunblaðið - 07.08.2021, Page 40
Djass- og blús-
sveitin Sálgæslan
kemur fram á tón-
leikum veitinga-
hússins Jómfrúar-
innar við
Lækjargötu í dag,
laugardag, kl. 15.
Sérstakir gestir í
hluta dagskrár-
innar verða söngv-
ararnir Jógvan
Hansen og Friðrik
Ómar Hjörleifssson. Saxófónleikarinn Sigurður Flosa-
son leiðir hljómsveitina og er höfundur tónlistar og
texta. Þórir Baldursson leikur á hammondorgel, Andrés
Þór Gunnlaugsson á gítar og Einar Scheving á tromm-
ur. Tónleikarnir taka mið af yfirstandandi Hinsegin dög-
um, meðal annars með flutningi á „Ég hitt’ann fyrst á
Jómfrúnni“ – ástardúetti sem var hljóðritaður af Frið-
riki, Jógvan og Sálgæslunni. Aðgangur er ókeypis.
Friðrik Ómar og Jógvan koma fram
með Sálgæslunni á Jómfrúnni í dag
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í ferðaþjónustu er lykilatriði að
þykja vænt um fólk. Mikilvægt er
að skapa jákvætt andrúmsloft með-
al starfsfólks, sem skilar sér alltaf
til gesta,“ segir Jóhann Guðni
Reynisson á Blue Hotel Fagralundi
í Reykholti í Biskupstungum. Hót-
elið var opnað 15. júlí sl., aðeins 80
dögum frá því byrjað var að reisa
og setja saman einingar svo úr varð
1.500 fermetra bygging. Alls eru 40
herbergi á hótelinu, sem er í
skógarlundi við Biskupstungn-
abraut og í miðju Gullna hringsins.
Gaman að spjalla við gesti
„Ég veit fátt skemmtilegra en að
spjalla við gestina sem eru í fríi og
hafa fært sig niður um gír í hrað-
ferð tilverunnar,“ segir Jóhann
Guðni. „Íslendingar eru áberandi í
hópi gesta hér og margir dvelja í
nokkra daga. Margir nýta sér að í
30 kílómetra radíus héðan frá Reyk-
holti eru margir golfvellir; í
Öndverðarnesi og Kiðjabergi í
Grímsnesi, í Úthlíð, í Miðdal við
Laugarvatn, á Geysi og á Flúðum.“
Eigendur hótelsins nýja eru
þrenn hjón; Jóhann Guðni og El-
ínborg Birna Benediktsdóttir, Katr-
ín Helgadóttir og Bjarni Kristján
Þorvarðarson og í Bandaríkjunum
eru Claudia og Ken Peterson maður
hennar, sá er stóð að byggingu ál-
versins á Grundartanga.
Samstilltur hópur
„Við Elínborg stöndum vaktina
hér núna til að byrja með og höfum
starfað við ferðaþjónustu í nokkur
ár ásamt Bjarna og Katrínu; byggð-
um og leigjum út tólf sumarhús ein-
mitt hér í Biskupstungum. Við vild-
um róa áfram á sömu mið og
fundum fína lóð í Reykholti sem var
föl. Gistiheimili sem þar var fyrir er
í dag nýtt sem gestamóttaka og
morgunverðarsalur nýja hótelsins,
en framkvæmdir við byggingu þess
hófust síðasta haust. Þá voru sökkl-
arnir steyptir og snemma í vor var
byrjað að raða saman einingunum,
sem fengnar eru frá Noregi,“ segir
Jóhann Guðni og bætir við: „Í stórri
framkvæmd, eins og byggingu Blue
Hótels Fagralundar, þurfti allt að
ganga greitt fyrir sig. Þá er mik-
ilvægast að hafa með sér gott fólk í
samstilltum hópi – og svo borð fyrir
báru svo hægt sé að bregðast skjótt
við því sem er ófyrirséð. Fyrstu
gestirnir hér bókstaflega mættu
iðnaðarmönnum í dyrunum svo kap-
allinn gekk upp. Fjölskyldur og vin-
ir unnu hér um helgar við að gera
herbergin klár og skapa notalegan
blæ en á öllum þeirra eru málverk
sem Katrín Helgadóttir, einn eig-
enda hótelsins, málaði. Allt þetta
gefur hótelinu hlýlegt yfirbragð
sem skiptir miklu svo gestum líði
vel – en til þess er leikurinn gerð-
ur.“
Nýtt hlýlegt hótel við
miðju Gullna hringsins
- Reist á mettíma - 40 herbergi - Gestunum líði vel
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Samrýnd Hjónin Elínborg Benediktsdóttir og Jóhann Guðni Reynisson hafa
staðið í ströngu í Reykholti eftir að nýja hótelið var opnað nýverið.
Slökun Heitir pottar eru við hótelið
þar sem gestir geta slakað á.
Anddyri Á veggjum hótelsins eru
málverk eftir Katrínu Helgadóttur.
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 219. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Efstu liðin í Pepsí-deild kvenna í knattspyrnu unnu
bæði leiki sína í gær en þá voru fjórir leikir á dagskrá.
Topplið Vals þurfti að hafa verulega fyrir því að landa
öllum stigunum gegn ÍBV á Hlíðarenda. En það hafðist
þó og Breiðablik sótti þrjú stig í Skagafjörðinn þrátt
fyrir að Tindastóll fengi óskabyrjun.
Keflavík og Fylkir mættust í mikilvægum leik í bar-
áttunni um að halda sæti sínu í deildinni og þar hafði
Fylkir betur. Fyrir vikið fór Árbæjarliðið upp fyrir Tinda-
stól og upp í 8. sæti. » 32
Óbreytt staða á toppnum eftir
sigra hjá Val og Breiðabliki í gær
ÍÞRÓTTIR MENNING