Morgunblaðið - 18.08.2021, Side 4

Morgunblaðið - 18.08.2021, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 OTTA VÖ TÆ Af . . NÝJAR VÖRUR FRÁ ZIZZI Stærðir 14-32 eða 42-60 w. veg . . Hreyfilshúsi nsásveg 08 Reykjavik ím 81-155 ww.curvy.is Heitrapottaverksmiðja NormX í Vogum á Vatnsleysuströnd hefur verið rekin með fullum afköstum í allt sumar, en afkastagetan er 10-12 pottar á sólarhring. Sala á pottum hefur gengið mjög vel í ár að sögn Orra Stefánssonar, sölu- og verslunarstjóra fyrir- tækisins. „Síðasta ár var frábært og þetta ár stefnir í að vera jafn gott. Við framleiðum alla okkar potta sjálf. Við steypum 10-12 potta á sól- arhring yfir sumarið en svo hægist aðeins á yfir vetrartímann,“ segir Orri. Sex mismunandi tegundir Í boði eru sex tegundir af pottum, fimm heitir og einn kaldur. „Kaldi potturinn hefur verið mjög vinsæll líka. Við höfum suma daga verið að selja 10-15 heita og kalda potta á dag í sumar.“ Í verksmiðju NormX starfa fjórir, en sex vinna í verslun fyrirtækisins í Auðbrekku í Kópavogi. Þar er einnig sýningarsalur fyrir Cover- svalalokanirnar finnsku en Normx tók nýlega yfir sölu og þjónustu á þeim hér á landi. tobj@mbl.is Bað Heitur og kaldur pottur frá NormX hlið við hlið úti á palli. 10-12 pottar á dag - Verksmiðja NormX hefur vart und- an að framleiða heita og kalda potta Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Væntingar eru um jákvæðar niður- stöður úr loðnuleiðangri sem hefst í byrjun september. Mælingar á ung- loðnu haustið 2020 leiddu til þess að gefinn var út upphafskvóti fyrir ver- tíðina 2022 upp á 400 þúsund tonn. Vísitala ungloðnu í leiðangrinum fyr- ir ári var sú næsthæsta frá upphafi slíkra mælinga. Ef ekki væri varúð- arnálgun í aflareglu upp á fyrrnefnd 400 þúsund tonn hefði upphafskvót- inn verið yfir 700 þúsund tonn. Venju samkvæmt verður upphafs- kvótinn endurskoðaður að loknum leiðangrinum í september. Loka- ráðgjöf verður gefin út að lokn- um mælingum í janúar og febr- úar. Eftir mikla leit og mælingar á loðnustofninum var gefinn út kvóti upp á sam- tals 127.300 tonn fyrir vertíðina síðasta vetur, en árin tvö á undan voru engar loðnuveiðar heimilaðar. Birkir Bárðarson, fiskifræðingur, segir að í byrjun september verði lagt af stað í hefðbundinn tæplega 20 daga haustleiðangur á tveimur rann- sóknaskipum. Bjarni Sæmundsson fer á vegum Hafrannsóknastofnunar og Árni Friðriksson hefur verið leigður af Grænlendingum til loðnu- rannsókna á sama tíma. Samvinna verður um rannsóknir og verður rannsóknasvæðið hafið norður af Ís- landi og landgrunnið við Austur- Grænland. Farið verður vestur fyrir Angmaksalik og norður fyrir Shann- on-eyju og 75. gráðu ef ís og veður hamla ekki mælingum. Kynþroska loðna á ferðinni Birkir segir ekki óeðlilegt að væntingar séu bundnar við leiðang- urinn miðað við mælingar á ung- loðnu haustið 2020, en sá árgangur ber uppi veiði næsta vetrar. Þá mældust um 146 milljarðar einstak- linga eða 734 þúsund tonn af ókyn- þroska loðnu en samkvæmt afla- reglu þarf yfir 50 milljarða til að mæla með upphafsaflamarki. Í árlegum makrílleiðangri Árna Friðrikssonar í júlí varð vart við kynþroska loðnu fyrir norðan land, m.a. meðfram landgrunnsbrúninni. Birkir segir að ekki sé óvanalegt að á þessu svæði sé eitthvað af ókyn- þroska loðnu en óvanalegt sé að þarna sé stór kynþroska loðna. Hann segir að eftir sé að vinna nánar úr gögnum um það hversu langt þessi loðna hafi verið komin í þroska með tilliti til hrygningar. Hann segir viðbúið að miðað við sterkan árgang sem vonandi sé á leiðinni sé loðnu víðar að finna en síð- ustu ár. Líklegast segir hann að þessi loðna komi til hrygningar á hefðbundnum tíma næsta vetur og gefi þá fyrirheit um að vel sé að ræt- ast úr með þennan árgang. Vonast eftir jákvæðum niðurstöðum - Loðnuleiðangur tveggja skipa í byrjun september - Vertíðin í vetur gæti orðið sú stærsta lengi Birkir Bárðarson. Rannsóknir Hafþór Jónsson, skipstjóri á Gefjuni EA, við háf sem notaður var við sýnatöku. Nálægt hrygningu Kynþroska loðna sem fannst í þorskmögum í Eyjafirði í sumarbyrjun, en þá var farið í nokkrar rannsóknarferðir á minni bátum. Undanfarin ár hafa borist fréttir af síðbúinni hrygningu loðnu fyrir norðan land. Til að meta stöðuna í ár fóru starfs- menn Hafrannsóknastofnunar í nokkra túra á minni bátum í maí og júní. Birkir Bárðarson segir að erfitt sé með saman- burð, en það sé samhljómur meðal heimamanna, sem rætt var við, um að minna hafi ver- ið af hrognaloðnu við Norður- land í ár en nokkur ár þar á undan. Könnuð voru svæði frá Siglufirði austur í Þistilfjörð. Birkir segist að gerðar hafi verið tilraunir til að bergmáls- mæla hvort marktækt magn væri á ferðinni. Skoðaðir voru líklegir hrygningarblettir, myndavélar voru notaðar til að mynda fisk í torfum og hugs- anleg loðnuhrogn á botninum og háfar notaðir til að ná loðnu og öðrum sýnum. Mynd- irnar til hliðar eru teknar í ein- um þessara rannsóknarróðra. Þá voru tekin sýni úr fisk- mögum og annað slagið var þar að finna loðnu. Í Eyjafirði fannst í slíkum sýnum óhrygnd loðna sem hefði að líkindum hrygnt í júní. Þá voru tekin húðsýni úr hnúfubökum, en með efnagreiningu er von- ast til að hægt verði að sjá hvað hvalirnir höfðu verið að éta. Birkir segir að með þessum mælingum hafi ekki sést af- gerandi magn af loðnu, hvorki til veiða né til að hafa áhrif á stofnmat. Minna var af hrognaloðnu nyrðra RANNSÓKNIR VIÐ NORÐUR- LAND Á MINNI BÁTUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.