Morgunblaðið - 18.08.2021, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.08.2021, Blaðsíða 31
TÓKÝÓ 2021 Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Sundkonan Thelma Björg Björns- dóttir úr Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík tekur þátt á sínu öðru Ól- ympíumóti fatlaðra þegar hún keppir í 100 metra bringusundi og 400 metra skriðsundi í S6 flokki hreyfihamlaðra á mótinu í Tókýó. Thelma Björg er eini íslenski kepp- andinn af ólympíuförunum sex í ár sem hefur áður keppt á Ólympíu- móti fatlaðra, en hún tók þátt í alls fimm sundgreinum á mótinu í Rio de Janeiro í Brasilíu árið 2016. Thelma Björg sagði spenning sannarlega vera farinn að gera vart við sig yfir því að vera að fara að keppa á sínu öðru Ólympíumóti. „Þetta leggst bara mjög vel í mig. Ég er spennt,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið. Undirbúningur Thelmu Bjargar fyrir mótið hefur verið með besta móti. „Þetta hafa bara verið stífar æfingar. Ég æfi sex sinnum í viku,“ sagði hún. Spurð hvort kór- ónuveirufaraldurinn hafi sett eitt- hvert strik í reikninginn sagði Thelma Björg einfaldlega: „Nei, ég hef náð að halda mínu striki.“ En hver eru markmið hennar á mótinu? „Þau eru að komast í úrslit. Ég ætla að reyna að vinna til verð- launa.“ Hún hefur enda fulla trú á sjálfri sér. „Ég tel möguleikana bara góða, ég er bjartsýn,“ sagði Thelma Björg að lokum í samtali við Morg- unblaðið. „Ætla að reyna að vinna til verðlauna“ Morgunblaðið/Unnur Karen 2 Thelma Björg keppir í 100 metra bringusundi og 400 metra skriðsundi. 17. umferð í Pepsi Max-deild karla 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Beitir Ólafsson KR Sigurður Egill Lárusson Valur Kjartan Henry Finnbogason KR Pablo Punyed Víkingur R.Viktor Karl Einarsson Breiðablik Kristall Máni Ingason Víkingur R. Matthías Vilhjálmsson FH Finnur Tómas Pálmason KR Mikkel Qvist KA Árni Vilhjálmsson Breiðablik Pétur Viðarsson FH 2 2 2 3 3 3 2 4 ÍÞRÓTTIR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 _ Sigrún Sjöfn Ámundadóttir er gengin til liðs við körfuknattleikslið Fjölnis í Grafarvogi en hún kemur til félagsins frá Skallagrími þar sem hún hefur leikið frá árinu 2016. Leikmað- urinn hefur áður leikið með KR, Hamri og Grindavík hér á landi og þá lék hún um tíma sem atvinnumaður í Frakk- landi og Svíþjóð. Sigrún á 57 leiki að baki fyrir A-landsliðið. Fjölnir hafnaði í fjórða sæti deildarkeppninnar á síð- ustu leiktíð en tapaði fyrir verðandi meisturum Vals í undanúrslitum Ís- landsmótsins. _ Bandaríski körfuknattleikskappinn Sakir Smith er genginn til liðs við ÍR í úrvalsdeild karla, Dominos-deildinni, og mun hann leika með liðinu á kom- andi keppnistímabili. Smith kemur til félagsins frá Sporting í Portúgal þar sem hann lék á síðustu leiktíð. ÍR hafnaði í tíunda sæti úrvalsdeild- arinnar á síðustu leiktíð og rétt slapp við fall úr deildinni. _ Körfuknattleikskonan Sóllilja Bjarnadóttir hefur gert samning við Umeå í Svíþjóð og mun hún leika með liðinu á komandi leiktíð. Þetta stað- festi hún í samtali við netmiðilinn Karfan.is. Umeå hafnaði í níunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og leikur í Evrópukeppni á kom- andi leiktíð. Sóllilja, sem er 26 ára gömul, skoraði átta stig, tók fjögur fráköst og gaf þrjár stoðsendingar að meðaltali með Breiðabliki í efstu deild á síðustu leiktíð en hún hefur einnig leikið með Stjörnunni, Val og KR á ferl- inum. _ Hólmfríður Magnúsdóttir, leik- maður Selfoss í sumar og fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, tilkynnti á Facebook í gærkvöldi að hún hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hólmfríður er barnshafandi og hefur að eigin sögn leikið sinn síðasta leik. Hólmfríður hugðist hætta fyrir þetta keppnistímabil en snerist þá hugur. Hólmfríður lék 113 A-landsleiki og skoraði 37 mörk, þar af fyrsta mark Ís- lands í lokakeppni stórmóts. _ Ekki blæs byrlega hjá Rúnari Má Sigurjónssyni og samherjum hans í CFR Cluj í umspilinu fyrir riðlakeppni Evrópudeildarinnar eftir fyrri leikinn gegn Rauðu stjörnunni í gær. Cluj mætti gamla stórveldinu í Belgrað og Rauða stjarnan vann 4:0. Rúnar lék allan leikinn með rúmenska liðinu sem þarf á stórleik að halda í síðari leikn- um til að eiga von um að komast áfram. _ Bandaríkjamaðurinn Dedrick Basile er genginn til liðs við Njarðvík og mun leika með liðinu í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Dominos-deildinni, á komandi keppnistímabili. Basile, sem er bakvörður, lék með Þór frá Akureyri á síðustu leiktíð og skoraði 19 stig og gaf átta stoðsendingar að meðaltali í 25 leikjum. Þórsarar höfnuðu í sjö- unda sæti úrvals- deildarinnar á síð- ustu leiktíð og féllu úr leik í átta liða úrslit- um Íslands- mótsins eftir 3:1-tap gegn Ís- lands- meist- urum Þórs frá Þorláks- höfn. Eitt ogannað Landsliðskonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir skrifaði í gær undir eins árs samning við sænska knatt- spyrnufélagið Hammarby en hún lék með Le Havre í frönsku 1. deild- inni á síðustu leiktíð. Berglind, sem er 29 ára gömul, á að baki 52 lands- leiki þar sem hún hefur skorað sjö mörk en hún hefur síðustu ár leikið með PSV í Hollandi, AC Milan á Ítalíu og Le Havre. Hún lék með Breiðabliki áður en hún hélt út í at- vinnumennsku en Hammarby er í þriðja sæti sænsku úrvalsdeild- arinnar með 21 stig eftir tólf leiki. Frá Frakklandi til Svíþjóðar Ljósmynd/Hammarby Svíþjóð Berglind Björg skrifaði undir árs samning við Hammarby. FORKEPPNI HM Kristján Jónsson kris@mbl.is Ísland tryggði sér keppnisrétt í und- ankeppni HM karla í körfuknattleik með tveimur sigrum á Dönum í for- keppni HM. Síðari leikurinn gegn Dönum, og sá fjórði hjá íslenska lið- inu í riðlinum, fór fram í gær, og vann Ísland sannfærandi sigur 89:73. Eins og fram hefur komið var riðillinn spilaður á nokkrum dögum í Podgorica í Svartfjallalandi. Fyrir liggur að Svartfjallaland og Ísland fara áfram og Danmörk sé úr leik þótt Svartfjallaland og Danmörk eigi eftir að mætast. Markmiðið hjá íslenska liðinu var vitaskuld að komast áfram í und- ankeppnina. Segja má að það hafi verið vel gert hjá íslenska liðinu að ná því örugglega þegar liðið var án Martins Hermannssonar, Hauks Helga Pálssonar og Jóns Axels Guð- mundssonar. Á hinn bóginn var af- skaplega dýrmætt að Tryggvi Snær Hlinason gat verið með. Ekki er sér- stök ástæða til bjartsýni varðandi þátttöku Martins þegar komið verð- ur í undankeppnina því ólíklegt er að Valencia gefi honum leyfi. Haukur Helgi er hins vegar kominn heim og orðinn leikmaður Njarðvíkur sem eru í sjálfu sér fín tíðindi fyrir lands- liðið til skemmri tíma. Breiddin í íslenska landsliðinu er orðin meiri en áður var en sér- staklega í bakvarðastöðunum. Elvar Már Friðriksson hefur nýtt dvölina erlendis vel og er orðinn frábær leik- maður. Ægir Þór Steinarsson hefur með árunum náð betra valdi á þeirri geysilegu snerpu sem í honum býr í sókninni og er mun meira ógnandi í landsleikjum en fyrir nokkrum ár- um. Elvar, Ægir og Sigtryggur Arn- ar Björnsson hafa allir gífurlega mikla snerpu sem auðveldar þeim stöðuna maður á móti manni bæði í vörn og sókn. Við svo bætist að leikmaður eins og Kári Jónsson er mikil skytta og Kristinn Pálsson getur einnig hitt vel á góðum degi. Takmarkinu náð með sigr- um á Dönum Ljósmynd/FIBA Europe Snöggur Galdramaðurinn Sigtryggur Arnar sækir að köfu Dana. - Ísland fór áfram úr forkeppni HM karla - Aukin breidd í landsliðshópnum Kristall Máni Ingason úr Víkingi úr Reykjavík var besti leikmaður 17. umferðar úrvalsdeildar karla í fót- bolta að mati Morgunblaðsins. Kristall átti mjög góðan leik fyrir Víking í 3:0-sigrinum gegn Fylki á útivelli á mánudaginn var. Kristall fékk tvö M fyrir frammi- stöðu sína í leiknum, en hann gerði tvö fyrstu mörk Víkinga. Víking- urinn er í liði umferðarinnar í annað skipti. Finnur Tómas Pálmason, Mikkel Qvist og Pétur Viðarsson í varn- arlínunni eru í liði umferðarinnar í fyrsta skipti. Matthías Vilhjálmsson úr FH er í fjórða skipti í liði umferð- arinnar. Aðeins Höskuldur Gunn- laugsson hefur verið oftar í liði um- ferðarinnar eða fimm sinnum. Þeir Viktor Karl Einarsson úr Breiðabliki og Pablo Punyed hjá Víkingi eru í þriðja skipti í liði um- ferðarinnar. Kristall bestur í 17. umferð Valur er úr leik í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu eftir 1:0-tap gegn Hoffenheim frá þýskalandi í 1. umferð keppninnar í Zürich í gær. Hoffenheim var sterkari að- ilinn í leiknum og fékk mun hættu- legri færi en staðan í hálfleik var markalaus, 0:0. Nicola Bella, fyrirliði liðsins, skoraði svo sigurmark leiksins á 57. mínútu eftir laglegt samspil þýska liðsins og þar við sat. Valskonur eru því úr leik en liðið mætir Zürich í leik um 3. sæti riðils- ins hinn 20. ágúst í Zürich í Sviss. Morgunblaðið/Unnur Karen Tap Valskonur töpuðu með minnsta mun gegn Hoffenheim í Sviss. Valskonur úr leik í Zürich

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.