Morgunblaðið - 18.08.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.08.2021, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is LKINUGEFÐU DAGAMUN „MÉR FERST SVO SEM AÐ DÆMA.“ „ÞÚ VISSIR ÓSKÖP VEL ÞEGAR ÞÚ KEYPTIR ÞAÐ AÐ VIÐ ERUM BARA MEÐ EITT TRÉ Í GARÐINUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finnast þið hafa þekkst áður í öðru lífi. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „KÆRA SPYRÐU HUNDINN, HVERS VEGNA DRÝGIR HUNDURINN MINN ALDREI NEINA HETJUDÁÐ?“ VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! ÞAÐ ER ÞÉR AÐ KENNA AÐ HAFA EKKI DOTTIÐ NIÐUR Í BRUNN. HEFURÐU HEYRT AÐ STUNDUM KVIKNAR Í FÓLKI UPP ÚR ÞURRU? JÁ… … EN ÞAÐ ER AFSKAPLEGA SJALDGÆFT! EKKI Í MINNI FJÖLSKYLDU! sem var helber klaufaskapur alveg hreint.“ Gylfi er mikill fjölskyldumaður en hann kynntist eiginkonunni snemma. „Við vorum svolítið lengi í tilhugalífinu, en erum búin að vera gift í 21 ár en verið saman miklu lengur. Núna eigum við eitt barnabarn, en það er annað á leið- inni.“ Fjölskylda Eiginkona Gylfa er Fríða Björk Pálsdóttir viðskiptafræðingur, f. 2.7. 1957. Foreldrar hennar eru hjónin Páll Guðbjörnsson, f. 23.2. 1929, d. 28.4. 1990, og Stefanía Anna Jónasdóttir, f. 20.10. 1934. Börn Gylfa og Fríðu eru: 1) Harpa Dögg Fríðudóttir, var í háskóla og menntaskóla í Kolding í Dan- mörku, f. 27.4. 1988 gift Má Við- arssyni verkstjóra, f. 28.8. 1987, og eiga þau dótturina Maríu Björk, f. 18.3. 2019. 2) Aron Páll Gylfason, rekstrarstjóri hjá MI Ís- land, f. 23.9. 1994. Systkini Gylfa eru Ólafur Valdemar, f. 24.3. 1943; Aðalsteinn Ísfjörð, f. 13.2. 1947; Árni Arnar, f. 28.2. 1955; Hólm- fríður Ása, f. 17.7. 1958 og Símon Sigurður, f. 4.1. 1961. Foreldrar Gylfa voru hjónin Sigurpáll Aðalsteinn Ísfjörð, klæð- skeri og síðar múrarameistari, f. 6.4. 1922, d. 17.12. 2005, og Anna Hulda Símonadóttir, saumakona og húsfreyja, f. 17.8. 1923, d. 10.8. 1984. Þau bjuggu á Húsavík og í Kópavogi. Gylfi Þór Sigurpálsson Margrét Anna Svanfríður Sigurðardóttir húsfreyja á Stóru-Reykjum í Flókadal, Skag. Jósef Björnsson bóndi á Stóru-Reykjum í Flókadal, Skag. Sigríður Guðný Jósepsdóttir húsfreyja á Siglufirði, síðast búsett í Kelduneshreppi Símon Márusson verkamaður og kyndari á Siglufirði, síðast búsettur í Hafnarfirði Anna Hulda Símonardóttir húsfreyja og saumakona á Húsavík og síðar í Kópavogi Anna Jóhannsdóttir Anna og Márus trúlofuðust en giftust ekki því hún veiktist af holdsveiki og fór suður á Laugarnesspítala og dó þar Márus Ari Símonarson bóndi á Fyrirbarði í Fljótum, Skag. Hólmfríður Sigurpálsdóttir ráðskona við kolanám íslenska ríkisins í Tungunámu á Tjörnesi, síðast búsett á Húsavík Jón Eyjólfsson bóndi á Ytrafjalli í Aðaldal og Skógum í Reykjahverfi, síðast trésmiður á Húsavík Arnína Kristín Jónsdóttir talsímavörður og húsfreyja á Húsavík Aðalsteinn Ferndínand Jónsson Ísfjörð skósmiður og söðlasmiður á Akureyri og Húsavík Sigurborg Kristbjörnsdóttir skósmiðsfrú á Akureyri Jón Ísfjörð Guðmundsson skósmiður á Akureyri og síðar á Siglufirði Úr frændgarði Gylfa Þórs Sigurpálssonar Sigurpáll Aðalsteinn Ísfjörð klæðskeri og múrarameistari á Húsavík og síðar í Kópavogi. Frístundamálari og hélt fjölda sýninga Fyrir viku birtist hér í Vísnahorni vísa úr óbirtri rímu eftir Ingólf Ómar og lét ég þess þá getið, að ég vildi gjarna fá meira að heyra. Ing- ólfur Ómar brást vel við og hefur nú gaukað að mér einni vísu til viðbótar úr þessari sömu rímu: Gasprar mest en grundar fátt glópur dyggðasnauður. Oftast nær sér hreykir hátt heimskur bjöllusauður. Guðmundur Arnfinnsson yrkir á Boðnarmiði og kallar „Umbreyt- ingar“: Ævitími tæmist, treina þó menn reyni æskuglóð í æðum, ástarhóta njóta. Snjóafeldinn foldin færist í og værum svefni sofna hlýtur, síðan blóma skrýðist. Tryggvi Jónsson rekur „neftób- aksraunir miðaldra karlaula“: „Neftóbakið á sófann sest,“ segir konan reið. „Eingöngu þar sandur sést,“ segi ég í neyð. Við þennan lestur kom upp í hug- ann gömul staka: Taktu í nefið, tvinna hrund, til er baukur hlaðinn. Komdu svo með káta lund og kysstu mig í staðinn. Kári Erik Halldórsson rekur „Raunasögu“: Lúsmýið nú þjakar þjóð en þrautin mesta er, að þær girnast gæðablóð úr greyjum eins og mér. Ég bitinn er í báða krika, bakhlutann og punginn líka. Það ei verður þrautalaust ef þrotinn varir fram á haust. Friðrik Steingrímsson sendir þessa stöku suður yfir heiðar: Lögfræðinga gírug gnótt gjarnan þykjast snjallir, þó málum tapi títt og ótt Trumpliðarnir allir. Magnús Halldórsson vísar í viðtal við Dorrit, þar sem hún segir að ódýrara sé að klóna hund en að eiga börn: Hundur kemur hunds í stað, er hinn að fullu þagnar. En kostar held ég kássu að, klóna Ólaf Ragnar. „Efinn er faðir viskunnar“ segir Hrólfur Sveinsson: Hann Bersi sem barnaði Pálu bruðlaði því, sem þau stálu, með ölkum og hórum. Það efa ég stórum að hann sé höfundur Njálu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Umbreytingar, neftóbak og lúsmý

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.