Morgunblaðið - 18.08.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.08.2021, Blaðsíða 17
Okkar yndislega vinkona Ingi- björg lést 6. ágúst sl. á 85 ára af- mælisdegi sínum, á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Hún kvaddi umkringd sínum stóra hópi sem var hjá henni um morg- uninn og lásu þau fyrir hana þær kveðjur sem höfðu borist og sungu fyrir hana afmælissöng- inn. Að því loknu lokaði hetjan okkar augunum sínum og tók síð- asta andvarpið. Hvíldin var kom- in, yndislegur friður ríkti yfir henni. Hún var farin til Magn- úsar síns sem beið hennar og saman leiddust þau hönd í hönd inn í Sumarlandið. Kynni okkar hófust árið 1967 er við fluttumst í sömu raðhúsa- lengju að Móaflötinni í Garðabæ. Með okkur tókst sterk og dýr- mæt vinátta sem aldrei slitnaði, og þar áttum við saman margar góðar og skemmtilegar gleði- stundir. Yndislega vinkona mín, mikið á ég eftir að sakna þín og símtal- anna okkar, það sem við gátum oft hlegið saman, svo var líka ein- staklega gaman að heyra þig segja frá. Elsku Ingibjörg mín, þú varst alveg einstök, þvílíkt æðruleysi og hugrekki sem þú sýndir. Þegar þú sagði mér frá útkomunni hjá lækninum, þá hélstu ró þinni, þú varst einstök. Síðan bættir þú við, að á meðan þú gætir, þá ætlaðir þú að gera það sem þig langaði til. Ekki stóð á því, þú fórst með þínum ynd- islegu börnum í þyrluflug á gos- stöðvarnar. Svo ætlaðir þú að halda jólin í Jacksonville hjá Stínu þinni og Tim. Ég veit að þið Magnús bregðið ykkur þangað og labbið um ströndina. Ég er henni Stínu þinni svo þakklát fyrir að hringja til mín, rétt áður en þú hættir að geta talað í síma og við buðum hvor annarri góða nótt og ljúfa drauma. Ég felli alltaf tár þegar ég hugsa um þetta síðasta samtal okkar. Elsku vinkona okkar, við Garðar þökkum þér ómetanlega vináttu og tryggð frá fyrstu kynnum. Þinni stóru og dásamlegu fjöl- skyldu sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning okkar ynd- islegu Ingibjargar Björnsdóttur. Helga og Garðar. Kær vinkona og samstarfs- kona er látin eftir langa og far- sæla ævi. Við, sem áttum samleið með henni um nærri 50 ára skeið, kveðjum og þökkum. Við kynntumst allar snemma á 8. áratugnum í Arnarhvoli í starfi hjá fjármálaráðuneytinu. Það voru glaðir og bjartir dagar. Ráðuneytinu var stýrt af traust- um embættismönnum og starfs- hópurinn samtaka. Í Arnarhvoli á þeim tíma voru flestöll ráðu- neytin til húsa, að undanskildum forsætis-, menntamála- og utan- ríkisráðuneytinu, og þeir margir sem áttu erindi í húsið. Og í mötuneytinu í kjallaranum, sem önnur Ingibjörg stjórnaði af myndarskap, borðuðu allir sam- an og var oft glatt á hjalla. En eitt af öðru fluttust önnur ráðu- neyti út og að lokum varð fjár- málaráðuneytið eitt eftir. Ingibjörg hóf störf hjá fjár- laga- og hagsýsludeild en tók við starfi ritara ráðherra og ráðu- neytisstjóra í lok 8. áratugarins. Síðar var svo starfinu skipt og annar ritari ráðinn fyrir ráðu- neytisstjóra. Ingibjörg var afar farsæl í starfi og vinsæl meðal samstarfsmanna. Hún var ákveð- in þó og hélt öllu í röð og reglu. Starfið var mjög annasamt og oft ekki bundið við venjulegan skrif- stofutíma en öllu tók hún af mik- illi þolinmæði. Ekki má gleyma hennar góða manni, Magnúsi Ingimarssyni, sem annaðist tónlistarhliðina þegar starfshópurinn kom saman utan vinnutíma. Höskuldur Jóns- son, skrifstofustjóri og síðar ráðuneytisstjóri, var ötull við að drífa hópinn í ferðalög og oftast með börn og buru líka. Magnús tók þá nikkuna með og við áttum ógleymanlegar stundir saman, hvort sem var við varðeld í fjör- unni á Selatöngum, í gróðursetn- ingarferð austur í sveitir eða annað. Magnús kom líka upp kór, Stjórnarráðskórnum, sem söng á árshátíðum og við fleiri tækifæri. Ingibjörg var að sjálfsögðu í kórnum og margir aðrir góðir liðsmenn. Eftir að Ingibjörg lét af störf- um, þá sjötug að aldri, tókum við, ásamt Margréti heitinni Ingólfs- dóttur, að hittast reglulega og borða saman á Jómfrúnni í Lækj- argötu. Var okkar síðasti fundur nú í byrjun júní eftir langt covid- hlé. Ingibjörg hafði þá skömmu áður verið greind með illvígan sjúkdóm en kom samt og var með okkur, glöð og hress að vanda og kjarkurinn óbilaður. Að leiðarlokum þökkum við samfylgdina og sendum aðstand- endum innilegar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Ingi- bjargar Björnsdóttur. Ásta Lára, Sigrún, Sigurbjörg og Vilborg. Ingibjörg Björnsdóttir lést á afmælisdegi sínum í faðmi fjöl- skyldu sinnar. Það var við hæfi því í hennar faðmi átti allt hennar fólk ætíð athvarf. Þannig mun það hafa verið svo lengi sem hver og einn hafði minni til. Og við börn Guðrúnar og Jón- asar B., föðurbróður hennar, vor- um hennar fólk. Sú var okkar til- finning. Hún hafði passað okkur á unga aldri, eins konar stóra systir og á lífsleiðinni áttum við margar gefandi stundir í návist hennar. Alltaf stafaði frá henni hlýju. Það er ekki öllum gefið að vera sá sem allir reiða sig á, öllu heldur saman, sjálft límið. Þann- ig var Ingibjörg frænka okkar. Öllum leið vel í návist hennar. Þetta átti ekki aðeins við um heimilið heldur einnig vinnustað- inn. Á yngri árum starfaði Ingi- björg um skeið á fræðsluskrif- stofu Reykjavíkur þar sem faðir okkar var verkstjórinn. Hann hefði verið ákveðinn stjórnandi, ekki síst gagnvart henni, sagði hún okkur, en alltaf af væntum- þykju og umhyggju. Hún sagði að hann hefði viljað að frænka sín yrði afbragð allra annarra. Það varð hún svo sannarlega af sínum verðleikum. Um árabil var Ingibjörg lykilmanneskja á skrifstofu fjármálaráðherra. Það held ég að hafi verið nákvæm starfslýsing. Það heyrði ég frá fleiri en einum fjármálaráðherra. Í æsku komum við systkinin, Jón Torfi, Ingibjörg og Björn, oft á Mánagötuna til foreldra Ingi- bjargar, þeirra Björns L. Jóns- sonar og Halldóru Guðmunds- dóttur, og síðar á heimili þeirra við Rauðalæk. Mikill vinskapur var með þeim hjónum og foreldr- um okkar. Sá vinskapur hefur aldrei slokknað. Við kveðjum Ingibjörgu Björnsdóttur með miklum sökn- uði og færum hennar stóru fjöl- skyldu okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Ögmundur Jónasson. Tölvur og farsímar hafa á und- anförnum áratugum gjörbreytt starfsháttum og samskiptum fólks. Ein skýrasta birtingar- myndin er þegar sýnt er frá störfum alþingismanna, sem lesa skilaboð af farsímum og svara þeim jafnskjótt og hafa tölvur sínar með í ræðustól til halds og trausts. Samskiptin eru þannig á margan hátt einfaldari og hrað- ari en áður. Sú var tíðin að ráðherraritarar önnuðust milligöngu um nær öll samskipti við ráðherra, sem eðli starfsins samkvæmt þurfa að sinna miklum hluta vinnu sinnar utan skrifstofunnar. Ritararnir sáu ekki eingöngu um milli- göngu. Þeir voru dagskrárstjór- ar, tímastjórnendur og vernd- arenglar. Góðir ráðherraritarar voru þess vegna gulls ígildi. Ingibjörg Björnsdóttir kom til starfa í fjármálaráðuneytinu árið 1972 og vann þar í 34 ár með 11 ráðherrum, sem höfðu viðkomu í ráðuneytinu í mislangan tíma. Hún byrjaði sem ráðherraritari hjá Matthíasi Á. Mathiesen og lauk ferlinum með Árna syni hans. Sá, sem þessi orð ritar, var fjármálaráðherra frá 1991 til 1998. Þá hafði Ingibjörg starfað í 17 ár með átta ráðherrum og bjó yfir mikilli og verðmætri reynslu. Ingibjörg var afar fær í sínu starfi og næm á þau atriði, sem skiptu máli. Hún var trú sínum samstarfsmönnum og sýndi þeim hollustu. Ráðherraskrifstofan í fjármálaráðuneytinu minnti stundum á brautarstöð. Þangað og þaðan lágu margir þræðir. Ingibjörg var eins og útsjónar- samur stöðvarstjóri og leysti öll umferðarvandamál af lipurð. Ég á afar góðar minningar frá þeim sjö árum, sem ég starfaði í fjár- málaráðuneytinu. Þar var valinn maður í hverju rúmi og starfs- andinn frábær enda var þetta tími ýmissa nýjunga á starfssviði ráðuneytisins. Ingibjörgu þakka ég sérstak- lega samstarf og vináttu, þótt samskiptin hafi verið strjál und- anfarin ár. Við Sigríður Dúna sendum fjölskyldu hennar hug- heilar samúðarkveðjur. Friðrik Sophusson. Fjármálaráðuneytið er í vit- und þjóðar líkt og virki. Lokað, afgirt, múrað inni. Völundarhús valdsins. Skortir sál og hjarta- hlýju. Flestir fylgja slíkri sýn. Fengu lítt fréttir af Ingibjörgu. Hún var í áratugi ritari ráð- herrans. Stjórnaði aðgangi að skrifstofunni í horninu. Þar voru á dagskrá mikilvægar ákvarðan- ir. Titillinn ritari í raun dular- klæði þessarar valdakonu hins virðulega ráðuneytis. Villir nokk- uð sýn. Í fræðunum er rætt um hliðverði. Þá sem stjórna inn- göngu í valdsins vé. Í raun ráða- menn í æðra veldi. Ingibjörg var í áratugi í slíkri stöðu. Stýrði nánast allri vinnu ráðherrans. Tók á móti gestum með brosi. Þegar hafnað var fundi með ráðherranum beitti hún sínum einstaka sjarma. Allir fóru glaðir burt. Höfðu alla vega hitt Ingibjörgu. Hún var gædd einstökum mannkostum. Klár, öguð, skipu- lögð; ávallt kát og létt í lundu. Hjartað og sálin í hinu háa ráðu- neyti. Elskuð af öllum. Sumir sögðu að ráðherrann væri í raun bara í vinnu hjá Ingibjörgu. Ég kom þangað fyrir röskum þrjátíu árum og hitti hana fyrsta allra. Fyrirvarinn fáeinir dagar. Óvæntur ráðherra mættur á staðinn. Ingibjörg tók mér fagn- andi eins og gömlum vini. Gerði það sama við mína eftirmenn og reyndar líka Þorstein, Jón Bald- vin og aðra fyrirrennara. Sama úr hvaða flokki ráðherrarnir komu. Staðan í stjórnmálum skipti litlu. Þjónustan við lýð- veldið boðorð dagsins. Samvinna okkar var einstök. Í raun gleðigjafi. Tilhlökkun að hitta Ingibjörgu á hverjum morgni. Á kveðjustund koma ljúfar minningar í hugann; þakk- ir fyrir liðna tíð. Samúðarkveðjur sendar til hennar góðu fjöl- skyldu. Ólafur Ragnar Grímsson. Snemma árs árið 2000 buðu Ingibjörg Björnsdóttir og Magn- ús Ingimarsson, maður hennar, nokkrum þáverandi og fyrrver- andi samstarfsmönnum heim á Hjarðarhaga til að njóta sam- vista eina kvöldstund. Í raun vor- um við að kveðja Magnús og skála við þennan frábæra tónlist- armann í hinsta sinn. Hann var með erfitt krabbamein og lést nokkrum vikum síðar en æðru- leysi hans var aðdáunarvert sem m.a. kom vel fram þetta eftir- minnilega kvöld. Þannig tókst Ingibjörg einnig á við sín veikindi síðustu vikurn- ar og sagði í tilskrifi til mín að hún ætlaði sér að glíma við þau eins og Magnús gerði. „Mér líður vel og er sátt og þakka fyrir gott og gjöfult líf,“ skrifaði hún í ein- um síðasta póstinum til mín í vor. Ingibjörg og Magnús voru bæði einstaklega vandaðar manneskj- ur og við Inga Jóna munum ekki gleyma þeim fjölmörgu ánægju- stundum sem við áttum með þeim, einkum á samkomum á vegum fjármálaráðuneytisins þar sem Magnús var alltaf til í að spila og bregða á leik. Ingibjörg Björns var máttar- stólpi í fjármálaráðuneytinu öll þau ár sem ég þekkti þar til. Hún var ritari tólf ráðherra á árunum 1972 til 2006 og ráðuneytisstjór- arnir voru sex. Við störfuðum saman í rúm fjögur ár þegar ég var aðstoðarmaður ráðherra 1983-87 og síðan aftur í rúm sjö á fjármálaráðherraárum mínum 1998-2005. Ingibjörg var einstök í samstarfi, ómetanleg hjálpar- hella, fljótvirk en jafnframt þol- inmóð, ákveðin en lipur gagnvart þeim fjölmörgu sem áttu erindi við ráðherraskrifstofuna. Hún var einkar úrræðagóð m.a. vegna þess að hún þekkti vel til í sam- félaginu, var vel upplýst og hafði kynnst mörgum á starfsævinni. Þannig var hún aldrei í vandræð- um með að ná sambandi við fólk. Þess utan var hún glaðsinna sem auðveldaði öll samskipti okkar sem oft voru á léttum nótum. Því var oft glatt á hjalla á „gangin- um“ eins og við kölluðum vinnu- svæði okkar á fyrstu hæð í Arn- arhvoli þar sem skrifstofa ráðherra, ráðuneytisstjóra, að- stoðarmanns og ritara þeirra voru á þeim tíma. Aldrei vílaði Ingibjörg fyrir sér þótt vinnu- dagarnir gætu verið erfiðir og langir eins og oft var á þessum árum. Ég man enn vel þegar hún hringdi í mig í fyrsta sinn vorið 1983: „Þetta er á skrifstofu fjár- málaráðherra. Það er samtal við ráðherra.“ Það samtal markaði upphaf minna starfa í ráðuneyt- inu og vináttu okkar Ingibjargar sem enst hefur í 38 ár. Eftir að formlegu samstarfi okkar lauk haustið 2005 héldum við áfram góðu sambandi, eink- um í tengslum við afmæli og stórhátíðir. Tryggð hennar var einstök og í mörg ár kom hún heim til okkar Ingu á aðfangadag og færði okkur heimatilbúinn jólaglaðning. Ingibjörg lauk gjarnan póst- um og orðsendingum til mín með orðunum „Þín einlæg“ og vil ég nú nota þessi sömu orð til að kveðja hana hinstu kveðju um leið og við Inga Jóna vottum öll- um hennar mörgu aðstandendum okkar dýpstu samúð. Þinn ein- lægur, kæra Ingibjörg. Geir H. Haarde. Ég hafði ekki áður reynt að hringja í ráðherra þegar ég átti erindi við fjármálaráðherra haustið 1998 vegna starfa minna hjá Útflutningsráði. Ég fékk samband við ritarann hans sem svaraði með vingjarnlegri röddu: „Hjá fjármálaráðherra!“ Ég kynnti mig og spurði hvernig þetta virkaði, hvort það væri ein- hver möguleiki að fá að tala ör- stutt við ráðherrann, þetta væri aðeins áríðandi. „Augnablik,“ sagði vingjarnlega röddin og gaf mér umsvifalaust samband. Þetta gekk vel, hugsaði ég, bar upp erindið við ráðherrann sem tók mér vel og leysti hratt og örugglega úr erindi mínu. Þetta voru fyrstu kynni mín af Ingi- björgu Björnsdóttur vinkonu minni. Nokkrum vikum síðar hóf ég störf í fjármálaráðuneytinu sem aðstoðarmaður ráðherra, og það má alveg halda því fram að hún hafi verið þó nokkur örlaga- valdur í þeirri atburðarás með því hvernig hún leiddi okkur Geir H. Haarde saman þennan dag. Ingibjörg var búin að vera lengi í pólitík, eins og hún orðaði það, þegar ég kynntist henni í fjármálaráðuneytinu. Hún vann þar í 34 ár sem deildarstjóri og ritari fjölmargra fjármálaráð- herra úr öllum flokkum, sem allir sem einn áttu trúnað hennar og traust. Það var gott að vinna með henni, hún hélt vel utan um ráð- herraganginn sinn og allt sitt fólk. Ingibjörg var mér svo miklu meira en samstarfskona, hún var kær vinkona allt frá þessu fyrsta símtali. Hún hafði stórt hjarta og svo stóran faðm sem umvafði alla í kringum hana. Stóru fjölskyld- una hennar og Magnúsar sem hún var svo stolt af – hennar eig- in börn, stjúpbörnin og afkom- endurna alla. Ég kynntist börn- unum hennar og barnabörnum og fjölskyldunni allri í gegnum frásagnir hennar; „Stína mín, Bjössi minn, Dóra mín“ nafna hennar, Ingibjörg Björnsdóttir, „Bergur minn“, og öll hin sem henni þótti svo vænt um og sinnti svo vel og sagði mér frá. Og hún með alla sína stóru fjölskyldu tók sér svo það sjálfskipaða hlutverk að verða ráðuneytismamman mín þegar móðir mín veiktist og lést, og svo varð hún auðvitað ráðu- neytisamma drengjanna minna þegar þeir fæddust og sinnti því hlutverki vel. Mér þykir óend- anlega vænt um Ingibjörgu og minnist hennar nú með mikilli hlýju. Við heyrðumst og sáumst reglulega og í seinni tíð spjöll- uðum við þess utan mikið saman á netinu. Hvort sem skilaboðin fjölluðu um pólitík eða persónu- lega hluti byrjuðu þau alltaf eins: „Halló elsku stelpan mín.“ Þorláksmessuheimsókn til Ingibjargar með lítinn jólaglaðn- ing var fastur liður í jólaundir- búningnum mínum. Um síðustu jól kom Covid í veg fyrir innlitið og litli pakkinn sem ég hafði keypt beið á hillunni þar til í vor. Það reyndist síðasta heimsóknin mín til Ingibjargar, notaleg stund og dýrmæt. Ég kveð mína kæru vinkonu með mikilli virð- ingu og enn meira þakklæti fyrir árin okkar öll og sendi stóru fal- legu fjölskyldunni hennar mínar allra kærustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þessarar heiðurskonu. Stelpan þín, Ragnheiður Elín. MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi okkar, VALSTEINN VÍÐIR GUÐJÓNSSON, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 6. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hægt er að nálgast streymi frá athöfninni á https://youtu.be/tHQ7Fz4JvWk. Þóra Björk Valsteinsdóttir Asimakis Tsoukalas Valsteinn Konstantín Tsoukalas Kristín Chrysoula Tsoukala Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, tengdaamma og langamma, INGA INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR landfræðingur og leiðsögumaður, Skúlagötu 20, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn 14. ágúst. Jarðarför fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. ágúst klukkan 10. Athöfninni verður streymt, tengil má nálgast á mbl.is/andlat. Páll Gunnlaugsson Logi Pálsson Edda Pálsdóttir Iðunn Pálsdóttir Anna Gyða Gunnlaugsdóttir Inga Hlíf Melvinsdóttir Jóhanna Gunnlaugsdóttir Colm Martin McGinley Marín Ingibjörg McGinley og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁGÚSTA FANNEY SNORRADÓTTIR, lést á Skjóli fimmtudaginn 12. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Bárður Ólafsson Phatcharida Ólafsson Snorri Leifsson Guðjón Leifsson Berglind Lóa Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.