Morgunblaðið - 18.08.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021
Um tvö þúsund ára gamlar líkams-
leifar uppgötvuðust í grafhýsi á
Pompeii. Hafa fornleifafræðingar
lýst því yfir að aldrei hafi jafn vel
varðveittar leifar manns fundist á
þessu svæði en heilleg beinagrind og
hvítt hár er meðal þess sem uppgötv-
aðist.
Eru leifarnar taldar tilheyra Mar-
cus Venerius Secundio, fyrrum þræl,
sem vann sig upp goggunarröðina í
Rómaveldi. Hafði hann gætt hofs
Venusar í Pompeii áður en hann
hlaut frelsi sitt en eftir það gekk
hann í raðir Augustales, rómverskra
presta. Telja fornleifafræðingar að
grafhýsið sem líkamsleifarnar fund-
ust í beri merki um háttsetta efna-
hagslega og félagslega stöðu Secun-
dio innan samfélagsins. Með
leifunum fannst einnig gler krukka
með nafninu Novia Amabilis, og er
talið að askan af eiginkonu hans sé í
henni.
Grafhýsið er staðsett þar sem eitt
af aðalhliðum borgarinnar stóð eitt
sinn, og er talið hafa verið byggt
nokkrum áratugum áður en Pompeii
lagðist í rúst árið 79 e. Krist, þegar
eldfjallið Vesúvíus gaus.
Að sögn fornleifafræðinga er
fundurinn ekki síður sjaldgæfur fyr-
ir þær sakir að lík fullorðinna ein-
staklinga voru yfirleitt brennd á
þeim tíma sem Secundio var uppi.
Er fundur grafhýssins einnig tal-
inn bera þess merkis að Rómverjar
hafi haldið úti leiksýningum sem
fóru fram á grísku, í ljósi áletrunar á
marmarasteini sem fannst þar.
Bendir þetta til þess að líflegt og op-
ið menningarlegt andrúmsloft hafi
einkennt Pompeii til forna, segir
Gabriel Zuchtriegel, yfirmaður forn-
leifasvæðisins. hmr@mbl.is
Líkamsleifar
þræls fundust
- Lágu í grafhýsinu í tvö þúsund ár
Morgunblaðið/Einar Falur
Pompeii Borgin lagðist í rúst árið
79 og eru þar margar fornleifar.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Í gær kom Abdul Ghani Baradar,
leiðtogi talíbana, til Afganistans í
fyrsta sinn í meira en áratug. Sam-
dægurs héldu talíbanar blaða-
mannafund í Kabúl, þar sem þeir
freistuðu þess að friðmælast við
heimsbyggðina og heimamenn. Það
var gert með fögrum fyrirheitum um
að vígamenn þeirra myndu ekki
leggjast í hefndarleiðangur gegn
fylgismönnum hinnar föllnu rík-
isstjórnar eða fyrrverandi starfs-
mönnum vestrænna herja, myndi
ekki reyna að leggja fjölmiðla lands-
ins undir sig og síðast en ekki síst
yrðu kvenréttindi virt.
Óhætt er að segja að orðum þeirra
hafi verið tekið af tortryggni, en
málsvarar talíbana lögðu á það mikla
áherslu að hreyfingin hefði breyst og
batnað og jafnvel færst nær nútím-
anum að ýmsu leyti. Það sæist meðal
annars á snjallsímanotkun þeirra, en
öfugt við Donald nokkurn Trump er
Suhail Shaheen, talsmaður talíbana,
á Twitter (@suhailshaheen1).
Óstaðfestar fregnir héðan og það-
an í Afganistan benda enda til þess
að varlegt sé að treysta orðum talíb-
ana um nýfundna hófsemi og frjáls-
lyndi. Flokkar þeirra í borgum utan
höfuðborgarinnar Kabúl eru sagðir
hafa leitað uppi ýmsa menn tengda
fyrri stjórn og vesturveldunum,
drepið þá og nauðgað fjölskyldum
þeirra, sem síðan hefðu verið settar
út á guð og gaddinn, en talíbanar
lagt undir sig hús og aðrar eignir.
Það er því varla undarlegt þótt
tugþúsundir Afgana vilji leggja allt á
sig til þess að flýja talíbana, jafnvel
reyna að hanga utan á flugvélum á
leið úr landi. Bandarískir hermenn
hafa aftur náð valdi á flugvellinum í
Kabúl eftir að þar fór allt úr böndum
daginn áður, en þeir virðast hafa
komist að óformlegu samkomulagi
við talíbana um að fá að vera þar óá-
reittir í bili.
Ótal Afganar aðrir, sem talíbanar
eiga ekkert sökótt við, óttast einnig
um eigin hag. Þótt 20 ár séu liðin síð-
an talíbanar voru hraktir frá völd-
um, eru flestum grimmdarverk
þeirra í fersku minni, ótrúlega smá-
smyglisleg harðstjórn um allt mann-
legu viðkomandi, að því ógleymdu að
landið var efnahagslegt flak eftir
nokkurra ára stjórn þeirra.
Biden fær harða gagnrýni
Bandaríkjastjórn, líkt og sum lönd
í Evrópu, hefur verið ótrúlega naum
á fyrirheit um að koma fyrrum
bandamönnum og starfsmönnum úr
landi og í skjól, sem ekki hefur dreg-
ið úr ákafri gagnrýni á hvernig Joe
Biden Bandaríkjaforseti stóð að
málum, sem margir telja að hafi
beinlínis orsakað undraskjótt fall
Afganistans. Það þótti ekki heldur
traustvekjandi að hann skyldi dög-
um saman halda kyrru fyrir í Camp
David, sumarbústað forsetaembætt-
isins. Forsetinn varði ákvörðun sína
í sjónvarpsávarpi á mánudag, sem
mælst hefur misjafnlega fyrir, en
þar kenndi hann velflestum öðrum
um hvernig komið væri, aðallega þó
Afgönum sjálfum.
Dómur sögunnar veltur á þróun-
inni næstu mánuði og misseri. Fyrst
hvort talíbanar komi á nýrri ógn-
arstjórn og síðan hvort ný flótta-
mannabylgja dynji á Evrópu. Til
lengri tíma er þó ástæða til þess að
óttast að sigur talíbana verði öðrum
íslamofasistum á borð við Isis, al-
Qaeda og Boko Haram hvatning til
nýrra ódæða í nafni jihad, hins heil-
aga stríðs, sem nú virðist allt í einu
ekki tapað eftir allt saman.
AFP/USAF
Flóttamenn Um 640 Afganar troðfylltu C-17 Globemaster-flutningavél bandaríska flughersins, sem fór með þá til Katar. Tugþúsundir Afgana hafa reynt að flýja talíbana með misjöfnum árangri.
Ótti við óöld og ógnarstjórn
- Talíbanar heita sakaruppgjöf, mildi og kvenréttindum - Tugþúsundir reyna að komast úr landi