Morgunblaðið - 18.08.2021, Side 19

Morgunblaðið - 18.08.2021, Side 19
✝ Sigurður Helgi Eiríksson fæddist á Steinum á Hvammstanga 5. nóvember 1930. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Hvamms- tanga 10. ágúst 2021. Foreldrar hans voru hjónin Eiríkur Hjartarson, f. 12. júlí 1879, d. 30. nóvember 1954, og Jóna Guðrún Gísladóttir, f. 18. september 1889, d. 8. nóvember 1956. Systkini Sigurðar voru: Sig- urður f. 3. júní 1913, d. 8. mars 1929; Hjörtur, f. 20. september 1914, d. 30. apríl 1989; Gísli, f. 10. febrúar 1918, d. 6. apríl 1999; og andvana fædd stúlka, f. 15. desember 1928. Sigurður kvæntist 29. sept- ember 1956 Ingibjörgu Páls- dóttur, f. 18. ágúst 1933. For- eldrar hennar voru Páll Sigurð- ur Karlsson frá Bjargi í Miðfirði, f. 8. nóvember 1896, d. sveinspróf í vélvirkjun og hóf störf hjá Hirti bróður sínum á Vélaverkstæði Hjartar Eiríks- sonar á Hvammstanga árið 1950. Síðar varð hann meðeig- andi og starfaði þar í hálfa öld, allt til ársins 2000. Hann var formaður Verkalýðsfélagsins Hvatar á Hvammstanga um skeið, einn af stofnendum Ung- mennafélagsins Kormáks og fyrsti formaður þess, einn af aðalhvatamönnum fyrir bygg- ingu Félagsheimilisins Hvammstanga og stóð vaktina sem svæfingalæknir Hvamms- tangalæknishéraðs um nokk- urra ára skeið. Þá var hann frumkvöðull í skógrækt í Vest- ur-Húnavatnssýslu, beitti sér fyrir gróðursetningu fyrsta skrúðgarðsins í kauptúninu, Spítalagarðsins svokallaða, árið 1957 og hóf skógrækt á eigin skika sunnan bæjarins árið 1958 sem hann sinnti af ástríðu allt til æviloka. Útför Sigurðar fer fram frá Hvammstangakirkju í dag, 18. ágúst 2021, klukkan 14. Streymt verður frá útförinni á https://youtu.be/CJna7CpZSwM Virkan hlekk á streymið má finna á: https://mbl.is/andlat 28. mars 1980, og Guðný Friðriks- dóttir frá Stóra-Ósi í Miðfirði, f. 10. ágúst 1908, d. 26. nóvember 1995. Börn Sigurðar og Ingibjargar eru: 1) Oddur, f. 20. júlí 1960, sambýliskona hans er Sigrún Soffía Harðar- dóttir. Börn þeirra: Sigurður Helgi, Benjamín Freyr og Patrekur Örn. Börn Sigrún- ar af fyrra sambandi eru Kristín Lillý og Jónas. 2) Skúli, f. 8. júlí 1966, eiginkona hans er Kamini Desai. Börn Skúla og fyrri eig- inkonu: Mathieu Grettir, Adrien Eiríkur, Michel Skúli, Christelle Guðrún og Armand Gísli. Sigurður ólst upp á Steinum á Hvammstanga, sem síðar fékk götunúmerið Strandgata 6, og bjó þar alla sína tíð ef frá er skilinn námsvetur á Ísafirði og nokkur ár hjá Gísla bróður sín- um á Akureyri. Hann hlaut Í ríflega 60 ár naut ég þeirr- ar gæfu að geta skrafað og skeggrætt við föður minn, Sig- urð Helga Eiríksson. Nú eru þær stundir því miður taldar. Þessi tími hefur reynst mér ómetanlegur og fyrir hann er ég innilega þakklátur. Þegar barn fæðist þá velur það sér ekki foreldra, þeir eru vöggugjöf barnsins ásamt þeim meðfæddu eiginleikum sem það hefur yfir að ráða. Lífssýn for- eldranna mótar barnið þegar þeir styðja það til þroska, kenna því að hugsa og nærast á öllum sviðum lífsins, taka sjálf- stæðar ákvarðanir og læra að velja og hafna. Lífshlaup for- eldranna mótar barnið í bland við þau viðhorf sem eru uppi í samfélaginu sem það lifir og hrærist í. Það kom greinilega fram í öllu atgervi föður míns að hans vöggugjafir höfðu verið góðar og hann þekkti betur en margur stöðu þeirra sem ekki fæðast með silfurskeið í munn- inum. Á hans uppvaxtarárum höfðu ei allir kost á að læra það sem hugurinn girntist mest, hans hlutskipti var að vera einn af þeim. En hann nýtti vöggu- gjafirnar vel í hverri þeirri iðju sem hann tók sér fyrir hendur. Fróðleiksmolinn sem stendur mest upp úr af þeim fjölmörgu er faðir minn lagði á borð fyrir mig á mínum uppvaxtarárum snýr að fullyrðingunni „Þetta er ekki hægt!“. Fullyrðingin væri í raun áskorun um að láta reyna á hana, koma auga á lausnina sem aðrir hafa ekki náð að fanga, hugsa út fyrir boxið eins og sagt er í dag. Hjartans þakkir fyrir ferða- lagið, samfylgdina og stuðning- inn. Þinn sonur Oddur Sigurðarson. Kæri pabbi, það sem kemur fyrst upp í hjarta mínu er ást þín og blíða sem var samofin óbil- andi trú á jöfnuð og bræðralag. Þakklæti mitt til þín hefur margar myndir, til dæmis húsin sem við byggðum saman og Land Roverinn sem við gerðum upp. Kennsla í algjöru æðruleysi og natni við að sinna því sem gert er núna og engar áhyggjur af því sem eftir er að gera, al- gjör núvitund. Að sitja við stofuborðið og panta fræ frá Sheffield Seed‘s, ég með landabréfabók og þú með bæklinginn að lesa fyrir mig staðsetningarnar, hvaðan fræin voru fengin, og ég að segja þér hvort að þessi staðsetning væri nálægt sjó, norðarlega eða hátt yfir sjávarmáli. Borealis þótti best en það var merki um að fræin væru af norðlægum slóðum, já, með þér lærði ég nokkur orð í latínu sem þú kenndir þér sjálfur. „Framm í Bletti“ var svo tími andans verka, sett niður það sem sáð hafði verið eða ræktað af græðlingum, oft á tíðum sett niður með haka til að koma því niður fyrir urð og grjót, já, og svo var að setja slatta af skít með. „Ef það nær að lifa, þá get- ur það lært og aðlagast“. Fara fram í gróðurhús í ágræðslur að vetri til og búa til fleiri ávaxtatré, tína fræ af trjám sem sett voru niður af þér, að saga niður tré í eldivið sem voru hug- sjón þín og ylja sér við kabyss- una. Þjónusta við alla, sjálfboða- vinna til heilla samfélagi vina og samferðafólks er svo samofin mér að ég veit varla hvort kom á undan ég eða það að þjóna. Ómældar stundir í Félagsheim- ilinu við lagfæringar og að klára það sem ekki var búið að klára. Það var aldrei spurt hvort ein- hver annar ætti að gera þetta, já, eða hvort þetta væri launuð vinna. Í gegnum allt þetta lærði ég að gleðin við að gera í núinu og gefa, er allt sem þarf og skammir sumra ekkert til að kippa sér upp við. Virðingu við íslenska fánann lærði ég af þér í gegnum öll þau ár sem við drógum fánana að húni og tókum þá niður fyrir myrkur á Félagsheimilinu. „Ef þú skilur ekki hvernig þetta virkar þá getur maður aldrei gert við það.“ Að grúska í því sem þurfti að laga og gefast aldrei upp við finna út hvernig allt átti að virka og finna snið- ugustu leiðirnar til þess að laga það … það er Siggi Eiríks! „Það eru til tvenns konar menn, forgöngumenn og spor- göngumenn“ og það er ljóst hvorum hópnum þú tilheyrir og þannig ert þú mín fyrirmynd, í að trúa á mínar tilfinningar og ganga óhræddur með þær í broddi fylkingar. Að elska að fullu og hafa kjarkinn til þess að segja öllum frá því … sama hvaða viðbrögðum maður getur átt von á. „Lífið er í raun bara að heils- ast og kveðjast“ … og í dag er kveðjustund í tæru þakklæti fyr- ir allt sem þú varst mér og allt sem þú kenndir mér í þessari jarðvist, allt frá handverkum til heimspeki. Að hafa þig sem vin og læriföður verður aldrei hægt að fullþakka. Ást þín á lífinu og þakklæti fyrir að hafa húsaskjól og mat er gott veganesti. Megi friður ríkja í þínum anda og leiða okkur áfram á braut kærleika og bræðralags í þjónustu við þá ást sem elskar allt … skilyrðislaust. Takk pabbi! Skúli Sigurðsson. Afi. Þú varst ljós í mínu lífi alla tíð, minn kærasti vinur og lærifaðir, samherji, félagi og verndarengill. Þú kenndir mér að leyfa mér að dreyma. Að elta drauma mína. Að ekkert væri óyfirstíg- anlegt. Svo fremi að maður hefði heilsu, hún væri það dýrmætasta sem maður ætti. Þú varst alltaf til staðar, sama hvað á bjátaði. Og enginn var blíðari og nærgætnari. Þegar manni leið illa þá lagðir þú blítt hönd á vanga minn og sagðir: „Strákurinn minn.“ Það yrði allt í lagi. Og það var sama hvað mér datt í hug, alltaf varstu reiðubú- inn að taka þátt í því með mér. Það voru ófáar svaðilfarirnar sem við fórum – og iðulega end- uðu þær á að við festum okkur einhvers staðar í forarpytti, í aðra röndina lúpulegir eftir slíka sneypuför og í hina röndina glaðir og ánægðir með þetta æv- intýri. Við brostum í laumi þegar amma skammaði okkur. Ég var þinn lagsmaður, ég var þinn „laxi‘ og „nafni“. Strák- urinn þinn. Og þú varst minn verndarengill. Engill Guðs er alltaf hjá mér, allar stundir, nótt og dag, og sá sem hefur engil hjá sér óttast ekki um sinn hag. Þessa litlu bæn bjóstu til handa mér, litlum hræddum dreng sem þorði ekki að sofna í myrkrinu. Hún hefur fylgt mér alla tíð síðan. Og í mínum huga varstu þessi engill. Eða allavega sendiboði hans. Við vorum ekki alltaf sam- mála. En þú gafst þér alltaf tíma til að rökræða við mig. Sýna mér fleiri hliðar. Þar mættust oft tveir tréhestar, þverhaus á þver- haus ofan. „Tveir eins,“ sagði amma. Og við kímdum. „Ertu með hundshaus?“ sagð- irðu hlæjandi þegar kom snúður á mig. Að vera með hundshaus var mesta háðung sem til var. „Nei,“ sagði ég fýldur, en svo fór að færast bros á varirnar. Ég gat ekki varist því. Og svo hlóg- um við báðir. Jú, líklega hefði ég verið með hundshaus. Í seinni tíð snerust leikar stundum við og þá viðurkenndir þú eigin hunds- haus og við hlógum. Og amma hristi hausinn. „Tveir eins.“ Samt vorum við ekkert eins, en tengdir taug hjarta í hjarta. Við lásum ljóð og sögur sam- an. Fyrst þú fyrir mig og svo ég fyrir þig á seinni árum. Jafnvel þótt landshlutar eða heimsálfur skildu okkur að. Þar fékk ég alla mína þjálfun í upplestri. Sögurn- ar og fróðleiksmolarnir flæddu frá þér. Og þegar þú hlýddir á mig lesa fann maður hvernig þín viðkvæma og tilfinningaríka sál hlýddi á af heilum hug. Þú varst síhugsandi, spekúlerandi um allt milli himins og jarðar. Heim- spekingur á eigin vísu. Og stóð þar langskólagengnu fólki á sporði. Þegar ég kvaddi þig í hinsta sinn sagðirðu ekki margt, þú þurftir þess ekki, augun sögðu allt. Þessi kviku, brúnu augu sem alltaf glömpuðu af forvitni og lífsneista voru að kveðja. Ég tók í höndina þína, hún var eins hlý og hún hafði alltaf verið. Hlýrri en sjálft sólarljósið. Nú voru þær líka að kveðja. „Strák- urinn minn,“ heyrði ég þig segja með þeim, „það verður allt í lagi.“ Og ég veit að það verður allt í lagi. Af því að þú verður alltaf í hjarta mér. Elsku afi minn. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Minn- ingin um þig mun lifa í öllu því sem ég tek mér fyrir hendur. Þangað til við sjáumst aftur. Sigurður Helgi Oddsson. Það var seint í september 1956, sem það gerðist og festist í minni mínu sem stórviðburður, að drossían H 87 Chevrolet FleetMaster 1942 ók í hlað og allt upp að tröppunum, en tók svo vinstri beygju og lagði á veg- kantinum. Það lá eitthvað í loftinu. Út úr bílnum stigu Lilla systir mín og Siggi Eiríks, bæði prúðbúin. Við krakkarnir fengum að vita, að þau hefðu verið að gifta sig á Blönduósi. Gifting var greinilega eitthvað merkilegt. Mágur minn Siggi Eiríks, var um margt einstakur maður. Hann var snyrtimenni þvílíkt að ég minnist þess meðal annars, að einhverju sinni kom hann uppá- klæddur, í heimsókn til okkar á Ytra-Bjargi. Var þá bévaður Fergusoninn enn og aftur bil- aður. Siggi sagði að best væri að rífa úr honum „olíuverkið“ og senda það suður. Hann bað um pappakassa til að koma draslinu í og svo reif hann það af trak- tornum í sparifötunum og sá ekki blett á honum. Svona var Siggi. Það var eiginlega alveg sama hvaða tæknivandamál komu upp, þá datt manni oftast fyrst í hug Sigurður H. Eiríksson að spyrja Sigga. Brotin gírstöng á Land Rover um hávetur uppi á Holtavörðuheiði, – „nú þú tekur bara lokið af gírkassanum á milli sætanna og hrærir í göfflunum með skrúfjárni eða puttunum þangað til þú kemur norður; at- hugaðu bara að klemma þig ekki“. Það var líka stórkostlegt að fylgjast með líkamsburðum hans fram á efri ár. Flestir nenna ekki að nota lærvöðvana fram yfir unglingsár og því hættum við að sitja á hækjum okkar allt of fljótt. Siggi sat á hækjum sér við sína ýmsu iðju og vann sér öll verk svo létt, að unun var að fylgjast með. Áhugamál hans og Lillu fóru saman í að sanna, að hægt væri að rækta skóg í norðaninnlögn- inni við Hvammstanga, sem mörgum fannst óhugsandi. Þau komu þau sér upp þvílíkum draumastað, í „Blettinum“, að til fyrirmyndar er. Siggi fór oft ekki hefðbundnar leiðir, en hann aflaði sér þekk- ingar bæði hérlendis og erlendis. Mér er ekki grunlaust um að hann hafi verið farinn að „gúggla“ ýmsa vitneskju löngu áður en Google sjálfur varð til. Hann fann ótal leiðir til að finna og flytja inn ýmislegt, sem ekki fékkst hérlendis, hvort sem það tengdist starfi hans sem bifvéla- virki eða skógræktandi. Siggi var vel lesinn, fróður, skemmtilegur og naut rökræðna. Hann var með afbrigðum hjálp- samur og svo nákvæmur í öllum sínum störfum að hann var feng- inn til að verða „svæfingalækn- ir“ með héraðslæknum á Hvammstanga um árabil, hvort sem þær svæfingar áttu sér stað á sjúkrahúsinu eða á fjárhús- hurð norður á Ströndum, þangað sem hann og héraðslæknirinn höfðu barist klukkustundum saman í stórhríð og urðu að skera upp við bráða-botnlanga- bólgu í snatri. Þau Lilla, systir mín, áttu ein- staklega skemmtilegt heimili. Þar var mikið tónlistarlíf og kór- æfingar nánast daglegt brauð. Siggi, mágur minn, barst ekki á, en hann var býsna stór í snið- um. Við systkini Lillu sendum henni og fjölskyldunni samúðar- kveðjur. Minning góðs drengs mun lifa. Friðrik Pálsson. HINSTA KVEÐJA Ég naut þeirra forrétt- inda að fá 26 ár með þér kæri afi minn. Ég er þakk- látur fyrir að hafa haft þig og lært af þér dálæti á nátt- úrunni og skógrækt. Leiðir okkar skilur núna, en einn daginn munum við hittast aftur. Patrekur Örn Oddsson. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 ✝ Margrét Sig- ríður Árna- dóttir fæddist í Reykjavik 19. febr- úar 1931. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 9. júlí 2021. Foreldrar henn- ar voru Árni Ólafs- son loftskeytamað- ur og heildsali, f. 8. júní 1897, d. 4. nóv- ember 1981, og Sveinína Ásta Kristinsdóttir húsfrú, f. 24. júní 1900, d. 3. júní 1965. Margrét var alltaf kölluð Gréta og var hún elst af þremur systkinum. Systkini Grétu eru Sigríður Jóna, f. 9. júlí 1934, maki Jóhann Guðmundsson, f. 8. júlí 1933, d. 2. júlí 1990, og Kristinn Árni, f. 4. mars 1939, d. 2. júlí 2011, maki Svandís Soffía Júlíusdóttir, f. 17. október 1934, d. 18. febrúar 2008. Á aðgangadag jóla árið 1950 trúlofaðist Gréta Aðalsteini Hjálmarssyni bifvélarirkja og giftu þau sig síðan í Fríkirkj- unni 2. október 1951. Aðalsteinn var fæddur 7. nóvember 1930 og lést hann á Landspítalanum dóttir. Kristín Ásta, f. 25. mars 1985, maki Erik Ensjö. 3) Ásta, f. 28. apríl 1962, gift Aðalsteini Guðmundssyni lækni. Börn þeirra eru: Guðmundur Freyr, f. 8. desember 1986. Berglind, f. 14. júní 1991, maki Davíð Jón- atansson. Alfreð, f. 22. ágúst 1993. 4) Ólafur, f. 22. október 1963, giftur Örnu Guðlaugu Einarsdóttur. Börn þeirra eru: Anna Guðlaug, f. 29. júlí 2006, og Margrét Lára, f. 26. febrúar 2008. Ólafur var giftur Olgu Helenu Kristinsdóttur og eiga þau tvær dætur: Olgu Helenu, f. 16. mars 1991, maki Andri Stef- ánsson, og Kristínu Helgu, f. 2. apríl 1996. Gréta ólst upp í foreldra- húsum á Sólvallagötu 27 í Reykjavík og gekk í Austurbæj- arskóla. Hún var mjög dugleg og framtakssöm og aðstoðaði meðal annars föður sinn á upp- vaxtarárunum við versl- unarrekstur. Eftir gagnfræða- próf vann hún í nokkur ár í Ingólfsapóteki hjá frænda sín- um Guðna Ólafssyni lyfjafræð- ingi. Upp úr 1970 hóf hún störf sem skrifstofumaður hjá Bif- reiðaeftirliti ríkisins og starfaði þar í um tvo áratugi. Í fram- haldinu var henni boðið hluta- starf hjá Landsbankanum þar sem hún starfaði í um 10 ár. Útförin fór fram í kyrrþey 3. águst 2021. 17. júní 2004. Þeim varð fjögurra barna auðið og þau eru: 1) Árni, f. 20. júní 1952, d. 22. september 1997. Árni kvæntist 1973 Þórhildi Jóns- dóttur, þau skildu. Önnur kona hans var Bergþóra Sig- urbjörnsdóttir, börn þeirra eru: Árný, f. 12. janúar 1981, og Ar- on, f. 30. september 1982. Hinn 28. mars 1992 kvæntist Árni Helgu Benjamínsdóttur. Börn Árna og Helgu eru: Margrét Sigríður, f. 9. ágúst 1989, og Benjamín, f. 17. janúar 1997, fyrir á Helga dótturina Guð- laugu Hilmarsdóttur, f. 25. ágúst 1985. Börn Árna eru einn- ig: Anna Margrét, f. 20. október 1975, Ágúst Páll, f. 9. sept- ember 1976, og Almar, f. 17. júní 1978. 2) Hjálmar íþrótta- kennari, f. 4. september 1954, d. 25. janúar 2020, kvæntur Mar- gréti Björnsdóttur hjúkr- unarfræðingi. Börn þeirra eru: Aðalsteinn, f. 15. september 1973, maki Rósa Halldóra Hans- Elsku amma mín, núna ertu búin að fá hvíldina og hitta afa og pabba. Þegar ég hugsa til baka koma kærar minningar upp í hugann. Þegar ég var barn gisti ég oft hjá ykkur afa á Laugarásvegi. Ég man að mér fannst það gam- an, við bökuðum kleinur saman, ég fékk að horfa á Tomma og Jenna-vídeóspólur, við fórum í göngutúra um Laugardalinn og í sund í Laugardalslaugina. Ég minnist líka jólaboðanna heima hjá þér og afa, purusteik- urinnar og svo þinnar einstöku rjómarandar með heitri kara- mellusósu sem þú bauðst upp á í eftirrétt. Þegar ég var níu ára fór ég með þér í eftirminnilega ferð til Ameríku. Við heimsóttum Ástu og Adda í Madison og dvöldum þar í nokkrar vikur. Ég man að töskurnar okkar týndust í flug- inu svo við þurftum að kaupa okkur ný föt, ég held að þér hafi ekkert þótt það leiðinlegt þar sem þér fannst alltaf svo gaman að versla. Þú varst líka alltaf svo glæsilega til fara, í vönduðum fötum sem þú hafðir keypt er- lendis. Þegar pabbi varð fimm- tugur fórum við aftur saman ut- an og þá til Prag. Ég var 19 ára og ég man að ég varð að hafa fyr- ir því að elta þig á búðarápinu. Eftir að ég fluttist til Svíþjóð- ar þá heimsóttum við Erik þig þegar við komum til landsins. Mér þótti vænt um að þú talaðir við Erik á blandaðri dönsku/ sænsku svo hann gæti verið með í samræðunum. Eftir að ég eign- aðist Emblu Margréti og Willi- am heimsóttum við þig á hjúkr- unarheimilið Eir. Núna í sumar kvaddi ég þig og faðmaði í hinsta sinn. Hvíldu í friði, elsku amma mín. Kristín Ásta Hjálmarsdóttir. Margrét Sigríður Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.