Morgunblaðið - 18.08.2021, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Málaðu með
útimálningu frá Slippfélaginu:
HJÖRVI á bárujárnið
VITRETEX á steininn
Hágæða efni sem þola íslenskt veðurfar.
Leyfðu reynslumiklum sérfræðingum okkar aðstoða þig.
Hafðu samband og þeir gera þér tilboð.
Ferjukot er sögufrægur
verslunarstaður við Hvítá í Borgarfirði.
Gamli bærinn er nýuppgerður
og málaður með málningu
frá Slippfélaginu.
40 ÁRA Lilja Rut fæddist í
Reykjavík og ólst upp á Bíldu-
dal þar sem hún býr enn. „Það
var æðislegt að búa hérna í
svona litlu þorpi þar sem allir
þekktu alla og mikill sam-
hugur í þorpinu.“ Hún gekk í
Bíldudalsskóla og í dag er hún
kennari í sínum gamla skóla.
„Þegar ég var í skólanum vor-
um við örugglega 80 í skól-
anum, en núna eru 24 nem-
endur.“ Lilja Rut fór í
Menntaskólann á Laugarvatni
og var á heimavistinni og seg-
ir það hafa verið frábæran
tíma. Á þeim tíma var tilvon-
andi eiginmaður hennar, Bíld-
dælingurinn Elfar Steinn, líka
í skólanum og þau fluttu til
Reykjavíkur þar sem Lilja
Rut fór í Kennaraháskólann.
Síðan fluttu þau aftur heim
árið 2011 en þá komin með tvö
lítil börn og þau eignuðust svo
þriðja barnið eftir að þau voru
flutt á Bíldudal. „Við vorum alveg harðákveðin í því að snúa aftur heim með
menntun, bæði fyrir okkur sjálf og samfélagið hérna, og ekki síður fyrir
börnin. Þau búa við svo miklu meira frjálsræði hérna en t.d. í bænum.“
Helstu áhugamál Lilju Rutar er samvera með vinum og fjölskyldu. „Við
reynum að fara í útilegur eins oft og við getum á sumrin.“
FJÖLSKYLDA Maki Lilju Rutar er Elfar Steinn Karlsson, bygginga-
fulltrúi í Vesturbyggð, f. 3.12. 1983, og þau eiga börnin Védísi Evu, f. 2009,
Gunnar Nökkva, f. 2011, og Freyju Rán, f. 2017. Foreldrar Lilju Rutar eru
hjónin Nanna Sjöfn Pétursdóttir, fv. skólastjóri, f. 18.7. 1955, og Jón Rúnar
Gunnarsson, kaupmaður og hafnarvörður í Vesturbyggð, f. 22.2. 1954, d.
8.10. 2012. Þau bjuggu á Bíldudal og Nanna býr þar enn.
Lilja Rut Rúnarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Gefðu þér tíma til að hlusta þótt
þér finnist þú ekki skilja allt sem fólk
segir. Sýndu bara þolinmæði og þá mun
allt leysast.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú sérð tækifæri fram undan í
fjárfestingum sem tengjast ferðalögum,
listum eða afþreyingu. Láttu bara aðra
ekki slá þig út af laginu.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Nú ert þú tilbúinn til þess að
axla frekari ábyrgð og átt ekki að vera
hikandi í því að bjóða þig fram. Láttu
ekki aðra stjórna lífi þínu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Talaðu við álíka skapandi fólk
um hugmyndir þínar - sérstaklega þær
sem tengjast sviðum þar sem þú þekkir
lítt til. Hvað svo sem gerist verður til
bóta.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú lendir í ýmsum uppákomum,
sem munu þó, ef þú sýnir þolinmæði,
snúast fyrir rest þér í hag.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Regluleg hreyfing og útivist er
sjálfsögð til þess að hrista af þér slenið.
Vilji er allt sem þarf til þess að stefna í
rétta átt.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þarfnastu virkilega einhvers eða
ertu bara hvatvís?Athugaðu hversu mik-
ið þig langar í eitthvað áður en þú lætur
til skarar skríða.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú þarft að gefa þér tíma til
þess að styrkja tengsl við aðra sem eru
þér einhvers virði.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Flottur stíll felst í fleiru en
að kaupa réttu flíkurnar. Mundu líka að
draumar þínir geta orðið að veruleika ef
þú ert óhræddur.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Hæfileikar þínir eru margir en
þú nýtir þá ekki sem skyldi. Taktu til í
kringum þig svo að þér líði betur.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er mikil orka í loftinu
sem þú þarft að reyna að nýta á jákvæð-
an hátt. Reyndu að finna jafnvægi því
aðeins þá geturðu heyrt svar hjarta þíns.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þér gengur allt í haginn og aðrir
undrast á velgengni þinni. Varastu það,
að reddingar geta dregið langan hala á
eftir sér.
eitt ár að keyra leigubíl hjá Stein-
dóri meðfram vinnunni, en annars
hef ég bara alltaf verið hjá Byko.
Sá sem hefur verið næstlengst í
starfi þar er hættur núna en hann
náði 49 árum. Ég er enn að vinna
og er ekkert farinn að spá í að
fara að hætta.“
Gylfi byrjaði að vinna hjá Byko
á Kársnesbrautinni og vann þar í
timburportinu og var að raða
timbri og var handlangari og fór
síðan á Nýbýlaveginn. „Ég er bú-
inn að vera í nánast öllum deildum
hérna og hef verið aðstoðarmaður
á vörubílum og á lyftara í timb-
urportinu og á Nýbýlaveginum var
ég á sendibíl Byko í fimm ár og
fór síðan að sjá um allar send-
ingar út á land. Svo hef ég bara
verið í öllum störfum, á lager og
var aðstoðarverslunarstjóri á
Hringbrautinni og svo fór ég aftur
suður í Kópavog og sá um park-
etdeildina. Síðast fór ég í hrein-
lætistækjadeildina og hef verið
með hana síðan sem deildarstjóri
G
ylfi Þór Sigurpálsson
fæddist á Húsavík 18.
ágúst 1951 og ólst þar
upp til 17 ára aldurs.
„Húsavík er alveg æð-
islegur staður og frjálsræðið ynd-
islegt. Ég fór út snemma á morgn-
ana og kom ekki heim fyrr en um
kvöldmat.“ Hann segir að á þess-
um tíma hafi ekki verið neinir
leikskólar en bæjarfélagið hafi lit-
ið eftir krökkunum í sameiningu.
Faðir Gylfa var múrarameistari og
var að byggja en þegar kreppa
brast á fyrir norðan voru verk-
efnin fá og það varð úr að fjöl-
skyldan flutti suður. „Við fórum
öll systkinin nema tveir elstu
bræður mínir og fluttum í Kópa-
voginn. Þar fór ég í Gagnfræða-
skóla Kópavogs og tók gagnfræða-
próf.“
Gylfi var vanur ýmsum störfum
þótt hann væri ungur að árum.
„Ég var búinn að vera að vinna
fyrir norðan sem barn og ungling-
ur alls konar vinnu: í frystihúsinu,
á mjólkurstöðinni og hjá Pósti og
síma í restina og svo hafði ég farið
einn túr á fraktskipi til útlanda.“
Hann hafði líka kynnst sveita-
störfum, því hann hafði verið í
sveit á Sandhólum á Tjörnesi, á
Syðra-Fjalli í Aðaldal hluta úr
sumri og á Höskuldsstöðum í
Reykjadal. „Foreldrar mínir
þekktu til á bæjunum og maður
fékk að vasast í ýmsum störfum.“
Kópavogurinn leit aðeins öðru-
vísi út þegar Gylfi kom þangað
fyrst en í dag. „Hann var bara urð
og grjót á þessum tíma.“ Gylfi fór
í 4. bekk í gagnfræðaskólanum til
að kynnast krökkum á sínum
aldri, því hann hafði sleppt einu
ári fyrir norðan. „Ég kynntist fullt
af krökkum og það er svolítið
gaman að því að við erum byrjuð
að hittast aftur og reynum að hitt-
ast einu sinni í mánuði. Það fórst
svolítið fyrir í þessu Covid-
ástandi, en núna er það vonandi
að fara af stað aftur.“
Árið 1969 fékk Gylfi vinnu hjá
Byko og hefur unnið þar síðan og
er sá starfsmaður sem hefur unnið
þar lengst, eða 52 ár. „Ég var í
fyrir Hólf og gólf frá því fyrir síð-
ustu aldamót.“
Helsta áhugamál Gylfa fyrir ut-
an vinnuna eru íþróttir og þá allra
helst Breiðablik. „Ég er gall-
harður Bliki og fer á alla leiki
bæði hjá strákum og stelpum. Það
voru nokkrir strákar með mér í
bekk í Breiðabliki og þar hófst
áhuginn á liðinu.“ Gylfi hefur
starfað í stjórnum og nefndum
Breiðabliks, verið í unglingaráði
og í aðalstjórn félagsins bæði sem
aðalmaður og varamaður. Í enska
boltanum er það Manchester Unit-
ed sem hann heldur með og svo
Ipswich. „Þeir geta nú ekki mikið,
en Ipswich var mitt uppáhaldslið
upphaflega, svo ég held svolitla
tryggð við þá líka.“
Gylfi segist ekki vera mikill
íþróttamaður eða fjallagarpur, en
hann sé þó í mjög góðu formi. „Ég
labba alveg upp í 10 km á dag,
bæði í vinnunni og í og úr vinnu.
Svo hef ég varla verið veikur í 30
ár, nema núna er ég fótbrotinn,
Gylfi Þór Sigurpálsson starfsmaður í BYKO til 52 ára – 70 ára
Fjölskyldan Frá brúðkaupi Hörpu og Más 2013. F.v.: Aron Páll, Fríða Björk, Már Viðarsson, Harpa Dögg og Gylfi Þór.
Unnið lengst allra í Byko
Afinn Gylfi Þór með fyrsta barna-
barnið Maríu Björk, þarna eins árs.
Til hamingju með daginn