Morgunblaðið - 18.08.2021, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Þórður Sævar Jónsson gaf út nú á
þessu ári aðra ljóðabók sína í fullri
lengd. Bókin heitir Brunagaddur
og eru öll ljóð bókarinnar ort á
Akureyri veturinn 2019-2020.
Þórður, sem er fæddur og uppal-
inn á Akureyri, fluttist á áttunda
aldursári til Reykjavíkur og var
því veturinn sem um ræðir hans
fyrsti í heimahögunum í um tutt-
ugu ár. Þórður segir veturinn, sem
var sá harðasti í um 25 ár, hafa
verið megininnblástur bókarinnar.
„Þessi vetur var náttúrlega óum-
deilanlega mjög harður og er það
ekkert mitt mat, gögnin segja okk-
ur það að um var að ræða harðasta
vetur sem Akureyringar hafa upp-
lifað í aldarfjórðung. Í ljósi þess að
ég var ekki búinn að vera fyrir
norðan yfir vetur þetta lengi þá
orkaði þetta enn meira á mig og
kom mér að vissu leyti í opna
skjöldu,“ segir Þórður.
Fjallar um vetur og kulda
Spurður að því hvort bókin fjalli
þá fyrst og fremst um þennan vet-
ur segir hann: „Já bara alfarið. Ég
minnist þess að snemma í desem-
ber skall á þvílíkt ofsaveður að allt
varð til að mynda rafmagnslaust á
Dalvík svo dögum skipti, og allt í
klessu bara almennt. Þá kom
fyrsta ljóðið svona til mín. Svo
varð bara ekkert lát á frostinu og
fannferginu og þá bara kom þetta
af sjálfu sér.“
Töluverður munur á bókum
Eins og áður segir er þetta önn-
ur ljóðabók Þórðar í fullri lengd.
Hann hafði áður gefið út tvær
styttri bækur og árið 2019 gaf
hann út sína fyrstu bók í fullri
lengd, Vellankötlu.
Hann segir töluverðan mun vera
á bókunum sem og á vinnunni að
gerð þeirra. Vellankatla var að
hans sögn samansafn ljóða sem
hann var búinn að „safna í sarp-
inn“ í nokkur ár áður en bókin
kom út. Þá segir hann einnig að
þrátt fyrir að finna megi rauða
þræði sé Vellankatla ekki þematísk
bók.
„Brunagaddur er síðan nánast
svona konseptbók. Hún er fyrst og
síðast bók um vetur og kulda, svo
var hún einnig ort á töluvert
skemmri tíma.“
Eðlislægt tjáningarform
Þórður hóf að yrkja ljóð á
menntaskólaaldri og spurður að
því hvað hafi leitt hann út í ljóðlist
segist hann í raun ekki vera viss.
„Fyrirsjáanlegasta svarið er að
þetta sé einhvers konar tjáningar-
þörf,“ segir hann og að ljóðlistin sé
Veturinn varð að ljóðabók
- Brunagaddur er önnur ljóðabók Þórðar Sævars Jónssonar - Fyrsti veturinn
fyrir norðan í 20 ár - Auðvelt að tjá sig með ljóðum - Leikur að „konkretisma“
Ljóðskáld Þórður
Sævar Jónsson.
Ljósmynd/Saga Sig.
Leikkonan Sunna
Borg og leik-
arinn Björgvin
Franz Gíslason
munu leika í
Skugga-Sveini
með Jóni Gnarr,
sem fer með tit-
ilhlutverkið, í
uppsetningu
Leikfélags Akur-
eyrar á leikritinu sem frumsýnt
verður í janúar á næsta ári.
Á meðal annarra leikara sýning-
arinnar eru Vilhjálmur B. Braga-
son, María Pálsdóttir, Þórdís Björk
Þorfinnsdóttir og Árni Beinteinn
Árnason og leikstjóri er Marta Nor-
dal, leikhússtjóri Leikfélags Akur-
eyrar.
Sunna Borg og
Björgvin með Jóni
Sunna Borg
Tónlistarmað-
urinn og Nób-
elsverðlaunahaf-
inn Bob Dylan
hefur verið sak-
aður um að hafa
misnotað stúlku
kynferðislega ár-
ið 1965. Er Dylan
sagður hafa gefið
henni áfengi og
eiturlyf og misnotað hana á sex
vikna tímabili, að því er segir í frétt
á vef The
Guardian. Hefur mál verið höfðað
á hendur Dylan af konu sem aðeins
er nefnd JC og er núna orðin 68 ára
og býr í Greenwich í Connecticut.
Dylan var 23 eða 24 ára þegar brotin
eiga að hafa átt sér stað. Dylan er
m.a. sakaður um að hafa beitt stúlk-
una ofbeldi á Chelsea-hótelinu á
Manhattan, sagður hafa hótað henni
ofbeldi og mun þessi illa meðferð
vikum saman hafa valdið henni var-
anlegum andlegum skaða, kvíða og
þunglyndi og skert starfsgetu henn-
ar, að því er segir í fréttinni.
JC fer nú fram á skaðabætur fyrir
að hafa verið beitt ofbeldi og haldið
gegn vilja sínum og hlotið var-
anlegan skaða af.
Talsmaður Dylans segir þessar
ásakanir ósannar og að hann muni
verjast þeim af fullum krafti.
Sakaður um að
misnota barn
Bob Dylan
Söngvarinn Tony Bennett hefur
ákveðið að hætta að syngja á sviði
eftir áttatíu ár í bransanum.
Bennett er nú orðinn 95 ára og
hefur læknir hans ráðlagt honum
þetta. Sonur Bennetts og umboðs-
maður, Danny, segir tónleika
Bennetts með Lady Gaga í Radio
City í New York, sem haldnir
voru í síðustu viku, hafa verið
hans síðustu. Sagði hann þetta í
samtali við tímaritið Variety.
Ákvörðunin hafi vissulega reynst
þeim feðgum erfið en ekki annað
hægt en að fara að ráðum lækn-
isins. Fyrr á árinu var greint frá
því að Bennett hefði greinst með
alzheimer árið 2016 en þó haldið
áfram að koma fram og syngja. Til
stóð að hann héldi nokkra tónleika
það sem eftir lifir árs en þeim hef-
ur nú verið aflýst.
Morgunblaðið/Ómar
Sjóaður Bennett einbeittur á tónleikum í Eldborgarsal Hörpu árið 2012.
Bennett hættur að
koma fram, 95 ára
Eftirfarandi er ljóðið Bruna-
gaddur – til Guðjóns R. Sigurðs-
sonar (1903-1991)
hnoða
snjóbolta
sem er í laginu
einsog
kirsuber
ekki svona
kirsuber
sem eru ræktuð
til manneldis
þaðan af síður
kirsuber
sem eru notuð sem
fóðurbætir fyrir
kýr
gaupur
og bísamrottur
heldur kirsuber
sem er einfaldlega
kirsuber
Brunagaddur
TITILLJÓÐIÐ
eðlislægasta leiðin til þess að tjá
það sem honum liggi á hjarta.
Í Brunagaddi leikur Þórður sér
gjarnan með form textans, á það
til að láta orðin skoppa milli lín-
anna og raða þeim upp í einkenni-
leg form. Þetta segir hann vera til-
raun til þess að leika sér með
stefnu sem nefnist „konkretismi“,
sem er eins konar abstrakt ljóðlist.
Hann segir þetta í raun vera það
skemmtilegasta við ljóðlistina.
„Þetta eru bara töfrar ljóðlistar,
frjálsræðið er algjört. Maður hefur
fullkomlega frjálsar hendur til
þess að gera það sem manni sýn-
ist,“ segir Þórður að lokum.