Morgunblaðið - 18.08.2021, Qupperneq 36
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er skemmtilegasta starf sem
ég hef unnið,“ segir Sunnefa Lind
Þórarinsdóttir sem tekur á móti
ferðafólki á Eiríksstöðum í Hauka-
dal. Hún klæðist víkingaaldarfatn-
aði, sest með gestum við langeldinn í
skála Eiríks rauða og segir frá íbú-
unum og lífsháttum víkinga.
Skálinn á Eiríksstöðum er tilgátu-
hús byggt á fornleifarannsóknum
sem fram fóru á staðnum. Skálinn
var tekinn í notkun árið 2000.
Vill fá að smakka?
„Við segjum frá fólkinu sem hér
gæti hafa búið, Eiríki rauða og hans
fjölskyldu, og lifnaðarháttum fólks á
Íslandi á 10. öld. Hvernig er að búa í
svona húsi, til hvers herbergin voru
notuð og hvað fólk borðaði,“ segir
Sunnefa Lind um framsögu sína.
Talið er að Eiríkur rauði hafi reist
skálann á Eiríksstöðum og búið þar
með Þjóðhildi Jörundardóttur, konu
sinni, áður en þau fluttu til Græn-
lands, og þar kann sonur þeirra,
Leifur heppni Eiríksson, að hafa
fæðst. Því má segja að í þessum
skála hafi hafist spennandi kafli
mannkynssögunnar, fundur Græn-
lands og uppgötvun Norður-
Ameríku.
Þetta er þriðja sumar Sunnefu á
Eiríksstöðum og lætur hún vel af að-
sókninni. Fyrsta sumarið voru flestir
gestirnir erlendir, í fyrrasumar
meirihlutinn Íslendingar en í sumar
eru jöfnum höndum íslenskir og er-
lendir ferðamenn. Sunnefa skiptir
því stöðugt á milli íslensku og ensku í
leiðsögn sinni.
Spurð hvað komi gestunum mest á
óvart nefnir Sunnefa fyrst að útlend-
ingarnir séu yfirleitt áhugasamir um
matinn, ekki síst Bandaríkjamenn og
fólk frá Suður-Evrópu sem ekki
þekki neitt til hefðbundins íslensks
þorramatar. Þeir spyrji oft hvar sé
hægt að fá að smakka slíkan mat.
Sunnefa verður að benda á að ekki sé
hægt að fá súrmat fyrr en í febrúar
en fólk geti keypt harðfisk, slátur og
skyr í verslunum.
Hún segir að það komi mörgum
Íslendingum á óvart þegar hún ræð-
ir um það hvernig fólkið svaf en það
hafi líklega verið sitjandi. Spurð
hvernig hún rökstyðji það segir
Sunnefa: „Fundist hafa rúm í þeirri
stærð sem hér er, 1,30 til 1,40 metrar
að lengd, og jafnframt hafa fundist
bein sem sýna að fólkið var ekki svo
miklu minna en við erum. Þá þekkist
það í öðrum menningarheimum,
meðal annars í Suður-Ameríku og
Nepal, að fólk svaf sitjandi til þess að
eiga auðveldara með að anda í reyk
frá eldinum.“
Einnig finnst Íslendingum það at-
hyglisvert þegar hún segir að frá-
sagnir um ofbeldi í Íslendingasög-
unum séu líklega frekar ýktar og
rökstyður þá ályktun með því að
benda á hversu fá sverð hafi fundist
á Íslandi.
Söngvari frá Akureyri
Sunnefa Lind er búsett á Akureyri
þar sem hún hefur verið í söngnámi í
mörg ár, starfað sem vefhönnuður og
skjalavörður. Hún segist þó ekki
syngja fyrir gestina á Eiríksstöðum
en ræði stundum um hljóðfæri frá
víkingatímanum sem fundist hafa.
Skýringin á veru hennar í Döl-
unum er að móðir hennar, Bjarn-
heiður Jóhannsdóttir á Jörfa í
Haukadal, rekur starfsemina á
Eiríksstöðum.
Gestir forvitnir um mat-
inn og hvernig fólkið svaf
Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson
Við langeldinn Sunnefa Lind Þórarinsdóttir segir erlendum ferðamönnum
frá lífinu á víkingaöld. Margir sýna áhuga á matnum sem þá var borðaður.
2012
2020
HJÁ OKKUR FÁST
VARA
HLUTIR
Í AMERÍSKA BÍLA
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík Sími: 517 5000
stalogstansar.is
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 230. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Ísland er komið áfram úr forkeppni HM karla í körfu-
knattleik eftir tvo sigra gegn Dönum en sá síðari kom í
gær. Ísland vann 89:73 en leikið var í Svartfjallalandi.
Heimamenn komust einnig áfram ásamt Íslendingum
og leika liðin því í undankeppni HM 2023. Markmiðið
hjá íslenska liðinu var vitaskuld að komast áfram í und-
ankeppnina. Segja má að það hafi verið vel gert hjá ís-
lenska liðinu að ná því örugglega þegar liðið var án
Martins Hermannssonar, Hauks Helga Pálssonar og
Jóns Axels Guðmundssonar. » 31
Markmiðið náðist nokkuð örugg-
lega hjá körfuboltalandsliðinu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Prósa-, ljóða- og
textakvöld verður
haldið annað
kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 19.
ágúst, frá kl. 19 til
21 á torginu við
Frakkastíg og er
hluti af viðburð-
aröðinni Ber að
garði. Fram koma
og lesa upp texta
sína skáldin Þor-
valdur Sigurbjörn
Helgason, Anna
Hafþórsdóttir,
Dominique Gyða,
Sigríður Ásgeirs-
dóttir, Theodór Ingi, Björn Halldór, Þórdís Dröfn, Vikt-
oría Blöndal sem jafnframt er skipuleggjandi kvöldsins,
Díana Sjöfn og Anna K. Ein.
Skáld lesa upp prósa, ljóð og texta
í Ber að garði við Frakkastíg