Morgunblaðið - 05.08.2021, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 5. Á G Ú S T 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 181. tölublað . 109. árgangur .
ÍSLANDSMÓTIÐ
HALDIÐ Á AKUR-
EYRI Í 18. SINN
30 ÁR FRÁ
VALDARÁNS-
TILRAUNINNI
HARMUR VALINN
INN Á ÞRJÁR
ERLENDAR HÁTÍÐIR
ÓLAFUR EGILSSON 18 AFREK FJÖGURRA VINA 56GOLFBLAÐ 24 SÍÐUR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Rannsóknarboranir vegna gullleitar eru að
hefjast í Þormóðsdal í Mosfellsbæ. Þar mun
Bergborun bora 21 rannsóknarholu og sækja
borkjarna. Dýpsta holan verður um 500 metra
djúp. Þar er kvartsgangur sem geymir gull en
tilgangur rannsóknanna er að sjá hvort þar
finnist gull í vinnanlegu magni.
„Við gerum okkur vonir um að gullvinnsla
hér geti reynst arðbær,“ sagði Herb Duerr,
jarðfræðingur og starfandi forstjóri kanadíska
náma- og endurvinnslufélagsins St-Georges
Eco-Mining Corp. Það er móðurfélag Iceland
Resources ehf. Félagið leggur áherslu á að
námavinnsla þess sé sjálfbær og umhverfis-
væn. Auk gullleitar á Íslandi er St-Georges
Eco-Mining að þróa umhverfisvæna aðferð til
að endurvinna rafhlöður m.a. úr rafbílum.
Iceland Resources ehf. hefur aflað sér rann-
sóknargagna og sýna frá gullleit fyrri tíma hér
á landi. Búið er að rýna þessi gögn á ný og
rannsaka sum sýnin aftur. Þórdís Björk Sigur-
björnsdóttir, forstjóri Iceland Resources,
sagði að gerð verði formleg skýrsla unnin sam-
kvæmt alþjóðlegum stöðlum um rannsókn-
irnar í sumar. Í kjölfarið verða ákvarðanir um
framhaldið teknar á grundvelli niðurstöðu
skýrslunnar. Slík skýrsla hefur ekki verið gerð
áður um gullleit á Íslandi. Stefnt er að því að
ljúka gerð skýrslunnar síðar á þessu ári og
verður hún þá birt opinberlega.
Gullnámur í jarðhitakerfum
Duerr kvaðst sjá fyrir sér að fullvinnsla
gullsins geti farið fram hér á landi. Það fer þó
eftir hreinleika efnisins hvort það verður raun-
hæft. Þórdís sér fyrir sér að íslenska gullið
verði upprunamerkt og rekjanlegt.
„Menn uppgötvuðu á Nýja-Sjálandi um 1980
að jarðhitakerfi eru óaðskiljanlegur hluti af
vissum gerðum af gullnámum. Síðan þá höfum
við af og til leitað að gulli á Íslandi. Ég hef
lengi tekið þátt í því og verið á flestum svæð-
um þar sem gull hefur fundist. Við höfum bara
rétt skannað þetta en eigum eftir að leita
miklu víðar,“ sagði dr. Hjalti Franzson, jarð-
fræðingur og ráðgjafi hjá Iceland Resources
ehf.
„Íslensk jarðskorpa og íslensk jarðhitakerfi
geta alveg eins búið til vinnanlegt gull eins og
jarðhitakerfi annars staðar. Gull getur fundist
þar sem hafa verið gömul og langær jarð-
hitakerfi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gullleit F.v.: Þórdís Björk Sigurbjörnsdóttir, forstjóri Iceland Resources, og jarðfræðingarnir James Rollason og dr. Helen Salmon í Þormóðsdal.
Rannsóknarboranir eftir gulli
eru að hefjast í Þormóðsdal
- Vona að gullvinnsla hér geti reynst arðbær - Áhersla á umhverfisvernd
MBora eftir gulli... »26
Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar
Benna, segir fólk geta átt von á hækkunum á
verði bíla á komandi mánuðum. Hrávöruverð
hafi hækkað mikið, til dæmis bæði stál og ál,
en einnig rafhlöður í rafbíla. „Við vorum til
dæmis að kaupa iðnaðarhurðir á 20% hærra
verði en í fyrra. Framleiðandinn sagði mér að
hann hefði rekið fyrirtæki sitt í þrjátíu ár og
hrávöruverðið til framleiðslunnar hefði á þessu
eina ári hækkað meira en öll þrjátíu árin þar á
undan,“ segir Benedikt.
Erna Gísladóttir, forstjóri BL, segir að bíla-
salan gangi vel um þessar mundir. „Við hefð-
um viljað eiga fleiri bíla á lager, en það hlýtur
að komast í lag á næstu mánuðum.“
Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, telur
að tregða í alþjóðlegri bílaframleiðslu vegna
faraldursins muni ekki hafa mikil áhrif hér á
landi í haust. »30
Verðhækkun
í kortunum
- Hrávöruverð gæti haft
áhrif á bílasölu hérlendis
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, seg-
ir að mönnun yfir sumarið sé helsta orsök þess
að mikið álag sé á Landspítalanum um þessar
mundir. Starfsfólk spítalans hefur verið beðið
um að stytta sumarleyfi sín
og mæta aftur til vinnu
vegna manneklu.
Tíu gjörgæslurými eru í
notkun yfir sumartímann
en almennt eru tólf í notk-
un. Páll segir að raunar sé
pláss fyrir allt upp í 20 gjör-
gæslurými en mönnun leyfi
ekki slíkan fjölda.
Kemur þetta álag til
vegna faraldursins eða er
þetta almennt álag?
„Þetta er almennt álag en Covid hjálpar
ekki, fyrst og fremst er þetta álag af almenn-
um veikindum. En síðan er fólk að leita til okk-
ar t.d. með hita af óljósum ástæðum, sem þarf
að taka alvarlega þegar tíðni Covid er jafnhá
og raun ber vitni,“ segir Páll.
Stjórnvöld reikna með að nýtt minnisblað
um aðgerðir gegn kórónuveirunni berist fyrir
13. ágúst. »2, 4, 10 og 34
Glíma við
mönnun
Páll
Matthíasson
- Álagið á Landspítala
ekki vegna kórónuveiru