Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
Esther Hallsdóttir
Þóra Birna Ingvarsdóttir
Útlit er fyrir að Ísland taki á sig
rauðan lit í litakóðunarkerfi Sótt-
varnastofnunar Evrópu í dag. Það
hefur einnig verið fært á rauðan lista
í Ísrael og Sóttvarnastofnun Banda-
ríkjanna, CDC, hefur hækkað hættu-
mat vegna ferða til Íslands yfir á
þriðja stig af fjórum mögulegum.
Upplýsingafulltrúi Icelandair seg-
ir of snemmt að segja til um hvaða
áhrif þetta kann að hafa. Bjarnheiður
Hallsdóttir, formaður Samtaka
ferðaþjónustunnar, segir að litakóð-
unarkerfi Sóttvarnastofnunar Evr-
ópu sé að missa marks með auknu
hlutfalli bólusettra. Meirihluti ferða-
manna á Íslandi í dag eru Banda-
ríkjamenn. Tilmæli CDC geta því
haft töluverð áhrif. Hækkað hættu-
mat felur þó helst í sér að óbólusett-
um Bandaríkjamönnum er ráðlagt
frá því að ferðast til Íslands. Bjarn-
heiður bendir á að flestir Bandaríkja-
menn sem komi hingað séu bólusett-
ir.
Ísraelar gera þá kröfu að allir sem
komi frá rauðum löndum, óháð bólu-
setningu, þurfi að sæta sjö daga
sóttkví og framvísa tveimur neikvæð-
um PCR-prófum frá þeim. Bjarn-
heiður telur þetta ekki þurfa að
leggjast þungt á ferðaþjónustuna þar
sem Ísraelar séu ekki stór hluti
ferðamanna hér á landi.
Víða í Evrópu hafa lönd tekið upp
sína eigin áhættuflokkun. Í Bretlandi
og Frakklandi virðist Ísland enn vera
á grænum lista en hefur færst yfir á
gulan lista í Danmörku. Í Þýskalandi
var gefið út nýtt kort 1. ágúst þar
sem Ísland er grænt, þótt það kunni
að breytast, en á rauðum lista eru að-
eins þau svæði þar sem ný afbrigði af
veirunni gætu komið fram, að sögn
Bjarnheiðar.
Miðað við þetta ættu bólusettir Ís-
lendingar enn að vera nokkuð frjálsir
ferða sinna, framvísi þeir bólusetn-
ingarvottorði og neikvæðum nið-
urstöðum úr PCR-prófi eða hraðprófi
á heimleið. Á þetta við um ferðir til
allra helstu áfangastaða innan Evr-
ópu, Bretland, Ítalíu, Spán, Danmörk
og Þýskaland.
116 smit og sextán á spítala
Innanlands greindust 116 smit á
þriðjudag, þar af 103 við einkenna-
sýnatöku og þrettán við sóttkvíar og
handahófsskimanir. Tæplega 64%
greindust utan sóttkvíar. Fjögur virk
smit greindust á landamærunum,
einn þeirra var bólusettur. Á hádegi í
gær voru sextán sjúklingar inniliggj-
andi á Landspítala vegna Covid-19.
Fimmtán voru á legudeild og einn á
gjörgæslu. Fjórir voru aftur á móti
útskrifaðir af spítalanum frá deg-
inum áður. 1.351 er í eftirliti á Covid-
göngudeild, þar af 229 börn. Einn
hefur sýnt rauð einkenni en sautján
flokkast gulir. Tuttugu starfsmenn
eru í einangun, 20 aðrir í sóttkví og
114 í vinnusóttkví.
Mikið álag er á Landspítalanum,
sérstaklega á bráðamóttökunni og
má fólk sem leitar þangað vegna
vægari slysa og veikinda, búast við
lengri bið en ella. Forstjóri spítalans
biðlar til starfsfólks í sumarorlofi að
stytta orlof sitt ef kostur er og mæta
aftur til starfa.
Langhlaup, ekki spretthlaup
Ákvörðun heilsugæslunnar að taka
sér mánaðarfrí frá bólusetningum í
miðjum heimsfaraldri hefur verið
gagnrýnd. Ragnheiður Ósk Erlends-
dóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins, segir að þegar ákvörðun um
sumarfrí var tekin hafi allt önnur
staða verið uppi. Búið sé að kalla fólk
til baka úr sumarfríi. „Það er jafn-
vægislist að halda fólki á tánum án
þess að keyra það alveg í þrot. Við
gerum okkur grein fyrir því núna að
þetta er langhlaup, en ekki sprett-
hlaup.“
Á þriðjudaginn var byrjað að gefa
kennurum örvunarskammt af Pfizer,
en sóttvarnalæknir óskaði eftir að sá
hópur yrði settur í forgang í ljósi þess
að skólastarf fer að hefjast á ný. Vik-
una 16. til 19. ágúst er svo stefnt að
hópbólusetningu fyrir alla þá sem
fengu Janssen.
Losna úr einangrun
Tveir smitaðir heimilismenn á
Grund losna úr einangrun við lok vik-
unnar. Þeir hafa verið einkennalausir
allan tímann. Á Minni-Grund greind-
ust tveir fyrr í vikunni, annar með
nokkur einkenni. Heimsóknarbann
er í gildi fram yfir helgi og allnokkrir
starfsmenn eru í sóttkví.
Lengri biðtími á bráðamóttöku
- Ísland líklega rautt á Evrópukorti - Bandaríkin hækka hættumat gagnvart Íslandi - Biðla til
starfsfólks að koma úr fríi - Janssen-þegar bólusettir 16.-19. ágúst - Heimsóknarbann á Grund
2 5
10 7 13 10 11
38
56
78 82
95 88
71
123 123
129
124
154
86
68
109
116
Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær
Heimild: LSH
116 ný innanlands-
smit greindust
sl. sólarhring
1.166 einstaklingar eru
í skimunarsóttkví
1.941 einstaklingar
eru í sóttkví
Fullbólusettir
Bólusetning hafin
Óbólusettir
12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3.2020 2021
Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH kl. 12.00 í gær
Væg eða engin einkenni Covid-19 Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti
150
125
100
75
50
25
0
8.353
staðfest smit alls
Fjöldi innanlandssmita frá 28. febúar 2020 Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí
eftir stöðu bólusetningar
106 100
154
1.351 einstaklingur
er undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH
17 af þeim sem eru
undir eftirliti
flokkast sem gulir
1 einstaklingur
flokkast
sem rauður
229 af þeim
sem eru
undir eftirliti eru börn
16 sjúklingar eru
inniliggjandi á
LSHmeð Covid-19
1 einstaklingur
er á gjörgæslu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leifsstöð Erlendir og innlendir ferðamenn streyma í gegnum flugstöðina á Keflavíkurflugvelli þessa dagana.
Viðburðum menningarnætur í
Reykjavík hefur verið aflýst en
Reykjavíkurmaraþoninu er frestað
um mánuð. Menningarnótt hefur
farið fram ár hvert fyrsta laugardag
eftir afmæli borgarinnar, 18. ágúst,
frá árinu 1966, þar til í fyrra.
Ákvörðunin var tekin á fundi neyð-
arstjórnar borgarinnar í gær. Menn-
ingarnótt er fjölskylduhátíð og var
einhugur hjá stjórninni um að aflýsa
hátíðinni vegna útbreiðslu Covid-19-
smita og óvissu um áhrif Delta-
afbrigðisins á börn og viðkvæma
hópa.
Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, for-
manni borgarráðs og staðgengli
borgarstjóra, þykir leitt að þurfa að
aflýsa hátíðinni. Það sé þó nauðsyn-
legt til að stuðla að eðlilegu lífi og
órofinni þjónustu í borginni, vernda
skólastarf og þjónustu við viðkvæma
hópa. Á menningarnótt hefur farið
fram Reykjavíkurmaraþon Íslands-
banka í samvinnu við Íþrótta-
bandalag Reykjavíkur, ÍBR. Í fyrra
var því aflýst en nú verður því frest-
að til 18. september.
„Við vonum að þá verði ástandið
orðið betra,“ segir Frímann Ari
Ferdinandsson, framkvæmdastjóri
ÍBR, og bætir við: „Það verður ræst í
hollum og á öðrum stað en hlaup-
arar koma í mark.“
Frímann segir ómögulegt að
segja til um hvort skráningar hald-
ist þótt hlaupinu sé seinkað. „Við
þurfum að sjá hvort það sé stemning
fyrir fjöldahlaupi á þessum tíma.“
Tæplega 2.000 útlendingar eru
skráðir í hlaupið og Frímann segir
mikilvægt að þessir einstaklingar
geti gert ráðstafanir enda séu flestir
búnir að kaupa sér flugmiða og gera
skuldbindingar gagnvart hótelum.
thorab@mbl.is
Hátíð aflýst og hlaupi frestað
- Menningarnótt aflýst annað árið í röð - Reykjavíkur-
maraþon fært til 18. september - 2.000 útlendingar skráðir
Morgunblaðið/Eggert
Maraþon Ræst verður í hollum og
ekki á sama stað og hlaupið endar.
STÖKKTU TIL TENERIFE
10. - 18. ÁGÚST
FLUG & GISTING
VERÐ FRÁ:
72.900 KR.
*Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUG, GISTING, INNRITAÐUR
FARANGUR OG HANDFARANGUR
INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR
FLUG OG HANDFARANGUR
FLUG BÁÐAR LEIÐIR
VERÐ FRÁ:
39.900 KR.*
WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI