Morgunblaðið - 05.08.2021, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
N
jála er til umfjöllunar á
uppistandi sem Bjarni
Harðarson, rithöfundur
og bóksali, verður með á
morgun og laugardag, kl. 20 báða dag-
ana, í hellunum við Ægissíðu við
Hellu. „Hvergi á betur við fjalla um
Njálu en í þessum hellum, sem eru til
vitnis um það sem ég hef verið að
reyna að segja mönnum, að hér hafi
ríkt fjölmenningarsamfélag á fyrstu
öldum Íslandsbyggðar,“ segir Bjarni.
Hellarnir eru örfáa metra frá veg-
brún þegar komið er úr vestri að
brúnni yfir Ytri-Rangá. Tilgátur hafa
verið settar fram um að hellarnir hafi
verið gerðir af pöpum, það er írskum
munkum, einhverju fyrir landnám
norrænna manna hér, en upphaf þess
er talið vera árið 874. Allt er þetta þó
sveipað dulúð, sbr. að í sumum hell-
anna, sem eru alls tólf, er að finna
veggjaristur, fangamörk, ártöl, kross-
mörk, búmerki og jafnvel ævafornt
írskt letur og rúnir.
Jafnvel guðshús
Fjölskyldan á Ægissíðu opnaði fyr-
ir nokkrum árum fjóra af tólf hellum.
Nú í ágústmánuði er boðið upp á skoð-
unarferðir um hellana á degi hverjum
kl. 12, 14 og 16 og
tekur hver leið-
angur um það bil
klukkustund.
„Um aldir hafa
hellarnir að Æg-
issíðu verið not-
aðir sem útihús
fyrir skepnur og
til að geyma hey
og matvæli. For-
skálar eru fyrir framan alla hellana og
í þeim er að finna til dæmis strompa,
brunna, berghöld, hillur og stalla.
Sumir þeirra bera þess merki að þeir
hafi verið mannabústaðir og jafnvel
guðshús. Okkar markmið er varð-
veisla hellanna og að segja þær munn-
mælasögur sem gengið hafa mann
fram af manni,“ segir Baldur Þór-
hallsson frá Ægissíðu, talsmaður stað-
arins.
Kapella fyrir enda
Af tólf hellum eru tveir lengstir;
Hlöðuhellir og Fjóshellir sem báðir
eru líka með langa forskála. Uppi-
stand Bjarna fer fram í Fjóshelli sem
er svipaður að stærð en allt annars
konar í laginu með upphækkaða kap-
ellu eða svið fyrir enda. sbs@mbl.is
Hellar Hvelfingar eins og í annarri veröld. Margvíslegar menningar- og mannvistarleifar eru í hellunum, sem eru nærri vegbrún þegar komið er úr vestri að brúnni yfir Ytri-Rangá við Hellu.
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Hellar heilla
Dulúð! Hellarnir við Hellu vekja eftirtekt. Veggjarist-
ur, fangamörk, írskt letur og rúnir. Papar og Njála.
Icewear hefur tekið við veitinga- og
verslunarrekstri þjónustumiðstöðv-
arinnar við Goðafoss í Bárðardal í
Suður-Þingeyjarsýslu. Goðafoss í
Skjálfandafljóti er við Demantshring-
inn svonefnda og er einn vinsælasti
áningarstaður ferðafólks á Norður-
landi.
Icewear mun áfram bjóða inn-
lendum og erlendum gestum upp á
kaffi og veitingar ásamt úrvali af
fatnaði og gjafavöru sem tengist
sögu Íslendinga og íslenskri náttúru.
„Reksturinn hefur verið í góðum
höndum og mikil uppbygging á
staðnum undanfarin ár og við ætlum
að leggja okkur fram við að gera jafn
vel og helst enn betur fyrir ferða-
þjónustuna. Það er líka alveg tilvalið
fyrir Akureyringa og nærsveitarfólk
að fá sér stuttan bíltúr í gegnum
göngin og njóta þess að vera í þessu
magnaða umhverfi. Veitingaað-
staðan er með útsýni yfir fossinn og
það er notalegt að horfa yfir svæðið
með góðan kaffibolla og kökusneið,“
segir Aðalsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Icewear.
Drífa ehf. rekur verslanir Icewear,
Icewear Magasín, Arctic Explorer og
Icemart ásamt vefverslun Icewear.is.
Verslanir Drífu ehf. eru 19 og eru
hringinn í kringum landið. Flestar
eru á höfuðborgarsvæðinu en einnig
tvær á Akureyri, Vík í Mýrdal, Vest-
mannaeyjum og nú í Bárðardalnum.
Icewear tekur við ferðamannaverslun við Goðafoss
Kaffisala, föt og gjafavara
Fosshóll Verslunarhúsið sem stendur skammt frá hinum fagra Goðafossi.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Yfirskrift uppistands Bjarna Harðarsonar er: Var
Gunnar á Hlíðarenda írskur prins? Og í kynningu segir
að hann leysi ráðgátuna um uppruna Íslendinga í kelt-
neskri eldmessu. Hann leitast við að svara fleiri spurn-
ingum sem tengjast Njálu, eins og hvort Njáll á Berg-
þórshvoli hafi verið kaldrifjaður byltingarleiðtogi sem
beið ósigur í baráttu við norræna yfirstétt, hvers vegna
íslensk fræði þegi um keltneskan uppruna Gunnars á
Hlíðarenda, og hvort Njáls saga sé í raun saga af kyn-
þáttaóeirðum í fjölmenningarsamfélagi.
Það er logið að manni
„Í öllum löndum sem verið er að nema hlýtur að
verða til samfélag margra þjóða,“segir Bjarni um kenn-
ingu sína. „Það er svo magnað í Njálu að í fyrstu tíu
skiptin sem maður les hana þá fattar maður þetta ekki,
að það er verið að ljúga að manni þegar látið er sem það
sé sjálfsagður hlutur að Gunnar sé aleinn heima hjá sér
daginn þegar það á að drepa hann. Það gerist aldrei í
Íslendingasögunum. Slík sena kemur aldrei fyrir í þeim
– nema aftar í sama riti, þegar Njáll og synir hans sitja
líka einir heima og bíða eftir að vera drepnir.
Þetta eru þjóðernisátök. Þetta eru ekki átök milli
ætta, eins og alltaf er sagt. Landnáma kjaftar frá, Njála
kjaftar aldrei frá neinu, þrætir bara eins og sprúttsali!
En í Landnámu segir hreint út að þarna sé írsk fjöl-
skylda í Fljótshlíð og hún lendir í miklum átökum við
fjölskyldu í sömu hlíð. Í nokkra áratugi ganga á víg,
hefndir og gagnhefndir, þangað til Mörður gígja, þá
ungur og upprennandi höfðingi, tek-
ur að sér að púsla þessu saman og
gerir það með klassísku ráði feðra-
veldisins: hann gefur systur sína inn
í lið óvinanna.“ Og þar á Bjarni við
foreldra Gunnars á Hlíðarenda, Há-
mund og Rannveigu, en Gunnar ólst
upp í fjölskyldu þar sem afabróðir
hans í föðurætt drap móðurafa hans.
En hvernig verður framsetn-
ingin í hellinum? Mun Bjarni takast
á við fólk ef það mótmælir kenningum hans? „Það er
allt opið í því. En þetta er uppistand. Fyrirlestur,“ svar-
ar Bjarni og heldur áfram:
Hið ósagða mesta snilldin
„Ég kem inn á mótsagnir Njálu; hvernig stéttar-
munur manna og mismunandi þjóðfélagsstaða er alltaf
falin. Njála er í hlutverki hins borgaralega málsvara
sem talar eins og allir séu á sama plani. Þó við vitum öll
að svo er ekki. Við þurfum að lesa bókmenntir eins og
þessa nákvæmlega eins og við lesum pólitísk viðtöl eða
Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins. Við þurfum að taka
eftir því sem ekki er sagt – oft er það tómur hégómi,
það sem er sagt, en hvernig er stiklað framhjá því og
það sem er ekki sagt er oft mesta snilldin.“
Bjarni segir einhverja tugi manna geta fylgst með
tali hans í hellunum, plássið sé gott og hugað að öllum
sóttvörnum í fersku útilofti. Og hann hlakkar til.
„Það er alltaf gaman að tala um Njálu þó ég hafi
alltaf blendnar tilfinningar til sögunnar. Hún er miklu
meira áróðursrit heldur en bókmenntaperla.“
Kynþáttaóeirðir í fjölmenningunni
Bjarni Harðarson
Njála er meira áróðursrit heldur en bókmenntaperla
Baldur Þórhallsson
vfs.is
SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
EIN RAFHLAÐA
+ öll verkfæri fyrir garðinn, heimilið og bílskúrinn