Morgunblaðið - 05.08.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 05.08.2021, Qupperneq 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021 Vegna fjölda eftirspurna höfum við framlengt tilboðið. Kíktu á blaðsíðu 23! VIÐTAL Atli Steinnn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Þegar sá sem hér ritar lagði stund á háskólanám seint á síðustu öld und- irgekkst hann óformlega nám- skeiðið „hvernig á að tala við verk- fræðinema í vísindaferðum“, en fyrir þá sem ekki þekkja til voru vísindaferðir á þeim tíma, og eru kannski enn, heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir sem kepptust við að gefa stúdentum brennivín í þeirri von að þeir annaðhvort réðu sig í vinnu og gerðu eitthvert gagn, eða færu í versta falli eitthvert annað. „Spyrðu bara „hvernig gekk þér í greiningu eitt?““ sagði Sveinn Stef- án Hannesson, nú verkfræðingur, við blaðamann fyrir margt löngu og tók Þorvaldur Guðjónsson, þá nemi í byggingarverkfræði, undir ráð- gjöfina. Átt var við hið annálaða fallfag stærðfræðigreiningu I, en þegar að því var komið að bera upp þessa þungavigtarspurningu höfðu bestu fyrirtæki Reykjavíkur og ná- grennis alla jafna veitt gestum sín- um svo vel að fæstir mundu hvernig þeim gekk í greiningu eitt. Þorvaldur Guðjónsson lauk stúd- entsprófi frá Verzlunarskóla Ís- lands, var um tíma liðtækur hand- boltamaður, lagði leið sína í byggingarverkfræði í Háskóla Ís- lands og er í dag framkvæmdastjóri Rúko, umboðsaðila Liebherr-krana og -vinnuvéla á Íslandi, og þarf varla sérstakt námskeið til að halda uppi samræðum við hann lengur. Þorvaldur lauk nú fyrir skemmstu Val d’Aran CDH-hlaupinu, 105 kíló- metra löngu hlaupi um Pýrenea- fjallgarðinn, en Birgir Már Vigfús- son lögreglumaður bætti um betur og hljóp 160 kílómetra í sama hlaupi. Byggði hafnargarð á Jamaíku „Eftir að maður hætti í handbolt- anum þurfti maður bara að finna sér eitthvað annað að gera,“ segir Þor- valdur, inntur eftir því hvernig hon- um detti í hug að hlaupa 100 kíló- metra í spænskum fjöllum. „Svo var maður bara að dútla í einhverjum götuhlaupum framan af, en eftir það fór ég að fara utan og þá dró aðeins úr þessu,“ segir Þorvaldur, sem starfaði um árabil hjá verktakafyr- irtækinu Ístaki og á meðal annars heiðurinn af hafnargarðinum í Falmouth á Jamaíku þar sem hann starfaði ásamt Birni Friðþjófssyni, föður Eurovision-stjörnunnar og Garðbæingsins Selmu Björnsdóttur. „Svo kom ég heim aftur 2015 og tók þá upp þráðinn. Það var einmitt þá sem ég kynntist utanvegahlaup- um. Framan af var ég bara einn í þessu, en þegar ég kynntist nátt- úruhlaupum breyttist það og maður fór að kynnast fólki í þessu þótt auðvitað sé þetta hálfgert ein- staklingssport,“ segir Þorvaldur. Meðal þess sem hann reyndi sig þá við var hlaup yfir Fimmvörðuháls. Undirbúningur hefst í janúar Þaðan virðist þó býsna langur vegur yfir í að hlaupa rúma 100 kíló- metra yfir sjálf Pýrenea-fjöllin. Var það ekkert mál, hvernig undirbýr maður slíkt þrekvirki? „Maður byrj- ar auðvitað bara á litlum skrefum, en þetta er margra mánaða undir- búningur,“ svarar Þorvaldur, „ég var þá búinn að hlaupa tvö maraþon erlendis, fyrsta maraþonið mitt var í Tel Aviv í Ísrael og svo hljóp ég í París árið eftir, en Laugavegurinn [milli Þórsmerkur og Landmanna- lauga] var kannski fyrsta alvöru- utanvegahlaupið mitt,“ segir verk- fræðingurinn frá. „Fyrir hlaup á borð við Val d’Ar- an CDH, sem er um mitt sumar, hefst undirbúningur í raun í janúar. Þetta er bara mjög hörð vinna og maður þarf bara að sinna þessu mjög vel,“ segir Þorvaldur, en nær þó að láta 26 klukkustunda hlaup hljóma eins og hvern annan lautar- túr í eyrum blaðamanns, sem mest hefur hlaupið 27,81 kílómetra og taldi sig þá mun nær dauða en lífi. „Ég kynntist nú fáum í þessu hlaupi,“ játar Þorvaldur, spurður út í félagslegu hliðina á því að hlaupa yfir Pýrenea-fjöllin, „þetta voru mest Frakkar og Spánverjar og töl- uðu litla sem enga ensku. Þetta hlaup var í raun tvö risahlaup, þú verður eiginlega að tala við Birgi Má Vigfússon lögregluþjón, hann hljóp 160 kílómetra í þessu hlaupi,“ segir Þorvaldur. Hvernig skyldi þá ganga að jafna sig eftir 100 kílómetra hlaup? „Það er bara að leggjast á koddann, mað- ur klárar sig alveg,“ segir Þorvald- ur. „Þetta hlaup er frekar torfært, maður var á tíma bara að klifra í klettum. Maður stoppar á drykkjar- stöðvum í smástund, frá fimm mín- útum og upp í kortér og fær sér hressingu.“ Hvað gerist í höfðinu á fólki í hlaupi sem tekur rúman sólarhring, um hvað snúast hugsanirnar? „Fyrstu 30 til 50 kílómetrana hugs- ar maður mest um hvað þetta er dásamlegt og hvað landslagið er fal- legt,“ svarar Þorvaldur, „svo fer maður að spyrja sig hvers vegna maður sé að þessu og svo þegar á líður og orkan fer að dvína fer mað- ur að hugsa um hvernig maður eigi að klára þetta. Maður fer að grafa djúpt í hugann,“ játar hann. Tískudrottning úr Verzló „Að lokum verður allt erfiðara, maður á til dæmis í erfiðleikum með að koma niður mat undir það síð- asta, en þessu fylgir ofboðsleg vel- líðan, að klára svona hlaup. Þetta er í rauninni alveg eins og alkóhólismi, þetta er sami hringurinn, fyrst ertu óskaplega ánægður og allt er gam- an, en svo skellur vanlíðanin á þér og þú lofar sjálfum þér að gera þetta aldrei aftur, en nokkrum dög- um síðar ertu samt farinn að huga að næsta hlaupi,“ segir Þorvaldur og hlær dátt að samlíkingunni. Hann tilheyrir hlaupasamfélagi á Facebook sem heitir Náttúruhlaup og segir þar mikla hvatningu að finna auk þess sem hópurinn skipu- leggi sífellt hlaup um íslenska nátt- úru og mæti þá þeir sem vilja. En skyldi hlaupið vera dýrt sport? „Já og nei,“ svarar verzl- unarskólastúdentinn með semingi, „eins og aðrar tískudrottningar er maður auðvitað í besta útbúnað- inum,“ segir hann og skellihlær, „þú ferð með fleiri pör af hlaupaskóm á ári, skórnir endast kannski 600 kíló- metra í fjallahlaupum og par af góð- um skóm kostar 25 til 30 þúsund kall,“ segir Þorvaldur og ætlar að halda sportinu áfram ótrauður. Birgir Már Vigfússon lögreglu- þjónn hljóp 160 kílómetra í Val d’Aran CDH-hlaupinu og þótti ekki annað tækt en að eiga við hann tal einnig eftir áskorun Þorvaldar. „Ég var í golfi frá unga aldri, en fékk svo bara nóg af því svo ég fór í utan- vegahlaupin,“ segir Birgir. „Þetta er frábær félagsskapur í þessu sporti, en stundum er maður einn að hlaupa og þá er þetta bara hug- leiðsla, maður er einn með sjálfum sér og sínum hjartans málum,“ seg- ir lögregluþjónninn. „Strax eftir hlaupið er maður auð- vitað bara búinn í skrokknum og þá var nú gott að fá góðar móttökur frá Láru og Valda [Þorvaldi og konu hans Láru Björk Einarsdóttur],“ játar Birgir. „Nú er mánuður síðan ég lauk hlaupinu, en ég er enn dof- inn í tánum og samt farinn að búa mig undir hlaup með tuttugu Ís- lendingum á svæðinu kringum Mont Blanc,“ segir hann og kveður hlaup- in hafa gefið sér margt. „Ég hvet bara alla til að prófa utanvegahlaup, fara út í náttúruna og prófa. Und- irlagið þar fer miklu betur með skrokkinn en malbikið,“ segir Birgir og á lokaorðin í spjallinu við þá Þor- vald verkfræðing, menn sem hafa fundið hamingjuna og gleðina á tveimur jafnfljótum í guðsgrænni náttúrunni. „Hlaup eru eins og alkóhólismi“ - Þorvaldur Guðjónsson hljóp 105 kílómetra í Val d’Aran CDH-hlaupinu - „Þetta er ekki neitt, talaðu við Birgi!“ - Enn þá dofinn í tánum en farinn að skipuleggja næsta hlaup - Frábær félagsskapur 160 kílómetrar Birgir segir hlaupin jafnast á við hugleiðsluástand. Foldar skart Þorvaldur í ægifagurri náttúru hinna spænsku gestgjafa.105 kílómetrar Þorvaldur Guðjónsson byggingarverkfræðingur skilar sér í mark í Val d’Aran CDH-hlaupinu í Pýrenea-fjöllunum, nú er það bara kodd- inn. Þorvaldur líkir langhlaupum við alkóhólisma, gaman fyrst.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.