Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR
Innlent | Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
SUBARU - LEGACY OUTBACK – RN. 340511.
Nýskráður 5/2015, ekinn 150 þ.km., dísel, dökk-
grár, sjálfskipting, dráttarkrókur, bakkmyndavél,
stöðugleikakerfi, litað gler, bluetooth.
Verð 2.790.000 kr.
NISSAN - PULSAR ACENTA – RN. 331456.
Nýskráður 3/2018, ekinn 56 þ.km., bensín,
brúnn, beinskipting, stöðugleikakerfi, bluetooth,
bakkmyndavél, usb/ipod tengi, litað gler.
Verð 2.490.000 kr.
TOYOTA - PROACE CITY VERSO RN. 153567
Nýskráður 8/2020, ekinn 20 þ.km., dísel, dökk-
grár, sjálfskiptur, litað gler, stöðugleikakerfi,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar, bluetooth.
Verð 5.890.000 kr.
TOYOTA - RAV4 HYBRID – RN. 153695
Nýskráður 10/2018, ekinn 166 þ.km., bensín,
hvítur, sjálfskiptur, hraðastillir, bakkmyndavél, hiti
í sætum, álfelgur, bluetooth, umferðarskiltanemi.
Verð 3.890.000 kr.
BAKSVIÐ
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Seinna í mánuðinum verða 30 ár liðin
frá örvæntingarfullri valdaráns-
tilraun átta háttsettra sovéskra emb-
ættismanna, áttmenninga sem vildu
bjarga Sovétríkjunum frá þeirri glöt-
un sem þeir töldu þáverandi leiðtoga
ríksins, Mikhaíl Gorbatsjov, stefna
að. Valdaránstilraunin fór út um þúf-
ur, sérstaklega
fyrir tilstilli Boris
Jeltsíns, lýðræð-
islega kjörins for-
seta Sambands-
lýðveldisins
Rússlands og síðar
fyrsta forseta
Rússlands, og
vegna þess að
Gorbatsjov neitaði
að segja af sér.
Dagarnir 19.-21. ágúst 1991 ein-
kenndust af miklu uppþoti í Moskvu,
höfuðborg Sovétríkjanna, sem þá
hægt og rólega riðuðu til falls. Þar
var staddur Ólafur Egilsson, þáver-
andi sendiherra Íslands í Moskvu, og
er frásögn hans af valdaránstilraun-
inni á köflum lygileg. Hann segir
Morgunblaðinu frá því að Boris Jelts-
ín hafi boðað sig og aðra sendiherra á
sinn fund, að morgni valdaránsdags-
ins, áður en hann klifraði upp á skrið-
dreka fyrir framan rússneska stjórn-
arráðið, messaði yfir Moskvubúum og
las yfirlýsingu þar sem hann mót-
mælti valdaránstilrauninni – atburðir
sem mörgum Moskvubúum eru ef-
laust ógleymanlegir.
Vildu vinda ofan af þróuninni
Við skulum leyfa Ólafi að byrja á
byrjuninni:
„Ég kom til starfa í Moskvu árið
1990 og var þess vegna þarna í ágúst
’91. Það var einn í hópi valdaráns-
manna sem ég hafði beinlínis haft
samskipti við fyrr á árinu, hann sat
þá hádegisverð hjá mér í sendiráðs-
bústaðnum með okkur norrænu
sendiherrunum. Þetta var Boris Pugo
innanríkisráðherra, sá eini sem fyrir-
fór sér þegar valdaránstilraunin mis-
tókst.
Við norrænu sendiherrarnir vorum
vanir að hittast einu sinni í mánuði í
hádegisverð og bjóða þá gjarnan ein-
hverjum málsmetandi gesti til þess
að spjalla við okkur og Pugo hafði
verið þarna með okkur síðla í janúar
þetta ár. Ástandið í Eystrasaltsríkj-
unum var þá mjög alvarlegt. Gengum
við fast á hann um fyrirætlanir Sovét-
stjórnarinnar og hvöttum til að hún
héldi að sér höndum.“
Þeir sem fyrir valdaránstilrauninni
stóðu voru þaulsætnir sovéskir
stjórnmála- og embættismenn,
íhaldsmenn sem mislíkaði nálgun
Gorbatsjovs við stjórn ríkisins. Einna
helst fór fyrir brjóstið á áttmenning-
unum Glastnost-Perestroika Gorbat-
sjovs, stefna sem hverfðist annars
vegar um gildistöku prent- og tján-
ingarfrelsis og hins vegar viðskipta-
frelsis innan Sovétríkjanna. Það sem
áttmenningunum mislíkaði einnig,
eins og Ólafur útskýrir, voru fyrir-
ætlanir Gorbatsjovs um að auka völd
þeirra sambandslýðvelda sem til Sov-
étríkjanna heyrðu.
Áttmenningarnir voru Valentín
Pavlov, forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, áðurnefndur Boris Pugo, Di-
mitrí Jasov, varnarmálaráðherra og
marskálkur í sovéska hernum, Valdi-
mír Krústsjov, forstöðumaður KGB,
Oleg Baklanov, varaformaður varn-
armálanefndar Sovétríkjanna, Visiljí
Starodúbstjev, formaður verkalýðs-
samtaka Sovétríkjanna, Aleksander
Tisjakov, forseti bandalags ríkis-
stofnana, og loks Gennadí Yanajev,
varaforseti Sovétríkjanna og hægri
hönd Gorbatsjovs. Mynduðu þeir
nefnd sem ráða átti bót á því sem
kallað var „neyðarástand ríkisins“,
þ.e. stjórnarháttum Gorbatsjovs.
Nefndin kom fram opinberlega síð-
degis hinn 19. ágúst og lýsti því yfir
að Yanajev tæki við völdum í Sovét-
ríkjunum þar sem Gorbatsjov væri
ekki heill heilsu. Hann óskaði Gorb-
atsjov, sem hann kallaði „vin sinn“,
skjóts bata. Yfirlýsing Yanajevs var
lesin í sovéska ríkissjónvarpinu og
sýnt var beint frá blaðamannafundi
nefndarinnar. Ólafur lýsir því að
Yanajev hafi verið um margt ótraust-
ur maður, hann hafi verið drykk-
felldur og þar að auki áberandi skjálf-
hentur, sem
mörgum þótti ekki
traustvekjandi í
umræddri sjón-
varpsútsendingu.
Hitti Jeltsín
sama dag
Nálægt hádegi
19. ágúst hafði Bor-
is Jeltsín staðið á
skriðdreka rauða hersins fyrir framan
rússneska stjórnarráðið og lýst yfir
vanþóknun sinni á væntanlegri valda-
ránstilraun, sem nefndin kynnti íbúum
Sovétríkjanna og heimsbyggðinni allri
í beinni útsendingu.
„Morguninn sem það spyrst út að
sendur hafi verið mannskapur af
valdaránsmönnum suður í land til þess
að handtaka Gorbatsjov [sem þá var
staddur á Krímskaga] og setja hann í
stofufangelsi kemur boð í sendiráðið
til okkar um að Boris Jeltsín vilji fá til
sín nokkra sendiherra seinna um
morguninn í stjórnarráðið. Og ég fer
þangað, en það var reyndar augna-
bliksspurning vegna þess að sendi-
herrar og sendiráðsfólk reynir alla
jafna að komast hjá því að blanda sér í
innanríkismál þeirra landa sem þau
reka erindi sín í, en þarna var svo ljóst
hvað var á ferðinni að ég var fljótur að
þiggja þetta boð. Og ég var þarna á
fundi þar sem Jeltsín útskýrði sína af-
stöðu og sína einörðu andstöðu við
valdarán. Hann bað okkur svo að hraða
okkur til sendiráða okkar, því við vær-
um eina örugga leiðin fyrir hann til að
koma sinni afstöðu á framfæri við
heimsbyggðina. Var það vegna þess að
hann átti allt eins von á því að reynt
yrði að taka stjórnarráðið hvenær sem
væri og handtaka sig. Og það er sem sé
í framhaldi af þessum fundi sem hann
fer upp á skriðdrekann og les yfirlýs-
ingu sem var þess sama efnis og hann
hafði lesið fyrir okkur sendiherrana.
Það var tvísýnt í upphafi hvernig þetta
allt saman færi, en svo skýrðist það
brátt og ljósara varð að Jeltsín var að
ná yfirhöndinni.“
Láðist að handtaka Jeltsín
Ólafur segir að þótt Gorbatsjov hafi
ekki látið af völdum fyrr en undir árs-
lokin árið 1991, þegar Sovétríkin féllu
endanlega, hafi Jeltsín klárlega verið
orðinn vonarstjarna Rússa, sérstak-
lega vegna framgöngu sinnar í miðju
valdaráninu.
Hann segir einnig að áttmenning-
unum hafi yfirsést að taka Jeltsín
höndum, eins og þeir ætluðu að taka
Gorbatsjov höndum. Hefðu þeir gert
það hefðu atburðirnir í ágúst 1991
ugglaust getað endað allt öðruvísi og
saga Sovétríkjanna mögulega lengst
til muna.
Kynni Ólafs af Jeltsín voru góð.
Þegar Jeltsín varð forseti Sam-
bandslýðveldis Rússlands, eins 15
sambandslýðvelda sem lutu Sovét-
stjórn, var honum mjög í mun að
brjótast undan valdi Kremlverja, rétt
eins og leiðtogar Eystrasaltsríkjanna
á þeim tíma. Raunar rifjar Ólafur það
upp að málefni Eystrasaltsríkjanna
hafi borið á góma á einum fundi
þeirra tveggja snemma sama ár.
„Hann studdi sjálfstæði Eystra-
saltsríkjanna og hafði lagt leið sína til
tveggja þeirra, Eistlands og Lett-
lands, dagana áður en Jón Baldvin
Hannibalsson, þáv. utanríkis-
ráðherra, fór þangað í sína frægu för.
Þá var ástandið þar svo krítískt,
þarna fyrr á árinu 1991, að Jeltsín
vildi sýna þeim kröftugan stuðning og
var nýkominn þaðan þegar ég ræddi
síðan við hann. Hann lýsti því fyrir
mér að sér hefði verið ráðið frá því að
fara til Litháens vegna ástandsins
þar. Það undirstrikar hversu hættu-
legt ástand var þarna á þeim tíma
sem Jón Baldvin er þar á ferðinni.“
Svo lýsir Ólafur því nánar þegar
áðurnefndur Boris Pugo innanríkis-
ráðherra hitti norrænu sendiherrana í
hádegisverðinum í boði Ólafs, til þess
að ræða málefni Eystrasaltsríkjanna,
snemma ársins 1991. Ólafur segir að
sendiherrarnir hafi þjarmað að Pugo
og úr hafi orðið hitafundur, vegna
þess að sovéski herinn hafði verið að
hafa sig í frammi gagnvart íbúum
Eystrasaltsríkjanna. Var þá spurning
um hvort sovéski herinn hafði gert
það af sjálfsdáðum eða eftir skipunum
Kremlverja, sem Pugo þvertók þá
fyrir.
Landráðamennirnir náðaðir
Þegar valdaránstilraunin rennur
endanlega út í sandinn hinn 21. ágúst,
þremur dögum eftir að hún hófst, eru
áttmenningarnir handteknir og færð-
ir fyrir dómara. Boris Pugo forðaðist
þó handtöku, eins og fyrr segir, með
því að stytta sér aldur 22. ágúst.
Mennirnir sem skipuðu nefndina al-
ræmdu voru allir dæmdir fyrir land-
ráð, auk þriggja annarra. Þeirra á
meðal var Anatoly Lúkjanov, forseti
sovéska þingsins, sem Ólafur hafði áð-
ur hitt, m.a. þegar þingforsetinn sem
staðgengill Gorbatsjovs forseta tók
við trúnaðarbréfi Ólafs við upphaf
sendiherrastarfanna árið áður. Áttu
þeir þá langan fund þar sem m.a. kom
fram góð þekking Lúkjanovs á ís-
lenska þjóðveldinuá fundi. Lúkjanov
var legið á hálsi fyrir að hafa ekki án
tafar kvatt saman þing þegar valda-
ránstilraunin hófst.
Hinn 23. febrúar 1994 var öllum
sakborningum boðin náðun af hálfu
rússneska þingsins, Dúmunnar, sem
þeir höfðu allir þegið þegar dómur
síðan féll örfáum dögum síðar. Frá
handtökum áttmenninganna og þar til
dómur féll máttu flestir þeirra dúsa í
fangelsi, en þó hlutu einhverjir þeirra
síðar náð rússnesku þjóðarinnar og
voru meðal annars kosnir á þing aft-
ur, þ.á m. Lúkjanov.
Í hringiðu hasars í Moskvu
- Senn 30 ár frá valdaránstilrauninni í Moskvu - Ólafur Egilsson sendiherra hitti Jeltsín á
valdaránsdegi, rétt áður en hann las yfirlýsinguna frægu fyrir framan rússneska stjórnarráðið
AP
Bylting Borís Jeltsín uppi á skriðdreka við stjórnarráðið í Moskvu 19. ágúst
1991. Ólafur Egilsson, þáverandi sendiherra Íslands í Moskvu, hafði hitt
hann um morguninn og rifjar hér á síðunni upp þennan örlagaríka dag.
Tilefni þessarar samantekar er fráfall Olegs Baklanovs,
sem lést 28. júlí sl. Baklanov var einn áttmenninganna
sem stóðu að valdaráninu í ágúst 1991 og gegndi þá
varaformennsku í varnarmálanefnd Sovétríkjanna.
Baklanov var síðasti núlifandi meðlimur áttmenning-
anna og bar það hæst á hans ferli að hann var ráðherra
tækniþróunar frá 1983-1988. Þannig var hann sá sem
fór fyrir geimferðaáætlun Sovétríkjanna á níunda ára-
tugnum. Baklanov var viðskipta- og vísindamaður, hóf
feril sinn sem verkfræðingur í verksmiðju í Úkraínu og
tók síðar við yfirstjórn hennar. Hann fæddist 17. mars 1932 í Karkív í
Úkraínu Sovétríkjanna og var því 89 ára að aldri þegar hann lést.
Síðasti áttmenningurinn allur
VALDARÁNSTILRAUNIN Í MOSKVU 1991
Oleg Baklanov
Ólafur Egilsson
Boris Pugo