Morgunblaðið - 05.08.2021, Page 18

Morgunblaðið - 05.08.2021, Page 18
18 FRÉTTIR Innlent | Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021 OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is SUBARU - LEGACY OUTBACK – RN. 340511. Nýskráður 5/2015, ekinn 150 þ.km., dísel, dökk- grár, sjálfskipting, dráttarkrókur, bakkmyndavél, stöðugleikakerfi, litað gler, bluetooth. Verð 2.790.000 kr. NISSAN - PULSAR ACENTA – RN. 331456. Nýskráður 3/2018, ekinn 56 þ.km., bensín, brúnn, beinskipting, stöðugleikakerfi, bluetooth, bakkmyndavél, usb/ipod tengi, litað gler. Verð 2.490.000 kr. TOYOTA - PROACE CITY VERSO RN. 153567 Nýskráður 8/2020, ekinn 20 þ.km., dísel, dökk- grár, sjálfskiptur, litað gler, stöðugleikakerfi, bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar, bluetooth. Verð 5.890.000 kr. TOYOTA - RAV4 HYBRID – RN. 153695 Nýskráður 10/2018, ekinn 166 þ.km., bensín, hvítur, sjálfskiptur, hraðastillir, bakkmyndavél, hiti í sætum, álfelgur, bluetooth, umferðarskiltanemi. Verð 3.890.000 kr. BAKSVIÐ Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Seinna í mánuðinum verða 30 ár liðin frá örvæntingarfullri valdaráns- tilraun átta háttsettra sovéskra emb- ættismanna, áttmenninga sem vildu bjarga Sovétríkjunum frá þeirri glöt- un sem þeir töldu þáverandi leiðtoga ríksins, Mikhaíl Gorbatsjov, stefna að. Valdaránstilraunin fór út um þúf- ur, sérstaklega fyrir tilstilli Boris Jeltsíns, lýðræð- islega kjörins for- seta Sambands- lýðveldisins Rússlands og síðar fyrsta forseta Rússlands, og vegna þess að Gorbatsjov neitaði að segja af sér. Dagarnir 19.-21. ágúst 1991 ein- kenndust af miklu uppþoti í Moskvu, höfuðborg Sovétríkjanna, sem þá hægt og rólega riðuðu til falls. Þar var staddur Ólafur Egilsson, þáver- andi sendiherra Íslands í Moskvu, og er frásögn hans af valdaránstilraun- inni á köflum lygileg. Hann segir Morgunblaðinu frá því að Boris Jelts- ín hafi boðað sig og aðra sendiherra á sinn fund, að morgni valdaránsdags- ins, áður en hann klifraði upp á skrið- dreka fyrir framan rússneska stjórn- arráðið, messaði yfir Moskvubúum og las yfirlýsingu þar sem hann mót- mælti valdaránstilrauninni – atburðir sem mörgum Moskvubúum eru ef- laust ógleymanlegir. Vildu vinda ofan af þróuninni Við skulum leyfa Ólafi að byrja á byrjuninni: „Ég kom til starfa í Moskvu árið 1990 og var þess vegna þarna í ágúst ’91. Það var einn í hópi valdaráns- manna sem ég hafði beinlínis haft samskipti við fyrr á árinu, hann sat þá hádegisverð hjá mér í sendiráðs- bústaðnum með okkur norrænu sendiherrunum. Þetta var Boris Pugo innanríkisráðherra, sá eini sem fyrir- fór sér þegar valdaránstilraunin mis- tókst. Við norrænu sendiherrarnir vorum vanir að hittast einu sinni í mánuði í hádegisverð og bjóða þá gjarnan ein- hverjum málsmetandi gesti til þess að spjalla við okkur og Pugo hafði verið þarna með okkur síðla í janúar þetta ár. Ástandið í Eystrasaltsríkj- unum var þá mjög alvarlegt. Gengum við fast á hann um fyrirætlanir Sovét- stjórnarinnar og hvöttum til að hún héldi að sér höndum.“ Þeir sem fyrir valdaránstilrauninni stóðu voru þaulsætnir sovéskir stjórnmála- og embættismenn, íhaldsmenn sem mislíkaði nálgun Gorbatsjovs við stjórn ríkisins. Einna helst fór fyrir brjóstið á áttmenning- unum Glastnost-Perestroika Gorbat- sjovs, stefna sem hverfðist annars vegar um gildistöku prent- og tján- ingarfrelsis og hins vegar viðskipta- frelsis innan Sovétríkjanna. Það sem áttmenningunum mislíkaði einnig, eins og Ólafur útskýrir, voru fyrir- ætlanir Gorbatsjovs um að auka völd þeirra sambandslýðvelda sem til Sov- étríkjanna heyrðu. Áttmenningarnir voru Valentín Pavlov, forsætisráðherra Sovétríkj- anna, áðurnefndur Boris Pugo, Di- mitrí Jasov, varnarmálaráðherra og marskálkur í sovéska hernum, Valdi- mír Krústsjov, forstöðumaður KGB, Oleg Baklanov, varaformaður varn- armálanefndar Sovétríkjanna, Visiljí Starodúbstjev, formaður verkalýðs- samtaka Sovétríkjanna, Aleksander Tisjakov, forseti bandalags ríkis- stofnana, og loks Gennadí Yanajev, varaforseti Sovétríkjanna og hægri hönd Gorbatsjovs. Mynduðu þeir nefnd sem ráða átti bót á því sem kallað var „neyðarástand ríkisins“, þ.e. stjórnarháttum Gorbatsjovs. Nefndin kom fram opinberlega síð- degis hinn 19. ágúst og lýsti því yfir að Yanajev tæki við völdum í Sovét- ríkjunum þar sem Gorbatsjov væri ekki heill heilsu. Hann óskaði Gorb- atsjov, sem hann kallaði „vin sinn“, skjóts bata. Yfirlýsing Yanajevs var lesin í sovéska ríkissjónvarpinu og sýnt var beint frá blaðamannafundi nefndarinnar. Ólafur lýsir því að Yanajev hafi verið um margt ótraust- ur maður, hann hafi verið drykk- felldur og þar að auki áberandi skjálf- hentur, sem mörgum þótti ekki traustvekjandi í umræddri sjón- varpsútsendingu. Hitti Jeltsín sama dag Nálægt hádegi 19. ágúst hafði Bor- is Jeltsín staðið á skriðdreka rauða hersins fyrir framan rússneska stjórnarráðið og lýst yfir vanþóknun sinni á væntanlegri valda- ránstilraun, sem nefndin kynnti íbúum Sovétríkjanna og heimsbyggðinni allri í beinni útsendingu. „Morguninn sem það spyrst út að sendur hafi verið mannskapur af valdaránsmönnum suður í land til þess að handtaka Gorbatsjov [sem þá var staddur á Krímskaga] og setja hann í stofufangelsi kemur boð í sendiráðið til okkar um að Boris Jeltsín vilji fá til sín nokkra sendiherra seinna um morguninn í stjórnarráðið. Og ég fer þangað, en það var reyndar augna- bliksspurning vegna þess að sendi- herrar og sendiráðsfólk reynir alla jafna að komast hjá því að blanda sér í innanríkismál þeirra landa sem þau reka erindi sín í, en þarna var svo ljóst hvað var á ferðinni að ég var fljótur að þiggja þetta boð. Og ég var þarna á fundi þar sem Jeltsín útskýrði sína af- stöðu og sína einörðu andstöðu við valdarán. Hann bað okkur svo að hraða okkur til sendiráða okkar, því við vær- um eina örugga leiðin fyrir hann til að koma sinni afstöðu á framfæri við heimsbyggðina. Var það vegna þess að hann átti allt eins von á því að reynt yrði að taka stjórnarráðið hvenær sem væri og handtaka sig. Og það er sem sé í framhaldi af þessum fundi sem hann fer upp á skriðdrekann og les yfirlýs- ingu sem var þess sama efnis og hann hafði lesið fyrir okkur sendiherrana. Það var tvísýnt í upphafi hvernig þetta allt saman færi, en svo skýrðist það brátt og ljósara varð að Jeltsín var að ná yfirhöndinni.“ Láðist að handtaka Jeltsín Ólafur segir að þótt Gorbatsjov hafi ekki látið af völdum fyrr en undir árs- lokin árið 1991, þegar Sovétríkin féllu endanlega, hafi Jeltsín klárlega verið orðinn vonarstjarna Rússa, sérstak- lega vegna framgöngu sinnar í miðju valdaráninu. Hann segir einnig að áttmenning- unum hafi yfirsést að taka Jeltsín höndum, eins og þeir ætluðu að taka Gorbatsjov höndum. Hefðu þeir gert það hefðu atburðirnir í ágúst 1991 ugglaust getað endað allt öðruvísi og saga Sovétríkjanna mögulega lengst til muna. Kynni Ólafs af Jeltsín voru góð. Þegar Jeltsín varð forseti Sam- bandslýðveldis Rússlands, eins 15 sambandslýðvelda sem lutu Sovét- stjórn, var honum mjög í mun að brjótast undan valdi Kremlverja, rétt eins og leiðtogar Eystrasaltsríkjanna á þeim tíma. Raunar rifjar Ólafur það upp að málefni Eystrasaltsríkjanna hafi borið á góma á einum fundi þeirra tveggja snemma sama ár. „Hann studdi sjálfstæði Eystra- saltsríkjanna og hafði lagt leið sína til tveggja þeirra, Eistlands og Lett- lands, dagana áður en Jón Baldvin Hannibalsson, þáv. utanríkis- ráðherra, fór þangað í sína frægu för. Þá var ástandið þar svo krítískt, þarna fyrr á árinu 1991, að Jeltsín vildi sýna þeim kröftugan stuðning og var nýkominn þaðan þegar ég ræddi síðan við hann. Hann lýsti því fyrir mér að sér hefði verið ráðið frá því að fara til Litháens vegna ástandsins þar. Það undirstrikar hversu hættu- legt ástand var þarna á þeim tíma sem Jón Baldvin er þar á ferðinni.“ Svo lýsir Ólafur því nánar þegar áðurnefndur Boris Pugo innanríkis- ráðherra hitti norrænu sendiherrana í hádegisverðinum í boði Ólafs, til þess að ræða málefni Eystrasaltsríkjanna, snemma ársins 1991. Ólafur segir að sendiherrarnir hafi þjarmað að Pugo og úr hafi orðið hitafundur, vegna þess að sovéski herinn hafði verið að hafa sig í frammi gagnvart íbúum Eystrasaltsríkjanna. Var þá spurning um hvort sovéski herinn hafði gert það af sjálfsdáðum eða eftir skipunum Kremlverja, sem Pugo þvertók þá fyrir. Landráðamennirnir náðaðir Þegar valdaránstilraunin rennur endanlega út í sandinn hinn 21. ágúst, þremur dögum eftir að hún hófst, eru áttmenningarnir handteknir og færð- ir fyrir dómara. Boris Pugo forðaðist þó handtöku, eins og fyrr segir, með því að stytta sér aldur 22. ágúst. Mennirnir sem skipuðu nefndina al- ræmdu voru allir dæmdir fyrir land- ráð, auk þriggja annarra. Þeirra á meðal var Anatoly Lúkjanov, forseti sovéska þingsins, sem Ólafur hafði áð- ur hitt, m.a. þegar þingforsetinn sem staðgengill Gorbatsjovs forseta tók við trúnaðarbréfi Ólafs við upphaf sendiherrastarfanna árið áður. Áttu þeir þá langan fund þar sem m.a. kom fram góð þekking Lúkjanovs á ís- lenska þjóðveldinuá fundi. Lúkjanov var legið á hálsi fyrir að hafa ekki án tafar kvatt saman þing þegar valda- ránstilraunin hófst. Hinn 23. febrúar 1994 var öllum sakborningum boðin náðun af hálfu rússneska þingsins, Dúmunnar, sem þeir höfðu allir þegið þegar dómur síðan féll örfáum dögum síðar. Frá handtökum áttmenninganna og þar til dómur féll máttu flestir þeirra dúsa í fangelsi, en þó hlutu einhverjir þeirra síðar náð rússnesku þjóðarinnar og voru meðal annars kosnir á þing aft- ur, þ.á m. Lúkjanov. Í hringiðu hasars í Moskvu - Senn 30 ár frá valdaránstilrauninni í Moskvu - Ólafur Egilsson sendiherra hitti Jeltsín á valdaránsdegi, rétt áður en hann las yfirlýsinguna frægu fyrir framan rússneska stjórnarráðið AP Bylting Borís Jeltsín uppi á skriðdreka við stjórnarráðið í Moskvu 19. ágúst 1991. Ólafur Egilsson, þáverandi sendiherra Íslands í Moskvu, hafði hitt hann um morguninn og rifjar hér á síðunni upp þennan örlagaríka dag. Tilefni þessarar samantekar er fráfall Olegs Baklanovs, sem lést 28. júlí sl. Baklanov var einn áttmenninganna sem stóðu að valdaráninu í ágúst 1991 og gegndi þá varaformennsku í varnarmálanefnd Sovétríkjanna. Baklanov var síðasti núlifandi meðlimur áttmenning- anna og bar það hæst á hans ferli að hann var ráðherra tækniþróunar frá 1983-1988. Þannig var hann sá sem fór fyrir geimferðaáætlun Sovétríkjanna á níunda ára- tugnum. Baklanov var viðskipta- og vísindamaður, hóf feril sinn sem verkfræðingur í verksmiðju í Úkraínu og tók síðar við yfirstjórn hennar. Hann fæddist 17. mars 1932 í Karkív í Úkraínu Sovétríkjanna og var því 89 ára að aldri þegar hann lést. Síðasti áttmenningurinn allur VALDARÁNSTILRAUNIN Í MOSKVU 1991 Oleg Baklanov Ólafur Egilsson Boris Pugo

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.