Morgunblaðið - 05.08.2021, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími
8:00-16:30
Gerðu vel
við þig og þína
með gæða kjöti
Frábært úrval af
flottum steikum
SVIÐSLJÓS
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Reisubók séra Ólafs Egilssonar er
eitt merkasta framlag íslenskra bók-
mennta um það sem var að gerast í
Evrópu á miðöldum þegar sjóræn-
ingjar fóru um, ruplandi og rænandi
fólki sem þeir seldu í þrældóm. Ís-
lendingar fengu að finna fyrir þeim
þegar þeir leituðu fanga á Íslandi
sumarið 1627. Þeir gerðu strandhögg
á Austfjörðum, í Grindavík og Vest-
mannaeyjum. Stærst var höggið í
Eyjum þar sem 300 sjóræningjar frá
Algeirsborg gengu á land þann 16.
júlí 1627. Höfðu á brott með sér 242
Vestmannaeyinga og seldu á uppboði
í Algeirsborg. Drápu um 36 manns en
um 200 manns tókst að fela sig eða
flýja til hafs.
Kenndu saman á Vellinum
Í Reisubókinni segir séra Ólafur
frá hryllingnum í Vestmannaeyjum,
siglingunni yfir hafið, komunni og
dvölinni í Algeirsborg og förinni til
Kaupmannahafnar þar sem hann átti
að semja við Danakonung um lausn-
arfé fyrir fangana. Reisubókin hefur
komið út í nokkrum útgáfum og sú
nýjasta er frá síðasta ári sem Már
Jónsson og Kári Bjarnason bjuggu til
prentunar. Er þar að finna frásagnir
þeirra sem eftir urðu og var miskunn-
arleysið og viðbjóðurinn yfirgengilegt
samkvæmt því sem þar kemur fram.
Karl Smári Hreinsson og Adam
Nichols sem báðir kenndu við útibú
Maryland-háskóla á Keflavíkur-
flugvelli hafa unnið það þrekvirki að
kynna Reisubókina á ensku, fyrst
með því að þýða bók sr. Ólafs og nú
með því að skrifa fræðilega bók um
Tyrkjaránið á Íslandi 1627.
Þýðing þeirra félaga er til sölu í
Pennanum og á Amazon og hefur
fengið mjög góða dóma. Hún hefur
einnig verið þýdd á hollensku og
standa vonir til að þýðingin komi
brátt út á fleiri tungumálum.
Á síðasta ári gáfu þeir félagar út
bókina Northern Captives, The Story
of the Barbary Corsair Raid on
Grindavík 1627. „Sú bók er fyrsta
heildstæða verkið sem skrifað hefur
verið um Tyrkjaránið í Grindavík.
Fram að því hafði Grindavíkurránið
fallið í skuggann af Tyrkjaráninu í
Vestmannaeyjum og á Austfjörðum,“
segir Karl Smári en þeir létu ekki
staðar numið þar.
Að stórum hluta óbirt efni
„Í framhaldi af bókinni um Grinda-
víkurránið kom sú hugmynd að skrifa
sérstaka bók um Tyrkjaránið í Vest-
mannaeyjum og á Austfjörðum. Við
unnum af kappi að bókinni sem fékk
titilinn Stolen Lives – the Story of the
Barbary Corsair Raid on Heimaey
1627. Þegar bókin var langt komin
talaði Kári Bjarnason við sitt fólk í
Vestmannaeyjum og við fengum lof-
orð um styrk til útgáfunnar frá 1627
sögusetri,“ sagði Karl Smári þegar
þeir kynntu bókina við athöfn í Vest-
mannaeyjum.
Bókin er 270 blaðsíður af efni sem
að stórum hluta hefur ekki verið
skrifað áður og því síður gefið út. „Við
fjöllum um afdrif margra þeirra sem
herteknir voru. Þar sannast máls-
hátturinn að misjafnar verða manns-
ævirnar. Sumir náðu æðstu met-
orðum í Barbaríinu þótt flestra biðu
þung örlög í örbirgð og þrældómi.
Um tíundi hluti allra þeirra sem rænt
var kom aftur til sinna fornu heim-
kynna í Vestmannaeyjum eftir
margra ára veru í þrældómsoki,“
sagði Karl Smári.
Tvö aðskilin rán
Í bókinni er einnig lögð áhersla á
forsendur fyrir Tyrkjaráninu. Fjallað
um foringja ránsmannanna, Mórat
Flammengó. „Tyrkjaránið í Grinda-
vík og Tyrkjaránið í Vestmanna-
eyjum og á Austurlandi voru í raun
tvö aðskilin rán undir stjórn tveggja
foringja, Mórat Reis (Jan Janzzon)
frá Sale í Marokkó og hins vegar
Flammengó sem hafði aðsetur í Al-
geirsborg. Báðir voru Hollendingar
og áttu ýmislegt sameiginlegt.“
Að lokum er í bókinni gerð grein
fyrir útkaupum fanganna í Barbarí-
inu og ferð þeirra til Íslands og þætti
dönsku stjórnarinnar og hollenskra
manna við útkaupin auk lista yfir þá
sem leystir voru út og keyptir úr
ánauð.
„Bókin, Stolen Lives, ásamt bók-
unum Northern Captives og The Tra-
vels of Reverend Ólafur Egilsson
mynda trílógíu, þrjár bækur sem
fjalla á einn eða annan hátt um sama
efni en eru þó sjálfstæðar. Bækurnar
eru tæplega 800 blaðsíður og eru
langítarlegasta efni sem til er um
Tyrkjaránið á ensku,“ sagði Karl
Smári sem að lokum þakkaði Kára
Bjarnasyni og Sögusetrinu 1627 fyrir
veittan stuðning.
Tyrkjaránið í þríleik í enskri útgáfu
- Fræðabók um Tyrkjaránið 1627 komin út - Sömu höfundar og þýddu Reisubók séra Ólafs Egils-
sonar yfir á ensku - Saga miskunnarleysis og ótrúlegra örlaga Íslendinga sem þræla í Barbaríinu
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Kynning Bókin kynnt í Eyjum á dögunum, frá vinstri eru Kári Bjarnason, Karl Smári Hreinsson og Adam Nichol. Útgáfuteitið var vel sótt.
Mikill meirihluti landsmanna styður
aðgerðir lögreglu vegna kórónuveir-
unnar, eða 81%, en hlutfallið var
89% árið 2020. Lítill hluti lands-
manna, eða 4%, telur að aðgerðir
lögreglu vegna veirunnar séu of
harkalegar.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
rannsóknar á viðhorfum lands-
manna til þjónustu og starfa lög-
reglu sem framkvæmd var af Fé-
lagsvísindastofnun á vormánuðum.
Könnun var lögð fyrir fjögur þúsund
landsmenn á aldrinum 18 til 90 ára
og var svarhlutfall 52%.
Samkvæmt rannsókninni hefur
aðeins dregið úr trausti til lögreglu.
Þrátt fyrir það segjast rúmlega átta
af hverjum 10 bera traust til lög-
reglu og starfa hennar. Þetta hlutfall
var hæst árið 2018 þegar 87% báru
traust til lögreglu. Lækkunin skýr-
ist fyrst og fremst af minnkandi
trausti meðal fólks í yngsta aldurs-
hópnum; 18 til 25 ára.
Jafnframt hefur þó dregið örlítið
úr trausti meðal kvenna, sem þó er
enn hlutfallslega meira en meðal
karla.
Um 29% landsmanna leituðu eftir
þjónustu eða aðstoð lögreglu á árinu
2020, sem er 6% færri en árið 2019.
Hlutfallslega flestir sem leituðu eftir
þjónustu hringdu í Neyðarlínuna.
Yfir 80% þeirra sem leituðu eftir
þjónustu eða aðstoð lögreglu voru
ánægð með þjónustuna.
Samkvæmt rannsókninni telur
mikill meirihluti landsmanna lög-
reglu skila góðu starfi við að stemma
stigu við afbrotum í sínu hverfi eða
byggðarlagi, eða um 85%. Hlutfall
fólks sem taldi lögreglu hafa skilað
góðu starfi var í sögulegu hámarki
árið 2014.
Traust til lögregl-
unnar minnkar
- Viðhorf lands-
manna til þjónustu
og starfa kannað
Morgunblaðið/Eggert
Lögreglan Traustið er mikið en hef-
ur minnkað, samkvæmt könnun.