Morgunblaðið - 05.08.2021, Side 27
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
Fyrirtækið keypti 15% hlut í Ís-
lenskri vatnsorku hf. sem hefur
áform um að gera uppistöðulón þar
sem Hagavatn var og reisa vatns-
aflsvirkjun. Með því yrði komið í
veg fyrir fok úr gamla Hagavatns-
botninum og framleidd græn raf-
orka. Duerr segir þetta í samræmi
við hugmyndafræði fyrirtækisins.
„Við viljum skilja eftir sem minnst
kolefnisfótspor og mætum því kol-
efnislosun með ýmiss konar endur-
vinnslu og framleiðslu grænnar
orku,“ segir hann.
St-Georges Eco-Mining á um
það bil 30% í ZeU Technologies í
Kanada sem þróar tækni á sviði
bálkakeðja (blockchain) og vinnur
að öruggum viðskiptum með raf-
myntir, öruggum netsamskiptum
og varðveislu stafrænna persónu-
legra gagna. Þau stofnuðu dóttur-
fyrirtæki hér, Borealis ehf., sem
mun nýta tækni ZeU Technologies
í sambærilegri starfsemi. Duerr
segir heimsfaraldurinn hafa seink-
að þeim áformum.
Bæði Duerr og Þórdís segja að
gullverkefnið sé spennandi og
áhugavert, næstu mánuðir muni
leiða í ljós framhaldið og hvaða
tækifæri felast í framhaldinu fyrir
okkur hér á Íslandi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þormóðsdalur F.v. Þórdís Björk Sigurbjörnsdóttir forstjóri, James Rollason jarðfræðingur og dr. Helen Salmon
yfirjarðfræðingur þar sem Bergborun mun bora allt að 500 metra djúpar rannsóknarholur og sækja borkjarna.
„Íslensk jarðskorpa og íslensk jarð-
hitakerfi geta alveg eins búið til
vinnanlegt gull eins og jarðhita-
kerfi annars staðar. Gull getur
fundist þar sem
hafa verið gömul
og langær jarð-
hitakerfi,“ sagði
dr. Hjalti Franz-
son, jarðfræð-
ingur og ráðgjafi
hjá Iceland Reso-
urces ehf.
„Menn upp-
götvuðu á Nýja
Sjálandi um 1980
að jarðhitakerfi
eru óaðskiljanlegur hluti af vissum
gerðum af gullnámum. Síðan þá
höfum við af og til leitað að gulli á
Íslandi. Ég hef lengi tekið þátt í því
og verið á flestum svæðum þar sem
gull hefur fundist. Við höfum bara
rétt skannað þetta en eigum eftir
að leita miklu víðar,“ sagði Hjalti.
„Þormóðsdalur er sérstakur að því
leyti að þar kemur jarðhitaæð upp
um þröngar sprungur og er virk
nægilega lengi til að búa til kvarts-
gang. Suðan hefur verið þar lengi á
svipuðum stað og gull fallið út. Þar
er eitthvað af silfri líka en mjög lít-
ið af öðrum málmum.“
Jarðhitakerfið skilur gullið úr
jarðhitavökvanum. Það gerist yf-
irleitt þar sem er öflug suða um
langan tíma. „Þessi suða þarf að
vera lengi á sama stað til að sam-
söfnun gulls verði í nægilega miklu
magni. Íslensk háhitakerfi geta
verið allt að 500.000 ára gömul og í
hverju kerfi geta verið mörg und-
irkerfi sem hafa safnað gulli,“ sagði
Hjalti. Hann sagði að ísaldarjökull-
inn gæti hafa rofið gömlu jarð-
hitakerfin. Þau geta hafa rofnað
niðri á 300-600 metra dýpi eða
meira, þar sem helst er að leita
gulls í eldri kerfunum.
Herb Duerr, starfandi forstjóri
St-Georges Eco-Mining, nefndi að
aðstæðum hér svipaði að hluta til
aðstæðna við flekaskil Kyrrahafs-
flekans (Pacific Rim). Hjalti sagði
að hér rækju Norður-Ameríkuflek-
inn og Evrasíuflekinn hvor frá öðr-
um en við Kyrrahafið færi einn
fleki yfir annan og keyrði hann
undir sig.
„Það er mikill munur á jarð-
hitakerfunum sem myndast við
flekaskilin við Kyrrahafið og svo
hér. Þegar skorpan fer undir, sekk-
ur og bráðnar aftur, fylgir oft sjáv-
arskorpa með. Það veldur því að
jarðhitavökvinn sem myndast þar
verður flóknari og inniheldur fleiri
efni en jarðhitavökvi hér, þar sem
við höfum nýlega basaltskorpu og
ekki sjávarblandaða. Þess vegna
eru miklu færri og minni efni í
ferskvatnsjarðhitakerfunum okkar
en í jarðhitakerfunum við Kyrra-
hafsplötuna.“ Auk gulls eru hlið-
arefni í jarðhitakerfunum við
Kyrrahaf eins og t.d. blý, brenni-
steinn, sink, arsenik og kvikasilfur.
„Þessi efni hafa í gegnum tíðina
valdið mikilli mengun frá gull-
vinnslu því það verður að fjarlægja
þau líka,“ sagði Hjalti. „Þar sem við
finnum gull hér þá finnum við ekki
þessa mengandi málma. Þess vegna
verður gullnám miklu umhverfis-
vænna hjá okkur en við Kyrrahafs-
plötuna.“
Hreinlegt gullnám
hér og fá aukaefni
Hjalti
Franzson