Morgunblaðið - 05.08.2021, Side 30

Morgunblaðið - 05.08.2021, Side 30
30 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Glæsileg borðstofuhúsgögnum frá CASÖ í Danmörku nýorkubíla. Bílaleigur hafa selt mikið af not- uðum bílum úr flotum sínum í faraldrinum og einnig hafa notað- ir bílar selst vel hjá umboðunum að sögn Jóns Trausta. „Í ljósi mikillar sölu bíla- leiganna af notuðum bílum, þá verður minna til af notuðum bílum í haust.“ Jón Trausti minnir á að krónan hafi styrkst og verð á bílum sé hagstæð- ara sem því nemi. Þá séu vextir enn lágir. Hefðu viljað eiga fleiri bíla Erna Gísladóttir, forstjóri BL, seg- ir að bílasalan gangi vel um þessar mundir. „Við hefðum viljað eiga fleiri bíla á lager, en það hlýtur að komast í lag á næstu mánuðum,“ segir Erna. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Eins og fram kom í ViðskiptaMogg- anum í gær var júnímánuður met- mánuður hvað bílalán varðar en þá voru ný bílalán til íslenskra heimila, að teknu tilliti til umfram- og upp- greiðslna, jákvæð sem nam tæpum 2,5 milljörðum króna. Þá var bílasala í júlímánuði með ágætum samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins. Jón Trausti Ólafsson, forstjóri bíla- umboðsins Öskju, segir að markaður- inn sé búinn að vera „fínn“ að und- anförnu. „Við finnum aðeins fyrir að það vanti ákveðnar tegundir bíla út af hálfleiðaraskorti, sem kemur til út af kórónuveirufaraldrinum, en mér sýn- ist framleiðendur vera komnir yfir það versta. Áhrifa gæti þó gætt inn á næsta ár. Annars er Ísland svo lítill markaður að við þurfum ekki mikið af bílum í stóra samhenginu. Því held ég að þessi tregða í framleiðslunni muni ekki hafa mikil áhrif hér á landi í haust.“ Jón Trausti segir að bílaleigur hafi verið mjög stórir viðskiptavinir í sum- ar og þar sé mikill uppgangur. „Það var kominn mikil þörf á endurnýjun flotans og hún mun vara fram á næsta ár.“ Hvað einstaklingsmarkaðinn varð- ar segir Jón Trausti að hann sé búinn að snúast að stórum hluta yfir í sölu Hún nefnir einnig vandann varð- andi hálfleiðarana, sem sé að lagast. „Bílaframleiðendur í Asíu standa bet- ur, því hálfleiðarar eru framleiddir í þeim heimshluta einnig og því hæg heimatökin.“ Erna segir að góð bílasala um þess- ar mundir endurspegli uppsafnaða þörf. Fólk hafi haldið sig mikið heima síðustu misseri vegna faraldursins en sé nú farið meira á stjá að skoða bíla. „Við sjáum fram á að salan muni hald- ast góð næstu mánuði.“ Erfitt er að fá notaða bíla um þess- ar mundir að sögn Ernu. Um það vitni tómleg bílaplön bílasalanna. „Bílaleigurnar hafa þurrkað mikið til upp góða notaða bíla. Þeir setja held- ur ekki bíla upp í og þrýstingurinn eykst sem því nemur.“ Bílaplönin aldrei jafn tóm Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bíla- búðar Benna, segir að mikil sala hafi orðið til bílaleiga um leið og leiðin varð greiðari inn í landið fyrir erlenda ferðamenn í vor. Það hafi orðið til þess að skortur hafi orðið á bílum og bílaumboðin hafi ekki átt nóg af bílum til að anna eftirspurn. Setið hafi verið um alla bíla sem voru í boði. Hann nefnir einnig fyrrnefndan hálfleiðaraskort. „Við fáum til dæmis ekki bíla frá Ssang Young-bílafram- leiðandanum fyrr en undir áramót. Maður hefur aldrei séð bílaplönin hjá skipafélögunum [þar sem bílarnir eru geymdir þar til þeir eru tollafgreidd- ir] jafn tóm og núna.“ Að lokum bendir Benedikt á að fólk geti átt von á hækkunum á verði bíla á komandi mánuðum. Hrávöruverð hafi hækkað mikið, til dæmis bæði stál og ál, en einnig rafhlöður í rafbíla. „Við vorum til dæmis að kaupa iðnaðar- hurðir á 20% hærra verði en í fyrra. Framleiðandinn sagði mér að hann hefði rekið fyrirtæki sitt í þrjátíu ár og hrávöruverðið til framleiðslunnar hefði á þessu eina ári hækkað meira en öll þrjátíu árin þar á undan,“ segir Benedikt. Markaðurinn fínn undanfarið Morgunblaðið/Árni Sæberg Hækkun Benedikt bendir á að fólk geti átt von á hækkunum á verði bíla. - Ákveðnar tegundir vantar vegna hálfleiðaraskorts - Endurnýjun bílaleiguflotans stendur fram á næsta ár - Sterkari króna og lágir vextir hjálpa - Fólk er farið meira á stjá að skoða - Setið um bifreiðar Bílasala » 1.726 bifreiðar seldust í júlí » Askja seldi mest, eða 383 bíla. Toyota 366 og BL 316. » 55,4% bíla hafa selst í al- menna notkun en 43,6% til bílaleiga » Toyota og Kia seldust best Benedikt Eyjólfsson. Erna Gísladóttir. Jón Trausti Ólafsson. áætlunum um ótiltekinn tíma. Sindri segir framkvæmdir á húsnæðinu samt sem áður hafa gengið vel og þeir verði klárir þegar færi gefst. „Það væri æskilegast að mega hafa opið eitthvað fram yfir mið- nætti en það er helst þessi eins metra regla og grímuskylda sem gengur ekki upp í skemmtanahaldi þar sem allt snýst um dans og nánd,“ segir Sindri. Staðurinn verður gluggalaus og að sögn Sindra nýlunda í íslenskri skemmtistaðaflóru. „Það er meira lagt upp úr hljóði og ljósum og upp- lifun. Staðurinn verður blanda af því besta sem við höfum séð frá næt- urklúbbum erlendis, teknó, hipp hop, r&b og popptónlist.“ Þar sem staðurinn er gluggalaus segir Sindri aðspurður það skoð- unarverðan kost að halda skemmt- anahaldi uppi fram á morgun á staðnum. Borgarfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins hafa viðrað hugmyndir um frjálsan afgreiðslutíma og Sindri segir vert að skoða þær: „Ef það er eftirspurn eftir því. Ég held nú að markaðurinn og við- skiptavinir stýri því. Ef það kemur til þess að maður megi hafa opið eins lengi og maður vill erum við opnir fyrir því. Hálf fimm er líka feikilega rúmur tími og við erum mjög ánægðir með það.“ Nýlunda bíður skemmtistaðaunn- enda þegar samkomutakmörkunum verður aflétt á nýjan leik. Þá munu Sindri Snær Jensson, Jón Davíð Davíðsson og Ólafur Alexander Ólafsson hefja rekstur næturklúbbs- ins AUTO, sem verður starfræktur í kjallararými veitingahússins Hard Rock Cafe við Lækjargötu. Þeir Sindri og Jón hafa sett svip sinn á viðskiptalíf borgarinnar með fata- versluninni Húrra og veitingastöð- unum Flatey pizza og Yuzu. Ætlunin var að opna staðinn nú í upphafi ágústmánaðar en sam- komutakmarkanir frestuðu þeim Opna Auto um leið og færi gefst - Gluggalaus skemmtun í Lækjargötu Morgunblaðið/Unnur Karen Framkvæmt Sindri, Jón og Ólafur hafa í mörgu að snúast þessa dagana. 5. ágúst 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.35 Sterlingspund 171.75 Kanadadalur 98.55 Dönsk króna 19.711 Norsk króna 14.051 Sænsk króna 14.367 Svissn. franki 136.55 Japanskt jen 1.1302 SDR 176.17 Evra 146.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.1732 Rekstur Bláa lónsins hefur ekki raskast vegna fimmtu bylgju farald- ursins hérlendis. Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna færði Ísland, sem áfangastað, upp um áhættustig í gær en sú tilfærsla breytir tilmælum til bólusettra farþega lítið sem ekkert. Helga Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri sölu-, markaðs- og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins segir langflesta erlenda ferðamenn bólu- setta og því hafi uppsveifla farald- ursins innanlands lítil áhrif á bók- unarstöðu í lónið og á hótelin að svo stöddu. „Við höfum ekki séð mikil áhrif þessarar bylgju hér á Íslandi á bók- anir og afbókanir enn sem komið er. Þetta er auðvitað fljótt að breytast en gestir okkar eru oftast full- bólusettir og tak- markanir á þeim eru vægari,“ seg- ir Helga. Aukning í smit- um mun færa Ís- land í hærra hættustig í fleiri ríkjum en Banda- ríkjunum en Helga kallar eftir meira samræmi í slíkum kortum: „Þessi hættumöt og mælikvarðar einstakra ríkja eru flókin og í raun vonlaust að bera saman stöðu mismunandi ríkja út frá þeim í dag. Það skiptir máli að listarnir séu samanburðarhæfir og taki tillit til hlutfallslegs fjölda þeirra sem mældir eru og fjölda bólusettra svo eitthvað sé nefnt. Annars missa þeir marks.“ Bandaríkjamenn hafa verið stór hluti viðskiptavina Bláa lónsins það sem af er sumri. Það að Bandaríkja- menn séu svo hátt hlutfall ferða- manna gefur nokkuð góð fyrirheit fyrir rekstraraðila en Sóttvarna- stofnun Bandaríkjanna setur afar litlar hömlur á ferðalög bólusettra Bandaríkjamanna. „Þjóðerni gesta okkar er nokkurn veginn í línu við mismunandi hlutfall milli þjóðerna þeirra sem fara um Keflavík- urflugvöll samkvæmt tölum Ferða- málastofu, Bandaríkjamenn eru þar enn langfjölmennastir,“ segir Helga. Bláa lónið stendur vel Helga Árnadóttir. - Bólusettir ferðamenn virðast ætla að halda frelsi sínu - Hótel sjá fáar afbókanir - Kort sóttvarnastofnana þurfi að lúta að fleiri þáttum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.