Morgunblaðið - 05.08.2021, Page 32
32 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
Netverslun
skornir.is
SMÁRALIND
www.skornir.is
Flex&Go
Í skóna er notað hágæða
leður sem og náttúruleg efni,
sem gerir það að verkum að
skórnir falla vel að fætinum
og eru einstaklega þægilegir.
Verð 17.995
Stærðir 36-42
Í gær var ár frá sprengingunni í Bei-
rút, höfuðborg Líbanon, þar sem 214
létu lífið og um 6.500 særðust. Yfir
300 þúsund manns þurftu að yfirgefa
heimili sín. Niðurstaða rannsóknar
bandarísku alríkislögreglunnar FBI
á sprengingunni er sú að 500 tonn af
áburði, sem innihélt ammoníumnít-
rat, hafi valdið harmleiknum.
Í áraraðir voru geymd 2.700 tonn
af áburði í vöruhúsi við höfnina í
borginni. Þar kviknaði eldur sem síð-
an olli sprengingunni sem er meðal
þeirra stærstu í sögunni þar sem
kjarnorkuvopn koma ekki við sögu.
Vanræksla og spilling
Þúsundir mótmælenda komu sam-
an við höfnina í Beirút í gær, en
margir kenna vanrækslu og spillingu
ráðamanna um sprenginguna. Eng-
inn háttsettur embættismaður hefur
þó verið handtekinn í tengslum við
harmleikinn og eru stjórnmálaleið-
togar sakaðir um að hindra réttvís-
ina. Lögreglan var kölluð til þegar
mótmælin breyttust í óeirðir og mót-
mælendur reyndu að brjótast inn í
þinghúsið. Lögreglan beitti táragasi
og kylfum á mótmælendur. „Við gát-
um ekki farið aftur heim fyrr en ein-
um og hálfum mánuði síðar. Við
bættum allt tjónið með okkar eigin
peningum,“ er haft eftir Söndru Ab-
aras, einum af mótmælendunum.
Veita neyðaraðstoð
Emmanuel Macron, forseti
Frakklands, sagði á fjáröflunarfundi
fyrir Líbanon á vegum Sameinuðu
þjóðanna í gær að leiðtogar Líbanon
skulduðu fólki sínu sannleikann. Þá
tilkynnti hann að að Frakkar ætluðu
að veita Líbönum neyðaraðstoð að
andvirði hundrað milljóna evra og
jafnframt að senda þeim fimm
hundruð þúsund skammta af bólu-
efni gegn kórónuveirunni.
urdur@mbl.is
AFP
Mótmæli Þúsundir mótmæltu vanrækslu stjórnvalda í gær.
Skulda Líbönum sannleikann
- Eitt ár er frá sprengingunni sem
gerði yfir 300 þúsund heimilislausa
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, hvetur ríki til þess að fresta
því að bólusetja fullbólusetta ein-
staklinga með örvunarskammti
gegn Covid-19, þangað til að
minnsta kosti í lok september til
þess að koma til móts við mismun á
skammtadreifingu á milli ríkra og
fátækra þjóða. Tedros Adhanom
Ghebreyesus, framkvæmdastjóri
WHO, hvetur ríki og fyrirtæki sem
stjórna framboði bóluefnaskammta
til þess að skipta um gír og tryggja
fleiri skammta til fátækari ríkja.
Þarf samvinnu allra
„Ég skil áhyggjur stjórnvalda að
vilja vernda þjóð sína gegn Delta-
afbrigðinu. Við getum hins vegar
ekki samþykkt lönd sem hafa nú
þegar fengið meirihluta af bólu-
efnaforða heims og vilja nota enn
meira af honum, á meðan viðkvæm-
ustu íbúar heims eru enn óvarðir,“
sagði Ghebreyesus á blaðamanna-
fundi í gær. Hann segir að fresta
eigi örvunarskömmtum þar til að
minnsta kosti 10% íbúa allra ríkja
heims hafa verið fullbólusettir.
„Þetta mun einungis takast með
samvinnu allra, sérstaklega þeirra
örfáu ríkja og fyrirtækja sem
stjórna framboði bóluefnanna,“
sagði Ghebreyesus.
1,5% Afríkubúa fullbólusettir
Einungis um 1,5% Afríkubúa eru
fullbólusettir en heimsálfan reiðir
sig einna mest á dreifingu bóluefna í
gegnum alþjóðlega bóluefna-
samstarfið COVAX. Þá hefur dauðs-
föllum af völdum veirunnar fjölgað
hratt síðasta mánuðinn. Ghe-
breyesus telur að engum heimshluta
stafi jafnmikil hætta af heimsfar-
aldrinum og Afríku. Samkvæmt
Ghebreyesus hefur um helmingur
194 aðildarríkja WHO fullbólusett
yfir 10% þjóðar sinnar. Minna en
25% hafa fullbólusett meira en 40%
þjóðarinnar. urdur@mbl.is
Vilja stöðva
örvunarskammta
- Ójöfnuður í dreifingu bóluefna
Bóluefni
» Í ríkari ríkjum heims áætlar
WHO að á hverja 100 íbúa hafi
101 skammtur verið gefinn.
» Í fátækjari ríkjum heims
áætlar WHO að á hverja 100
íbúa hafa tveir skammtar verið
gefnir.
Að minnsta kosti þrír eru látnir og mikill fjöldi er særður eftir lestarslys í
Tékklandi í gær. Tvær járnbrautalestir rákust saman í þorpinu Milavce í
vesturhluta landsins. Önnur lestin var að koma frá München-borg í Þýska-
landi en hin var í innanlandsakstri. Samkvæmt samgönguráðherra Tékk-
lands virti lestin sem var að koma frá Þýskalandi ekki stöðvunarmerki og
ók því á hina lestina.
AFP
Þrír látnir eftir lestarslys í Tékklandi
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna,
hefur kallað eftir afsögn ríkisstjóra
New York-ríkis, Andrews Cuomo.
Í fyrradag var kynnt skýrsla um
háttsemi Cuomo en niðurstöður
hennar sýna að hann hafi kynferð-
islega áreitt að minnsta kosti ellefu
konur. Biden bættist því í hóp
fjölda annarra sem hafa hvatt
Cuomo til að segja af sér, meðal
annars Nancy Pelosi, forseta full-
trúadeildar Bandaríkjaþings, og
Chuck Schumer, leiðtoga Demó-
krata í öldungadeildinni.
Eftir að skýrslan var kynnt hélt
Biden blaðamannafund þar sem
hann kallaði eftir afsögn ríkisstjór-
ans og fordæmdi hegðun hans.
Cuomo sætir nú sakamálarannsókn
og kann einnig að verða ákærður
fyrir embættisbrot sem ríkisþing
New York segist nú vinna að.
AFP
Ríkisstjóri Andrew Cuomo hefur gegnt
embætti ríkisstjóra frá árinu 2011.
Biden kallar eftir
afsögn Cuomo