Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 38
Marta María
mm@mbl.is
„Ég reyni að hugsa mjög vel um húðina, sér-
staklega í seinni tíð. Ég nota alltaf góð nær-
ingarrík krem og olíur bæði á andlit og líkama
en ég er mikil áhugamanneskja um húð-
umhirðu. Húðin er svo mikilvægur þáttur í
heilsu okkar og líðan. Einnig er mjög mikil-
vægt að hugsa vel um hana að innan, næra sig
vel og drekka vel af vatni. Svo er þurrburstun
líka snilld og ég elska allar húðmeðferðir,“
segir Þórunn þegar hún er spurð hvernig hún
hugsi um húðina.
Hvað finnst þér skipta mestu máli í húð-
umhirðu?
„Að finna vörur sem passa minni húðgerð
og ég persónulega finn mikinn mun á hvernig
húðin verður af alls konar mat og röngum
innihaldsefnum.“
Hvað skipir þig mestu máli þegar þú velur
þér húðvörur?
„Þegar kemur að líkamsvörum, tannkremi,
svitalyktareyði og olíum finnst mér skipta
máli að vörurnar séu lífrænar. Það sem ég ber
á húðina fer djúpt inn í hana og þar af leiðandi
inn í blóðrásina. Þess vegna vel ég til dæmis
dr.organic því það eru lífrænar vörur. Ég nota
til dæmis svitalyktareyði frá dr.organic en
þeir eru án allra kemískra efna, svo finnst
mér Charcoal-tannkremið mjög gott. Ég fór
fyrst að hugsa mikið um hvað ég set á húðina
þegar ég var ólétt og með barn á brjósti því
það sem við berum á húðina fer inn í allt kerf-
ið.“
Uppáhaldssnyrtivaran?
„E-vítamínolían frá dr.organic er svo mikil
snilld. Ég kynntist henni fyrst þegar ég bjó í
London og setti hana á unglingabólur sem
hreinlega hurfu og ég notaði hana bæði á slit
sem ég fékk á meðgöngu og sérstaklega mikið
á keisaraörin mín. Hún er algjör galdur og svo
eru Lancôme-varalitir líka í miklu uppáhaldi.“
Hvert er besta bjútítrix allra tíma?
„Að vera góð við aðrar konur og hrósa
þeim. Sýna sjálfum sér mildi og aldrei bera
sig saman við aðra! Svo auðvitað að brosa.“
Borðar þú einhvern sérstakan mat til þess
að vera betri í húðinni?
„Já, ég verð hræðileg í húðinni af mjólkur-
vörum og sleppi þeim alveg því meltingin
verður hræðileg af mjólk og hveiti. Ef þarma-
flóran er í ruglinu lætur húðin okkur vita um
leið, það er svo merkilegt að læra að hlusta á
líkamann. Engifer er mjög gott fyrir húðina,
lárperur og allur grænn djús. Svo sama gamla
góða ráðið; nóg af vatni.“
Hugsarðu öðruvísi um húðina á sumrin en á
veturna?
„Já, ég er duglegri að nota sólarvörn á
sumrin en á veturna reyni ég bæði að nota
feitari krem og borða meiri fitu til að húðin
þorni ekki upp.“
Hvað er að finna í snyrtibuddunni þinni?
„Ég er alltaf með haug af snyrtivörum með
mér. Svitalyktareyði, andlitskrem, maskara,
sólarpúður, hyljara og varaliti, helst í björtum
litum, því ég elska að vera tilbúin í að gera
mig sæta á núll-einni ef tækifærin banka
óvænt upp á.“
Varalitir frá Lancôme eru í
miklu uppáhaldi hjá Þórunni.
Þórunn er með
öll trixin á hreinu
Söngkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir hugsar vel um heils-
una og húðina. Hún leggur mikla áherslu á að nota lífrænar húð-
vörur, elskar að þurrbursta á sér húðina og finnst fátt betra en
að fara í húðmeðferðir. Besta bjútítrix allra tíma að hennar mati
er að hrósa kynsystrum sínum og bera sig ekki saman við þær.
Þórunn er
mjög hrifin
af þessari
olíu.
Þórunn notar
þetta tannkrem
til þess að við-
halda hraustlegu
útliti tannanna.
Þórunn Antonía
Magnúsdóttir hugsar
vel um húðina.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Þitt útlit.Okkar þekking.
20%
afsláttur
Við fögnum21. árs starfsafmæli.
Af því tilefni langar okkur að
gleðja viðskiptavini okkar
með afmælistilboði.
af öllum okkar
húðmeðferðum
til 8. ágúst
Ert þú allt of mikið andlega fjar-
verandi? Leggur þú ekki frá þér
símann? Hefur þú aldrei tíma fyrir
þig en horfir á Netflix öll kvöld?
Hangir þú í tölvunni fram á nætur
og ferð allt of seint að sofa? Þekk-
ir þú engar fuglategundir? Flokk-
ar þú ekki ruslið þitt? Ef þú tengir
við eitthvað af þessu mæli ég
hjartanlega með því að þú lesir
Stríð og Klið eftir Sverri Norland.
Bókin fjallar um hvernig við erum
að verða óhæf í mannlegum sam-
skiptum vegna tæknibylting-
arinnar og hvernig athyglisbrest-
urinn eykst og eykst með hverjum
deginum. Ef þig langar til að af-
tengja þig en vantar spark í rass-
inn þá gæti Stríð og Kliður komið
eins og köld vatnsgusa í andlit
þitt. Tala nú ekki um ef þú ert í
afneitun og streitist sífellt á móti.
Hún fjallar líka um það hvernig
við förum með jörðina og hvernig
við getum varla dregið andann ein
okkar liðs nema að vera með eitt-
hvað í eyrunum. Við erum mörg
hver nefnilega ekkert öðruvísi en
unglingarnir þegar öllu er á botn-
inn hvolft. mm@mbl.is
Blaut tuska í andlitið
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?