Morgunblaðið - 05.08.2021, Síða 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
✝
Þorkell Gunnar
Guðmundsson
fæddist 20. júní
1934 á Valdastöðum
í Kjós. Hann lést 20.
júlí 2021 á dvalar-
heimilinu Sóltúni 2,
Reykjavík.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Þorkelsson, bóndi
og verkamaður frá
Valdastöðum í Kjós,
f. 1909, d. 1969, og Guðrún
Ágústa Halldórsdóttir, verkstjóri
hjá Fötum hf., úr Reykjavík, f.
1914, d. 1991. Systkini Þorkels
eru Aðalheiður fóstra, f. 1936,
Arndís bókasafnsfræðingur, f.
1938, og Halldór stjórnar-
formaður, f. 1945, d. 2018.
Þorkell giftist Margréti Jón-
ínu Guðmundsdóttur innanhúss-
arkitekt, f. 1936, þau skildu.
Börn þeirra eru: 1) Ingveldur,
sjúkraliði, f. 20. júní 1953. Maki
Gunnar Þorsteinsson, f. 1950, d.
2018. Barnsfaðir Garðar Páll
Brandsson, f. 1953, d. 1984. Dótt-
ir Ingveldar ættleidd af Gunnari
er Elva Dögg, f. 1973. Maki henn-
ar er Vagn Leví Sigurðsson, f.
Þorkell hóf langan feril sinn í
húsgagnahönnun með prófi í
húsgagnasmíði árið 1955 frá Iðn-
skólanum í Reykjavík. Árið 1957
fór hann til Danmerkur og lauk
námi frá Listiðnaðarskólanum í
Kaupmannahöfn (Danmarks De-
signskole) árið 1960 í innanhúss-
arkitektúr. Á árunum 1960-1963
sótti Þorkell einnig námskeið í
höggmyndadeild, undir leiðsögn
Ásmundar Sveinssonar, við
Myndlistaskólann í Reykjavík.
Eftir sjö ára starf hjá Húsameist-
ara Reykjavíkurborgar opnaði
Þorkell eigin teikni- og hönn-
unarstofu árið 1967.
Þorkell hannaði fjölda hús-
gagna á teiknistofu sinni. Hans
þekktustu verk eru SPIRA--
svefnbekkurinn sem var fram-
leiddur í 20 ár og STUÐLA-skil-
rúm sem var í framleiðslu í 17 ár.
Þessa hluti má enn sjá í híbýlum
fólks í dag.
Þorkell lauk prófi í uppeldis-
og kennslufræðum frá Kenn-
araháskóla Íslands árið 1986.
Hann á að baki langan og farsæl-
an feril sem kennari við Iðnskól-
ann í Hafnarfirði og stuðlaði að
stofnun hönnunarbrautar á veg-
um skólans með það fyrir augum
að undirbúa nemendur sem best
fyrir umsóknir í viðurkennt
hönnunarnám.
Útför Þorkels fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 5. ágúst
2021, klukkan 15.
1974. 2) Rúna (Guð-
rún Ágústa) mynd-
listarmaður, f. 8. júní
1954. Fyrrverandi
maki og barnsfaðir
Hörður Sigurð-
arson, f. 1954. Sonur
þeirra er Reynir, f.
1973. Maki hans er
Þórhildur Ýr Vals-
dóttir, f. 1974. Seinni
maki Rúnu er Kees
Visser, f. 1948. Þau
skildu. 3) Guðmundur kennari, f.
17. desember 1961, f. maki og
barnsmóðir Guðrún S. Sigurð-
ardóttir, f. 1962. Dætur þeirra
eru Margrét Lára, f. 1984, og El-
ísabet María, f. 1988. Fyrir átti
Guðmundur soninn Sigurð Magn-
ús, f. 1982. 4) Sigurður Hrafn,
grafískur hönnuður, f. 23. nóv-
ember 1967, f. maki og barns-
móðir Kristín Helgadóttir, f.
1976. Börn þeirra eru Birta Eir, f.
1999, Helgi Hrafn, f. 2005, og
Gísli Freyr, f. 2007. Fyrir átti Sig-
urður börnin Þorkel Örn, f. 1989,
Svan, f. 1992, og Karen Ósk, f.
1992. Þorkell Gunnar hefur einn-
ig eignast 12 langafabörn og tvö
langalangafabörn.
Elsku afi Þorkell er látinn, 87
ára að aldri. Afi var afar mynd-
arlegur maður sem tekið var eftir
hvert sem hann fór. Þrátt fyrir að
aldur og veikindi væru farin að
setja sitt mark á afa undir það síð-
asta hélt hann glæsileika allt fram
í andlátið. Þannig var bara afi,
alltaf flottur.
Afi Þorkell lét sér alla tíð annt
um fólkið sitt og sýndi það í verki
með því að setja sig inn í líf allra.
Hann hélt ógleymanleg jólaboð,
mætti í öll barnaafmæli, mundi
eftir afmælisdögum og svona
mætti lengi telja. Hann var svo
sannarlega ættrækinn enda var
hann oftast kallaður ættarhöfð-
inginn á mínu heimili. Samband
okkar afa var mikið þegar ég var
að alast upp. Ég á margar góðar
minningar frá boðum afa í Fann-
borginni sem endaði oft á því að
við krakkarnir fengum að gista á
meðan gleði hinna fullorðnu stóð
fram eftir nóttu. Mér er afar
minnistætt þegar partí var hjá afa
að hann kallaði á mig inn í stofu og
spurði hvort ég væri ekki til í að
koma í snjóbað á svölunum. Þetta
vakti mikla kátínu hinna fullorðnu
og ég tók áskoruninni og við velt-
um okkur upp úr snjónum á svöl-
unum á nærfötunum einum sam-
an. Þessu hlógum við oft að í
seinni tíð. Það gerðist líka einu
sinni fyrir tíma gemsanna að afi
bauð mér með sér á bar sem var í
Hamraborginni. Ég hef líklega
verið átta ára þegar við trítluðum
saman inn á barinn, rauðir dúkar
og ég fékk gos í glasi á fæti á með-
an afi fékk sér eitthvað sterkara.
Þegar við komum svo til baka upp
í Fannborg var mamma þar með
öndina í hálsinum yfir að við hefð-
um horfið. Afi var snöggur upp á
lagið og sagði að einhver þyrfti að
kenna stúlkunni á kúltiveraða
drykkjusiði. Mikið sem mér
fannst afi vera skemmtilegur.
Þegar ég fullorðnaðist kynntist
ég svo afa sem kennara þegar ég
hóf nám í hönnunardeild Iðnskól-
ans í Hafnarfirði. Ég skynjaði
fljótt að ég fengi enga sérþjón-
ustu hjá honum í náminu. Kröf-
urnar voru frekar meiri til mín en
annarra og átti hann til að tala
óþægilega og hreyta í mig fyrir
framan nemendahópinn, sem var
sár reynsla. Þessari hlið á afa
hafði ég ekki kynnst fyrr. Ég held
að afi hafi ekki ætlað sér að særa
mig nema síður væri, hann gat
bara verið svona klaufalegur og
kaldur í orðavali á köflum. Þessa
hlið sá ég oft síðar hjá honum þeg-
ar honum þótti eitthvað fara á
móti hans hugmyndum um hvern-
ig lífið og tilveran ætti að ganga
fyrir sig. Það er óhætt að segja að
við afi eltum grátt silfur á tímabili
í okkar annars farsæla sambandi.
Þá létum við orð fjúka á víxl og
skelltum á hvort annað. Þetta var
erfiður tími fyrir okkur bæði en á
einhvern undraverðan hátt lauk
þessari rimmu okkar afa á hrein-
skilinn og heiðarlegan máta. Ég
held líka að samband okkar hafi
þurft að ganga í gegnum þessa
erfiðleika því upp frá þessu
kynntist ég enn annarri og betri
hlið hjá afa þar sem hann sýndi
auðmýkt og umburðarlyndi.
Elsku afa verður sárt saknað.
Mér finnst vel við hæfi að segja
að afi hafi elst vel eins og gott vín.
Megi allar góðar vættir gæta
elsku afa.
Elva Dögg Gunnarsdóttir.
Við systurnar viljum með
nokkrum orðum minnast Þorkels
frænda. Hann var tíður gestur á
heimilinu og órjúfanlegur hluti af
okkar uppvexti, enda samgangur
mikill á milli þeirra systkina sem
bjuggu flest í sömu götunni. Af
mörgum kærum og kankvísum
minningum er að taka úr æsku
sem og síðar á lífsleiðinni. Þorkell
hafði hlýju og húmor ávallt með í
farteskinu í öllum samskiptum
þótt engin lognmolla hafi ríkt
þegar þau hittust fjögur systkin-
in, Þorkell, Halldór, Addý og Alla
(móðir okkar), ásamt fjölskyldum
– annaðhvort hjá ömmu eða Hall-
dóri frænda í Vesturbænum, eða í
Hrauntungunni í Kópavogi, á
heimilum hinna systkinanna
þriggja.
Þær eru margar stundirnar og
skondin atvikin sem koma upp í
hugann er við minnumst Þorkels
móðurbróður okkar. Hann hafði
einstakt lag á því að fanga athygl-
ina með hárfínni blöndu af sjarma
og skapríki. Þorkell frændi birtist
gjarnan óvænt á stigaskörinni,
alltaf flottur í tauinu, stundum þó
í óvæntum múnderingum eftir
uppákomur í skemmtanalífinu
sem vöktu mikla kátínu okkar á
ungdómsárum. Það er þó óhætt
að segja að hann hafi verið skap-
stór og raddsterkur og stóð okkur
af honum verulegur stuggur á
yngri árum – þau voru nokkur
skiptin sem við tókum einfaldlega
til fótanna sem krakkar er Þor-
kell lét í sér heyra. En það bráði
nú af okkur með aldrinum er við
áttuðum okkur á að þetta var nú
mest í nösunum á honum og skap-
hitinn beindist aldrei að okkur,
heldur frekar að málefnum líð-
andi stundar, þ.e.a.s. þjóðlífinu og
pólitíkinni. Enginn fjölskyldu-
meðlimur hefur gefið okkur jafn
mikið fóður í skemmtisögur úr
daglegu lífi og kitlað hláturtauga-
rnar jafn mikið með tilveru sinni.
Við systurnar erum afar þakklát-
ar Þorkeli frænda fyrir að gera líf
okkar skrautlegra og skemmti-
legra.
Við minnumst Þorkels frænda
einnig sem fagurkera, listamanns
og lífskúnstners. Önnur
listamannseinkenni hans, auk
skapsins, var að geta aldrei mætt
á réttum tíma í fjölskylduboð og
fagurfræði fram yfir efnishyggju.
Hann lét þó aldrei deigan síga
þótt á móti blési stundum í lífinu.
Og það er nokkuð víst að hann
kom með ýmis litrík blæbrigði
menningar og lista inn í líf okkar í
gegnum árin og njótum við allar
systurnar verka hans í einhverri
mynd í dag á heimilum okkar.
Hann náði líka að fanga athygli
yngri aldurshópa í fjölskyldunni
og var dáður kennari. Þorkell
frændi hefur efalaust kveikt
áhuga okkar systra á fallegri
hönnun, jafnt í húsum, innanhúss-
hönnun sem og almennt á list-
sköpun. Það er mikið víst að
minning Þorkels lifir í hvoru
tveggja fallegum verkum hans og
í huga okkar.
Við systurnar kveðjum okkar
ástkæra Þorkel frænda með sorg
í hjarta og sendum systkinunum
Ingu, Rúnu, Guðmundi og Sigga,
sem og öðrum aðstandendum og
afkomendum, hugheilar samúðar-
kveðjur.
Diljá, Arney, Sif og Hrund.
Góður vinur og samstarfsmað-
ur til margra ára hefur kvatt.
Fyrstu kynni mín af Þorkeli voru
veturinn 1972 til 1973 þegar ég
var ráðinn stundakennari við Iðn-
skólann í Hafnarfirði þar sem
Þorkell starfaði sem teiknikenn-
ari. Þetta reyndist upphafið að
áratuga samstarfi allt til ársins
2004 þegar hann lauk störfum
sökum aldurs.
Þorkell var mjög fjölhæfur
kennari og tók meðal annars að
sér að kenna fagteikningu fjöl-
margra iðngreina allt frá hús-
gagnasmíði til hárgreiðslu.
Stærsta verkefni Þorkels við Iðn-
skólann var þó við hönnunar-
brautina sem hann leiddi sem
deildarstjóri. Þessi námsbraut
var mikil lyftistöng fyrir starf-
semi skólans og sýningar hennar,
sem haldnar voru á hverju vori, í
miklum hávegum hafðar. Vert er
að nefna að fjölmargir nemendur
sem útskrifuðust af brautinni
undir leiðsögn Þorkels hafa náð
eftirtektarverðum árangri í starfi.
Þorkell var mikill listamaður
og skilur eftir sig fjölmörg lista-
verk víða um land en af þeim er
verkið Sigling, sem stendur við
Strandgötu í Hafnarfirði, í miklu
uppáhaldi. Tilurð verksins var
fimmtíu ára afmæli Hafnarfjarð-
arkaupstaðar árið 1958, en þá
efndi bæjarstjórn Hafnarfjarðar
til samkeppni um listaverk til
heiðurs hafnfirskri sjómanna-
stétt. Auk þess má nefna að sam-
starfsmaður okkar Ólafur Andrés
Guðmundsson fékk leyfi Þorkels
til að framleiða litlar koparaf-
steypur af Siglingu sem notaðar
hafa verið til að heiðra hafnfirska
sjómenn á sjómannadaginn.
Þorkell var einnig mikill innan-
húss- og húsgagnahönnuður og
eru til mörg húsgögn og innrétt-
ingar eftir teikningum hans. Allar
innréttingar á heimili okkar hjóna
eru meðal þessara verka, smíðað-
ar af æskuvini hans, Sverri Hall-
grímssyni.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Þorkeli fyrir góða vináttu og sam-
starf í gegnum árin og votta börn-
um hans og afkomendum mína
dýpstu samúð.
Jóhannes Einarsson,
fyrrverandi skólameistari.
Þorkell G.
Guðmundsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi Þorkell. Þá er
komið að kveðjustund í bili.
Minning þín mun lifa áfram
í ilmandi pípureyk, hús-
gögnunum sem þú hannað-
ir, fílastyttum og KFC-kall-
inum, Colonel Sanders,
enda er hann feikilíkur fal-
lega afa okkar.
Þú varst alltaf til staðar,
hvattir okkur áfram í námi
og störfum og réttir hjálp-
arhönd þegar þurfti.
Bauðst ávallt upp á besta
Krónu-kjúklinginn, varst
vinsæll hjá konunum og
neitaðir alfarið að læra á
netið, enda algjör óþarfi. Af
hverju að flækja lífið?
Þú varst glaður, fyndinn,
hæfileikaríkur, góðhjartað-
ur, ákveðinn og skemmti-
legur. Hafðir svo gaman af
öllum barnabarnabörnun-
um sem héldu þér vel á tán-
um og veittu þér svo mikla
gleði.
Við munum sakna þín
afi.
Þar til við hittumst á ný,
Margrét Lára (Magga),
Elísabet María (Lísa)
og strákarnir.
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSTHILDUR AÐALSTEINSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu, Sléttuvegi, mánudaginn
26. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hörður Magnússon
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTINN ÞÓRIR EINARSSON,
fyrrverandi kennari og skólastjóri,
Melgerði 13, Reyðarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð,
Eskifirði, 2. ágúst. Útför auglýst síðar.
Einar Már Kristinsson Júlíana Haraldsdóttir
Ragnheiður K. Kristinsdóttir Gunnlaugur E. Ragnarsson
Margrét St. Kristinsdóttir Vilbergur Prebensson
Tómar Örn Kristinsson Elísabet Tómasdóttir
Kristinn I. Kristinsson Helle Kit Hansen
Sæbjörg S. Kristinsdóttir
og barnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir og amma,
MAGNEA GUÐRÚN HARALDSDÓTTIR
BJÖRNSSON,
1109 Daventry Place,
Virginia Beach, Va. 23455,
USA,
lést í faðmi fjölskyldunnar laugardaginn
31. júlí eftir stutt veikindi. Minningarathöfn fer fram frá Berceuse
Funeral Home, 2609 Cunningham Drive, Hampton, Va. 8. ágúst
klukkan 11. Þeim sem vilja minnast Möggu er bent á
minningarkort frá The Virginia War Museum of Newport News
eða The American Cancer Society.
Gottskálk Þorsteinn Björnsson
og fjölskylda
Elskulegur sonur, faðir, afi og bróðir okkar,
SIGGEIR VALDIMARSSON,
lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 26. júlí. Útför hans fer
fram frá Háteigskirkju mánudaginn
9. ágúst klukkan 13.
Hrafnhildur Heba Wilde
Brynja Siggeirsdóttir
Agla Björk Egilsdóttir
Markús A.G. Wilde
Einar Finnur Valdimarsson
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
SIGURÐUR GUNNARSSON,
lést mánudaginn 2. ágúst á Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Ragnheiður Gunnarsdóttir Ásgeir Bjarnason
Magnús Gunnarsson Elísabet Karlsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞORBJÖRG JÓNATANSDÓTTIR,
Suðurlandsbraut 58, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk föstudaginn
23. júlí. Útför hennar fer fram frá
Langholtskirkju mánudaginn 9. ágúst klukkan 15.
Sigmar Þorsteinsson
Sigurborg Erna Mostrup Otto Mostrup
Margrét Sigmarsdóttir Jóhannes Þórðarson
Þorsteinn Sigmarsson Lilja Rós Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn