Morgunblaðið - 05.08.2021, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 05.08.2021, Qupperneq 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021 ✝ Guðrún Krist- insdóttir fædd- ist í Reykjavík 24. september 1930. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 3. júlí 2021. Foreldrar Guðrúnar voru Soffía Margrét Ólafsdóttir hús- móðir, f. 1890, d. 1962, og Kristinn Sveinsson, f. 1884, d. 1966, hús- gagnabólstrari. Bróðir Guðrúnar var Egill Ormar Kristinsson, f. 1922, d. 1993, og hálfbræður Víg- lundur Kristinsson, f. 1909, d. 1962, Páll Kristinsson, f. 1911, d. 1992, Kristinn Jón Kristinsson, f. 1914, d. 1956, og Kristján Krist- insson, f. 1923, d. 1947. Guðrún ólst upp á Vesturgötu 26b í Reykjavík. Guðrún var tvígift, fyrri mað- ur hennar var Hrafnkell Bjarni Kjartansson sjómaður, f. 1933, þau eignuðust tvö börn, dreng f. 1962, d. 1962, og Soffíu Margréti, f. 1964. Maki Soffíu Mar- grétar er Þorlákur Jónsson, f. 1965, og eiga þau einn son, Egil, f. 1989. Seinni maður Guðrúnar var Sigurður Söe- beck Kristjánsson, f. 1927, d. 1997. Guðrún gekk í Austurbæjar- skólann og lauk gagnfræðaprófi þaðan. Nokkru síðar dvaldi hún vetrarlangt í Danmörku og stundaði nám við húsmæðra- skóla. Um tvítugt fór hún til vist- ar í Skotlandi hjá breskum hers- höfðingja, R. Stewart. Guðrún starfaði heimkomin sem lækna- ritari á Röntgendeild Landspít- alans við Hringbraut í um 40 ár. Útförin fer fram frá Digranes- kirkju í dag, 5. ágúst 2021, klukk- an 13. Elsku mamma mín, þá ert þú farin frá okkur. Þú varst búin að ganga í gegnum sífellt skertari lífsgæði síðustu ár, svo vafalítið hefur þú verið hvíldinni fegin. Sjálf var ég búin að kvíða þessari stund, þótt ég vissi að hún yrði ekki umflúin. Því þrátt fyrir skerta getu og lífsgæði hjá þér þá áttum við okkar yndislegu sam- verustundir síðustu ár. Þú varst alltaf svo glöð að sjá mig þegar ég kom í heimsókn til þín í Sunnuhlíð og ánægð með mig og fór ég und- antekningarlítið léttari í lund heim frá þér. Ég skynjaði það líka hvað þú varst allra hugljúfi þar enda svo jákvæð og þakklát fyrir það sem fyrir þig var gert. Þú bjóst einnig yfir mikilli seiglu og miklu jafnaðargeði, sem kom sér vel þegar þú gekkst í gegnum barnsmissi og alvarleg veikindi og slys. Þú gafst mér alla tíð svo mikla ást og athygli og þar sem við bjuggum saman tvær einar, stór- an hluta uppvaxtarára minna, urðum við afar nánar. Bróðir þinn, Egill, var einnig mikill hluti af tilverunni hjá okkur og var mér nánast sem annað foreldri. Svo kynntist þú Sigurði og þurfti ég þá að aðlaga mig að því að hafa ekki alla athyglina lengur, en á móti kom að okkur Sigurði lynti prýðilega saman, svo árin sem fóru í hönd voru ánægjuleg. Þegar ég lauk háskólanámi fór ég svo ásamt Þorláki, manninum mínum, til Bandaríkjanna í fram- haldsnám, var þá gott að vita af þér í félagsskap Sigurðar á Ís- landi. Þið voruð mjög dugleg að fara í bústaðinn þinn við Iðu í Biskupstungum og áttuð þið þar góða daga í félagsskap frænd- fólks okkar í nærliggjandi bú- stöðum. Þið voruð einnig dugleg að heimsækja mig, Þorlák og barnabarnið Egil til Bandaríkj- anna. Því miður kvaddi Sigurður alltof fljótt eftir erfið veikindi, var þá dýrmætt að við skyldum vera komin aftur til Íslands og geta verið þér innan handar. Við fluttum báðar í Kópavoginn, fyrst hvor á sinn staðinn en svo saman í tveggja íbúða hús. Við áttum saman góðar stundir í húsinu okkar, þú komst til okkar í mat 3-4 sinnum í viku og svo horfðum við saman á uppáhaldssjónvarps- þáttinn okkar, Innlit-Útlit. Þetta voru sannarlega góðir dagar. En svo varðst þú fyrir þeirri ógæfu um áttrætt að fá lífshættuleg höf- uðmeiðsli og hafðir þú upp frá því skerta getu til máls og tjáningar. Í framhaldinu fórstu að fara í svo- kallaða Dagdvöl í Sunnuhlíð þrisvar í viku. Þá varst þú sótt um áttaleytið á morgnana og keyrð heim síðdegis. Hef ég oft hugsað um það hversu ótrúlega dugleg þú varst að gera þig klára á morgnana, alveg hjálparlaust, eiginlega skil ég það ekki eftir á að hyggja. Smám saman þurftir þú þó meiri aðstoð við daglegt líf og fluttir þú þá á Sunnuhlíð. En þér fannst mjög gaman að fara út á kaffihús, gátum við lengi vel farið vikulega í slíka leiðangra. Síðustu mánuði gerðu Covid-tak- markanir okkur erfitt fyrir og svo hrakaði heilsunni hjá þér og gát- um við þá ekki lengur farið sam- an út en áttum góðar samveru- stundir í notalega herberginu þínu. Í byrjun júní tók heilsa þín að versna verulega og svo fékkstu hvíldina í byrjun júlí. Takk fyrir allt, elsku mamma mín, þín verður sárt saknað. Soffía Margrét. Ég vil með nokkrum orðum minnast frænku minnar Guðrún- ar Kristinsdóttur, eða Gúrrýjar, eins og hún var kölluð. Fyrstu minningar mínar um Gúrrý frænku eru frá þeim tíma er hún kom í heimsókn á æskuheimili mitt Fagranes við Elliðavatn, en síðan eru liðin um 70 ár. Í Fagra- nesi bjuggu þá foreldrar mínir, Ólafur Beinteinsson og Sigurveig Hjaltested, systkini mín Lalli og Milla en Bögga systir var ekki fædd þá. Á heimilinu dvaldist líka amma okkar Ingibjörg, sem var systir Soffíu, móður Gúrrýjar heitinnar. Þær systur Ingibjörg og Soffía voru dætur Ólafs Ei- ríkssonar söðlasmiðs og konu hans Theódóru Guðrúnar Þor- kelsdóttur, sem áttu heima á Vesturgötu 26 í Reykjavík. Heimsóknum Gúrrýjar frænku í Fagranes fylgdi glað- værð og gleði, sem var áberandi þáttur í skapgerð hennar alla tíð. Hún kom líka færandi hendi. Ávallt með sælgæti fyrir okkur systkinin. Já Gúrrý heitin var au- fúsugestur í Fagranesi. Árin liðu og góður kunnings- skapur hélst milli okkar Gúrrýj- ar og komst ég þá að raun um hversu miklum mannkostum hún var gædd. Þegar á ævina leið flutti Gúrrý í Reynihvamm 13 í Kópavogi ásamt Soffíu dóttur sinni, tengdasyni og Agli dóttur- syni sínum. Komu þær mæðgur sér þar vel fyrir hvor í sinni íbúð- inni; Gúrrý á jarðhæðinni og Soffía og fjölskylda á efri hæð- inni. Þangað kom ég nokkrum sinnum og hlaut góðar viðtökur. Tók ég eftir hversu kært var milli þeirra mæðgna Gúrrýjar og Soffíu. Gúrrý heitin hafði yndi af tón- list og var það mér ómæld ánægja að koma í 85 ára afmæli hennar, leika fyrir hana á harm- ónikkuna og taka lagið með fjöl- skyldu og vinum. Síðustu árin bjó Gúrrý í Sunnuhlíð, vistheimili aldraðra í Kópavogi. Kom ég þangað árlega um jól, þorra og á sumardaginn fyrsta með tónlist- arflutning fyrir heimilismenn í boði Gúrrýjar. Oftast mætti Ingi- björg Aldís óperusöngkona dótt- ir mín með mér til að skemmta heimilismönnum. Með þessum tónlistarheimsóknum vildi ég þakka áralöng góð kynni og sam- skipti við þessa uppáhalds- frænku mína Guðrúnu Kristins- dóttur. Já, Gúrrý frænka var vel af guði gerð og hún var trúuð alla tíð. Ég þykist vita að hún fái hlýj- ar viðtökur fyrir handan. Ég kveð Gúrrýju frænku með sökn- uði en kærar minningar um hana munu lifa meðal okkar, þótt hún hverfi nú af lífsins braut. Sendi Soffíu dóttur hennar og fjöl- skyldu, svo og ættingjum og vin- um, samúðarkveðjur. Drottinn blessi ykkur öll. Ólafur Beinteinn Ólafsson. Fátt er fallegra en íslensk sumarkvöld þegar miðnætursólin sleikir sjóndeildarhringinn, hrossagaukurinn hneggjar og rýfur þannig þögnina. Hvítá við Iðu er einn þekktasti stórlax- astaður Íslands. Við árbakkann stendur lítið hús sem er fullt af sögum og minningum. Þetta er höll fjölskyldu Gúrríar og þar leið henni vel. Á langri ævi glímdi Gúrrí oft við margvísleg veikindi en hafði yfirleitt betur, en hún kvaddi lífið þann 3. júlí. Það er á svona stundum sem gott er að setjast niður og fara í minningabankann og rifja upp sögur úr lífi ástvina sinna. Fyrstu minningar mínar um frænku mína tengjast sumarbú- staðnum við árbakkann þegar hún dvaldist þar með foreldrum sínum, þeim Kristni og Soffíu. Fjölskyldur okkar höfðu numið land á Iðu tvö og myndaðist þar samfélag sem snerist í fyrstu um veiðina en einnig um dýrmæta samveru ættingja okkar. Við lok veiðidags var oft safnast saman við árbakkann og sagðar veiði- sögur og aflinn svo borinn heim í hús. Fræg er sagan af Kristni, föður Gúrríar, þegar hann hafði sett í lax og kallaði til Soffíu konu sinnar þar sem hún fylgdist með, vökulum augum út um gluggann, dreif sig í vöðlurnar og hljóp út í á og hjálpaði Kristni. Á yngri árum upplifði Gúrrí margt sem ekki þótti sjálfsagt á þeim tímum. Hún fékk tækifæri til að mennta sig í húsmæðra- fræðum í Danmörku og bauðst einnig ævintýraleg dvöl í kastala Stewarts hershöfðingja í Skot- landi en hann var einn af þeim sem höfðu stundað veiðar við Iðu. En Gúrrí átti einnig farsæl- an feril sem læknaritari á Rönt- gendeild Landspítalans og þar lágu leiðir okkar aftur saman. Gúrrí setti mig inn í starf lækna- ritara en hún lagði líka mikla áherslu á mikilvægi góðrar ís- lenskukunnáttu og lét engin skjöl frá sér nema þau væru vandlega yfirlesin og villulaus. Gúrrí var einstaklega vandvirk og sam- viskusöm í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Það var í seinni hálfleik lífsins þegar ástin bankaði á dyrnar og Sigurður gekk inn. Þau náðu strax sama takti í dansi lífsins og aftur var blásið lífi í litla bústað- inn við árbakkann og dvöldu þau þar eins oft og lengi og þau gátu og þar áttum við Svavar ógleym- anlegar stundir með þeim. Sig- urður talaði oft um Gúrrí sem lottóvinninginn sinn og Soffíu, einkadóttur Gúrríar, bónusvinn- inginn. Þau hjónin áttu farsælt líf, fallegt heimili í Reykjavík og nutu samverunnar. Þau voru dugleg að ferðast og ógleyman- legar voru ferðir þeirra til Bandaríkjanna að heimsækja Soffíu, Þorlák og Egil, son þeirra. Eftir fráfall Sigurðar fluttist hún í Kópavoginn og bjó, meðan hún hafði heilsu til, í íbúð sinni í húsi Soffíu og Þorláks þar sem þau sýndu henni einstaka hug- ulsemi alla tíð. Gúrrí hafði yndi af tónlist og ósjaldan fór hún með þeim á sinfóníutónleika í Hörpu. Nú er komið að kveðjustund og er ég þakklát fyrir allar minn- ingarnar sem við áttum saman og er ég viss um að í logninu á Iðu megi heyra dillandi hlátur Gúrrí- ar frænku minnar hljóma í takt við hnegg hrossagauksins. Við Svavar vottum fjölskyldu Gúrríar okkar dýpstu samúð. Sigríður Jónsdóttir. Guðrún Kristinsdóttir Ég var svo lán- söm að kynnast eig- inmanni mínum Björgvini og fjöl- skyldu hans í byrjun árs 1982. Tengdaforeldrar mínir tóku mér opnum örmum og okk- ur tengdapabba kom ávallt mjög vel saman. Hann kom fram við mig eins og væri ég dóttir hans og samband mitt við þau hjónin hefur gefið mér mikið í gegnum tíðina og er ég afskaplega þakk- lát fyrir kynni mín við þau. Tengdapabbi var hreinskilinn og sagði yfirleitt nákvæmlega Björgvin Sigurður Sveinsson ✝ Björgvin Sig- urður Sveins- son fæddist 17. október 1921. Hann lést 24. júlí 2021. Útförin fór fram 3. ágúst 2021. það sem honum bjó í brjósti. Ég er þann- ig líka og kannski var það einmitt þess vegna sem mér lík- aði svo vel við hann. Við hjónin bjuggum hjá þeim á tímabili og alltaf var sjálf- sagt að hjálpa okk- ur. Mörg voru þau kvöldin sem hann og Fríða sátu yfir krökkunum okkar. Hann gekk í gegnum mikla erfiðleika á sinni lífstíð, meiri en margur annar þarf að gera. Hann missti son sinn ungan og barnabarn. Þau hjónin voru mjög samrýnd og það var mikill missir þegar Fríða dó 2007. Síðustu árin dvaldi hann á Hrafnistu í Hafnarfirði og var heppinn að eiga marga að sem voru duglegir að heimsækja hann þar. Hann fylgdist sérstaklega vel með fólkinu sínu og hafði ótrúlegt minni nánast fram á síð- asta dag. Það var sérstaklega gaman að fara með mömmu til hans í apríl sl. en þau höfðu þá ekki sést í nokkur ár. Það mátti ekki á milli sjá hvort þeirra skemmti sér betur og þá var gaman að fylgjast með hvað minni hans var ótrúlega gott þeg- ar hann rifjaði upp liðna tíð. Hann var ávallt svo þakklátur fyrir allt sem gert var fyrir hann að eftir því var tekið og þurfti mjög lítið að hafa fyrir honum. Ef hann kvartaði þá var ástæða til. Björgvin tengdapabbi er búinn að bíða eftir kveðjustundinni um skeið og mig grunar að nú bjóði hann Fríðu upp í dans á nýjum stað við harmonikkuleik. Ég veit að Fríða mun taka vel á móti bónda sínum og þeir hinir sem farnir eru á undan. Mig langar að koma á framfæri hjartans þökk- um til þeirra sem önnuðust hann á Hrafnistu. Elsku Björgvin, hafðu þökk fyrir allt og allt. Ágústa Hauksdóttir. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR AÐALSTEINSSON, lést laugardaginn 31. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 15. Streymt verður frá athöfninni á https://youtu.be/EKeP7EGkubQ Steinunn Aðalsteinsdóttir Aðalsteinn Guðmundsson Ásta S. Aðalsteinsdóttir Birgir Örn Guðmundsson Gunnlaug Guðmundsdóttir Guðm. Gylfi Guðmundsson Helga Aspelund barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, BJÖRN JÓNASSON, lést á Sólteig, Hrafnistu, fimmtudaginn 29. júlí. Útför hans fer fram frá Lindakirkju þriðjudaginn 10. ágúst klukkan 13. Jónas Páll Björnsson Soumia Islami Georgsdóttir Bryndís Björnsdóttir Eiríkur Fannar Torfason Kristín Jónasdóttir Gunnar Börkur Jónasson Dóra Hansen Hermann Páll Jónasson Sofia Sóley, Elías Andri, Ómar Páll, Hekla og Flóki Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN HLÍN GUÐBJARTSDÓTTIR, Sautjándajúnítorgi 7, Garðabæ, lést á heimili sínu sunnudaginn 1. ágúst. Útförin fer fram í Vídalínskirkju fimmtudaginn 12. ágúst klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana verður athöfninni einnig streymt. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Erlendur Magnússon Unnur Erlendsdóttir Jón Ingi Þorvaldsson Elín Erlendsdóttir Kristmundur Davíð Ólafsson Laufey Stefánsdóttir Hilmar Finnur Binder Guðbjartur Stefánsson Anna Sigríður Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabarn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, REYNIR BERGMANN SKAFTASON vélamaður, Sóleyjarima 5, Reykjavík, lést á bráðamóttöku LSH í Fossvogi 19. júlí. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýju og kærleik. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna Cronin Anna Bergmann Reynisd. Stefán Pétursson Guðrún Bergmann Reynisd. Karl Bergmann Reynisson Kristbjörg Viðarsdóttir Reynir Bergmann Reynisson Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir afabörn og langafabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.