Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 54
54 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021 Yfirgnæfandi líkur eru á því að nýtt nafn verði ritað á bikarinn fyrir Ís- landsmeistaratitilinn í golfi í kvennaflokki í þetta skiptið. Íslands- mótið í golfi hefst á Jaðarsvelli á Ak- ureyri í dag og einungis einn fyrr- verandi Íslandsmeistari er skráður til leiks í kvennaflokki. Er það Nína Björk Geirsdóttir sem varð Íslandsmeistari árið 2007. Íslandsmeistari síðustu þrjú skipti, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, er upp- tekinn í keppni á Evrópumótaröð- inni og er því fjarverandi. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í barneign- arfríi og Valdís Þóra Jónsdóttir hætti keppni vegna meiðsla. Leiknar verða 72 holur á fjórum dögum venju samkvæmt og lýkur mótinu því á sunnudag. Einnig eru mikil forföll í karlaflokki. Íslands- meistarar síðustu tveggja ára, Bjarki Pétursson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, keppa á sama tíma í Finnlandi á Áskorendamóta- röðinni. Þar verða einnig Haraldur Franklín Magnús, meistari árið 2012, og Andri Þór Björnsson. _ Ítarlegt aukablað um golf fylgir Morgunblaðinu í dag. Hvorki Bjarki né Guðrún Brá með á Íslandsmótinu á Akureyri Ljósmynd/golf.is 2020 Guðrún Brá og Bjarki Pétursson unnu í Mosfellsbæ í fyrra. JÚLÍ Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir lék frábærlega með Breiðabliki í júlí þegar hún skoraði fjögur mörk í fimm leikjum liðsins í deildinni í mánuðinum og lagði í leiðinni upp annað þvílíkt af mörkum. Blikar unnu fjóra sigra í röð; gegn Þrótti úr Reykjavík, Fylki, ÍBV og Selfossi. Í fimmta leiknum gerðu Blikar jafn- tefli á útivelli gegn Þór/KA. Ríkjandi Íslandsmeistarar Blika eru fjórum stigum á eftir toppliði Vals í öðru sætinu, þegar fimm um- ferðir eru eftir af Íslandsmótinu. „Við megum ekki misstíga okkur aft- ur. Í rauninni misstum við þetta al- veg úr okkar höndum gegn Þór/KA,“ sagði Áslaug Munda í samtali við Morgunblaðið, en með sigri í þeim leik hefðu Blikar enn aðeins þurft að treysta á sig sjálfa þar sem liðið á eftir að mæta Val innbyrðis. „Þetta er ekki lengur í okkar höndum og við þurfum að treysta á önnur lið, að þau taki stig af Val. En það er náttúrlega ekki nóg ef við er- um síðan sjálfar að fara að klúðra einhverjum leikjum. Við þurfum bara að vinna restina af leikjunum og sjá hvað gerist,“ bætti hún við. Áslaug Munda telur Breiðablik hafa leikið vel á tímabilinu en að varnarleikur liðsins hafi svikið það of oft. „Í heildina hefur mér litist vel á okkur. Við erum að fá mun fleiri mörk á okkur á þessu tímabili sam- anborið við síðustu tímabil. Það hef- ur dálítið klikkað hjá okkur, að koma í veg fyrir þessi mörk. Við höfum ekki náð því nógu vel, mörg þessara marka hefðum við hreinlega átt að koma í veg fyrir. Varnarleikur liðsins hefur heilt yfir ekki verið nógu góður en við höfum ekki átt í erfiðleikum með að komast í færi. Sóknarleikurinn hefur heilt yfir verið flottur,“ sagði hún. Drjúg í sóknarleiknum Aðspurð hvað henni þætti um sína eigin frammistöðu á tímabilinu, þar sem hún hefur skorað sex mörk í 13 deildarleikjum, sagði Áslaug Munda: „Ég er nokkuð ánægð. Ég hef fengið stórt hlutverk sem ég er ánægð með, hef fengið traustið. Í rauninni er ég bara ánægð að fá að geta verið með eftir síðasta tímabil. Þá var ég mjög mikið frá vegna meiðsla.“ Hún lék aðeins sjö deildarleiki á síðasta tíma- bili en hefur spilað alla 13 í ár. Á þessu tímabili hefur Áslaug Munda komið að miklum fjölda þeirra 46 marka sem Breiðablik hef- ur skorað í leikjunum 13. Hún er með nærri því mark skorað í öðrum hverjum leik og hefur lagt upp fjöldann allan af mörkum til við- bótar. Af hverju stafar sú breyting samanborið við fyrri tímabil? „Ég er að spila framar á vellinum heldur en ég hafði verið að gera. Markmið mitt í hverjum leik er að hjálpa liðinu að skora, hvort sem það er með því að leggja upp, skora sjálf eða gera allt sem ég get til að ná inn marki,“ sagði Áslaug Munda, sem lék aðallega sem vinstri bakvörður með Breiðabliki undanfarin tímabil en hefur spilað á öðrum hvorum vængnum á þessu tímabili. Hún spilar mestmegnis sem vinstri bakvörður með íslenska A- landsliðinu. Áslaug Munda sagðist þó ekki gera upp á milli. „Ég hef mjög gaman af báðum stöðum. Ef ég er í bakverði þá er ég náttúrlega að- eins lengra frá markinu en þá eru meiri hlaup, sem er bara gaman. Mér finnst bæði mjög gaman að spila á kantinum og í bakverðinum.“ Heldur til Harvard Áslaug Munda heldur brátt til há- skólanáms í Harvard, einum virtasta háskóla heims, í Bandaríkjunum. Skammt er því eftir af tímabili henn- ar og Hildar Þóru Hákonardóttur, sem er einnig á leið í Harvard, með Breiðabliki. Áslaug Munda á aðeins eftir að spila tvo deildarleiki, gegn Tindastóli og Val, og tvo leiki í Meistaradeild Evrópu, gegn Fær- eyjameisturum KÍ frá Klaksvík. „Ég fer beint eftir Meistaradeild- ina. Það eru leikir í henni 18. og 21. ágúst og ég fer út eftir síðari leik- inn,“ útskýrði Áslaug Munda. Kom- ist Breiðablik áfram gegn KÍ bíða fleiri leikir í Meistaradeildinni en hún verður þá farin af landi brott. Hún sagði tilfinningarnar blendn- ar varðandi það að vera á leið í spennandi nám og sterka háskóla- deild vestanhafs og að missa af rest- inni af tímabilinu. „Mér finnst auð- vitað mjög leiðinlegt að ljúka ekki tímabilinu með stelpunum. Ég hefði viljað ná því, en þarna úti fæ ég tækifæri til að spila áfram og sýna mig.“ Áslaug Munda bætti því við að þegar tækifæri sem þetta bjóðist sé ekki hægt að hafna því. Spurð um hvað hún væri að fara að læra sagði hún áhugasviðið liggja í raun- greinum. „Fyrsta árið er almennt nám og ég er ekki búin að ákveða ná- kvæmlega hvað ég mun læra, en það verður eitthvað raungreinatengt.“ Reyni að hjálpa liðinu að skora í hverjum leik - Spennt fyrir því að byrja í Harvard - Þykir leitt að missa af síðustu leikjunum Morgunblaðið/Árni Sæberg Best Áslaug Munda er leikmaður júlímánaðar hjá Morgunblaðinu. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, hægri kantmaður Breiðabliks, var besti leikmaður júlímánaðar í knattspyrnu að mati Morgunblaðsins. Áslaug Munda fékk flest M allra leikmanna í deildinni í júlí, sex talsins. Hún fékk M í öllum leikjum Kópavogsliðsins og einu sinni tvö M. Breiðablik fékk þrettán stig í fimm leikjum í júlí og Áslaug skoraði fjögur mörk í mánuðinum ásamt því að vera afar atkvæðamikil í sókn- arleik liðsins sem skoraði alls átján mörk í þessum fimm leikjum. Áslaug Munda hefur því spjarað sig afskaplega vel framarlega á vell- inum en á síðasta keppnistímabili lék hún gjarnan sem bakvörður í Ís- landsmeistaraliði Breiðabliks en missti reyndar töluvert úr í fyrra vegna meiðsla. Amber Michel markvörður Tindastóls og Agla María Albertsdóttir kantmaður Breiðabliks eru báðar í liði mánaðarins í þriðja skiptið í röð en þær voru líka í ellefu manna byrjunarliðinu í maí og júní. Miðvörðurinn reyndi Arna Sif Ásgrímsdóttir úr Þór/KA hefur líka verið valin þrisvar, tvisvar í byrjunarliðið og einu sinni á varamanna- bekkinn. Áslaug Munda er í byrjunarliði í annað sinn. Þá hefur Emma Checker úr Selfossi verið einu sinni í byrjunarliði og nú á vara- mannabekk og Anna María Baldursdóttir úr Stjörnunni er á bekknum í annað sinn. Agla María og Dóra María Lárusdóttir komu næstar á eftir Áslaugu Mundu með fimm M hvor. Breiðablik fékk samtals 30 M í júlí, Valur 29, Selfoss 21, Þór/KA 21, Tindastóll 18, Þróttur 17, Stjarnan 17, ÍBV 16, Keflavík 13 og Fylkir 10. Lið júlímánaðar hjá Morgunblaðinu í Pepsi Max-deild kvenna 2021 VARAMENN: Emma Checker 3 1 Selfoss AnnaMaría Baldursd. 3 2 Stjarnan Hanna Kallmaier 3 1 ÍBV Lára Kristín Pedersen 3 1 Valur Selma SólMagnúsd. 3 1 Breiðablik Colleen Kennedy 3 2 Þór/KA Ída Marín Hermannsd. 3 1 Valur 4-3-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Fjöldi sem leik- maður hefur fengið 2 Amber Michel Tindastóll Arna Sif Ásgrímsdóttir Þór/KA Mist Edvardsdóttir Valur Hulda Björg Hannesdóttir Þór/KA Barbára Sól Gísladóttir Selfoss Eva Núra Abrahamsdóttir Selfoss Dóra María Lárusdóttir Valur Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir Breiðablik Þóra Björg Stefánsdóttir ÍBV Ólöf Sigríður Kristinsdóttir Þróttur Agla María Albertsdóttir Breiðablik 4 4 4 5 6 5 4 4 4 4 4 2 1 2 3 3 2 2 2 2 1 1 Áslaug Munda var best í júlí Pepsi Max-deild karla Valur – KR ................................................ 1:0 FH – HK ................................................... 2:4 Stjarnan – ÍA ............................................ 4:0 Staðan: Valur 15 10 3 2 26:13 33 Víkingur R. 15 8 5 2 22:16 29 Breiðablik 14 8 2 4 33:18 26 KA 14 8 2 4 21:10 26 KR 15 7 4 4 24:15 25 FH 14 5 3 6 20:21 18 Leiknir R. 15 5 3 7 15:19 18 Stjarnan 15 4 4 7 18:23 16 Keflavík 14 5 1 8 18:24 16 Fylkir 15 3 6 6 17:25 15 HK 15 3 4 8 18:28 13 ÍA 15 2 3 10 13:33 9 Meistaradeild Evrópu 3. umferð fyrri leikir: Spartak Moskva – Benfica....................... 0:2 Dinamo Zagreb – Legia Varsjá .............. 1:1 Ferencvaros – Slavia Prag ...................... 2:0 Danmörk Bikarkeppni, 1. umferð: Österbro – Lyngby .................................. 0:9 - Frederik Schram leikur með Lyngby. Freyr Alexandersson þjálfar liðið. Svíþjóð B-deild: Vasalund – Helsingborg ......................... 0:1 - Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með Helsingborg. 0-'**5746-' Ólympíuleikarnir Konur, 8-liða úrslit: Svartfjallaland – Rússland .................. 26:32 Noregur – Ungverjaland ..................... 26:22 Svíþjóð – S-Kórea................................. 39:30 Frakkland – Holland............................ 32:22 E(;R&:=/D Ólympíuleikarnir Konur, 8-liða úrslit: Kína – Serbía ........................................ 70:77 Ástralía – Bandaríkin........................... 55:79 Japan – Belgía ...................................... 86:85 Spánn – Frakkland............................... 64:67 Vináttulandsleikir karla Finnland – Danmörk............................ 79:59 N-Makedónía – Svartfjallaland ...........65:58 >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Sambandsdeild UEFA: Laugardalsv: Breiðablik – Aberdeen .......19 Lengjudeild karla: Vivaldi-völlurinn: Grótta – Selfoss ......19:15 Framvöllur: Fram – Fjölnir .................19:15 Lengjudeild kvenna: Norðurálsvöllurinn: ÍA – HK...............19:15 Meistaravellir: KR – FH ......................19:15 Grindavík: Grindavík – Augnablik.......19:15 GOLF Íslandsmótið í golfi hefst á Jaðarsvelli á Akureyri í dag. Venju samkvæmt er leikinn 72 holu höggleikur í karla- og kvennaflokki. Leiknar eru 18 holur á dag og lýkur mótinu á sunnudaginn. Í KVÖLD!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.