Morgunblaðið - 05.08.2021, Síða 55
bliks verður að
koma í ljós en lið-
ið hefur unnið
síðustu sex
heimaleiki sína í
deildinni. Sigur-
vegarans í við-
ureignum Breiða-
bliks og Aber-
deen bíður leikur
við annaðhvort
AEL Limassol
frá Kýpur eða Qarabag frá Aserba-
ídsjan í umspilseinvígi um sæti í
riðlakeppninni.
Aberdeen hefur fjórum sinnum áð-
ur komið til Íslands og ávallt leikið á
Laugardalsvelli. Aberdeen dróst á
móti ÍA í Evrópukeppni bikarhafa
tímabilið 1983 - 1984. Voru það held-
ur betur tíðindi fyrir knattspyrnu-
unnendur hérlendis því liðið hafði
komið mjög á óvart og unnið Evr-
ópukeppni bikarhafa vorið 1983. Lið
frá liðlega fimm þúsund manna bæ á
Ísland var væntanlega auðveld bráð
fyrir Evrópumeistarana? Nei nei.
Aberdeen vann 2:1 í Laugardalnum
og liðin gerðu 1:1 jafntefli í Skotlandi.
Aberdeen fór því naumlega áfram.
Jim Leighton, markvörður Aber-
deen, hafði þann leiða ávana að verja
Sir Alex
Ferguson
Breiðablik tekur í kvöld á móti
skoska liðinu Aberdeen á Laugar-
dalsvellinum í 3. umferð Sambands-
deildar UEFA í knattspyrnu. Er
þetta fyrri leikur liðanna en leikið
verður í Skotlandi í næstu viku.
Breiðablik lék Evrópuleikina fyrr
í sumar gegn Racing Union Luxem-
bourg og Austria Wien á Kópavogs-
velli en fréttir bárust af því í vikunni
að völlurinn standist ekki auknar
kröfur sem gerðar eru þegar komið
er lengra inn í Evrópukeppnirnar.
Fyrir vikið fer leikurinn fram á þjóð-
arleikvanginum. . Hvort staðsetn-
ingin hafi áhrif á leikmenn Breiða-
vítaspyrnur á Laugardalsvelli. Í
þessu tilfelli frá Árna Sveinssyni. Sig-
ursæll stjóri Aberdeen á þessum ár-
um, Alex Ferguson, brenndi sig ekki
á sama soðinu tvisvar. Þegar liðið
dróst aftur gegn ÍA í Evrópukeppni
meistaraliða haustið 1985 þá fór
skoska liðið áfram af meira öryggi.
Vann 3:1 í Laugardal og 4:1 ytra.
Fyrsta heimsókn Aberdeen var
haustið 1967 í Evrópukeppni bik-
arhafa. Liðið vann þá KR 10:0 í
Skotland og 4:1 í Reykjavík. Síðast
kom Aberdeen haustið 1993 og
mætti Val í sömu keppni. Aberdeen
vann 4:0 og 3:0. kris@mbl.is
Fjórða íslenska liðið sem mætir Aberdeen
ÍÞRÓTTIR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
Norska kvennalandsliðið í hand-
knattleik, sem Þórir Hergeirsson
þjálfar, tryggði sér aðfaranótt mið-
vikudagsins sæti í undanúrslitunum
á Ólympíuleikunum í Tókýó með
sigri á Ungverjalandi 26:22 í 8-liða
úrslitum. Ljóst er því að norska liðið
mun leika um verðlaun á leikunum
en andstæðingur Þóris í undan-
úrslitum verður lið rússnesku ól-
ympíunefndarinnar. Frakkland og
Svíþjóð leika einnig í undanúrslitum.
Þórir stýrði norska liðinu til sig-
urs á Ólympíuleikunum í London ár-
ið 2012 og í Ríó árið 2016 fékk liðið
bronsverðlaun undir hans stjórn.
Þórir var auk þess í þjálfarateyminu
í Peking árið 2008 þegar Noregur
fékk gullverðlaun. Hann þekkir því
vel þá stöðu að berjast um verðlaun
á Ólympíuleikum og norska liðið hef-
ur verið mjög sannfærandi í Japan.
Hefur liðið unnið alla sex leiki sína
til þessa og er talið líklegast til að ná
í gullið af veðbönkum.
Ferill Þóris er einkar glæsilegur
en í leiknum gegn Ungverjum tók
hann þátt í landsleik númer 600 fyrir
Noreg og er fyrstur til að ná því. 264
sem landsliðsþjálfari, 191 til við-
bótar í þjálfarateymi A-landsliðsins
og svo stýrði hann yngri landsliðum í
144 leikjum. Þórir á enn eftir þrjú ár
af samningi sínum. kris@mbl.is
AFP
Tókýó Þórir á hliðarlínunni gegn Ungverjalandi í gær.
Lið Þóris leikur
um verðlaun
- Hefur tekið þátt í 600 landsleikjum
FÓTBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Valsmenn munu ekki sleppa takinu
af Íslandsbikarnum í knattspyrnu
svo auðveldlega, en í gær unnu þeir
geysilega mikilvægan 1:0-sigur á
erkifjendum sínum í KR á Hlíðar-
enda. KR-ingar hugsuðu sér gott til
glóðarinnar að leggja Valsmenn að
velli og minnka þá forskot Vals niður
í tvö stig. Eftir þessi úrslit munar
hins vegar átta stigum á liðunum og
vonir KR-inga um sigur á Íslands-
mótinu dofnuðu verulega. Skaga-
maðurinn Tryggvi Hrafn Haralds-
son skoraði eina markið og um leið
sitt fyrsta fyrir Val á Íslandsmótinu.
Skagamenn eru svolítið einmana á
botninum eftir 4:0-tap fyrir Stjörn-
unni því HK vann einnig magnaðan
4:2-útisigur á FH. Stjarnan og HK
voru næstu lið fyrir ofan ÍA.
Hafa ekki sleppt takinu
- Mikilvægur
sigur Vals - HK
og Stjarnan í stuði
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Hlíðarendi Reynsluboltinn Birkir Már Sævarsson hefur góðar gætur á Stefáni Árna Geirssyni í gær.
VALUR – KR 1:0
1:0 Tryggvi Hrafn Haraldsson 74.
MM
Hannes Þór Halldórsson (Val)
M
Birkir Heimisson (Val)
Guðmundur Andri Tryggvason (Val)
Kristinn Freyr Sigurðsson (Val)
Rasmus Christiansen (Val)
Beitir Ólafsson (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Stefán Árni Geirsson (KR)
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 8.
Áhorfendur: 662
FH – HK 2:4
1:0 Jónatan Ingi Jónsson 1.
1:1 Birnir Snær Ingason 5.
1:2 Arnþór Ari Atlason 17.
2:2 Baldur Logi Guðlaugsson 30.
2:3 Birnir Snær Ingason 45.
2:4 Atli Arnarson 54.
MM
Birnir Snær Ingason (HK)
M
Baldur Logi Guðlaugsson (FH)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Birkir Valur Jónsson (HK)
Atli Arnarson (HK)
Arnþór Ari Atlason (HK)
Stefan Ljubicic (HK)
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 6.
Áhorfendur: 325.
STJARNAN – ÍA 4:0
1:0 Eggert Aron Guðmundsson 6.
2:0 Hilmar Árni Halldórsson 25.
3:0 Magnus Anbo 42.
4:0 Magnus Anbo 90.
MM
Eggert Aron Guðmunds. (Stjörnunni)
Magnus Anbo (Stjörnunni)
M
Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni)
Þorsteinn M. Ragnarsson (Stjörnunni)
Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni)
Björn Berg Bryde (Stjörnunni)
Alexander Davey (ÍA)
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Sigurður H. Þastarson – 7
Áhorfendur: 437.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
_ Bandaríski spretthlauparinn Sydn-
ey McLaughlin gerði sér lítið fyrir og
sló aðeins rúmlega mánaðar gamalt
heimsmet sitt þegar hún keppti í úr-
slitum 400 metra grindahlaups
kvenna á Ólympíuleikunum í Tókýó að-
faranótt miðvikudags og tryggði sér
þannig ólympíugull með glæsibrag.
McLaughlin kom í mark á 51,46 sek-
úndum og bætti þar með eigið heims-
met frá því í lok júní á þessu ári um
tæpa hálfa sekúndu, en það fyrra var
51,90 sekúndur. Hún stórbætti þar
með um leið ólympíumetið í greininni,
sem var 52,64 sekúndur og í eigu Mel-
anie Walker frá Jamaíku, en hún setti
það á leikunum í Peking árið 2008.
_ Louis van Gaal er tekinn við karla-
landsliði Hollands í knattspyrnu í
þriðja skipti á ferlinum.
_ Emmanuel Korir frá Kenýa varð ól-
ympíumeistari í 800 metra hlaupi
karla á Ólympíuleikunum í Tókýó í gær.
Hljóp hann á 1:45,06 mínútum en
landi hans Ferguson Kotich kom ann-
ar í mark á 1:45,23 mínútum og Kenýa
fékk því bæði gull og silfur. Patryk Do-
bek frá Póllandi varð þriðji og tryggði
sér bronsverðlaun á 1:45,39 mínútum.
_
Nokkuð var um fréttir af leikmanna-
málum í körfuknattleiknum í gær.
Framherjinn Malik Benlevi og bak-
vörðurinn Robbi Ryan, bæði frá
Bandaríkjunum, munu leika með liðum
Grindavíkur næsta vetur. Þá hefur ÍR
náð í miðherjann Tomas Zdanavicius
frá Litháen og bandaríski bakvörð-
urinn Ken-Jah Bosley hefur ákveðið
að leika áfram með Vestra sem verður
nýliði í úrvalsdeildinni.
_ HK hefur fengið Úlf Blandon til að
stýra kvennaliði félagsins í knatt-
spyrnu út keppnistímabilið í Lengju-
deildinni, þeirri næstefstu. Honum til
aðstoðar verður Milena Pesic en í síð-
ustu viku lét Jakob Leó Bjarnason af
störfum sem þjálfari liðsins.
_ Kanadíski spretthlauparinn Andre
de Grasse er ólympíumeistari í 200
metra hlaupi karla eftir að hafa komið
fyrstur í mark í úrslitum greinarinnar á
Ólympíuleikunum í Tókýó í gær. De
Grasse hefur löngum verið á meðal
bestu spretthlaupara heims en með
því að koma í mark á 19,62 sekúndum
tryggði hann sér fyrsta ólympíugull
sitt á ferlinum.
Hann hafði áður unnið til brons-
verðlauna í 100 metra hlaupi á leik-
unum í Tókýó og þar áður unnið til
þrennra verðlauna á leikunum í Ríó í
Brasilíu fyrir fimm árum, þegar hann
krækti í silfur í 200 metra hlaupi og
bronsverðlaun í bæði 100 metra
hlaupi og 4x100 metra boðhlaupi. Ól-
ympíumedalíurnar eru þar með orðnar
fimm talsins hjá hinum 26 ára gamla
De Grasse og loks kom fyrsta gullið.
Bandaríkjamennirnir Kenneth Bedn-
arek og Noah Lyles komu næstir á eft-
ir De Grasse í hlaupinu. Bednarek
hljóp á 19,68 sekúndum og tryggði sér
silfur og Lyles kom í mark á 19,74 sek-
úndum og nældi í bronsverðlaunin.
Eitt
ogannað