Morgunblaðið - 01.09.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 01.09.2021, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. S E P T E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 204. tölublað . 109. árgangur . TÆKIFÆRI TIL SAMSTARFS HÉR Á LANDI BÖRNIN HÆTT AÐ SVARA KANNAR VALD OG VIRKNI RITDÓMA Í NÝJU VERKI SÍMANOTKUN 12 AUÐUR AÐALSTEINSDÓTTIR 24VIÐSKIPTAMOGGINN Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samdráttur landsframleiðslu í kór- ónukreppunni er sá annar mesti síð- an samræmdar mælingar hófust árið 1945. Reyndist kreppan dýpri en þegar síldin fór árið 1968. Þetta má lesa úr bráðabirgðatöl- um Hagstofunnar um hagvöxtinn. Gunnar Axel Axelsson, deildar- stjóri í þjóðhagsreikningum og opinberum fjármálum hjá Hagstof- unni, segir það einkenna kórónu- kreppuna hversu snarpur samdrátt- urinn er frá upphafi faraldursins í mars í fyrra. Sömuleiðis hvað sam- drátturinn gangi hratt til baka. Niðursveifla án fordæma „Áhrifin af svona heimsfaraldri eru um margt ólík því sem við eigum að venjast í hagsögunni þegar sam- dráttur verður af öðrum orsökum. Því eru ekki til tímabil sem eru sam- bærileg frá því að gerð þjóðhags- reikninga hófst í heiminum um miðja síðustu öld,“ segir Gunnar Axel. Samkvæmt áætlun Hagstofunnar var 7,3% hagvöxtur á öðrum fjórð- ungi í ár. Sú áætlun vekur athygli en Seðlabankinn áætlar í nýjum Pen- ingamálum að landsframleiðslan hafi þá aukist um 11% milli ára. Má í þessu efni rifja upp að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri rökstuddi hækkun vaxta í síðustu viku meðal annars með því að kæla þyrfti hag- kerfið. Eins og rakið er í ViðskiptaMogg- anum var samdrátturinn mestur á öðrum og þriðja fjórðungi í fyrra en síðan hefur leiðin legið upp á við. Sú önnur dýpsta í sögunni - Aðeins bankahrunið slær út samdrátt landsframleiðslu eftir kórónukreppuna - Samkvæmt áætlun Hagstofunnar var minni vöxtur á 2. fjórðungi en SÍ áætlar MViðskiptaMogginn Mestur samdráttur landsframleiðslu* -5,5% -3,4% -7,7% -2,8% -6,5% 1968 1992 2009 2010 2020 Fimm ár með mestan samdrátt eftir 1945: *Ársbreyting vergrar landsframleiðslu (VLF) Þessir strákar stungu sér til sunds í Húsavíkurhöfn um klukkan sjö í gærkvöldi og virtist ekki væsa um þá á hafnarbakkanum eftir dýfur- nar í kaldan sjóinn. Blíðviðrið fyrir norðan kom ekki heldur að sök, en hitinn á Húsavík náði tæpum tuttugu stigum á hádegi í gær. Stökk í sjóinn hafa enda verið vinsæl iðja hjá yngri kynslóðinni á Húsavík undanfarnar vikur, á sama tíma og fádæma veðurblíða hefur leikið við landsmenn á norðan- og austanverðu landinu. Áfram verður hlýjast á Austur- landi í dag, þar sem hiti er talinn geta náð 21-22 stigum. Búast má við súld eða rigningu af og til sunn- an- og vestanlands, en bjart með köflum norðan- og austantil á land- inu. Þá er gert ráð fyrir að allt fram á sunnudag verði hlýjast á Norð- austurlandi. Í byrjun næstu viku lítur aftur á móti út fyrir suðaustlæga eða breytilega átt og vætu víðast hvar á landinu. Nokkrar góðar dýfur í blíðunni Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson _ „Ég ætlaði ekki að fram- lengja þetta ei- lífðarstríð og ég ætla ekki að framlengja eilífa útgönguleið,“ sagði Joe Biden, forseti Banda- ríkjanna, í gær þegar hann ávarpaði bandarísku þjóðina. „Stríðinu í Afganistan er nú lokið,“ bætti hann við. Í ávarpinu varði Biden ákvörðun sína um brottflutning bandaríska hersins frá Afganistan en ákvörð- unin leiddi til þess að talíbanar náðu aftur völdum í landinu. Eftir að bandaríski herinn lauk brottflutningi sínum í fyrrakvöld fögnuðu talíbanar sigri í stríðinu um Afganistan. »11 Joe Biden „Stríðinu í Afgan- istan er nú lokið“ _ Eigandi Icelandair Hotels mun leggja fyrirtækinu til nýtt hlutafé á komandi vikum. Þetta staðfestir Tryggvi Þór Herbertsson, stjórn- arformaður þess. Í ViðskiptaMogg- anum í dag kemur fram að Ice- landair Hotels bókfærðu 4,8 milljarða tap af starfsemi sinni á síð- astliðnu ári. Tryggvi Þór staðfestir einnig að fyrri hluti yfirstandandi rekstrarárs hafi verið þungur. Hins vegar hafi lausafjárstaða fyrir- tækisins verið í góðu horfi. Núverandi eigandi hótelkeðj- unnar er malasíska fjárfesting- arfélagið Berjaya Corporation Ber- had og mun eignarhaldið ekki breytast við hlutafjáraukninguna. Nýtt fjármagn mun allt koma úr þeim ranni. Morgunblaðið/Ásdís Keðja Reykjavik Hilton Nordica er eitt af mörgum stórum hótelum keðjunnar. Leggja hótelunum til nýtt hlutafé Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Sorpu hefur borist afrit af kæru einstaklings til Persónuverndar vegna innleiðingu glærra ruslapoka á endurvinnslustöðvum en frá 1. júlí hefur verið innheimt gjald ef komið er með annars konar ruslapoka sem ekki sést í gegnum. Viðkomandi telur að Sorpu sé ekki heimilt að krefjast þess að úr- gangur komi í gegnsæjum pokum og vísar í friðhelgi einkalífs, máli sínu til stuðnings. Karl Hrannar Sigurðsson er lögfræðingur og sér- fræðingur á sviði persónuverndar. Hann telur að kæran kunni að vera langsótt þar sem persónuverndar- lög gilda aðeins ef um er að ræða varðveitingu og meðhöndlun per- sónuupplýsinga. Jón Viggó Gunn- arsson framkvæmdastjóri fullyrðir að Sorpa skrái ekki hjá sér innihald pokanna eða aðrar persónugreinan- legar upplýsingar. Að því gefnu verði að telja ólíklegt að krafan um glæra ruslapoka varði brot á per- sónuverndarlögum. Greint var frá kærunni í skýrslu framkvæmdastjóra á stjórnarfundi Sorpu. Þar kom einnig fram að inn- leiðing glærra poka á endur- vinnslustöðvum gangi almennt vel og ánægja sé meðal viðskiptavina Sorpu með þessa breytingu. Smá- salar hafa margir hætt sölu á ógagnsæjum pokum og finnur Jón Viggó fyrir áhuga á að auka sam- starf við Sorpu um endurvinnslu og ábyrga flokkun. Jón Viggó segir Sorpu fagna því að málið hafi komið fram og per- sónuvernd fái tækifæri til að skera úr um það. Hann kveðst þó ekki hafa miklar áhyggjur af niðurstöð- unni. „Við erum engan veginn að pæla í hverju fólk er að henda.“ Líf Magneudóttir er stjórnar- formaður Sorpu. Hún tekur í sama streng en segist hafa skilning á því að einhverjir hafi áhyggjur af þessu og eðlilegt að taka umræðuna. „Fólk þarf samt ekkert að vera vandræðalegt að fara með ónýtt kynlífsleikfang á endurvinnslu- stöðvar, það flokkast bara sem raf- tæki.“ Jón Viggó segir fyrirkomulagið vera í þágu hringrásarhagkerfisins. Það sé auðveldara að leiðbeina fólki ef það kemur með ruslið í glærum pokum. Plastpokar kærðir til Persónuverndar - Telur glæra poka brot á friðhelgi einkalífs - Sorpa segist fagna spurningunni en ekki hræðast Morgunblaðið/Eggert Meðbyr Stjórnendur Sorpu telja fólk almennt jákvætt fyrir breytingunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.