Morgunblaðið - 01.09.2021, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er mikil orka í loftinu í dag sem
bæði getur nýst til góðs og ills. Ef þú átt ekk-
ert erindi í búð skaltu bara sleppa því, þannig
sparar þú eyrinn.
20. apríl - 20. maí +
Naut Nú er ráð að hugsa um framtíðina.
Þegar þú veist hvað þú vilt áttu að keppa að
því marki með öllum tiltækum ráðum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Atburðarás dagsins felur í sér
spennandi söguþráð og óvæntar upplýsingar
koma kraumandi upp á yfirborðið.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er eðlilegt að finna til af-
brýðisemi vegna velgengni annarra. Gömul
vandamál leysast fyrir tilstilli nýrra upplýs-
inga.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ættir að líta yfir farinn veg í dag og
velta því fyrir þér hvar þú viljir verða eftir tíu
ár. Gættu þess vandlega að afla þér nægra
upplýsinga áður en þú lætur til skarar skríða.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Einhverjir ókunnugir aðilar munu
skjóta upp kollinum með eftirminnilegum
hætti. Það eru einnig kaflaskipti í aðsigi og
þú sem hefur haft í meiru en nógu að snúast
átt nú allt í einu lausa stund.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Einhverjum gæti sárnað ummæli þín
svo þú skalt gæta þess að segja ekkert að
óathuguðu máli. Taktu ekki meira að þér en
þú getur afgreitt með góðu móti á tilsettum
tíma.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Samræður við maka og nána
vini gætu orðið venju fremur upplýsandi í
dag. Jákvæðni þín og heillandi framkoma
gera það að verkum að fólk vill gjarnan
hjálpa þér.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Lífið virðist svo sannarlega
brosa við þér þessa stundina og þér er ekk-
ert of gott að njóta velgengninnar meðan
hún varir.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú átt umfram allt að stefna að
því að láta drauminn rætast, hversu fjarlægt
sem takmarkið virðist í upphafi.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Ef þér líkar ekki hvernig tilteknar
aðstæður eru að þróast skaltu bregðast við
hratt, áður en þú festist.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er ekki hægt að gera svo að öll-
um líki og því skaltu halda þínu striki ótrauð-
ur.
unnið hjá ráðuneytinu allar götur síð-
an, í mismunandi störfum. „Ég byrj-
aði í bókhaldinu og þá var ég bara
eina manneskjan í því starfi. Eftir 8
ár fékk ég tækifæri til að vinna á
skrifstofunni í London og ég tók því
og við fórum með yngstu börnin.
Þetta var áskorun en gífurlega
skemmtilegt. Við bjuggum í Fulham
vangi vinnumiðlun í nokkrar vikur og
Guðni spurði hvort hann ætti ekki að
henda þessari umsókn inn og við
gerðum það og tveimur tímum seinna
er hringt í mig og ég beðin um að
koma í viðtal hjá utanríkisráðu-
neytinu. Það var eiginlega eins og
þetta hefði átt að gerast.“ Þetta var í
lok ársins 1990 og Ingibjörg hefur
I
ngibjörg Aradóttir fæddist 1.
september 1951 á Egils-
stöðum og ólst þar upp. „Það
var yndislegt að alast þar
upp. Foreldrar mínir voru
ein af frumbyggjum Egilsstaða og
þorpið var eins og ein fjölskylda.“
Hún var líka í sveit frá 7 ára aldri til
13 ára í Hallfreðarstaðahjáleigu í
Hróarstungu hjá hjónunum Jakobi
Þórarinssyni og Erlu Sigurðar-
dóttur. „Þar á heimilinu var móðir
Jakobs, Valgerður Ketilsdóttir, og ég
var mjög hænd að henni og hún tók
mig svolítið undir sinn verndarvæng
og ég náði að kynnast sveitamenning-
unni mjög vel.“
Ingibjörg gekk í barna- og grunn-
skóla á Egilsstöðum. Hún fór einn
vetur á Höfn í Hornafirði í miðskóla-
deild og síðan var hún vetur á Reyk-
holti í Borgarfirði í gagnfræðadeild.
„Það er líka eins og að vera í einni
stórri fjölskyldu að vera á svona
heimavistarskólum. Á Reykholti var
Vilhjálmur Einarsson skólastjóri, áð-
ur en hann fór til Egilsstaða og bæði
hann og kennararnir voru afbragðs-
fólk.“
Næst fór Ingibjörg til Ísafjarðar á
húsmæðraskóla. „Við lærðum að elda
og gera handavinnu, vefa og sauma
harðangur og klaustur í rúmföt og
skírnarkjóla. Síðan lærðum við líka
að búa til sápur og fleira.“ Ingibjörg
útskrifaðist vorið 1969 og um haustið,
6. september, giftist hún Guðna Arn-
grími Péturssyni frá Eskifirði, svo
þau eiga 52 ára brúðkaupsafmæli á
mánudaginn. „Við hófum búskap á
Eskifirði og byggðum okkur hús og
stofnuðum fjölskyldu.“ Þar sinnti
Ingibjörg barnauppeldi og vann líka
ýmis störf og var gjaldkeri hjá Pönt-
unarfélagi Eskifjarðar, vann hjá
Pósti og síma og í Landsbankanum á
Eskifirði. Fjölskyldan bjó þar í 17 ár
en flutti til Reykjavíkur 1986. „Það
voru vissulega viðbrigði en ég aðlag-
aðist fljótt og ef maður er með góða
fjölskyldu og gott heimili þá er nokk
sama hvar maður er.“
Ingibjörg byrjaði að vinna á
Heilsugæslustöðinni í Efra-Breið-
holti sem læknaritari. Eftir þrjú ár
langaði hana að fara í fullt starf.
„Þetta var svolítið skrýtið. Ég hafði
legið með útfyllta umsókn frá Hag-
og eigum marga vini frá þessum ár-
um. Hverfið var rétt hjá heimavelli
fótboltaliðsins Chelsea, sem var lið
mannsins míns, og við fengum
fótboltastemninguna alveg í æð því
völlurinn var svo nálægt.“
Árið 2004 var Ingibjörg flutt til
skrifstofunnar í Vínarborg. „Það var
ótrúleg upplifun, því borgin er eins
og eitt stórt safn. Það er svo mikil
menning og fegurð í umhverfinu og
íburðurinn sem hefur verið á þessu
svæði frá keisaratímanum er ótrúleg-
ur.“ Guðni vann á Íslandi en kom
reglulega til Vínarborgar og þau not-
uðu tækifærið og ferðuðust mikið um
svæðið. Árið 2007 kom Ingibjörg
heim og fór í mannfræði í Háskóla Ís-
lands og lauk meistaragráðu árið
2013. Hún segir að áhuginn hafi
vaknað við það að kynnast þessum
mörgu mismunandi menningar-
kimum í Evrópu. Árið 2016 fór Ingi-
björg til Brussel og þau Guðni komu
heim 2019. „Það var alveg drauma-
staður til að enda starfsferilinn er-
lendis, því það er svo miðsvæðis í
Evrópu.“
Guðni og Ingibjörg voru mikið í
fjallgöngum fyrr á árum og eins hafa
Ingibjörg Aradóttir sendiráðsfulltrúi og mannfræðingur – 70 ára
Fjölskyldan Öll fjölskyldan kom saman í mánuðinum og tekin var mynd. Frá vinstri: Halldóra, Jónatan, Guðni, Ingi-
björg með Val Smára, Valdimar, Rósa Petrea, Leó Snær, Hildur, Úlfar, Ashesh, Ásgerður og Gauti Már.
Gaman að kynnast ólíkum svæðum
Hjónin Guðni og Ingibjörg hafa
ferðast víða og eru hér fyrir framan
óperuhúsið í Sydney í Ástralíu.
Starfið Ingibjörg hefur unnið hjá
utanríkisráðuneytinu árum saman
og lýkur störfum í lok september.
Til hamingju með daginn
30 ÁRA Karenína fæddist í
Reykjavík og hefur búið þar alla
sína ævi. „Við erum risastór fjöl-
skylda og ég á sjö systkini og er
elst og var orðin vel sjóuð í að
passa börn þegar ég var yngri.“
Karenína hafði alltaf mikinn
áhuga á dansi og æfði dans í mörg
ár hjá Dansskóla Sigurðar Há-
konarsonar. „Svo var ég líka á
mörgum dansnámskeiðum, því
mér fannst svo gaman að dansa.“
Hún æfði líka fótbolta með Fylki í
nokkur ár þegar hún var yngri.
Þegar kom að því að velja sér far-
veg var hún ekki viss um hvað
hún vildi gera og fór að vinna hjá
Securitas. „Svo fór ég að eignast
börn og núna er ég að einbeita
mér að því að ljúka við stúdentinn
í Framhaldsskólanum í Mos-
fellsbæ.“
Börn Karenínu eru líf hennar
og yndi. „Sonur minn veiktist mjög alvarlega í apríl og var á spítala í fjóra
mánuði og var hætt kominn. Við fengum strax áfallahjálp og á Barnaspít-
alanum eru sálfræðingar og það er hægt að fá áframhaldandi aðstoð á spít-
alanum. Núna er sonur minn í endurhæfingu að læra að labba aftur. Ég fékk
virkilega góðan stuðning, bæði í kerfinu og hjá foreldrum og vinum. Svo hef-
ur barnsfaðir minn líka staðið sig frábærlega og við höfum skipst á að sinna
syni okkar annan hvern dag.“
Karenína segir að það gefist ekki mikill tími til að sinna áhugamálum, en
hún er mikil fjölskyldumanneskja og nýtur sín best með vinum og fjölskyldu.
„Svo hef ég gaman af því að fara út að ganga og langar að fara í ferðalög þeg-
ar tækifæri gefst.“
FJÖLSKYLDA Börn Karenínu eru Alexander Leví Bjarnason, f. 2013 og
Rebekka Von Bjarnadóttir, f. 2016. Foreldrar hennar eru Elsa Guðbjörg
Björnsdóttir, f. 3.11. 1973 og Borgar Ólafsson, f. 3.12. 1967.
Karenína Elsudóttir
Veiðivefur
í samstarfi við