Morgunblaðið - 01.09.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.09.2021, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2021 Á veiðum Það er víða veiðivon og margir renna fyrir fisk í fjörunum við Reykjavík, þar á meðal þessi veiðimaður sem stóð við gula innsiglingarvitann við Sæbraut í gær. Unnur Karen Mér finnst það alltaf jafnmerkilegt að upp- lifa mörg hundruð manna samkomu – flokksráðsfund eða landsfund – þar sem allir sameinast um grunnatriði, sýn á samfélagið og framtíð- ina. Sjá tækifærin og eru um tilbúnir til að takast á við áskoranir. Fólk með ólíkan bakgrunn, konur, karlar, ungir, gamlir, fólk úr þétt- býli og dreifbýli, tekur höndum saman og mótar skýra stefnu sem byggð er á trúnni á einstaklinginn, fái hann frelsi til athafna, njóti hæfi- leika sinna og dugnaðar. Auðvitað greinir okkur á um ým- islegt, sem betur fer. Þannig verða landsfundir og flokksráðsfundir suðupottar hugmynda – mynda far- veg fyrir nýja og ferska hugsun á grunni sjálfstæðisstefnunnar. Birgir Kjaran (1916-1976) meitlaði hug- sjónir okkar betur en flestir í tíma- ritsgrein 1958. Sjálfstæðisstefnan „byggist á trúnni á manninn, þroskamöguleika hans, hæfni til þess að stjórna sér sjálfur, til að velja og hafna og til að leita sjálfur að eigin lífshamingju án þess að troða öðrum um tær eða þurfa á fyr- irsögn eða handleiðslu annarra manna að halda um eigin mál“. Undir regnhlíf Sjálfstæðisflokksins sameinast fólk sem er sannfært um að frum- réttur hvers og eins sé frelsið, andlegt og efnahagslegt og að sameiginlega beri allir ábyrgð á að rétta þeim hjálparhönd sem þurfa. Vel nestaðir Flokksráðs- og for- mannafundur Sjálf- stæðisflokksins vegna komandi kosninga var haldinn síðastliðinn laugardag. Þar sameinuðust flokksmenn frá landinu öllu um ítarlega stjórnmálaályktun – kosningastefnuskrá. Og allir mættu vel nestaðir til leiks. Málefnanefndir flokksins hafa unnið að því að móta stefnuna í ein- stökum málum. Á síðustu 18 mán- uðum hafa tugir opinna funda verið haldnir þar sem hundruð flokks- manna hafa komið að verki, tekið þátt í starfinu og lagt af mörkum mikilsverð atriði við að marka stefn- una, slípa hana og endurnýja. Mál- efnanefndirnar halda vinnu sinni áfram að loknum flokksráðsfundi. Afraksturinn verður formlega kynntur á næsta landsfundi sem vonandi verður hægt að halda á fyrstu mánuðum nýs árs. Og þá mun heldur betur krauma í öllum pottum. Ég hlakka til. Enginn annar stjórnmálaflokkur á Íslandi vinnur með þessum opna hætti – þar sem almennir flokks- félagar taka virkan þátt í málefna- starfi og móta stefnuna. Sjálfstæð- isflokkurinn er eini stjórnmála- flokkur landsins sem býður yfir 20 þúsund manns að ákveða framboðs- lista í prófkjörum í öllum kjör- dæmum. Stjórnmálaályktun flokksráðs- fundarins byggist á þessari miklu og góðu vinnu málefnanefnda. Land tækifæranna Líkt og ávallt leggur Sjálfstæðis- flokkurinn áherslu á ábyrga efna- hagsstjórn enda er hún forsenda þess að lífskjör á Íslandi haldi áfram að batna. Fyrirheit eru gefin um að áfram verði unnið að því að lækka skatta og álögur á fyrirtæki og heimili. Sjálfstæðismenn sjá og skynja þau efnahagslegu tækifæri sem eru fólgin í orkuskiptum – grænni orkubyltingu. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki flokkur stórra kosningaloforða – hann hefur aldrei lumað á kanínum í hattinum. En loforðið er skýrt: Við viljum mynda frjóan jarðveg fyrir atvinnulífið, byggja undir nýsköpun, efla menntun og styrkja velferðar- kerfið. Þannig ætla sjálfstæðismenn að tryggja að Ísland verði land tækifæranna fyrir alla. Atvinnumál skipta okkur öll miklu. Þar verða verðmætin til sem standa undir velferðarkerfinu. En atvinnulífið lifir ekki án öflugs vel- ferðarkerfis. Hvorugt getur án hins verið. Þetta skiljum við sjálfstæð- ismenn betur en aðrir og þess vegna teljum við nauðsynlegt að móta nýja heildstæða „velferðar- og heilbrigð- isstefnu á breiðum grunni í opinber- um rekstri og einkarekstri með framtíðarsýn sem tekur til mennt- unar heilbrigðisstarfsfólks, tækniþróunar og þarfa fólks,“ eins og segir í stjórnmálaályktuninni. Við vitum að við náum ekki mark- miði okkar um trausta og góða heil- brigðisþjónustu fyrir alla, óháð efnahag, án samstarfs opinberra og sjálfstætt starfandi aðila. Skipulag þjónustunnar verður að miðast við rétt fólks til þjónustu. Þess vegna vill Sjálfstæðisflokkurinn binda í lög þjónustutryggingu þannig að allir fái nauðsynlega þjónustu innan ásættanlegs tíma. Þar skiptir rekstrarform ekki máli. Samstarfsverkefni Sjálfstæðismenn leggja áherslu á að stafrænar lausnir verði nýttar í auknum mæli til að bæta heilbrigð- isþjónustuna. Við ætlum að ryðja úr vegi kerfislægum hindrunum fyrir nýsköpun í velferðar- og heilbrigð- isþjónustu með því að virkja einka- framtakið og hugvitið í samvinnu við opinbera aðila. Á því græðum við öll. Í lok júní hélt ég því fram á þess- um stað að það krefjist ekki mikillar innsýnar eða skilnings á stefnu Sjálfstæðisflokksins „að átta sig á því að flokkurinn getur ekki tekið þátt í ríkisstjórn sem heldur áfram að ríkisvæða heilbrigðiskerfið, kem- ur í veg fyrir samþættingu og sam- vinnu sjálfstætt starfandi þjón- ustuaðila og hins opinbera – tekur hagsmuni kerfisins fram yfir hags- muni sjúkratryggðra (okkar allra) og undirbýr þannig jarðveg fyrir tvöfalt heilbrigðiskerfi, sem er eitur í beinum hvers sjálfstæðismanns“. Af þessari fullyrðingu leiðir að við hugsanlega myndun ríkisstjórnar hlýtur Sjálfstæðisflokkurinn að leggja þunga áherslu á að skipa næsta heilbrigðisráðherra. Opinber og sjálfstæður rekstur heilbrigðisþjónustu eru ekki and- stæður sem vinna hvor gegn ann- arri. Þvert á móti. Opinber rekstur og sjálfstætt starfandi eru sam- herjar í því að tryggja öllum góða þjónustu þegar hennar er þörf. Á þessum grunni verður að nálgast mikilvægt viðfangsefni. Það verður vart gert án þess að Sjálfstæðis- flokkurinn taki við heilbrigðisráðu- neytinu að loknum kosningum. Eftir Óla Björn Kárason »Enginn annar stjórnmálaflokkur á Íslandi vinnur með þessum opna hætti – þar sem almennir flokksfélagar taka virkan og beinan þátt í að móta stefnuna. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Land tækifæranna fyrir alla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.