Morgunblaðið - 01.09.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 01.09.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ætla má að við verðum komin með nokkuð hreinan angus-stofn eftir fimm til sex ár. Allt tekur þetta tíma. En það er ánægjulegt fyrir okkur í þessari grein að fá þessi verkfæri í hendur til að bæta okkar rekstur og ekki síður að auka gæði kjötsins og útvega neytendum meira af gæða- kjöti,“ segir Bessi Freyr Vésteins- son, holdanautabóndi í Hofsstaðaseli í Skagafirði, um kynbætur með inn- fluttu erfðaefni af Aberdeen angus- holdanautakyni. Bessi er með um 200 kýr af gallo- way- og limousin-kyni. Hann hefur verið að kynbæta stofninn með an- gus-sæði frá Nautís á Stóra-Ármóti undanfarin tvö ár. Í sumar keypti hann fallegan bola frá einangrunar- stöðinni og sleppti um helgina í af- markaða hjörð á búinu. „Með inn- flutningi erfðaefnis erum við að stökkva fram um þrjátíu ár í erfða- framförum og nýta þær framfarir sem holdanautabændur í Evrópu hafa verið að vinna að á þessum tíma,“ segir Bessi. Á þessu ári hafa angus-kvígur fæddar á árinu 2019 borið 16 lifandi kálfum á einangrunarstöð Nautís á Stóra-Ármóti, 10 kvígum og 6 naut- kálfum. Fara að selja kvígur til bænda Enn er unnið að því að byggja upp stofn af arfhreinum angus-kvígum á Stóra-Ármóti. Þar eru nú 26 kýr og kvígur. Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Nautís, segir að eftir sé að ákveða hversu margar kýr verði þar til ræktunar en fljótlega verði farið að selja kvígur til notk- unar hjá bændum. Síðustu árin hafa nautkálfarnir verið seldir til bænda, að loknum einangrunartíma, og eru notaðir þar til undaneldis. Einnig er sæði úr nautum á stöðinni notað úti á búunum og bændur geta fengið fóst- urvísa. Fyrstu blendingarnir sem urðu til með sæðingum frá stöðinni fæddust á útmánuðum á síðasta ári. Þeir ættu að vera orðnir skurðarhæfir á þessu ári. Ef bændur kjósa að slátra þeim fer það að vera möguleiki. Hins vegar segir Bessi í Hofs- staðaseli að þetta séu ekki margir gripir og bændur kjósi að nota þá til kynbóta á býlum sínum fyrstu árin. Reiknar hann ekki með að neyt- endur fari að sjá kjöt af þessum grip- um í verslunum fyrr en eftir tvö til þrjú ár. „Þetta er einkennandi fyrir það hversu langir framleiðsluferlar eru í nautakjötsframleiðslu. Það er mikil fjárbinding í gripum og fóðri því gripirnir verða ekki tilbúnir fyrr en eftir tvö til þrjú ár frá því kúnni er haldið,“ segir Bessi. Hann segir að vaxtarhraði nýja angus-stofnsins muni vissulega hjálpa til. Sveinn bendir á að þessir gripir verði að fá gott fóður til að ná þessum vaxtar- hraða, eins og aðrir gripir sem eigi að gefa af sér góðar afurðir. Menn geti ekki lengur hugsað um afgangs- hey og úthagabeit, eins og áður var gert. Bessi segir að mikið sé framleitt af nautgripakjöti hér á landi en afkom- an sé ekki góð. Holdanautabændur séu að framleiða matvæli fyrir þjóð- ina launalaust. Það gangi ekki enda- laust. Bendir hann á að flutt sé inn nautakjöt fyrir milljarð á ári. „Okkur langar til að fylla upp í það gat á markaðnum. Hægt væri að dreifa þessum milljarði um sveitirnar og á úrvinnslugreinar,“ segir Bessi. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kynbætur Allir angus-kálfarnir eru kolbikasvartir. Hér gengur einn með íslenskri „móður“ sinni. Innflutningur erfðaefnis skilar sér út á búin - Enn nokkuð í að kjöt af angus-nautum komi á markað Andrés Magnússon andres@mbl.is Stjórnmálaflokkarnir eru mögulega nær hver öðrum en ætla mætti þegar kemur að samspili auðlinda, um- hverfis og atvinnulífs. Það á að minnsta kosti við um markmiðin, en meiri áhöld eru um leiðirnar. Þetta kemur fram í málefnaþætti Dagmála Morgunblaðsins, streymis- þætti á netinu sem opinn er öllum áskrifendum, en nú í aðdraganda kosninga eru helstu málaflokkar og kosningamál brotin þar til mergjar. Í þætti dagsins eru frambjóðend- ur þriggja flokka, þau Orri Páll Jó- hannsson frá Vinstri grænum, Teit- ur Björn Einarsson frá Sjálfstæðisflokki og Þórunn Svein- bjarnardóttir frá Samfylkingu, en þau eiga öll raunhæfan möguleika á þingsæti í haust. Ekkert þeirra er þó beinlínis nýgræðingur í stjórnmál- um, Orri Páll er varaþingmaður og aðstoðarmaður umhverfisráðherra, Teitur Björn varaþingmaður og fv. aðstoðarmaður fjármálaráðherra, en Þórunn fv. umhverfisráðherra og þingmaður um 12 ára skeið. Loftslag og breyttir lífshættir Sem fyrr segir er nokkur sam- staða um markmiðin, sem felast í því að blása lífi í atvinnulíf og verðmæta- sköpun eftir kórónuveiruna, en ekki er jafnmikill samhljómur um hvern- ig það verður best gert. Teiti Birni þykir þannig holur hljómur í mál- flutningi Vinstri grænna, sem boði aðgerðir í loftslagsmálum en láti ætl- uð náttúruverndarsjónarmið trompa það allt að nauðsynjalausu. Orri Páll andæfir því, segir að vel megi láta þetta fara saman og minnir á að í náttúruvernd felist verðmætasköp- un. Þórunn telur að vandamálin megi leysa og að það verði að gera, m.a. með því að tryggja orkuöryggi allra landsmanna. Fulltrúar vinstriflokkanna nefna að markmið í loftslagsmálum út- heimti breytta siði borgaranna. Orri Páll bendir á að í faraldrinum hefðu t.d. margir komist að því að þeir þyrftu ekki að ferðast til útlanda, net og önnur tækni gætu komið í stað- inn. Bæði hann og Þórunn segja sömuleiðis að almenningur ætti að minnka neyslu sína. Teitur Björn tel- ur það óþarft markmið, að Íslend- ingar hafi einmitt öfundsverða kosti í loftslagsmálum, svo sem orkuskipti, án þess að fórna lífsgæðum, hærri launum og ámóta. Samstarfsmöguleikum fjölgar Þegar talið berst að afstöðumun flokkanna og samstarfsmöguleikum að loknum kosningum nefnir Orri Páll að núverandi stjórnarsamstarf sýni að vel sé hægt að vinna þvert á hið pólitíska litróf, sem yrði til eft- irbreytni þegar flokkum fjölgaði. Þórunn Sveinbjarnardóttir fellst á að Samfylkingin geri ekki ágreining við Sjálfstæðisflokkinn í öllum mál- um og útilokar ekki samstarf við hann með sama hætti og formaður Samfylkingarinnar hefur gert. Hins vegar undirstrikar Þórunn að flokk- ur hennar stefni að myndun „miðju- vinstristjórnar eftir þessar kosning- ar. Sjálfstæðisflokknum er ofaukið í slíkri ríkisstjórn.“ Teitur Björn segir að það sé kjós- enda að vega og meta kostina, sem í boði væru. „Það er flokkanna að koma með skýra sýn til ákveðinna verkefna, sem þarf að leysa til far- sældar fyrir þjóðina. […] Það er það sem skiptir máli hér. Það eru verk- efni sem snúa að loftslagsmálum, nýtingu auðlinda sem skapa störf, það eru heilbrigðismálin þannig að fólk fái bestu þjónustu sem völ er á, uppbygging innviða og annað slíkt. Sjálfstæðisflokkurinn útilokar að sjálfsögðu ekki – af virðingu við kjós- endur og lýðræðið – samstarf við einn eða neinn til þess að leysa verk- efnin til heilla fyrir þjóðina.“ Auðlindir, umhverfi og atvinnulíf - Samhljómur um markmið en deilt um leiðir - Áhersla lögð á framlag Íslendinga í loftslagsmálum - Vinstriflokkar hvetja til minni neyslu og færri utanferða - Fjölgun flokka kalli á sáttfýsi og samstarf Morgunblaðið/Hallur Dagmál Verðmætasköpun og atvinnumál eru í deiglu kosningabaráttunnar. Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Með breytingu á vinnulagsreglum Mannanafnanefndar, sem samþykktar voru á fundi hennar 1. júlí sl. teljast tökunöfn nú gjald- geng þótt þau séu ekki rituð í sam- ræmi við almenn- ar íslenskar rit- reglur, svo lengi sem þau hafi unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið þarf þó að taka ís- lenskri eignarfalls- endingu og má ekki vera barni til ama. Sá hluti reglnanna sem snýr að hefð getur þó vafist fyrir fólki, að sögn Að- alsteins Hákonarsonar, málfræðings og formanns mannanafnanefndar. „Grundvallaratriðið sem hefur vald- ið fólki dálitlum ruglingi er að nafn geti verið heimilt ef það er talin hefð fyrir því, þótt það sé ekki ritað í samræmi við almennar íslenskar ritreglur,“ seg- ir hann. Samkvæmt fundargerð nefndarinn- ar um breytingar á vinnulagsreglum frá 1. júlí sl. telst nafn hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir eftirfarandi skilyrðum: Það er borið af a.m.k. 15 Íslending- um. Það er nú borið af 10-14 Íslending- um og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri. Það er nú borið af 5-9 Íslendingum og hinn elsti hefur náð a.m.k. 60 ára aldri. Það er nú borið af 1-4 Íslendingum en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 eða fyrr og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár. Frá því að vinnulagsreglunum var breytt hefur mannanafnanefnd sam- þykkt fjölda eiginnafna með erlendri stafsetningu, þar á meðal nöfnin Ant- ónio, Casandra, Octavius, Lissie, Sa- rah. Mannanafna- nefnd að linast - Samþykkir nú fleiri tökunöfn en áður Aðalsteinn Hákonarson Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.