Morgunblaðið - 01.09.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2021
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Þótt landamæri hafi opnast og ein-
hverjir leitað út fyrir landsteinana í
sumarfríinu, voru enn fleiri sem
ákváðu að ferðast innanlands þetta
sumarið. Þá er mikilvægt að einka-
bíllinn sé í stakk búinn fyrir lengri
ferðalög. Bílaleigur fengu líka
ákveðna uppreisn með fjölgun ferða-
manna.
Bjarki Harðarson, eigandi bíla-
verkstæðisins Bílson, er gamal-
reyndur í bifreiðaviðgerðum að eigin
sögn. Hann telur augljóst að heims-
faraldurinn hafi haft mikil áhrif á
eftirspurn innan greinarinnar. „Um-
ferðin snarminnkaði og bílar voru
jafnvel kyrrstæðir. Svo fór boltinn
að rúlla af stað í júlí en þá voru bif-
vélavirkjar margir í fríi.“ Hann segir
að það muni taka fram á haustið að
ná jafnvægi í spurn eftir viðgerðum á
bílum en í dag er víða löng bið eftir
tíma.
Starfsmenn á bifreiðaverkstæðun-
um FYRR og Eðalbílum taka undir
það að eftirspurn viðgerða hafi auk-
ist. Biðtími eftir tíma á verkstæði
Eðalbíla slagar til að mynda upp í
sex vikur. Þeir segjast einnig finna
fyrir því að nú, þegar fólk hefur
ferðast minna til útlanda, hafi það
meira fé milli handanna til að eyða í
innanlandsferðir sínar. Þá er mikil-
vægt að bíllinn sé í standi. Margir
hafi nýtt tímann í sumar til að ráðast
í viðgerðir sem hafa setið á hakanum
í dágóðan tíma. Við það verða við-
gerðirnar yfirgripsmeiri og lengist
biðin eftir tíma á verkstæði um leið.
Ekki öll verkstæði finna fyrir
þessari auknu eftirpurn en víða, þá
sérstaklega á minni og sjálfstæðum
verkstæðum, er ekki nema viku til
tíu daga bið, sem verður að teljast
nokkuð heðfbundið.
Allt að sex vikna
bið eftir viðgerð
- Eytt í bílinn í stað utanlandsferða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verkstæði Eftirspurn jókst í júlí en
þá voru margir bifvélavirkjar í fríi.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Frá því byrjað var að úthluta hlut-
deildarlánum síðla árs á seinasta
ári hafa verið samþykktar alls 470
umsóknir að fjárhæð 3,9 milljarðar
króna. Þessar upplýsingar fengust
hjá Húsnæðis- og mannvirkja-
stofnun (HMS) í gær.
Hlutdeildarlánum er ætlað að
hjálpa fyrstu kaupendum undir
ákveðnum tekjumörkum að brúa
bilið við fasteignakaup. Hefur ver-
ið jafn og stöðugur áhugi á þessum
lánum allt til þessa en úthluta ber
hlutdeildarlánum í sex áföngum á
ári. Um þessar mundir er verið að
leggja lokahönd á fjórðu úthlutun
ársins og í dag verður opnað fyrir
umsóknir í fimmtu úthlutun, sem á
að verða lokið 15. október.
Samkvæmt nýjustu tölum HMS
hefur 112 umsóknum um hlut-
deildarlán verið synjað og um-
sóknir þar sem umsækjandi hefur
hætt við umsókn eða ekki skilað
gögnum eru 180 talsins. Af 470
samþykktum umsóknum er búið
að greiða út hlutdeildarlán til 218
umsækjenda að andvirði 1.863
milljónir kr.
Af þeim umsóknum sem sam-
þykktar hafa verið eru 244 vegna
kaupa á íbúðum á höfuðborgar-
svæðinu, 180 umsóknir eru frá
vaxtarsvæðum utan höfuðborgar-
svæðisins og 46 umsóknir vegna
íbúða á landsbyggðinni utan vaxt-
arsvæða. Skv. upplýsingum blaðs-
ins mun vera til skoðunar hvort
reynslan af veitingu hlutdeildar-
lána gefi ástæðu til að útvíkka þau
enn frekar.
470 umsóknir samþykktar
- Tæpir 1,9 millj-
arðar verið greidd-
ir í hlutdeildarlán
Heildarfjöldi samþykktra hlutdeildarlána
Skipting eftir svæðum Heimild: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Alls hafa verið
samþykktar 470
umsóknir að
fjárhæð
3,9 ma.kr.
frá því
byrjað var að út-
hluta hlutdeildar-
lánum síðla árs 2020
*Höfðuðborgarsvæðið; þ.e. Garðabær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Reykjavíkurborg
og Seltjarnarnesbær. *Vaxtarsvæði utan höfuðborgarsvæðisins; þ.e. Akraneskaupstaður, Akureyrarbær, Grinda-
víkurbær, Hveragerðisbær, Reykjanesbær, Sveitarfélagið Árborg og Sveitarfélagið Vogar.
Svæði Fjöldi
Á höfuðborgarsvæðinu* 244
Á vaxtarsvæðum utan
höfuðborgarsvæðisins** 180
Á landsbyggðinni utan
vaxtarsvæða 46
Samtals 470
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum á lokametrunum að klára
húsið. Fólk mun sjá nokkrar breyt-
ingar hér en við höldum samt í
gamla andann,“ segir Björgvin Sig-
valdason, verkefnastjóri í Iðnó.
Hið fornfræga menningarhús
Iðnó við Tjörnina í Reykjavík verður
opnað á ný síðar í mánuðinum. Hús-
inu var lokað í maí í fyrra þegar ljóst
þótti að ekki væri grundvöllur fyrir
áframhaldandi rekstri vegna sam-
komutakmarkana af völdum kór-
ónuveirunnar. Veitingamaðurinn
Guðfinnur Sölvi Karlsson, sem með-
al annars rekur Prikið og Hressing-
arskálann, tók við rekstri Iðnó á
dögunum og þeir Björgvin ætla sér
að hefja húsið til vegs og virðingar á
ný.
„Þetta verður opið menningarhús
með kaffi og veitingaþjónustu eins
og kveðið er á um í lögum hússins,“
segir Björgvin. „Húsið verður opið
öllum og hingað geturðu komið og
fengið þér kaffi. Svo verða hér fjöl-
breyttir viðburðir, það er ótrúlegt
hvað þessi stærð af húsi hentar
mörgum viðburðum. Ég sé fyrir mér
að hér verði allt frá tattúfestivölum
til danssýninga og tónleika.“
Ætla að gera sögu hússins
hátt undir höfði
Iðnó, eða Iðnaðarmannahúsið eins
og það var upphaflega nefnt, var
reist árið 1896. Leikfélag Reykjavík-
ur hóf starfsemi sína í húsinu ári síð-
ar og hafði aðsetur þar fram til árs-
ins 1989 er það flutti í
Borgarleikhúsið. Auk þess að hýsa
leiksýningar var Iðnó lengi eitt
helsta samkomuhús Reykjavíkur.
Heimastjórn var fagnað í húsinu ár-
ið 1904 og húsið þótti hæfa heim-
sóknum konungs hingað til lands.
„Sagan er merk en húsið hefur
gengið í gegnum nokkrar breyt-
ingar, misgóðar. Við munum gera
sögu hússins hátt undir höfði með
myndum á kaffihúsinu,“ segir Björg-
vin.
Stefnt er að því að formleg opnun
hússins verði 18. september en fram
að því verða nokkrir viðburðir
haldnir þar. Þar á meðal eru við-
burðir á Bókmenntahátíð í næstu
viku.
Hefja Iðnó til
virðingar á ný
- Menningarhús opnað á næstu vikum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýir tímar Hið fornfræga samkomuhús Iðnó verður opnað á ný innan tíðar.
Senn haustar, og einhverja nóttina koma skógarþrest-
irnir að tína reyniberin af trjánum, eins og Vilborg
Dagbjartsdóttir orti. En þangað til er enn stundum
óhætt að ferðast á tveimur jafnfljótum án þess að fá á
sig nokkurn regndropa, eins og þessar tvær stúlkur
gerðu í Reykjavík í gær, með ólíkan farangur þó.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ganga með ólíkan farangur inn í haustið